Vísir - 20.07.1923, Blaðsíða 2

Vísir - 20.07.1923, Blaðsíða 2
VÍSIR IBBimM x Qusew (( Kaupum tLvít o§: blá, töfuskinn Höfflm fyiidiggjandi Mnn ágæta oi óðýra fæðilög „A M O R“ Fjórar stæröir af brúsum. Jöb, Olafsson & Co. Kaupgjaldsmálið. - Frá skrifstofu Félags íslenskra Botnvörpuskipaeigenda hefir blaÖinu borist eftirfar- andi greinargerð: Því hefir verið haldiö fram í Alþýðublaðinu — sem væntanlega talar fyrir munn þeirra, er ráðin hafa haft í Sjómannafélaginu — . aö kaup háseta, jafnvel eins og það var áður en nýji kauptaxtinn gekk í gildi, hafi veriö svo lágt, að ekki sé með nokkru móti hægt að lifa fyrir lægra kaup. Það þykir því hlýða, að gera nokkra grein fyrir því, hvert þetta kaup var, og skal þá jafnframt og til hliðsjónar tilgreint hvernig kaupið veröur eftir nýja kaup- taxtanum. • Á þorskveiðum var mána'Sar- kaupið eftir gamla taxtanum kr. 240.00. Lifrarhluturinn var 25 kr. á tunnuna, og mun hann hafa orð- ið að meðaltali á síðastliðnu ári íyrir 10 mánaða úthald, eins og verið hefir að meðaltali á skipun- um síðastliðið ár ca. 800 kr., eða á mánuði kr. 80.00. Fæðið kostar útgerðarmanninn ca. 4 kr. á dag, kr. 120.00. Mánaðarkaupið þannig alls kr. 440.00. Eftir hinum nýja taxta botn- vörpuskipaeigenda, myndi það hinsvegar verða kr. 400.00. Á síldveiðum var mánaðarkaup- íð eftir ganda taxtanum kr. 400.00 og premia af hverri tunnu af síld " aurar. Ef gert er ráð fyrir að skipið sé að veiðum í 2 mánuði og veiði 6000 tunnur, þá er premían 300 kr. á mann í 2 mánuði, eða á mánuði kr. 150.00. Auk þess eiga hásetar sjálfir þann fisk, sem þeir ciraga, og fá frítt salt í hann. Það er að vísu mjög mismunandi hvað þeir hafa upp úr þessu, en að jafn- aði mun ekki ofreiknað að þeir -háfi fyrir fiskinn á mánuði kr. 50.00. Fæðið kostar ca. 4 kr. á dag kr. 120.00. Mánaðarkaupið þánnig alls kr. 560.00. Eftir hinum nýja taxta l^otn- vörpuskipaeigenda er mánaðar kaupið sjálft 60 kr. lægra, og premían 4 aurar í stað 5 aura, og myndi því mánaðarkaupið sam- kvæmt þvi verða kr. 470.00. í sambandi við þetta skal nú gerð grein fyrir því kaupgjaldi, sem sjálf stjórn Sjómannafélagsjns hefir ákveðið fyrir meðlimi sína við síldveiðar á mótorbátum. Þar er mánaðarkaupið ákveðið kr. 250.00. Fæði kosta hásetar sjálfir, .en premia skyldi vera 5 aurar. Ef gert er ráð fyrir, að bát- urínn veiði 3000 tunnur yfir sild- veiðatímann, og hann er, eins og fyrr, talin 2 mán., þá er premían 150 kr. yfir tímann, eða á mánuði kr. 7.5.00. TTér er því mánaðar- kaupið alls kr. 325.00 eða kr. 235 00 lægra en kaupið eftir gamla taxtanum, og kr. 145.00 lægra en kaupið eftir nýja taxtanum. Það mun ekki tíðkast á mótor- bátum, að hásetarnir geti aflað sér fiskjar aukreitis, nema ef. til vill ef um reknetaveiðar er að ræða, en þá verður líka sildarafl- inn miklu minni og premía þá að sama skapi minni, og kemur það þá nokkurnveginn í sama stað nið- ur. Nú 'mætti ef til vill finna það að þéssum samanbtirði, að fæðið sé of