Vísir - 01.04.1924, Qupperneq 3
▼ ISIK
Tóbakseinkasalan.
Frumvarp um afnám tóbaks-
■cinkasölunnar var felt í neðri deild
á gær með 13 atkv. gegn 12. Ráð-
herrarnir Jón porláksson og Magn-
ús Guðmundsson töluðu báðir á
: móti afnámi einkasölunnar, en Jón
porláksson greiddi þó atkvæði með
frv. til annarar umræðu. Björn Lín-
' dal taldi ekki heldur tíma kominn
til að afnema hana. Við atkvæða-
greiðsluna voru fjarverandi Aug.
Flygenring og Jón Sigurðsson. —
Nánara verður vikið að J>essu máli
síðar.
.alt-.ib-vU «iV vin »Jtr M
Bæjarfréttir.
□ EDDA 6924417
.Dánarjregn.
Frú Guðlaug Magnúsdóttir og
Bjarni Jónsscn frá Vogi hafa orðið
fyrir þeirri sorg að missa Guðlaugu
litlu dóttur sína, sem lengi hafði
verið sjúk. Jarðarför hennar fer
fram á fimtudaginn.
Veðrið í morgun.
Hiti í Rvík 7 st., Vestmanna-
oyjum 7, ísafirði 8, Akureyri 5,
Seyðisfirði I, Grindavík 7, Stykk-
■ishclmi 7, Grímsstöðum 3, Raufar-
höf.n 3, Hólum í Hornafirði 3, Ut-
sire 1, Kaupmannahöfn 1, Tyne-
mouth 3 st. — Loftvog lægst fyrir
vestan land. Suðlæg átt, allhvöss á
Vesturlandi. Horfur: Suðvestlæg
átt, allhvöss á Norðurlandi og
Vesturlandi.
.75 ára afmœli
á í dag porgerður E. porsteins-
dóttir frá Njarðvíkum.
AlþýSubólíasafn Rvíkur
cpnar lesstofu handa börnum í
dag, á Skólavörðustíg 3. Verður
hún cpin kl. 4—8.
Landhelgisbroi.
Fylla kom hingað síðdegis í gær
með tvo botnvörpunga, sem hún tók
að veiðum í landhelgi fyrir sunnan
iand. Mál þeirra verða að líkindum
útkljáð í dag.
V esalingarnir
heitir mynd sem Nýja Bíó sýnir
í kvöld, eftir samnefndri sögu Vic-
ror Hugo, sem eins og kunnugt er,
hykir ein af fremstu skáldsögum
heimsins. Hefir mjög verið vandað
til myndar þessarar í alla staði og
leik William Farnum í aðalhlut-
verkinu er við brugðið um allan
heim. — ,,Vesalingarnir“ munu
áreiðanlega hljóta mikla aðsókn
hér, því að þar fer saman mikið
■efni cg góður leikur.
Sþemtifundur
verclunarmannafélagsins Merkur
er í kveld kl. 8J/2 í Iðnaðarmanna-
húsinu.
[| kioi liheooa H
Eg kendi til sakir þín, „Vár-
kaldur“, er eg las athugasemd þína
í Mbl. 23. ]). m., viö grein mína í
,>Vísi“ 21. s. m. Þaö skal játaö, að
eg geröi mér aldreiháarhugmyndir
urn hæfileika þína til ritstarfa. En
að þú værir slíkur andlegur kram-
arungi, — því heföiæg aldrei trú-
að. — Fáir menn eru svo rauna-
lega illa úr garði gerðir, að þeir
láti sér ekki nægja, að vera annað-
hvort óhappamenn eða axarskafta-
smiðir. En með sanngirni verður
þú undan hvorugu þessu ámæli
dreginn. Þú byrjar mál þitt geyst-
ur og rasandi, um efni, sem þú
heíir ekkert vit á, talar digurt um
kosti óreynds fyrirkomulags, hall-
mælir hóflaust mentastefnu, sem
í mörgu hefir gefist vel. Svo fer
cngum, sem trúlega vill hagnýta
sér reynsluna í þágu alvarlegra
umbóta. Og þú endar, sem vita
mátti, í foræði nöldurs og illmælgi.
Reynir að styðja gambur þitt um
fánýti Mentaskóla og Háskóla með
hraklegum sleggjudómi um stú-
denta. Honum verður nú -raunar
aldrei trúað. En hitt er auðsætt,
að þú hefir gert herfilegt axar-
skaft í augsýn alþjóðar. Eg kenni
til sakir þín, „Várkaldur". Þú hef-
ir sprengt þig á því, að þreyta
fangbrögð við drauga, sém glap-
sýnir menn einir sjá.
Eg kendi líka til sakir Gunnars
Árnasonar. En þér er vísast ekki
sálfrátt með óhöppin. Þú heykist
eins og sorajárn undir réttmætu
ámæli mínu í garð þinn, fyrir
sleggjudóminn um stúdenta. En í
stað þess, að gangast vcl við, deng-
ir þú því yfir á G. Á. Þú segir
mig hafa vilst inn til hans með
ummæli mín, og sé eg ekki ástæðu
til að bera á móti því. Það var
ekki ætlun mín, að deila á G. Á.
