Vísir - 03.10.1923, Síða 3

Vísir - 03.10.1923, Síða 3
VfSIR Bókafregn. Einar II. Kvaran: S v e i t a- V s ö g ur, gamlar og nýjar. — Reykjavík. útgefandi Þorsteinn Gislason. 1923. í þessari bók eru fimm sögur frá ýmsum aldri. Hafa þrjár þeirra birtst áöur á prenti, Sveinn káti (1883), Brúin (1896) og Altaf að tapa (1916), en tvær eru nýjar, Sigríður á Bústöðum (1922) og lengsta sagan, Móri (1923). Er hér því gott færi á að bera saman rit- hátt og efnismebferð höt'undarins á ýmsum tírna, þv.í aö auövitaö er, aö hvorki ritar hann né hugsar nú á sama veg sem fyrir fjörutíu ár- urn, en svo gömul er elsta sagan i safni. þessu. í fyrri sögunum kemur og ekki í ljós nein frum- spekileg (metafysisk) lífsskoöun, en í síöustu sögunni er höfundur- inn ótvíræöur talsmaöur ákveðimi- ar kenningar um slík efni. Allar eru sögur þessar snjallar og vel ritaöar, en einna best þykir mér Brúin, vegna snildarlegrar listar á mannlýsingunum; einkum er Sig- valdi karlinn sannur og ógleyman- legur. Sigríður á Bústöðum er og ágæt saga um sundrung milii hjóna og -sættir eftir tíu ár. Altaf að tapa lýsir bónda í sveit, gæfu- manni, sem hefir kömist ágætlega áfram og eignast konu þá, sem hann unni hugástum, en finst hann samt altaf hafa veriö að tapa; svo rikur er meö honum barlóms-andi íslenskra bænda. Siöasta sagan, Móri, er íslensk draugasaga, skýrð á spiritistiskan hátt. Er líklegt, aö mjög veröi skiftar skoðanir um efni hennar. Fyrir mitt leyti hefi eg ekkert við þaö að athuga, hvorki atburðina né skýringuna á þeim, og hygg eg hvorttveggja vera samkvæmt veruleikanum eöa injög nærri honum. í sveitinni, sem írá er sagt, er verulegt hjátrúar- andrúmsloft, ramm-íslenskt, og höf. tekst mætavel að sýna fram á sannleikskjarnann i þeirri hjá- trú, nefnilega dularfult fyrirbrigöi, Atakanlegt er hugarstríð 0g ör- vænting Guðbrands bónda i þess- ari sögu, og bi-jóstumkennanleg eru vaudræði prestsins — gagn- vart því, sem hann telur „hjátrú cg hindurvitni", — þegar hann sér, hve rótgróið þaö er í vitund sókn- arfólksins. En hann er svo ærleg- ur þrátt fyrir alt, að þegar reynsl- an sækir hann heim, þá tekst henni að sannfæra hann. Margt er snildarvel sagt í sögu þessari, þótt ekki séu notuð stór orð; það er ti) dæmis nöpur ádeila á prestana og fræðslu þá, sem þeim er veitt, falin í þessum orðum Guöbrands: ,,Mig hefir altaf grunað það, að þér munduð vita meira um þetta (þ. e. draugaganginn), en þér haf- ið látið uppi. Því að eg sá það, að eitthvað hljótið þiö að læra þarna á prestaskólanum." — Mjög skiftir í ýms horn um skoðanir manna á ritstörfum Ein- ars H. Kvarans seinustu árin. All- jr munu vera sammála utn rit- Miðvikudaginn 3. okt. 1923. snilli hans, en sumum þykir bera of mikið á „lioöskapnum" og finst það heldur rýra listina. En ætli það sé ekki heldur um hitt að ræða, að höf. ritar ekki eingöngu fyrir listina lengur, heldur og fyr- ir lífið? Og í mínum augum hefir sá boðskapur, sem skáldið flytur, írábærlega mikið lífsgildi, og ætti