Vísir - 16.10.1924, Qupperneq 2
#m«fR
))H3TMM&
Höíom fyrlrllgfljandl;
mjög ódýran
Vmbúðastriga 8’ o
g 50’
Y D Fimleika æfinSar
Y B ^ B skólans) og verður þeim eftirleiðis hagaö þannig:
1. flokkur á mánudögum og fimtudögum kl.
2. flokkur (14—18 óra) mánud. kl. 7—8 og
fimtud. kl. 8—9.3.fIokku,r (undir 14 ára aldri) á fímtudögum kl. 7—S.
Ennfremur verða glimuæfingar fyrir 1. og 2. flokk á mánud. kl. 8—9
Stjórnin.
Lank og Krydð
Bestar vörur—Lægst verð.
Verslsin B. H. Bjarnason.
Símskeyti
Khöfn 15. okt. FB.
Stjómarskifti í Svíþjóð.
SímaS er frá Stokkhólmi: RáSu-
neyti Tryggers beiddist lausnar á
þriðjudaginn var. Er búist við, að
Hjalmar Branting myndi jafnaðar-
mannaráðuneyti með stuðningi
frjálslynda þjóðræðisflokksins. Hafa
þessir tveir flokkar yfir að ráða 131
atkvæði af 200 í annari málstofu.
Ráðuneyti Tryggers barðist fyrir
því, að hervörnum Svía væri haldið
í horfi og þær auknar, en hinar ný-
afstöðnu kosningar hafa sýnt, að
þjóðarviljinn er andvígur auknum
hervörnum.
Frá Zeppelms-loflfarinu.
Loftskeyti sem borist hafa frá
Zeppelins-loftfarinu segja, að ferð-
in gangi að óskum.
Páll ísólfsson
Vonandi verður fjölment í kirkj-
unni á kveðjuhljómleikum Páls ís-
ólfssonar. Að heyra vel leikið á
hljóðfæri, og ekki síst á orgel, græð-
ir hugann og greiðir fyrir góðum
hugsunum, og býr oss þannig undir
að vinna betur að verki voru. En
eg hygg, að Páll ísólfsscn sé í tölu
þeirra manna, sem best kunna að
fara með það undraverða hljóðfæri
sem orgelið er, og einn af mestu
snillingum, sem nú eru uppi á ís-
landi. Eru slíkir menn oss nauðsyn-
iegir til þess að efla traust á þjóð-
inni, og koma í veg fyrir að vér
séum eins smáir og vér erum fáir.
En fátt er þjóðunum skaðlegra en
sljóleiki gagnvart snillingunum. Væri
það skaði mikili, að missa Pál af
landi burt fyrir fult og alt, en ekki
ólíklegt, að hann liti á það sem yfir-
iýsingu um, að á sama þætti standa,
ef ekki kæmi margt á fimtudags-
ikvöldið.
14. okt.
Helgi Pjeiurss.
Siðasta sinn!
)?að er opinbert leyndarmál, þótt
ilt sé afspurnar, að Páll ísólfsson
gat ekki haft kveðjuhljómléikana
sína í dómkirkjunni á sunnudaginn
var, vegna ónógrar aðsóknar.
Páll er nú að búast af landi burt
til þess að framast enn meir í list
sinni. Páll hefir þegar áunnið sér
hrós og viðurkenningu hæfustu tón-
listardómara, hvar sem hann hefir
látið til sín heyra, svo sem kunnugt
er. En Páll er framsækinn listámað-
ur og vill áfram, hærra, eins langt
og komist verður. Og vér megum
víst vita, Islendingar, að maður með
Páls listgáfu og Páls áhuga og lotn-
ingu fyrir sönglistinni, verður þjóð
sinni til sæmdar og prýði, hvar sem
leið hans liggur.
Mikið eigum vér höfuðstaðarbú-
ar, margir, Páli ísólfssyni að þakka,
sem hefir leitt oss alla Ieið inn í
hið allrahelgasta í musteri sönglist-
arinnar og leyft oss að hlýða á
æðstu presta hennar. Við kirkju-
hljómleikana hans höfum vér mörg
lifað ógleymanlegar yndisstundir,
tekið þátt í hinni fegurstu og áhrifa-
mestu guðsþjónustu sem hugsast get
ur. Og að öðru leyti hefir starfsemí
Páls hér undanfarið verið lífið og
krafturinn í fátæklegum söngment-
um og tónlistarstarfi bæjar vors.
I kvöld er þess kostur, að vera í
kirkju hjá Páli síðasta sinni nú um
sinn. Reykvíkingar, neytið þessa
færis, sjálfum ykkur til unaðar og
listamanninum til verðugrar viður-
kenningar, fyrir alt, sem hann hefir
gefið ykkur af gnægð listar sinnar.
Við verðum að sýna Páli í verfe-
inu, að við kunnum að meta hann
og viljum af hjarta óska honum góðs
gengis í framsókn hans á listabraut-
inni. Hann á að njóta þess en efeki
gjalda, að hann er íslendingur, og
þó um leið sá Iistamaður, sem hver
afreksþjóð f tónlist getur verið vel-
sæmd af.
