Vísir - 11.08.1923, Side 2

Vísir - 11.08.1923, Side 2
V ISIR Nýkomið: Kaitðflur, ,öaucbL&d^ G^ddavírinn Str&usykur. Símskeyti Khöfn io. á’gúst. Frakkar og Þjóðverjar. SímaS er frá París, aS Frakkar vænti -þess, aS Þjóðverjar muni brá'ðlega gugna og mótstaðan i Ruhrhéraðinu detta úr sögunni. Þess vegna eru nú sérfræöingar Frakka og Belga að gera áætlanir um að hagnýta sem rækilegast auðsuppsprettur Ruhrhéraðsins. - Franska stjórnin hefir mótmælt því að Þjóðverjum verði veitt lán. setn þeir hafa leitað eftir (hjá bandamönnum?) og nema á 500 miljónum gullmarka. Prentaraverkfall í Berlín. Seðlaprentun hindruð. Símað er frá Berlín, að prentar- | ar liafi gert verkfall í morgun og engin blöð verði prentuð, nema j blöð iðnfélaganna. — Ríkisprent- smiðjan verður að hætta vinnu og stansar þá seðlaprentunin, en það getur valdið ófyrirsjáanlegum ■örðugleikum, því- að seðlafúlga ríkisbankans er mjög lítil. Messur á morgun. I dómkirkjunni kl. n, síra Bjarni Þorsteinsson frá Siglufirði. í fríkirkjunni kl. 5, síra Harald- ur Níelsson. í Landakótskirkju: Hámessa kl. 9 f. h. Engin síðdegis guðsþjón- usta. í Hafnarfjarðarkirkju: kl. 1 síðd: Guðsþjónusta. t Viðeyjarkirkju kl. 3, síra Bjaríii Jónsson. Haraldur Sigurðsson hélt síðustu hljómleika sína að þessu sinni í Nýja Bíó í gærkveldi. Verður þeirra nánara getið í næsta blaði. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 12 st., Vest- mannaeyjum 9, ísafirði 10, Akur- eyri 11, Seyðisfirði 12, Grindavík ii, Stykkishólmi 11, Grímsstöðum 10, Hólum í 'Hornafirði 10, Þórs- höfn í Færeyjum 10, Leirvík it, Jan Mayen 4, Mývogi 9 st. ______ Loftvog lægst íyrirsuðvestanland. Suðlægur á suðvesturíándi. Kyrt annars staðar. Horfur: Suðaust- lægur á suðvesturlandi. Hægur sunnan annars staðar. Botnía fer héðan kl. 10 i fvrramálið til Hafnarfjarðar, en þaöan mánu- dagsnótt kl. 12 á miðnætti, norð- ur um land til útlanda. Ljóskerastólpar hafa verið málaðir víðsvegar um bæinn i gær og undanfarna daga. Ekki var frá þessu skýrt í blöðunum, en bréfhólkar settir á sunia staurana með áletruninni: Nýmáláð. En víða var þessa ekki gætt, og ef menn atliuga stólpana, má sjá, að farfinn hefir strokist aí mörgum þeirra, að nieira eða minna leyti. Hafp margir skemt föt sin á jiessu og beðið Vísi að var við þessu. ólöf Halldórsdóttir í Hábæ við Skólavörðustíg, verður níutíu og þriggja ára á mánudaginn. Hún hefir enn fóta- vist, en hefir mist heyrn og sér illa. Hefir þó aldrei þegið af sveit til þessa. —Vist mundi það gleðja gömlu konuna, ef einhver mintist hennar á afmælisdaginn. Bágstatt heimili á Grímsstaðaholti. Æskilegt væri, að sem flestir réttu bágstadda heimilinu hjálpar- hönd. Konan liggur nú á sæng með 4 börn og faðirinn sjúkur á Landa- kotsspitala. Þegar hefir nokkuð gefist á afgreiðslu „Alþýðublaðs- ins“, en betur má ef duga skal. Eru því vinsamlega tilmæli mín, að afgreiðsla Vísis veiti einnig móttöku gjöfum til bágstadda heimilisins. Holtsbúi. Gjaflr tilelIiheimilisinsGrund: Prestur 10.00, Gunna 5.00, Til minningar um frú Þórunni Guðjohn- sen, Húsavík 50.00, Sigríður B. 4.00 Kaffigestir á Ellih. 10.00, P. áheit 5.00, Jón beykir 10.00, Oddur Öl- afsson 10.00, Ónefnd 10.00, En Fremmed 10.00, Stína 4.00, Tii de Gamle 25,00, Áheit í bréfi 1.00, Afhent dagbl. Vísi áheit 10.00, Gömul kona 5.00, Afhent Jóni beyki 10.00, Gjafir á gamalmenna- skemtuninni 468.21. Frá dregst ýms kostnaður 174.58. Eftirstöðv- ar 288.68. Rvík. 4. ágúst 1928. Har. Sigurðsson. HEVEA gúmmiskör þekkjast ekki frá leðurskóm nema við nákvsama athugnn. Eru þyl einu gúmmiskórnir sem binir eru til i heiminum, er fara vel á ía&ti og hafa fall- egt útlit, Hevea gúmmí- skór eru sterkir, vatns- heldir og sériega ódýrir. Láros G. Mnm