Vísir - 30.06.1923, Qupperneq 3
VtiIR
og á þeirri tungu sem auSugust
er allra. MeS þessu haía blöðin
reyndar ekki gert annaS en skyldu
sína; en í þessari veröld eru nú
vanrækslusyndirnar svo ma/rgar,
a'ö maöur er þakklátur þeim sem
vinna skyldur sínar af hendi
Þessvegna er eg þakklátur blöö-
unum. En þó hefir mér þótt nokk- J
nö á skorta og vil því árétta þatS
sem þegar hefir veriö skrifað, en
sem mér virðist a'Ö of lítill gaum-
ur hafi veriö gefiun. í
í fyrra lagi vil eg minna á smæl-
ingjana: — í þessu máli þá sem
hafa ófullkomna þekkingu á
enksri tungu. Þeir mega meö engu
móti sitja heima, þvi a'ð hér er um
alveg sérstakt tækifæri aö ræða til
þess að læra framburð enskunn-
ar. Það er fyrir framburöinn, að
Miss Heepe er fræg oröin, en nú
er það alkunna, að fyrir þá sem
lært hafa erlent mál af Ijókum eöa
í skólum, er þeim mun auðveldara
■að skilja það sem það er betur
borið fram. Því munu þau eyru,
sem lítt eru æfð, eiga ótrúlega auð-
velt með að grípa orðin þegar
Miss Heepe ber þau fram, og þó
hægara með það síöasta kvöldið
en hið fyrsta. Eftir því sem frá
hefir verið skýrt, á aðgöngumiði
að hverjum upplestri ekki að kosta
nema 2 kr. 50 au., eða helming
þess, er sæmilegir kennarar munu
alment taka um klukkustundiná,
og er það því auðsætt að vel er til-
vinnandi að fara í þeim einum til-
gangi að ]æra, ])ótt ekkert sé um
ánægjuna hugsað.
í síðara lagi hefir mér ekki þótt
það nægilega brýnt fyrir mönnum
að kynna sér efnið sjálfir áður en
farið er á upplesturinn. Jafnvel
þótt lesið sé á okkar eigin móður-
máli, njótum við þess betur, ef •
•efnið er okkur fyrirfram kunnugt
•og í fersku minni. En hér eru þeir
langfæstir, sem enskan er eins töm
■og eðlileg eins og íslenskan. Þess
vegna ætti enginn að láta undir
'höfuð leggjast, að kynna sér efn-
ið áður en farið er. Mér hefir ver-
ið sagt, að láðst hafi að sjá fyrir
því, að Hamlet — eitt af upplestr-
arefnunum, og jafnframt hið allra
merkasta — væri fáanlegur hér.
Þetta mun ekki rétt. Eg spurði
cftir honum í ísafold í dag og var
sagt að hann væri til, en þó ekki
nema tiltölulega fá eintök. Von-
andi hafa hinar bókaverslanirnar
'hann líka. Síst af öllu má vanrækja
að lesa Hamlet, því hann er erfið-
astur, og mundu þó fæstir vilja
missa af því að heyra hann. Það
■<er sennilegt, að fæst af okkur eigi
þess nokkurntíma kost að sjá hann
n leiksviði, en að heyra hann les-
inn upp af snillingi gengur þvi
næst. Hamlet er af mörgum tal-
inn ágætasta skáldrit heimsbók-
mentanna og það er harla líklegt,
að þess verði langt að bíða, að
Miss Heepe eða hennar jafningi
lesi hann í annað sinn fyrir ís-
lenskum áheyrendum.
Rvík, 28. júní.
Enskukennari.
EIMSKIPAFJELAG
íS LANDS %
V REYKJAVÍK íá
E.s. GULLFOSS
fer til Vestfjarða á morgun, 1,
júlí, kl. 2 síðdegis.
Skipið fer héðan 10. júlí beint
til Aalborg og Kaupmannahafnar.
E.s. GOÐAFOSS
fer héðan vestur og norður um
land til útlanda á þriðjudag, 3.
júlí kl. 2 síðd.
E.s. LAGARFOSS
fer héðan 5. júlí til Austfjarða,
Hull og Leith.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, síra Ste-
fán M. Jónsson frá Auðkúlu. K'l. 5
síra E. Hoff (dönsk guðsþjón-
usta).
