Vísir - 11.06.1923, Blaðsíða 2
VlSIR
Sfmskeyti
Ivhöfn 10. júní.
Samningar pjóðverja
og bandamanna.
Frá Berlín er símað, að pjóö-
verjar geri sér vonir um, að
Bretar finni einhver ráð til þess,
að fá samninga milli lianda-
manna og pjóðverja upp tekna,
þánnig að vopnahlé komist á í
Ruhr. Vorwárts virðist vera að
greiða fyrii- því, að mótþróanum
í Ruhr verði hætt.
Frá París er símað, að sendi-
herra ráðstefnan hafi samþykt,
að bandamenn 'taki aftur upp
eftirlitsstarfsemi sína með fjár-
réiðum þýskalands.
Grikkir og Tyrkir.
Frá Aþenu er símað, að full-
trúum Grikka á Lausanne-ráð-
stefnunni hafi verið gefið um-
boð til að semja sérfrið við
Tyrki, þó því að eins, að banda-
rnenn 'samþykki.
Khöfn, 11. júní.
Bylting í Búlgaríu.
Símað er frá Sófiu, að sam-
særisflokkur varaherf oringja
liafi stéypt stjórninni af stóli og
varpað ráðherrunum í fangelsi.
Ný stjórn er sest að völdum og
skipa hana allir andstæðinga-
flokkar gömlu stjórnarinnar,
nema kommúnistar. Landslýður
tekur byltingunni með ró og
stillingu.
Bretar taka vel skaðabóta-
tilboðum pjóðverja.
Blaðið Times segir, að bresk-
ir fjármálamenn telji skaðabóta-
tilboð pjóðverja samviskusam-
iega gert í alla staði og i fullu
samræmi við getu pjóðverja. —
Ef bandamenn geta ekki orðið
saminála um, hvernig þeir eigi
að svara boði pjóðvérja, þá legg-
ur Times til, að breska stjórnin
athugi, hvort hún sjái sér eigi
írert að gera sérstakan samning
við þjóðverja. Stjórnir ítala og
Bandarikjanna eru á sama máli
eins og brcska stjórnin í þessu
efni.
Rússastjórn
verður við kröfum Breta.
Fyrir skömmu voru horfur á
því, að breska stjórnin mundi
slíta, viðskiftasambandi við
Rússland, og óttuðust margir, að
þá kynni að draga til styrjaldar
niilli þessara stórvelda. Hefir
Vísir nýlega flutt úldrátt úr
j ákæruskjali því og úrslitakost-
i um, sem Curzon lávarður sendi
| Rússum, en svar Rússa var á þá
j lcið, að breska stjórnin taldi það
! óviðunandi með öllu. jV> fór svo,
; að líún lengdi frest þann, sem
Rússum var gefinn til andsvara,
og nú er nýtt tilboð komið fra
Rússum, og virðist svo sem þeir
vilji nú alt til vinna að halda
vináttu Breta og við'skiftasam-
bandi við þá. Krassin, fulltrúi
Rússa i London, afhenti Curzon
lávarði þessa síðari orðsendingu
og fer hér á eftir útdráttur úr
henni: —
Rússastjórn er þ'að gleðiefni,
að breska þjóðin hefir greinilega
látið í ljós þann vilja sinn, að
vernda friðinn og afstýra frið-
slitúm við Rússland. pað eilt,
að framlengdur hefir verið úr-
slitafresturinn til andsvara af
Bússa hálfu, vekur þær vonir,
að enn megi komast að samn-
ingum og girða fyrir afleiðing-
ar, sem verða mundu, ef slitn-
aði upp úr viðskiftasambandi
landanna.
Rússast jórn her kvíðboga fyi-
ir þvi, að friðnum muni verða
hætt, ef slitnar upp úr sambandi
þvi, sem verið hetir milli Brct-
lands og Rússlands. Ef svo færi,
muntli mjög erfitt að vernda
i friðinn og mundu mannkyninu
þá verða búnar óteljandi þraut-
ir. pá mundi og stjórnarfars-
legu jafnvægi verða hætt, en
ágengir hernaðarflokkar allra
landa fá byr undir báða vængi,
gúmmílímið komiö aftur.
Jöh. 01a,ís8on &■ Co,
og jafnvel fara sinna ferða, án
þess að breska stjórnin fengi við
þvi spornað, -
Ráðstjórnin yilLekki gefa hina
minstu átyllu til þess að henni
verði kent um, ef svona kynni
að fara, og er þess vegna fús til
þess að bera fram nýjar iviln-
anir.
Samkvæml þvi er stjórn Rúss-
lands fús til þess að gera þegar
i stað samning við bresku stjórn-
ina um veiðar í norðurhöfum,
og leyfa breskum borgurum
veiðirétt utan þriggja-milna
landhelgislinunuar, þangað til
að deilumáli þessu verður ráð-
ið til lykta, en það skal gert hið
allra bráðasta á alþjóðaþingi.
