Vísir - 17.08.1923, Blaðsíða 3
VlSIR
ÁOðt tipnl
Si?Y CBT
sigarettur.
NaYytut
Cigarettes
WD&H.O.Wills.
Bristol & London
■a \\ 1M535 S5553
Smísöluverð
75 m
iu, 10 st
W. D. & H. O. WILLS,
BRISTOL & LONDON.
Aldurshlutföll.
H. V. um framkomu kaupfélags-
stjórans á Eyrarbakka gagnvart
Landsverslun viröast fautalegri en
svo, aÖ þeim sé vel trúandi. Hvar
mundi hann ætla sér aö fá stein-
olíu, handa sér og viöskiftamönn-
um sinmn, til útgerSar og annar-
ar notkunar, ef ekki hjá Lands-
verslun, sem nú hefir einkasölu
á steinolíu? Þaö er auðsætt, aö
þaö nær ekki nokkurri átt, aö hann
hafi látiö sér koma til hugar „aö
varna því, aö Landsverslunar-olís.
kæmist á Bakkann", eins og H. V.
segir, því aö þaö hlyti aö hafa orö-
iö honum sjálfum hvaö verst. En
af ummælum H. V. er auðsætt, aö
honum er illa viö kaupfélagsstjór-
ann, sem er vitanlega alleinbeittur
andstæöingur hans í stjórnmálum,
og því hefir hann ekkert viljaö við
hann eiga, og „útilokaö" hann
þegar af þeirri ástæðu.
Taugaveikin.
Engir sjúklingar haía bætst vjð
þessa viku og engir dáiö.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík n st., Vest-
mannaevjum 9, ísafirði 8, Akur-
eyri 10, Seyðisfirði 6, Grindavík
10, Stykkishólmi 11, Raufarhöfn
y, Hólum í Hornafirði 9, Þórshöfn
i Færeyjum 10, Björgvin 11,
Tynemouth 11, Leirvík 12, Jan
Mayen 6 st. Loftvog lægst (745)
íyrir sunnan land. Austlæg átt.
Horfur: Noröaustlæg átt.
Bjárni Sæmundsson,
íiskifræðingur. er nýkominn
vestan frá ísafjarðardjúpi. Hann
fór þangað til þess aö safna gögn-
rim um aldur ufsa.
Unglingast. Æskan nr. 1
fer í berjamó næstk. sunnudag
(sjá augl. í dag hér í blaðinu).
Allmikið hey
flytst nú til bæjarins á degi
hverjum, bæöi landveg og sjóveg.
Kvikmyndahúsin.
G a m 1 a B í ó sýnir mjög góða
mvnd, sem heitir: „Ástmey Na-
póleons".
Nýja Bíó sýnir mýnd sem
heitir „Elskendur í eyðiey", mjög
góöa mynd.
Gjöf
til hjónanna á Grimsstaðaholti,
3 kr. frá ónefndum.
Lúðrasveit Reykjavíkur ,
fer skemtiferð upp aö Þyrli í
Hvalfirði á sunnudaginn, ef veð-
ur leyfir. Þeir, sem farseðla kaupa,
eiga ekkert í hættu, þó að ferðin
farist fyrir, því að þá verða seðl-
arnir innleystir.
Mory & Co.,
franska félagið, sem hér hefir
verslað undanfarið, undir forstööu
hr. E. Chouillou, hefir ákveðiö aö
hætta viðskiftum hér, og er hús
verslunarinnar, í Hafnarstræti 17,
til sölu, ásamt öðrum eignum fé-
lagsins.
Hlutaveita
verður haldin á Hofi á Kjalar-
nesi næstkomandi sunnudag, 19,
þ. m.