í fríkirkjunni hér kl. 2, síra Árni
Sigurðsson; kl. 5, síra Kjartan
Helgason.
í Landakotskirkju: Lágmessur
kl. 6 og kl. 7 árd. Hámessa kl. 9
árd. Engin síðdegisguðsþjónusta.
Dánarfregn.
Látin er á Vífilsstöðum 26. þ. m.
Karítas Jónsdóttir, systir Jóns
Auðuns Jónssonar og þeirra syst-
kina. Likið verður flutt til ísa-
fjarðar á Es. Goðafoss.
Veðrið í morgun.
Hiti i Reykjavík 10 st., Vest-
mannaeyjum 9, ísafirði 9, Akur-
eyri 12, Seyðisfirði 7, Grindavík
12, Stykkishólmi 11, Grímsstöðum
9, Raufarhöfn 8, Hólum i Horna-
firði 12, Þórshöfn í Færeyjum 10,
Kaupmannahöfn 11, Björgvin 8,
Jan Mayen 3, Mývogi í Grænlandi
2 st. — Loftvog lægst fyrir vestan
land. Kyrt veður. Horfur: Kyrt
fyrst um sinn. Suðlægur á Vestur-
landi, seinni partinn.
Kvenréttindafélagskonur.
Visir er beðinn að minna konur
úr Kvenréttindafélaginu á, að áríð-
andi sé að þær mæti allar í kvökl
í Iðnskólanum. Kaffi o. fl. til
skemtunar.
Hjúskapur.
23. þ. m. voru gefin saman í
hjónaband ungfr. LaufeyTryggva-
dóttir, Óðinsgötu 17 og stud. theol.
Þorsteinn Jóhannesson. Séra Jó-
hann Þorkelsson gaf þau saman.
Brúðhjónin fóru sama daginn aust-
ur að Gullfossi og Geysi.
Skotæfing
í Örfirisey á morgun (sunnud.)
kl. 9 f. hád.
Svanur
fer í kvöld kl. 9 til Búðardals,
fullfermdur vörum.
Annað knattspyxnumót sumarsins
hófst á íþróttavellinum í gær-
kveldi. Áttust þar við K. R. og
yíkingur, og vann K. R. mikinn
sigur, setti 5 mörk, en Vík. ekkert.
Var sóknín þó meiri Víkings meg-
in, leikurinn miklu liðlegri hjá K.
R. — í kvöld keppa Fram og Val-
ur.
Ffá StórstnkaþiDgiBQ.
Qoodtemplarar háðu ársþing sitt
undanfarna daga hér í Reykjavík.
Þingið stóð í 4 daga, oft fram á
nætur. Þetta er fyrsta þingið eftir
afnám bannlaganna til langframa,
sem lögtekið var á síðasta Alþingi.
Sem vonlegt var, kendi nokkurs
hita hjá mörgum stórstúkufulltrú-
unum, út af því hvernig komið er.
og kom sá hiti ljóslega fram á
þinginu, eins og hann hefir kom-
ið fram í stúkunum áður.
Andbanningar hafa stundum
verið að hlakka yfir því, að sá
hiti mundi máske geta leitt tili
sprengingar í Reglunni og í bann-
vinahópnum yfirleitt, en þeir mega
reiða sig á, að ekkert slíkt getur
komið fyrir. Miklu fremur mun
sá hiti verða til að viðhalda eldi
áhugans á þeim viðfangsefnum,
sem framundan eru.
Sú stefna, sem nú var tekin með
samþyktum stórstúkuþingsins, er
áður birt hér í blaðinu í tillögum
þeim sem Davíð Östlund bar hér
upp á almennum templarafundum
víðsvegar um land. Þær tillögur
voru um það:
1) Að kjósendur geri þær kröfur
til þings og stjórnar, að ágóða
áfengisverslunarinnar sé öllum
varið til að leita nýrra mark-
aða fyrir saltfisk, ]iar til ánauð
Spánverja er aflétt.
2) Að binda þingmannefnin lof-
orðum um að fylgja fram þess-
um kröfum.
3) Að hefja fjársöfnun innan
Reglunnar, til að standast
kostnað við þennan kosninga-
róður, meðal annars með því,
að fá þá til að leggja eins dags
tekjur sínar í þann sjóð.