En þú hefir sýnt það fyr, að þú
ert fjárglöggur. Og hverjum öðr-
um er betur trúandi til þess að
draga út þann gemlinginn, sem
soramarkið er á, en þeim, sem best
hefir rannsakað þessa sauðahjörð,
eins og þú kallar stúdenta. En
hvað viðvíkur ritsmiðum G. Á., þá
skal eg geta þess, að eg hefi sjaldn-
ast lesið nema nafnið eitt, og þótt
ærið nóg. En það er svo sem eftir
annari greiðasemi þinni við G. Á.,
að minna bæði mig og aðra á þær.
Hasla þú þér völl innan þess
vígis, sem þú ert vanur að beina
skeytum þínum frá, aftan að
skólabræðrum þínum. Segðu, að
þú vinnir fyrir góð málefni, eí
einhvcr skyldi fást til að trúa því.
En gættu þess, aö ofhlaða ekki
svo, að þín eigin byssa slái þig.
Skeytið fer að vísu úr byssunni,
cn þú míssir marksins og — ligg-
ur.
Ef þú þolir að lilusta á vinsam-
legt ráð, vil eg að lokum gefa þér
eitt, — frumsamið af mér: Hvíldu
þig frá ritstörfum tímakorn,---
svo sem 20 ár !
25. apríl.—?24.
„Almennur stúdent.'"
Norska aðaikonsulatið
beíir ná sima nr. 65
(áðnr 241).
TIL HÖSEIGANDA. í REYKJAVÍK
Hinn I. aprfl þ. á. kl. 12 á hádegi renna út samningar við hiS
almenna brunabótafélag dönsku kaupstaSanna um tryggingu gegn
eldsvoða á húsum í Reykjavík, en jafnframt taka við brunabóta-
ábyrgðinni hlutafélögin „Assurance-Compagniet Baltica“ og „Nye
danske Brandforsikringsselskab af 1-864“ bæði í Kaupmannahöfn,
samkvæmt samningi við bæjarstjórnina 14. febrúar, staðfestum 29.
mars 1924, og lögum 26. mars 1924 um brunatryggingar í Reykjavík.
Iðgjöld falla í gjalddaga 1. apríl fyrir eitt ár í senn og greiSast
brunamálastjóra. Gjöld, sem ekki er búið að greiða mnan I, maí,
verða innheimt með lögtaki á kostnað búsciganda.
Borgarstjóiinn í Reykjavík, 31. mars 1924.
K. Zimsen.
Fyrirliggjandi
Rúílu-pappir, alskonar
Papírspokar, —
Rísa-papír, —
Ritvélapapír, —
Prent-pappír, m. tegundir,
Ritföng alskonar,
Húsa-pappír, tvær teg.
Smjör-pappír, -—
Kaupið þar sem ódýrast er
Simi39. Herlnf Claasen
tbúð öskast.
Ársleiga verður greidd fyrirfram
Nokkur hús til söiu með góð-
um kjörum. Utborgun frá2—8
þúsund.
Gnðm. Jóhamisson
Sími 1313.
Skyr.
Nýtt skyr á litla 50 aura per */a
kg, frá myndarheimilinu Núpi í
Öllusi, er nú þegar komið.
Versi. Von.
■U 448.
llnai 44K
Visiskaffið
gerir al!a gl&ðs.
mi'Mt
(Soro Husholdolnfsskoie)
Danmörk — 2 stunda ferð frá
K&upumannahöfn. Veitir ítarlega
verktega og bókíega kenslu í ötl-
um húsverkum. Nýtt 5 mánaða
námskeið byrjar 4. maí tii 4. nóv.
Kenslugjald kr. 125;00 á rnánuði.
Sendi program.
E. Vestergaarð
forstöðukona.
Byggingarlóð
á góðum stað í hænnm
er tíl söln.
A. ¥. á.
Þaksaumur
Helldsala. Smásala.
Helgi Magnússon 4 Co.
Linoleum
Heildsala. Su ásala.
Helgi Magnússon 4 Co.
Saltkj öt,
nokkrar tunnur til sölu
Gnnnlangnr Sletánssoa.
Hafnarfirði.
3 herbergi
og eldhás
'tit leigu frá 1. apríl. XJppI i versl.
Eo ðafoss
Símí 436. Laugaveg 5.
Fasteignaeigaada<*
félagið
liefir opnaS skrifstofu i Lækj-
argötu 4, uppi, (norðurdyr). —
Félagsmönnum eru veiítar þar
ókeypis nauðsynlegar upplýs-
ingar viðvíkjandi fasteignum.
Skrifslofan er opin fyret um
sinn þriðjudaga og föstudaga
klukkan 5—7.
Úrsmiður & Leturgrafari.
1178. Xaugraveg 55