hátt- reiknað á botnvörpu- skipunum, þegar um það er að ræða, hvað hásetar beri úr býtum, því jafnvel þótt það kosti útgerð- armanninn sannanlega svona mik- ið , þá kosti það fæði, sem há- setarnir útvegi sér sjálfir á mót- orbátunum, mun minna. Frá sjón- arniiði útgerðármanna skiftir l'etta vitanlegá ekki máli, þeir verða að fara eftir því, sem þeir borga raunverulega. En sé málið skoðað frá sjónarmiði hásetanna, og með það fyrir augum hvað þeir beri úr býtum, þá mætti reikna fæðið á botnvörþuskipun- :im eftir því, hvað það myndi kosta þá, ef þeir ættu að fæða sig sjálf- ir, og væri þá síst ofreiknað, að j.iað' myndi kosta j)á 70 krónur á máriuði, eða 50 kr. minna en gert er ráð fyrir í útreikningnum hér að ofan. Ef þannig er reiknað, myndu J)á hásetar á botnvörpu- skipunum á síldarveiðum bera úr býtum eftir gatnla taxtanum kr. 510..00. eða kr. 185.00 meira á mánuði en eftir taxta Sjómanna- félagsstjórnarinnar, og eTtir hin- um nýja kauptaxta botnvörpu- skipaeigendanna myndu þeir bera úr býtum kr. 42^.00, eða kr. 95. 00 meira á mánuði en eftir taxta Sjómannafélagsstjórnarinnar. Þegar þetta er athugað, verður mönnum það enn óskiljanlegra, að þessi sama stjórn skuli leggjast á móti taxta bntnvörpuskipaeig- enda, eins og þeir hafa gert, banna öllum að vinna fyrir þetta kaup, ekki einungis sínum eigin með- limum, heldur varua lika. öðrum frá j)ví, mönnum þeim gersam- lega óviðkomandi og óskuld- bundnum, sem fegins hendi vildu taka þessari atvinnu og þessu kaupgjaldi, að hún skuli leggja verkl^ann á skip þeirra manna, er bjóða þannig hærri kjör, en þau, er hún hefir sjálf ákveðið, að hún skuli fyrir þessar sakir beita of- beldi við hafnarstjórnina, og víla jafnvel ekki fyrir sér, að sýna lög- reglunni mótþróa, og leggja hend- ur á hana, — allt þetta er næsta óskiljanlegt, svo vægt sé tekið til orða. Ef athuguð eru nú kaupkjör Jjeirra verkamanna, er vinna í landi, þá verður alstaðar sama upp á teningnutn: Þeir bera miklu. fiotnmálniDg á |árnskip trá International Com- position & Farvefabiik Bergen, er besta tegund sem kægt er aö fá, Birgðir íyiirliggjandi. ÞÓKÐUR SVEIN880N & CO. minna úr býtum en hásetarnir. Kauptaxti félagsins „Dagsbrún" er kr. 1.20 um timann. Sjálfir munu þeir telja sér 11 tíma vinnu á dag i 200 daga ársins, sem sam- svarar 220 króna mánaðarkaupi í 12 mánuði. En sé þessu kaupi dreift á 10 mánuði, þá samsvarar það 264 kr. máuaðarkaupi, og vit- anlega verður jietta fólk að fæða sig sjálft. í sumar er sagt að menn ráði sig til kaupavinnu fyrir 35— 40 kr. á viku, eða h. u. b. 160'kr. á mánuði, auk fæðis. -Sé nú fæðið reiknað 70 kr., eins og gert var hér að ofan, þá samsvarar þetta 230 kr. mánaðarkaupi. Þessir menn bera jivi úr býtum næstum því 200 kr. minna á mánuði, en há- setar á sildveiðum, eftir taxta botnvörpuskipaeigenda. Svona er alstaðar, hvar sem borið er niður: liásetar hafa hærra kaup en nokk- ur önnur stétt verkamanna, og það svo miklu munar. Því skal nú ekki haldið