Vísir - 09.08.1922, Page 2
4
VISIR
Vlljum selja mjös öcat^rt
nokknð af þaMpappa,
eem hefur vöknað og hafa ystu lögin þvl troanað dálitið. Að
öBru leyti er pappinu jafngóður.
Norðmenn og Portugal
Danska blaðið Berl. Tidende,
sem hefir orð á sér að flytja
réttar fréttir, flytja eftirfarandi
simskeyti frá Kristjaníu, um
þau áhrif, sem stífni Norð-
manna i verslunarsamningun-
um við Pyrenearíkin, hefir haft
í för með sér:
Flestöll hin norsku skip, er
nú sigla til Portugals, verða að
sigla undir fölskum fána, og er
þá venjulegast notaður fáni hins
nýja frístaðar Danzig. Ef skip-
in gera þetta ekki, fá þau eng-
an flutning frá Portugal vegna
hinna háu útflutningsgjalda, er
Portugalar hafa lagt á allar vör-
ur, sem eiga að fara um borð
í norsk skip. Öll verslunarvið-
skifti milli Portugals og Nor-
egs eru nú í kalda koli, og Portu-
galar eru sem óðast að senda
skip til fiskveiða hjá New-
Foundland, til þess að fylla það
skarð, er verður i innflutnings-
vörum, þá er norski saltfiskur-
inn er alveg útilokaður, svo sem
nú er. Hafa Portugalar þegar
sent 80 skip til fiskveiða þang-
að vestur.
Áfengisskip.
pað hafa komið fyrir tvö
merkileg mál hér á landi upp
á síðkastjð. Tvö skip, er hingað
lcomu með áfengisfarm, sem i
bæði skifti var upptækur ger.
Og nú er sagt að þriðja skipið
sé komið með slíkan farm. Vek-
ur slíkt altaf athygli hér í fá-
sinninu, en öðru máli er að
gegna i hinum öðrum Norður-
löndum. þar eru það daglegir
viðburðir, að tekin séu slík skip.
en þó virðist svo, að í Noregi
og Finnlandi kveði hvað mest
að slíku, enda er þar bann. Eru
nú hafnirnar við Eystrasalt
farnar að hafa útibú í Sviþjóð
til þess að eiga hægra með að
koma vörum sínum til viðtak-
anda. Er það fullyrt, að hvergi
sé þó verra en í Strömstað í
Svíþjóð, enda er hægast þaðan
að ná til Noregs um Víkina. Er
það fullyrt á prenti, þótt ólík-
legt megi virðast, að samkepni
sé orðin svo hörð í grend við
Kristjaníu, að margir launsal-
ar fari nú daglega „á hausinn“,
vegna heppilegra innkaupa ann-
ara frá pýskalandi. Til marks
um þetta er það, að fyrir mán-
uði var hver pottur af spiritus
seldur á kr. 1.60 utan við landa-
mæri Noregs og Sviþjóðar, en
á fjórar krónur, ef hann var
fluttur heim til kaupanda i
Kristjaníu.
Danir hafa jafnvel’ekki far-
ið varhluta af þessum ófögn-
uði, og hafa margir farmar ver-
ið gerðir upptækir þar, sérstak-
lega í Grenaa, og áttu þó flest-
ir að fara lengra eftir skips-
skjölunum.
Heimsstyrjöldin
1914—1918
og eftirköst hennar,
Samtíma frásögn.
Eftir porst. Gíslason.
Bók, sem svo heitir, er nú að
koma út og er fyrsta hefíið full-
prentað, 192 bls. í sama broti
og Skírnir ðg Eimreiðin, og
kostar kr. 5,50.
Bókin er á þann hátt saman
sett, að þar eru prentaðar upp
yfirlitsgreinar þær, sem birtust
í Lögréttu um ófriðinn jafn-
framt þvi sem viðburðirnir
gerðust, en svo eru í sérstökum
köflum inni á milli sagðar
merkilegustu nýungar, sem með
símfregnum og blöðum bárust
um ófriðinn, og með þvi reynt
að ná sem mestu samliengi í
frásögnina.
þetta er samtíma frásögn. Sá,
sem skrifar, veit ekki lyktir eða
afleiðingar þeirra viðburða, sem
hann lýsir, þótt lesandanum sé
nú hvorutveggja kunnugt. Eng-
ar breytingar eru gerðar á frá-
sögninni með þeirri hugsun, að
hún grípi fram fyrir sig í tím-
ann eða rás viðburðanna, þvi
þá hefði verkið orðið alt ann-
að frá upphafi til enda. Dóm-
arnir um heimsstríðið koma
því hér fram eins og þeir féllu
meðan viðburðirnir voru að
gerast.
