Vísir - 30.07.1924, Síða 4

Vísir - 30.07.1924, Síða 4
VlSIR Veggfoður Yfir 100 tegundir af ensku veggfóðri frá 60 aura rúllan. Mynciabúðirt, Langav. 1, Siml SS5. Gosstöðvarnar i Öskja 1922. Eftir Jóhannes Slgfinnsson á Grímsstöðum. Ferðasaga þessi hefir verið sérprentuð og kostar 75 aura ein- :?akið. Fæst á afgreiðslu Vísis. öpplagið er mjög litið. Þeir sem vilja tryggja sér eintak, ættu &ð kaupa það sem fyrst. Lucana, cigarettorhtnoa vanðlátn, fást alstaðar ■ i kolaofn til sölu, Nönnugötii io. (602 Af sérstökum ástæöum, er til sölu, 8 hænur og i hani. Upp). Brekkustíg i, búöinni. (598 Laxveiðarfæri: Girni, Köst, Flugur, Önglar, Spænir. minnows, Ifærur, Hjól, Silungastangir. Stærsta úrvalið hjá ísleifi Jónssyni 1 Laugaveg 14. VINNA Röskir unglingar til aö selja rit óskast í bókaverslun Guöm. Gam- alíelssonar. Góð sölulaun. (593 Kaupamann vantar austur. Upp- lýsingar Bókhlöðustíg 6. Sínn 1551. (600 S Ií O A N ’ S er langútbreiddasta hLINIMENT“ I heimi, og þúsund- Ir manna reiða ssg á hann. Hitar atrax og linar verkL Er borinn á án nún- Ings. Seldnr í öllum lyfjabúðnm. — Nákvæmar notknnarreglnr fylgjs hverri flöskn. íbúð, 3—4 herbergi og eldhús óskast 1. okt. eða fyr. Tilboð merkt; „16“ sendist Vísi. (603 2 herbergi og eldhús ti! leigu 1. ág. Uppl. í síma 208 kl. 7—8 síðd. (601 2—3 herbergi til leigu nú þegar. A. v. á. (580 Reglusöm stúlka óskar eftir her- bergi 1. október, helst sem næst miðbænum. A.v.á. (594 íbúð óskast 1. okt., 3—4 her- bergi og eldhús, helst til lengri tíma. Borgun viss. Uppl. á afgr. Vísis. (6a8 Besta gisting býður Gesta- heimilið Reyltjavík, Hafnarstr. 20 ' (174 Kaupamann vantar á gott heim- ili. Uppl. í síina 274, hjá Hans Hannessyni. (599 Hraust og ábyggileg telpa ósk- ast til að gæta barns. A.v.á. (604 Röskan dreng vantar til aí- greiðslu og sendiferða. Mjólkur- búðin, Hverfisgötu 50. (607 1 Stúlka óskast í vist, Nönnugötu 12. (606 Kaupakona óskast, ekki langt frá Reykjavík. Uppl. á Smiðju- stig 11, milli 7 og 8 e. riu (60.5 Lyklar fundnir. Vitjist í Þing- holtsstræti 7. (597 Peningar hafa tapast í peninga- umslagi, ásamt íslensku vegabréfj. A.v.á. (6ck), F élagsprentsmiðj an. llQHLLAGIMSTKINNINN, 53 „Hér þykir mér fallegt,“ sagði Cara, þeg- ^ ar hún litaðjst um. „Hér hlýtur að vera gam- an að sitja og lesa eða hugsa,“ bætti hún J, viS, en alveg öfundlaust. „Þetta kalla eg dyrnar minar,“ sagði Eve- 'lyn og lauk upp eikarhurð, „því að liér gengur varla nokkur urn, nema eg. Héðan er gengið upp í herbergi mitt og við skul- | um fyrst fara þangað.