Alþýðublaðið - 23.05.1928, Side 2
'AK&ÝÐUBHAÐIÐ
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
kemur út á hverjum virkum degi.
Afgfreiðsla í Alpýðuhúsinu við
í Hverfisgötu 8 opin irá kl. 9 árd.
} til kl. 7 síðd.
< Skrifstofa á sama stað opin kl.
J '91/'a — 10^/s árd. og kl. 8 — 9 síðd.
< Siitnar: 988 (afgreiöslan) og 2394
< (skrifstoian).
< Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,50 á
í rnánuði. Auglýsingarverðkr.0,15
i hver mm. eindálka.
< Prentsmiðja: Alþýðuprentsmiðjan
< (í sama húsi, simi 1294).
„BrauðhuBsun“ alöíðunnar
og Morgunhlaðsguðirnir
„Morgunblaðið" segir, að verka-
Iýðurinn hafi ekki átt við þau
kjör að búa, sem skapi „viðfeðm-
ari skilning" og hærra takmark en
„brauðhugsunin ein fær veitt“.
Þetta er, aldrei þessu vant, rétt
hjá,„Mogga“. En af hverju stafar
þetta? Það stafar af þvi, að hin
svo nefnda „yfirstétt“ situr fyrir
Ijósinu og skyggir á þessa verka-
menn, sem blað „yfirstéttarimnar“
talar uni. Það stafar. af þvi, að
„yfirstéttin“ hefir hrifisað undir
sig öll þau beztu skilyrði, er þjóð-
félagið getur veitt. Hún er for-
réttindíastéttm og hefir töglin og
hagldirnar í atvinnumáiunum.
Og svo er þlaðið að hæöast að
„brauðhugsun'* vinnulýösins. Hæð-
ast að þvi, áð vinnustéttin skilur,
að ef hún á að geta lifað, verður
hún að bindast samtökum tif að
halda fyri-r ójafnaðarmönnum
þeim rétti, er henni ber, en þeir
válja ásælast.
Blaðið talar í kehnaratón um
skoðanir þær, sem „undirstéttdn"
— svo að hugsanaferii „Mgbi.“
sé fylgt, — eigi að hafa.
Þær e;iga að vera þannig:
Verkalýðurinn á að hætta að
hugsa um brauö. Hann á ekki að
vera að áfeUast „ýfirstéttina", né
heldur á hann að trúa. á jafnaðar-
skipulagið. Hann á ekki að bin'd-
ast samtökum. Alt á að fela Jóni
Ólafssynj. Honum og staflbræðr-
um hans á að treysta. Þeiir hafa
vitið og frámtakið. Á Magnús
dósent á að trúa. •
„Mgbl..“ þýðir ekkert ,að vera
að tala til verkalýðsins í kenn-
aratón og segja honum hvernig
hann eigi að lifa. Hann hefir
miklu tneiri og hagnýtari lífs-
reynslu en peðin, sem skrifa fyr-
ir „yfirstéttina". Vinnan heíir
kent honum að trúa á sjálfan sig
og stétt sína og ,treysta sihum
eigin kröftum og samtök’gnum •
v.ið stéttarsystkinin.
Verklýðurinn hefir fyililega
skilið af hverju þeir stafa, skugg-
arnir, sem eru á þjóðfélaginu.
Hann ve.it að „Morgunblaðs“-]iðið
hefir sóað miUjónum króna í
sukk og sæ!,lífi. Hann veit, að
hann sjálfur verður að bera hall-
ann af rekstri þeirra atvinnu-
tækja, er „ekki bera sig“. Hann
sér, að meðan stérútgerðin berst
í bökkum, lifa framkvæmdastjór-
arnii' í vellystingum prktauglega,
kaupn sér hallir og halda dýrar
veizlur fyrir gæðinga sína og
drykkjubræður. Hann hefir ftmd-
ið óþverralyktina undan 15 000
króna bíium Thorsbræðra, — og
hann sér aö-byggja-útí-götu-hugs-
unarhátt íhaldsbroddanna.
Það þýðir því ekki að vera að
segja alþýðunni að falla fram og
tilbiðja þessi goð. — Og þeim
þýðir ekki að vera að setja henni
boðorð. Þau boðorð, sem íhaldið
bjrr til, verða brotin, og þó þau
væru sett í kverið, þá yrðu þau
þverbrotin.
Alþýðan hefir þegar tileinkað
sér aðra menningu en íhalds-
mennmguna. Hún hugsar um að
afla sér brauðs, svo að hún þurfi
eigi að svelta og fái með því
tækifæri til að afla sér mentun-
ar, viðfeðmari skilnings og stærra
útsýnis. Því hefir hún myndað
hagsmunasamtök sín, og þess
vegna hyllir hún jafnaðarstefnj
una.
Það er hætt við því, að eins
fari fyrir „M o rgu nb laðs‘ ‘-gó&un-
um og öllum öðrum afturhalds-
goðum, að þau reki „sinn brot-
hætta bát á blindsker í hafdjúpi
al,da“.
Eins og hin vinnandi stétt er
að sigrast á auðvaldinu úti í
heimi, eins mun íslenzk alþýða
‘sigra afturhaldsgoðin hér, því það
er vist, að hún hefir' þar byrði
gnóga hamingju, er ritpeð „Mgbl.“
og auðvaldsbræður þeirra hafa
eigi krepping fullan.
Áskorun nm aigjöðasamtök.