Esja
fer liéðan í fyrramálið kl. 10
suður og austur um land. Vegna
farþega sem- komast þurfa tíl
Kaupmannahafnar, lætur Eim-
skipafélagið Esju hitta Goðafoss
á Reyðarfiröi, sem fer svo þaðan
samdægurs beint til Kaupmanna-
hafnar. — Útlendur póstur^mur.
einnig verða sendur með Esju héð-
an.
Mishermt
var það í Vísi x gær, að þúfna-
baninn hefði brotið iand á Lága-
felli i sumar. Hann var þar að
verki í fyrra.
Kvittanir.
Fyrir tjald handa Ól. Ólafssyni
kristniboða: Safnbók nr. 2 (Á.
Þ.) 25 kr., nr. 13 (K. P.) 25 kr.
-I- 11 kr., nr. 14 (A. Th.), nr. 15
(G. S. P.), nr. 22 (I. S.), nr. 26
(M. J.), nr. 27 (I. G.), nr. 28 (Á.
P.), nr. 21 (Sandh.), liver 25 kr„
M. Bjarnabæ 10 kr., ól. Eir. 2 kr.;
alls 248 kr.
í kristniboðssjóð: Hannibal 50
kr„ Finnb. 16 kr. (1 kr. á viku),
sr. B. St„ Auðkúlu, 10 kr„ sami
to kr. til Elliheimilisins.
Ennfremur var í gær gefið til
Sjómannastofunnar hér í bæ: S. B.
20 kr. og Á. J. 50 kr.
Kærar þakkir!
'23. S. Á. Gíslason.
Þegar manntalið fór fram 1.
des. 1920 skiftist þjóðin þannig
cftir aldri: ,
Innan 15 ára .. 31.321 eða 33-i%
15—20 ára 8.998 — 9-5—
20—40 ára .... 27.071 — 28.6-
40—60 ára .... I7-348 — 18.3—
Yfir 60 ára .. . 9.708 — 10.3—
Ótilgreint 244 — 0-3—
Samtals 94.690 100.0%
Þessi aldursskifting er mjög
svipuö eins og við manntölin
næstu á undan. Það má því telja
svo, aö hér á landi sé hér um bil
þriðjungur landsbúa á barnsaldri
(innan 15 ára), hér um bil tíundi
hlutinn á unglingsaldri (15—20
ára) og annar tíundi hlutinn á
gamals aldri (yfir sextugt), en
tæplega helmingurinn á því skeiði.
sem menn alment eru fullvinn-
andi (20—60 ára).
Þessi lilutföll eru samt alls ekki
cins x bæjunum og í sveitunxun.
Stafar það af flutningi fólks úr
sveitunum til bæjanna, sem eink-
um er ungt fólk uppkomið. Verö-
ENGINN VEIT SÍNA ÆFINA —
frá. — J>ér er nóg að vita í svip, að eg átti í
Ihöggi við heiminn og beið lægra hlut. Eg varð
að snúa baki við fyrri ævi og yfirgefa alls nægtir
og lifa hversdagslegu lífi. Ef til vill var mér það
hentara; sumir menn eru svo gerðir. En hvað sem
því líður, þá komst eg í örbirgð og reyndi ekki að
rétta við — og eg veit ekki, hvort mér hefði orðið
það til góðs, þó að það hefði tekist."
,,Pabbi!“ sagði Rafe, ,,þú hefir ævinlega verið
mér besti faðir —“
„Nei, mér hefir farist ránglátlega við þig, Rafe,“
sagði faðir hans og stundi og hristi höfuðið. „Eg
hefði átt að gefa þér kost á að freista hamingj-
unnar fyrir löngu, og senda þig að heiman —“
„Eg hefði ekki viljað fara,“ stamaði Rafe.
„pér fer vel að segja það,“ sagði faðir hans,
„og satt að segja býst jeg ekki við, að þú hefðir
gert það. pér hefir ævinlega þótt vænt um pabba
þinn, þó að guð viti, að eg átti það ekki skilið!
Rafe, þessi maður hefir komið til þess að leita
mín, — er ekki svo Gurdon?"