Ýms önnur mál lágu fyrir stór-
stúkuþinginu, auk hinna venjulegu
reikningsskila og áætlana. 'Var til
dæmis umdæmisstúkunum falið að
sjá um útbreiðslu Reglunnar sinni
í hverjum fjórðungi. í því skyni
á að stofna umdæmisstúku á Aust-
fjörðum. Svo var ákveðið, að
stækka Templar og gefa út á
kostnað Stórstúkunnar og loks
vom málaleitanir um samvinnu
um bannmálið sendar til Presta-
stefnunnar (Synodus) og Kenn-
araþingsins. Er mikil von um
góðar undirtektir úr báðum þess-
um stöðum, og hugsanlegt er, að
samstarf geti tekist við fleiri stór
og útbreidd félög, svo þau sem
heildir beiti áhrifum sínum í þeirri
baráttu sem í hönd fer.
Stórtemplar var kosinn Einar
H. Kvaran rithöfundur með 34 at-
kvæðum, í kjöri með lionum var
...—' <—■ .......*r •
Sigurbj. Á. Gíslason cand. theol.,
er fékk 30 atkvæði, en Þorvarður
prentsmiðjustjóri Þorvarðsson, er
verið hefir stórtemplar undanfar-
in ár, gaf ekki kost á sér.
Auk þess starfa þessir í fram-
kvæmdanefnd: Pétur Halldórsson,
FIosi Sigurðsson, Pétur Zóphón-
íasson, ísleifur Jónsson, Guðm.
Sigurjónsson, Jóh. Ögm. Odds-
son, Indriði Einarsson, Borgþór
Jósefsson, Þórður Bjarnason og
Þorvarður Þorvarðsson f. stórt.
Stúkum og unglingastúkum hef-
ír hverjum um sig fjölgað um 6
á árinu og nokkur meðlimafjölgun
orðið, einkum í unglingastúkum.
Alls eru meðlimir bæði í stúkum
og unglingastúkum 5375, þar af
ungl. 1907.
Á næsta ári, 1924, verður Regl-
an hér á landi 40 ára gömul. Hún
vay stofnuð á Akureyri 10. jan.
1884, og verður sá dagur haklinn
sem almenn templarahátíð um alt
land. Það verður líka gert í þá
minningu, að næsta Stórstúku-
þing verður haldið á Akureyri að
sumri. P.
Tugamálið.
pað þótti eín liin sjálfsagð-
asta lagasetning þegar tugamál-
ið var lögleitt, enda mætti hún
engum aðfinslum nema ef vera
má. að sumum hafi fundist að
búið að gera fyrir löngu.
Einkennilegt má það því
þykja livað mörgum helst þó
lengi uppi að þrjóskast gegn
þessum lögum sér og öðrum til
óhagræðis. Opinberar stofnan-
ir hafa, sem vænta má tekið upp
nýja málið, og einstakir menn
flestir. En nægilega margir eru
þeir þó, sem eru að bisa við að
halda í gamla málið, til þess,
að mikill ruglingur á sér enn
stað. Tii dæmis má benda á það,
að ýmsir selja ennþá lóðir i fer-
álnum. Er hér ekki einlægt
vankunnáttu til að dreifa, held-
ur smámunasemi. Menn hyggja
væntanlega að þeir geti selt
eitthvað lítið eilt dýrara með
því að nota minni einingu. Op-
inber stjórnvöld ættu að finna
séif skylt að gera enda á þessu
með því að neita að lögfesta
aðra sölu en þá, er fer fram á
grundvelli löglegs mælis og vog-
ar. þetla sýnist sannarlega ekki
ganga neins manns rétti of
nærri, en mundi stuðla að þvi,
að halda uppi réttmætu sam-
ræmi í þessum efnum. Sumir
segja að það valdi stundum
ruglingi á máli í húsagerð, að
timbur sé oft flutt hingað með
ensku máli. En þar sem aðal
timburverslunarlöndin hér nær-
lendis hafa sjálf lögleitt luga-
mál, þá ætti að vera aufðvelt
fyrir þau að afgreiða pantanir
i metrum, sem lika auðvitað
mundi auðsótt.
Sem dæmi þess livað litíð
menn skeyta um löglegt sam-