Skóverslun. m STeskjar, RúsiQnr, Dilur, Fiíjor. fyrirliggjandi. ÞÓBÐUK SVEIN88ON <fe co. Islenska glíman. Islenska glíman er tvímælalaust ein af fegurstu íþróttum, þegar þenni er vel beitt. Hvenær hún liefir myndast verður tæplega sagt, en hvernig hún er til komin, má íremur hugsa sér. Þegar lianda- lögmáliö réði eins miklu í deilu- málum eins og orðavopnið og hver einstaklingur varð að gæta réttar síns og sjá honum farborða af eig- in ramleik með krafti andans, — eöa líkamans, — þá hefir glíman að sjálfsögðu myndast. Meðan hún varð ekki svo alkunn, seni nú er hún orðin, hefir hún — og er jafn- vel enn — ágætt vopn í höndum þess veikari og snarráðari, á móti þem sterka og seinlátari og má sjá þess dænii í íslendingasögum, að til hennar var þá gripið, er við ofurefli var að eiga. Eftir því sem iiandalögmálið missir gildi sitt og deilurnar verða lagalegri, verður glímunnar minni nauðsyn sem Vopns, en þá breytist hún í leik og þann veg hefir hún geymst með þjóðinni. Þegar um líf og dauðn var að ræða og gripið var til henn- ar, er ekki við þvi að búast, að hún hafi verið fögur, — en hún var þörf, og því var hennar neytt. Frá þeini tíma, sem glíman er einungis iðkuð sem leikur, og þá líklega frernur lítt æfð að staðaldri og í vissu augnamiði vissan dag arsins, má oft heyra skemtilegar sögur um það, hvernig sá snar- ráði og kraflaminni leggur að velli sér langtum rneiri kraftamenn. Verður ekki annað séð af þessu, en það, að glíman hafi þá verið minna æfð alment og því hafi hún oftar komið mönnum á óvart en nú. Það kemur og nokkuð til greina, að fegurð glímunnar hefir komið meira í ljós, þegar hún var lcikur, oft milli tveggja einungis, og þar að auki voru áhorfendur fáir. Kappsins hefir minna gætt, ' þegar fáir voru til frásagna um að, liver biöi lægra hlut. Verður því að taka tillit til þessa, þegar talað er um glímuna eins og hún er nú. Það hafa heyrst raddir um það á siðustu tínium, að glímunni væri að fara aftur, en þetta mun, sem betur fer, ekki vera rétt, enn mun ekki svo komið, þótt viðbúið sé, aö svo verði, ef ekki er leitað ein- hverra. ráða. Þegar á alt er litið, mun glímunni miklu fremur hafa farið frani en aftur til þessa. Gall- ipn á fyrirkomulagi því, sem nú er, mun vera sá, að óhæfilega mik- ið tillit er tekið til þess að standa fastur á fótunum, og verður þetta því hættulegra fegurð glímunnar sem þetta má æfa, sem annað; — fer þetta að lokum svo, að risam- ir einir bera sigur af hólmi, eins og kvartað var yfir með réttu hér í blaði þessu fyrir nokkru. Glím- unni hefir í raun og veru ekki far- ið aftur, en með því fyrirkomulagi, sem nú er, getur henni orðið hætt við að hverfa um of að uppruna sínum, og má það ekki verða, meðan hún á að vera fremur leik- ur en vopn. • Þegar glíman var endurvakin fyrir eitthvað tæpum tuttugu ár- um, varð áhugi alþýðu á henni svo mikill, að næstum allir tóku til aö glíma, og var þá vel. Þátt- taka almennings er skilyrði fyrir því, að glíman verði fögur. En þetta mun því miður hafa breytst nokkuð. Lífskilyrði glimunnar er það, að sem flestir iðki hana, jafnt sterkir sem ósterkir, og verður að vinna að því. Því almennari sem þekkingin er, á þessu sem öðru, því minni hætta er á að lenda í ógöngum; það er að mínu áliti eina ráðið, sem hamlað getur því, að risabragurinn einn nái yfirtök- um á glímunni. Flvernig á þá góður glímumað- ur að vera? Því er fljótsvarað: Sterkur, liðugur og drenglynd- ur. Þetta eru aðalatriðin — og öll atriðin. — Sá, sem bú- inn er þessum kostum, er rétt- kjörinn glíniukonungur. Kraftarn- ir einir mega ekki ráða úrslitum. Fimnin ein er ónóg og eintómt drenglyndið, ef ekkert er annað, nægir heldur ekki.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.