Hr. Gurdon kinkaði kolli og var bæði hrærður
og undrandi.
„Já,“ sagði hann. „Eg hefi verið að leita þín.
Eg hefi fréttir að færa, alvarlegar, já mjög al-
varlegar, Wilfred."
„Jæja, nú hefirðu fundið mig,“ sagði Jim, „en
þú hefir komið of seint. Hvaða fréttir eru það?
Eitthvað, sem litlu skiftir, hvað sem öðru líður.“
Joe gekk fram að rúminu og snart við hand-
legg hr. Gurdon. „Tekur það því að gera hon-
um ónæði?“ spurði hann dapur í bragði.
Gurdon sneri að honum og sat á skapsmunum
sínum.
„Eg skil, eg skil!“ sagði hann og rétti fram
báðar hendur. „Eg má ekki til þess hugsa að gera
honum þetta ónæði nú, þegar hann er —“ Joe
kinkaði kolli til samþykkis, eins og Gurdon hefði
sagt: „þegar hann er að deyja.“
„En eg kemst ekki hjá því,“ sagði Gurdon. „Eg
verð að fá nokkuð hjá honum áður en —pað
„í varg~aklóm“,
neðanmálssagan, sem nú er nýlokið i Vísi, og
talin er einhver besta Vísis-sagan, þó að þá sé
Iangt til jafnað, kemur á markaðinn næstu daga
sérprentuð, 350 bls. i skrautlegu bandi, og kostar
aðeins 4,75.
Með því að
fylla út Pönt-
unarseðilinn
ogsenda afgr.
Vísis fáið þér
bókina senda
heim til yðar.
Þessi saga kemur nú í „Hjemmet* og heitir
þar „Stedmoderen“. Þeir sem byrjaðir eru að
lesa hana þar ættu að notá tækifærið og ná sér
i þessa bók.
Gjðrið svo vel að senda mér und-
irrit......eint. „t vargaklóm".
Nafn .............1..:............
Reimiii
Póststöð
er afar mikilsvert, óhjákvæmilegt! Eg hefi komið
frá London og flýtt mér alt hvað af tók, til þess
að tilkynna honum —.“ Hann sneri sér að rúm-
inu. „Wilfred, þú heyrir til mín, skilurðu mig?“
Maðurinn, sem hann kallaði Wilfred, hreyfði hof-
uðið hægt og gætilega. „Já, eg hefi komið til að
tilkynna þér — að Edgar og báðir synir haits
eru dánir — urðu fyrir slysi á skemtiskipi — og
að — að, — jæja, vxtanlega veitst þú það, að
nú er komið að þér —“
Jim reyndi að rísa frá koddanum en hneig nið-
ur og barðist við að ná andanum. En loksins tókst
honum að mæla nokkur orð, og báðir lögmenn-
irnir, annar stórfrægxxr en hinn útskúfaður, lutu
yfir hann, og heyrðu þeir hann segja:
„Vesalings Edgar! — Og báðir drengixmir?
Mér — mér þykir fyrir því. Já, Gurdon, það
hryggir mig, hvað sem hinu líður. petta éru hræði-
legar fréttir. Og eg stend næstur? Auðvitað. Aldrei
hafði mér flogið það í hug, — eg hafði nærri gleymt
þessu Öllu—. Já þétta eru furðulegar fréttir, Gur-
don. En þær koma of seint. Nei! pær berast mér
of seint, — en ekki honum.“ Hann varð styrkari
í máli og leit ástúðlega en sorgbitinn á unga, föla
manninn, sem kraup við rúmstokk hans. „petta
er sonur minn, eínkasonur minn, Gurdon.“
„Já, já, eg þóttist vita það,“ sagði Gurdon
hrærður og starði undrandi á piltinn, rifinn og
ógreiddan, marinn, sólbrendan og sprungna vörina,
svo að vætlaði úr.