fram, að svo eigi ekki að vera, eða að það sé órétt, að sjómenn hafi hærra kaup. Það er j>vert á móti. Sjómenn hafa á margan hátt slíka aðstöðu, og slík lífskjör, að það virðist ekki nema eðlilegt, áð þeim sé betur launað, en öðrum stétt- um verkamanna. F.11 hitt virðist ó^ðlilegt, að einmitt þeim skuli otað, og jafnvel þröngvað, til qnd-' stöðu og verkfalls, og að reynt skuli vera að fóðra það með því, að þeir geti ekki lifað fyrir það ■kaup, er Jæim býðst nú, jafnvel jió j>að sé miklu hærra en j)að, sem aðrir verkamenn láta sér lynda. Virðist slíkt ekki vera í samræmi við" jafnaðarkenningu þeirra, er róið hafa undir og blásið að sund- urþykkjunni. En það virðist rétt að taka fram enn á ný, að í þessu máli er það ekki aðalatriði, hvert er það lág- mark kaupgjalds, er menn telja sig geta komist af með. Það sem allt veltur á, um þennan atvinnu- veg eins og hvern annan, er hitt, Söfa- og stólafjaðrir margar stærðlr. Afar ódýrar. VERSL B H. BJARNASON hvert kaupgjald hann getur borið. Ef kaupkröfurnar eru settar það hátt, að þeirra vegna, og annars kostnaðar, verður tekjuhalli á rekstrinum, j)á er annað tveggja að atvinnuvegurínn verður að leggjast niður, eða hitt, að kauþ- ið veröur að lækka, ásamt öðrunt þeim kostnaði, sern' við verður ráð- ið. Og svo er nú kornið hag þessa atvinnuvegs, að um þetta tvent verður að velja. Það er nú sjómannanna að skera úr j)ví, hvort þeir telji hag sínurn betur borgið með j)vi, að togaraútgerðin leggist niður, og þeir missi algerlega þá atvimnpeða með hinu, að þeir fari að dæmi annara, og sætti sig við lítið ei-tt lægra kaup en áður, og haldi þá atvinnunni. E11 þegar sjómennirnir fara að ráða þetta riíeð sér, Jiá er j)að æskilegt að þeir geri það sjálfir, an íhlutunar þeirra manna, sem því miður virðast hafa haft of mikil áhrif innan þeirra félags- skapar, óviðkomandi .manna, sem aldrei fara á sjó, og ekkert eiga í húfi, hvernig sem um útgerðina fer. — Garðíir 300 ára. J *, Fyrstu dagana í þessum mánuði hélt stúdentabústaðurinn Regen- sen, eða Garður, sem kallaður er af Islendingum, 300 ára afmæli sitt. A sandsteinstöflu, sem greipt er inn í einn vegginn á Garði ér stofnárið talið 1623. Og til skams tíma hefir Kristjan konungur IV. veriö talinn stofnandi Garðs, þó ýmsir vilji nú eigna næsta fyrir- rennara hans frumkvæðið að því fyrirtæki. Garður hefir um langt skeið ver- ið heimkynni margra íslenskra stú- denta, og mun óhætt að segja, að’ þeir íslendingar, sem völdu sérí Garðvist í stað ])ess að búa ann- ars staðar, hafi best kynst Dön- um og dönsku stúdentalifi. Hafa jafnan búið alt að 12 íslendingum a Garði, 0g fyrr meir fleiri, þang- ' að til hlunninclum stúdenta hqð'm lauk j)ar, með sambandslögímum. I gömlum skrám á Garöi „Kirkju- bókunum" sem svo eru nefndar, finst íslendinga víða getið. Voru þeir allajafna vel látnir í stúdenta- hópnum og kom það fyrir, að þeir, , næðu æðsta tignarsæti Garðbúa,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.