Við megum ekki við því, að missa
Pál frá okkur að fullu. Við erum
nógu fátæk samt. Hann á í list sinni
heilaga auðlegð, sem hann hefir gert
og mun gera þjóð sinni arðbæra.
pað erum við, sem þiggjum og njót-
um. Hví skyldum við þá ekki meta
og þakka? Vinir Páls vilja óska
þess, að mega sjá hann sem fyrst
aftur hér heima, hinn góða dreng
og glæsilega listamann.
Allif vinir sannrar tónlistar hljóta
að unna Páli ísólfssyni, sem -af
snild hefir túlkað oss mörg háleit-
ustu tónverk heimsins. Og væntan-
lega á sönn tónlist marga víni hér
L
í bæ. Látum Pál sjá það og finna
■ í fullri kirkjunní í kvöld. Látum ná~
vist okkar þar votta honum þakklæti
okkar og samúð, og innilegar óskir
um fararheill og frama. þar til við
sjáum hann og heyrum næst, sem
vonandi verður sem allra fyrst.
16. okt. ’24. A. S.
I B»j*i
Frá Hæstarétti
í flST.
. i
par var sótt og varið málið:
H. Benediktsson & Co.
gegn
Verslun Böðvarssona.
Mái þetta höfðaði Hallgrímur
Benediktsson haustið 1922 fyrir
hönd h.f. H. Benediktsson & Co.
gegn Ólafi Böðvarssyni í Hafnar-
firði f. h. Verslunar Böðvarssona.
Málavextir voru þeir, að Verslun
Böðvarssona keypti salt af Ólafi
Davíðssyni í Hafnarfirði vorið 1920
og kvaðst kaupandi ekki hafa vitað
annað en saltið væri eign Ó. D., og
að eins keypt það í því augnamiði,
að jafna skuidaskiftí þeirra í milli,
en saltið var í raun og veru eign H.
Benediktsson & Co. og hafði Ó. D.
það í umboðssölu. En þegar H. B.
& Co. tóku að krefja Verslun Böð-
varssona um andvirðið, neitaði hún
að greiða þeim það. Stefndi þá
Hallgr. Benediktsson Ólafi BöS-
varssyni og krafðist þess, að hann
greiddi sér andvirði saltsins, sem
nam kr. 4681,60, að viðbættum
6% ársvöxlum frá 1. jan. 1921, og
málskostnaði að skaðlausu. Stefndi
krafðist sýknunar vegna þess, að
hann hefði ekki vitað annað en Ö.
D. ætti saltið, og hefði hann fært
honum það til tekna í skuldaskiftum
þeirra. — Héraðsdómari leit svo á,
að sýkna bæri Verslun Böðvarssona
af kröfum stefnda, en málskostnað-
ur skyldi niður falla.
Vegna skyldleika við málsaðilja,
vifeu þeir sæti úr hæstarétti „ex
officio", dómstjóri Kristján Jónsson
og settur hæstaréttardómari prófes-
sor Ólafur Lárusson, en í þeirra stað
áttu sæti í dóminum prófessoramir
Einar Arnórsson og Magnús Jóns-
son. Hæstaréttardómari Eggert
Briem skipaði dómstjórasæti.
Sækjandi var Jón Asbjörnsson
en verjandi Lárus' Fjeldsted. Fluttu
þeir langar ræður, og stóð viðureign
þeirra röskar tvær klukkustundir. —
Aheyrendur í réttinum voru með
flesta móti og 'hlýddu á ræðurnar af
mikilli athygli. — Dómur verður
upp kveðinn á morgun.
Bsjtríriitlf.
Dánarfregn.
í gær andaðist á Rrunnastöð-
um á Vatnsleysuströnd porvalrjtur
Guðmundsson, er lengi var af-
j greiðslumaður hjá Sigurði bóksalst.
Kristjánssyni, alkunnur og gáS-*
kunnur maður hér í bæ. porvalchir
heitinn var greindur maður og góð->
ur drengur, fróður vel í sögu lands-
íns og bókamaður mikill. Um mörg:
ár undanfarin átti hann við nrtikla
vanheilsu að búa.
Veðrið t morgun.
Hiti í Reykjavík 3 st., Vest-
mannaeyjum 4, ísafirði 2, Akureyrt
5, Seyðisfirði 7, Grindavík !, Stykk-
ishólmi 5, Grímsstöðum I, Rauf-
arhöfn 3, Hólum í Homafiröi 4„
pórshöfn í Færeyjum 9, Utsire 10,,
Tynemouth 10, Leirvík 11, Jan
Mayen 4 st. (Mestur hiti í gær 7 st.,
minstur 2 st., úrkoma m.m. 3.2).
Veðurlýsing: Loftvog lægst yfir
Austurlandi. Veðurspá: Norðlæg
átt. Litilsháttar úrkcwna á Norður-
landi og norðvesturlandi. Bjart veð-
ur á Suðurlandi.
St. Amani,
enska botnvörpuskipið frá Hull,
sem talið var að hefði farist við tsa-
fjarðardjúp, kóm til Hull í gær.sam-
kvæmt símskeyti, sem hingað barst
til hr. Helga Zoega. J?ó er talið, að.
skip muni hafa farist þar vestra, því
að í Rekavík hefir rekið ýmislegt
úr skipi, þar á meðal mahognðull-
ur og fleiri innviðu, en ókunnugt er
enn, hvert það skip hefir verið.
Camanleikúr
Guðbrands Jónssonar verður leík-
og ódýrast eltir gatðutn.