“ Þær gengu upp þröng steinþrep, — þau | liin sömu sem Evelyn gekk um, þegar hún 'i fór leynilega á fund bróður síns nokkurum : nóttum áður, —v síðan um breið göng og inn í 5 herbergi Evelyn. Henni lék mikill hugur á því að sýna vin- j stúlku sinni bækur þær og myndir og ann- ■ að smávegis, sem hún átti og hafði mætur | á. Og Cara leit á alt, sem henni var sýnt, og hefir vafalaust dást að þvt öllu með sjálfri sér, þó að ekki mætti það á henni sjá. | „Við eigum eftir að eyða hér mörgum 1 stundpm, Cara, og tala inargt saman,“ mælti f Evelyn. „Þykir yður gaman að söng? En hvernig' spyr eg yður, sem cruö frá ltalíu!“ Hún gekk að hljóðfærirm -og tók að leika | af handahófi, en Cara stóð hjá og. horfði ái I hana. Alt í einu leit Evelyn um öxl og sá þá, að vinstúlku sinni var brugðið. Hún var ná- föl, augun tindrandi en brjóstið bifaðist af geðshræringu. Hún var bersýnilega mjög hrærð.. En þegar Evelyn hætti skyndilega, rétti Cara út báðar hendur og sagði: „Nei!“ Haldi þér áfrain!“ En Evelyn stóð upp frá hljóðfærinu og tók um hendur vinstúlku sinni. „EScki núna!“ sagði hún hlæjandi. „Nú sé eg, hvernig eg á að heilla yður, Cara! Eg ætla að leika fyrir yður og syngja fyrir yður, þegar þér komið næst, og hvenær sem þér komið. Hvað, er kominn timi til að drekka te? Við drekkum það þá hér. Nei, mig lang- ar til að sýna yður húsið.“ Þær leiddust ofan hin breiðu þrep, sem lágu niður í fordyrið, en þar hafði te verið borið á borð og þjónn var þar til þess að skenkja þeim. Evelýn lét hann fara og helti sjálf í bollana og svaraði þeim spurningum, sem vin- stúlku hennar flugu í hug, án þess að hún spyrði nokkurs. Cara litaðist um salinn og virti fyrir sér myndir forfeðra Evelyn, skjald- armerkið og fánana. Þetta var einhver fegursti salur á öllu Eng- landi og mundi fleirum hafa fundist mikið til um hann en dóttur malarans af heiðinni. En hún lét ekki undrun sína i ljós og hlýddi þegjandi á skýringar Evelyn, sem lýsti stutt- lega fyrir henni því markverðasta, sem fyrir augu bar. Evelyn var það ljóst, að Cara furðaði sig mjög á öllu, sem hún segði, og hún var lirifin af stillingu hennar, þó að hún furðaði sig hálf - vegis á því, að hún skyldi ekki fara hjá sér þegar hún kom í íyrsta sinni i svo nýstárlegt heimkynni. Hún drakk teið eins og hún væri alvön að drekka það á þessum stað‘, hún hallaðist aftur á bak i útskornum stólnum, eins og hún væri heima hjá sér. Evelvn fanst það undarlegt, að þessi stúlka, sem alist. liafði upp í mylnunni á heiðinni, skyldi vera miklu tignari í fasi en margar þær heföarmeyjar, sem hún. liafði kynst. Á meðan þær voru að tala saman,—eða rétt- ara sagt, meðan Evelyn talaði en Cara hlnst- aði, — gekk einhver fyrir gluggann. „Æ, hver var þetta?“, mælti Evelyn og leit um öxl, þegar skuggann bar á gólfið. „Það var maðurinn, sem ók með yður í vagninum á dögunum,“ svaraði Cara. „En hvað þér eruð skarpskygnar! Það var hr. Dexter Reece; hann er gestur hér, í ein- hverjum crindagjörðum viö föður minn. Mér þykir ntikið, að þér þekkið hann; mér fanst þér engan gaum gefa honum á dögumim," sagöi Evelyn brosandi.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.