Stjórnin vill og greiða þær
skaðabætur, sem krafist hefir
verið í þessu máli.
í öðru lagi er stjórn Rússlands
reiðubúin til þess að grcijia bæt-
i ur fyrir aftöku Mr. Davisons og
; fyrir handtöku blaðakonunnar
; frú Harding, þó með því l'ororði,
að þessi tilslökun má alls ekki
: skiljast svo, að stjórnin telji að
refsingarákvæðunum hafi rang-
lega verið beitt gegn þessum
njósnurum, því að glæpir þeirra
voru fullsannaðir með löglegri
rannsókn, og dómunum var
fullnægt áður en verslimar-
samningur Breta og Rússa var
undirritaður, og þess vegna geta
þessi mál ekki orðið til þess að
ógilda verslunarsamninginn.
pá vill Rússastjórn, að valdir
séu fulltrúar beggja rikja til
þess að ræða um þær sakargiftir,
sem bornar hafa verið á þá um
undirróður gegn Bretum í Aust-
urlöndum; vilí stjórnin gera
þetla til sátta, en lýsir jafnframt
yfir því, að allar ákærur gegn
sér i því efni, séu algerlega til-
efnislausar.
Rússastjórn er að sjálfsögðu
i'ús til þess að taká til greina all-
ar vinsamlegar umkvartan-
ir frá Brctastjórn og rannsaka
þær gaumgæfilega, gegn því, að
Bretar geri þeiin sömu skil.
Svo er að sjá af breskum blöð-
um, að svar þetla þyki vel við
unandi og sættir muni takast
nvð Bretum og Rússum.
I
| £Lrir&r?M
Gullfoss
fór héðan kl. 4 í gær. Meðal
j farþega voru: Kjartan Gunn-
iaugsson, kaupm., Sig. Sigurðs-
son, ráðunautur, Jón Brynjólfs-
son, kaupm., frk. Sigriður Árna-
dóttir, kenslukona, frk. Sigríður
Magnúsdóttir, lijúkrunarkona,
frá Vífilsstöðum, Sveinn M.
Sveinsson, framkv.stj., Magnúa
hankastj. Sigurðsson og fru,
Monberg verkfr., Páll Eggert.
Ölason, prófessor, frú Vellesen,
frú Guðrún Eymundsdóttir, Ein-
ar j^orgilsson, kaupm., frú Ásta
Ilermannsson, frú Sigriður
Fjeldsted, Frederiksen, kaupm.
o. fl.
BifreiðarSlys.
1 gær var bifreið að fara upp
hrekkuna suður úr Hafnarfirði,
hlaðin ungu fólki, og vildi þá
svo til, að vélin stöðvaðist, en
bifreiðin seig aftur á bak undan
breklcunni, þangað til hún kom
á lækjarbrú þar fyrir neðan og
braut handriðið og valt yfir sig
niðnr i lækinn. En svo vel tókst
til, að fólk hafði áður stokkið út
lir hifreiðinni og sakaði ekki.
Bifreiðarstjórinn einn var eftir
og varð undir bifreiðinni, en sak-
aðf ekki, og þótti sérstök lieppni,
því að bifreiðin sjálf brotnaði til
muna.
Veðrið í morgun.
Hiti í Revkjavík 8 st., Isafirði
7, Akureyri 11, Seyðisfirði 8,
Grindavík 9, Stykkishólmi 9,
Grimsstöðum 8, Hólum í Ilorna-
firði 8, pórshöfn i Færeyjum 6,
lvaupmannahöfn 12, Leirvik 8,
Jan Mayen 0, Mývogi í Græn-
landi -í- 3 st. Loftvog lægst fyrir
vestan land. Suðlæg átt, hæg. —
Horfur: Vaxandi suðlæg átt.
Knattspyrnunni
lauk svo í gærkveldi, að jafn-
tefla varð með Val óg Víkingi,
2 : 2. Úrslitakappleikurinn milli
K. R. og Frana verður annað.
kvöld kl. 9.
E.s. Sirius
kom á laugardagskveld. Með-
al farþega frá útlöndum voru
frú Kristin Jacobson og dóttir
liennar frú Sætersmoen.
Botnvörpungarnir ^
liggja margir hér inni. Hafa
þeir litið aflað undanfarna daga
og mun óráðið, hvort þeir lialdi
áfram veiðum eða ekki.
Trjáfarm
fekk Árni kaupmaður Jónsson
á laugardaginn, en Fredriksen
kaupmaður annan í gær.
„Eva“,
danskt seglskip, kom hingað
i gær með sement og fleira til
liafnargerðarinnar.