því að mega fyrirgefa það, þótt nokkuð mikið beri á honum. Og ríst er um þaö, að þótt listin sé nú af höf. notuð í þjónustu kenn- inga, sem eru óvinsælar af mörg- um og all-mikill vandi á að boða, svo að hún njóti sín stundum ekki til fulls, þá hefir höí. á hinn bóg- inn fengið meira vald á vopnum sínum, en hann hafði á ungaaldri. i staðinn fyrir hvikláta fjörspretti æskunnar er nú kórnin vissá og þroski hins fullorðna manns. í staöinn fyrir vonlausa meðaumkv- un með olnbogabörnum lífsins er nú komin vissan um vald kærleik- cns hér og á síðan, árdegisljómi og eilífðarvon. Jakob Jóh. Smári. Árni Jóhannsson: V 0 r- m e r k i. Bókaverslunin Emaus gaf út. Rvík 1923. Þessi litli bæklingur er ágrip af ftórmerkilegum ritum erlendra fræðimanna um tímatalið i spá- •lóm biblíutinar og sambandi þess við veraldarsöguna, og jafnframt um tímatal Gvðinga. Aðalstuðningsrit liöf. er; „Light ror the last' Days" eftir dr. Grattan Guinnes, „hálærðan mann og djúpvitran". Þar eru hinir mörgu spádómar biblíunnar, sem frarn eru komnir, „lagðir fram og skýröir i dagskæru ljósi veraldar- sögunnar og þann veg sýrtt fram á, hverra uppfyllinga vér niegum vænta i náinni framtíö." Bæklingurinn kostar aö eins 1 krónu og er hinn merkilegasti og eigulegasti í alla staði. B. J. Ávarp til kennaranDí. —Ö—* „Bróðir í neyÖ.“ Eg vil gjarna telja mig til kenn- arastéttarinnar enn. Enda hefi eg fylt þann flokk heima og erlendis í full 20 ár. Auðvitað erum við veigalítil stétt, getum ekki einu sinni haldið út blaði voru, sem þó er fyrsta skilyrði sambands ísl- kennara. Svo veigalitil er stétt vor, að hún lætur sér margt misjafnt bjóða. Enda er henni einnig margt misjafnt boðið! Því miður er all- margt af þessu sjálfskaparvíti. Og þau víti eru sárust. Félagslegt á- hugaJeysi og þroskaleysi eru verstu mein ísl. kennarastéttarinn- ar! Úr því þarf að°bæta, og það sem fyrst! — Að þessu sinni er það alveg sérstakt mál, sem eg vildi hreyfa við kennara þá, er þessi grein nær tií. Það snertir ekki bein félags- mál, og er því, sem betur fer, alls eigi komið undir þroska eða þroskaleysi stéttarinnar. Þaö er einfalt mál, er talar beint til hjarta iivers einstaks kennara, sem er góöur og göfugur maður. Talar svo átakanlega, ab eg veit með vissu, aö þvi muni alhr kennarar ljá eyra! Emn stettarbroðir vor er i neyö og þarf bráðrar hjálpar við! Lífið sjálft er i húfi. Viö getum mjög sennilega bjargaö þvi. — Og þá látum við það auðvitað ekki ógert! — Hann er maður á besta aldri, fékk berkla upp úr „Spönsku veik- inni", lá um hríö á Vífilsstöðum, en er einn þeirra, sem ekki fær að vera þar lengur, þótt um lífið sé að tefla! Hann lá alllengi rúmfast- ur rétt á eftir aö hann fór af hæl- inu. En i sumar hefir hann hresst allmikið, og er nú góð batavon, ef hann fengi að njóta góðrar hælis- vistar! Nú í surnar hefir hann venð svo heppinn, að fá loforð um vist á góðu heilsuhæli í Noregi, i neðan- veröunt Guðbrandsdölum, þar sem loftið er mjög hreint og heilnæmt, skógar- og fjallaloft. Er þaö ef- laust fyrir sérstaka góðvild hlut- aöeigenda, að hann hefir fengið hælisvist þessa, því aðsókn er þar miklu meiri en tök eru á að sinna. Þam.