Ástæðan til þess, að bókin
kemur fram, er sú, að eg tel
ekki cinskisvert, að menn eigi
aðgang að sögu lieimsstyrjald-
arinnar á einum stað á okkar
máli. Ekkert íslenskt blað né
tímarit fýlgdi viðburðum ófrið-
arins frá upphafi til enda á þann
hátt, að þar væri alt af öðru
hvoru reynt að skýra þá og
tengja þá saman í fasta keðju,
nema Lögrétta,. svo að frásögn
um þessa viðburði er ekki ann-
arstaðar til á íslensku máli í
nokkru samhengi. En óað-
Hvers vegna ern ílestar n^J
ar tolfrelöar meö Goodyear
nringi?
&i þri sið þeir m bastir.
Reyniö Þessa agœtu nrlngl.
Verðið lsekkað enn.
IJmboðsmœma
Jöh. Olafsson & Co.
Rnllastativ
Pappírspokar % 6—ro kg.
Pappír i rúllum, 2 teg.,
20—40—57 ctm.
Pappír í rísum 33 X 39
59 X 76 52 X 63 ctm. hv. &
brúnn. — Smjörpappír. —
WC-pappír.
KaupiC þar sem ódýrast er.
HERLUF CLAUSEN,
Síxni 39. Mjóstræti 6.
gengilegt er þetta efni til lest-
urs i blaðadálkum, innan uni
margslconar annað efni, og auk
þess halda nú fáir fréttablöðum
saman, svo að það, sem að eins
er þar skráð, fellur fljótt i
gleymsku. En viðburða þeirra,
sem hér er frá sagt, mun lengi
verða minst, og verður því varla
þarflaust talið, að íslendingar
eigi aðgang að heildarfrásögn
um þá á sínu máli
pað mun láta nærri, að verk-
ið verði um 1000 bls., eða 5
hefti á stærð við það, sem nú
er út komið. Verður þá bókin
öll milíi 20 og 30 kr. Gert er
ráð fyrir, að myndir af nafn-
kunnustu mönnum ófriðarár-
anna og fleiri myndir, er koma
við sögunni, fylgi síðasta heft-
inu. XJpplagið er lítið og bók-
in seld svo ódýrt, sem framast
er kostur. peir, sem gerast á-
slcrifendur i ujxpliafi, og borga
hvert hefti um leið og það kem-
ur út, fá það fyrir kr. 5,50. Bú-
ast má við, að verð bókarinn-
ar fullgerðrar verði mun hærra,
Menn fá heftin keypt og af-
hent lijá útgcfendunum, herra
Steindóri Gunnarssyni forstjóra
Félagsprentsmiðjunnar, og höf-
undinum, og hjá' þeim geta
haenn einnig skrifað sig fyrir
bókinni.
Titilblað, efnisyfirlit og for-
máli koma ekki fyrr en bókin
er fullgerð.
porst. Gíslason.
Trúlofun.
Síðastl. sunnudag opinberuðu
trúlofun sína, ungfrú pórhildur
Briem, dóttir Páls sál. Briem
amtmanns, ög stud. jur. Theó-
dór Líndal.
Veðrið í morgun
Hiti í Rvík 10 st., Vestm.eyj-
um 9, ísafirði 9, Akureyri 12,
Seyðisfirði 7, Grindavík 11,
Stykkishólmi 12, Grímsstöðum
10, Raufarhöfn 8 Hólum í -
Hornafirði- 10 st., pórshöfn í
Færeyjum 8 st., Kaupmanna-
höfn 14. Bergen 13, Tyneinouth
12, Leirvík 12, Jan Mayen 4 st
Loftvog hæst (768) fyrir norð-
vestan land. Kyrt veður. Horf-
ur: Svipað veður.
Gullfoss
fór frá • Kaupmannahöfn í
gær. Farþegar um 40.
Fram, I. fl.
Æfing í kvöld kl. 7%.
Botnía
kom hingað í gærkveldi og
fer liéðan kl. 12 á sunnudags-
kvöldið, norður um land til út-
landa.
fjá iÍeindóFÍ
fást altaf bestar og ódýr-
astar blfreiðlr i lengri og
skemmrl fcrðalög.
Símar 581 og 838,
SteincLör
Hafnarstræti 2 (horniö).