-ig snýr þá mál þetta við; Framundan er lífið. Dauöinn að baki ( — Og nú veltur alt á því, að vér stéttarbræður Iians gerum kyldu vora, því aí eigin ramleik getur hann ekki notið hælisvistar þessarar. Með frjálsum samskotum verðum vér hið allra bráðasta að tryggja honum vetrardvöl á hæl- inu, — og svo koma seinna tímar og ráð til að bæta sumrinu viö á eitir, því ársdvöl veröum við að ætla honum til fulls bata! 1 Eg fjölyrði eigi frekar um þetta. — Stjórn Kennarafélagsins mun taka málið að sér. En eg er fús til aö skýra bæði kennurum og öðrum, er þess æskja, hánara frá öllu þvi, er að þessu lýtur. Helgi Valtýsson. (Sími 1250) Langarnar enn. Siðastl. höfuðdag flutti Vísir dá- litla grein frá okkur með fyrir- sögninni „Laugarnar". Var þar skorað á bæjarstjórn Reykjavíkur að láta raflýsa Þvottalaugarnar. Síðan áskorun þessi var birt, liefir ekkert heyrst, sem bendi á bráðar framkvæmdir. Vel getur þó verið, að hér sé hugsað skakt. Bæjarstjórnin getur náttúrlega geymt þetta mál einhversstaðar í nnum hugarheimi, þótt hreyfing- ar þess hafi ekki fundist enn fara um Laugarnar. En vér óttumst, að áherslan sé ekki ýkja-skörp enn þá. Og þessi ótti styöst við þá staðreynd að margar nauðsynlegar framkvæmdir sýkjast af gerli þeim, er „seinlæti" nefnist. Vér ýtum ekki undir þetta mál af öðru en því, að dagleg reynsla vor sýnir og sannar, að betri ljosa Gólf'dákar og vaxdúkar, miklar birgðir, einn- ig dívanteppi, frá kr. 15.50. JÓNATAN ÞORSTEINSSON. Magasin du Nord Kaupmadr aliöfn Linvötudeiidia var opnuð nánulaginn I. okt. V0RBHÖSIÐ Fyiir velaiii. Gerið innkaup yðar á öllurn matvörum, hreinlætisvörum og tó- baksvörunt. Talið við okkur áður en þér festið kaup annarsstaðar. V O N, Sími 448. Rúmstæði aihkonar og tréfitólar, mjög ódýrir, hjá JÓNATAN ÞORSTEINSSYNI. er bráð þörf. Og vér fáum ekxi betur skilið, en dráttur í þessu efni sé vart án vansa. Það mun eigi ofmælt, ab allir vinnustaðir Reykjavíkur séu nú raflýstir orðn- ir. Því er sú tilfinning rik í huga vorum, ab vér, sem stöndum við þvottakerin i laugunum, eigum jafna heimtingu á nægri birtu sem þær, er þræða saman silkikjóla tneð „blúndum og baldýringum". Nú vill svo vel til, þegar nátt- myrkrið og næðingarnir eru að taka völdin, að borgarstjórinn okkar er inýkominn heim lífs og heill úr löngu ferðalagi. Og nýjti fjöri og kröftum hefir hann safn- að í sóllundum Danaveldis og á leiðinni um Islands ála. ■ Oss sýnist því síst úr vegi, að beina nú hér með áskorun vorri á ný. til borgarstjórans og bæjar- stjórnarinnar, að taka þetta mál til íhugunar og aðgerða. Og uni leið og vér sendum þessa áskorun, finst oss sem ekki muni langur tími líða, uns vér verðum álíka glaðar og hermaðurinn, sem Napó- leon leysti frá dauðadóminum forðum. Nokkrar þvottakonur,

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.