=», —-
Það er tími til kominn, að jafn-
abarmenn allra landa fari að taka
til alvarlegrar íhugunar það sorg-
lega ástand, sem skipuilagið á al-
þjóðastarfsemi okkar er L
Þab er óhjákvæmileg nauðsyn,
að sameina verkamannasamtökin
um allan heim til þess að v&ga á
móti a!heims,samböndum auð-
valdsins, hæ\tu þeirri; sem stafar
af afturhaldi og fascisma, áhríf-
um yfirdrottnunarstefnuninar á
stjórnmál og’ f járhagsmál, og ó-
friðarhættunni.
Nú er svo ástatt, að atvinnu-
málasamtökin og stjórnmálasam-
tökin hjá verklýðsstéttinnd eru að-
greind, henni til tjóns. í hvorri
greininni um sig eru tvö alþjóða-
sambönd, sem keppa hvort við
ahnað, og marga.r mikilvægar
samtakagreinir verkalýðsins
stairda utan beggja.
AI þjóðasamband verklýðsféiag-
anriá og Alþjóðasamband verka-
manna og jafnaðarmanna eru því
nær enivörðungu staðbundin við
Norðurálfuna. Atvinnulegir og
stjórnmálalegir samtakaflokkar
Aineríku, Afríku, Asíu og Ástr-
alíu eiga nálega engan hlut í
þeini, Á öðru leytinu &ru þriðja
.alþjöðasambandið og rauða
verkamannasambandið. Þau hafa
að visu viðtækari ítök, en eru
Það er alment mætra
kvenna mál,
að hvergi sé eins gott að kaupa
og í verzlun
Ben. S. Þórarinssonar.
Silki-.ullar-ogbaðmnllar
nær- og mijlifatnaðr kvenna,
þykir hvergi eins góðr verðið eins
sanngjarnt, og í verzlun
Ben. S. Þórarinssonar
Gleymlð efekl,
að hvergi fást eins fallegar og
þó ódýrar ungmeyja sumarkápur
og dragtir sem í verzlun
Ben. S. Þórarinssonar.
Hafið hugfast að allr
barnafatnaðr
er fjölbreyttastr, fallegastr, beztr,
og ódýrastr, verzlun
Ben. S. Þórarinssonar.
hvarvetna minnihlutaflokkar, sem
lítils gætir, nema í rússnesku ráð-
stjórnarríkjunum, en. þetta eyk-
ur auðvitaö tvístringu og sundur-
JyndL
Svo lengi sem þessi sundrung
ríkir og samtakaleysi, verður al-
þjóðastefna verkalýðsstéttarinnar
ómáttug þess, að leggja auðvaldið
og yfirdrottnumarstefnuna að velli
og koma á alþjóðasamtökum og
jafnaðarstefinu.
Það er fyrsta og sjálfsagðasta
hlutverk verkalýðsins að koma á
fót samfeldu alþjóða stjórnmála-
sanxbandi og samfeldu alþjóða-
atvinnumálasamban di.
Erfiðleikarnir á því, að kjoma
þessu í verk, eru margir. En á
þeirn má vinina bug, ef verka-
lýðurimn vill að það sé gert.
Við skorum á íneðliifii aillra
samtakadeilda verkalýðsins í öll-
um löndum, að krefjast alþjóða-
sameiningar verkalýðsins.
Við erurn sanmfæröir um, að ó-
breyttu liðsmeninirnir í verka-
mannasamtökunum vilja þetta.
Þess vegna þurfa þeir að láta
raddir sínar heyrast um það. Þess
vegna ættu þeir að endurtaka
með ómótstæðilegu afli hina
söguiegu áskorun Karls Marx:
Verkamentn allra þjóða, samedn,-
ist!
Framanritaða áskorun hefir Al-
þýðusambandið feingið senda frá
stjórn „Óháða verkalýðsfilokksins“
í Englandi. Segist stjórnin hafa
sent áskorun þessa hverjum ein-
urn verkamannaflokki, jafnaðar-
miannaflokki og kommunistafjokki
í heimi, sem .sér hafi verið kurin-
ugt um.
„Óháði verklýðsflokkurinn" (In-
dependent Labour Parti) í Eng-
landi er hin stjórnmálalega deild
verklýðssamtakanna þar.
Svar til „Garaals
framherja“
Kæri vinur!
Ég þakka þér kærlega fyrir till-
skrifið í gær. Mér finst, ef setft
skal, segja, að þú hafir misskilið
mig svolitið. Mitt áiit er, að þegar
aðkomumenn skora á „bezta
knattspyrnufélag landsins", eins
og við vitum báðir að K. R. er„
þá eigi það ekki að ganga gegn
þeim með sitt bezta lið, helduE
eigi það að lpfa þeim að spreyÉa
sig, er minni haf’a æfinguna, og
meira þurfa að laéra.
Þetta var aðallega það, sem ég
meinti í gneinarkomi mtou, og
það vil ég taka fram, að það er
svo langt frá þvl að ég amist við
því, að ísienzkir knattspyrnumenn
fttki boði útlendra skipverja, er
á þá kunna að skora. Ég vil
sannarlega unina þeim þeirrar
skemtunar, er þeir fá með þvá
að hlaupa á vellinum okkar og
etja kappi við knattspyrnumenin
okkar.
Ég kveð þig svo, gamli sam-
herji! og álít að þessi orð, er
okkur hafa farið á milli, hafi gerí
margt gott, því grein þín í Al-
þýðublaðinu í gær upplýsti
margt, sem fáir vissu um, og
getur aukið áhuga á gömlu í-
þróttinni okkar beggja.
Þinn einlægur
Gamail markuörður.
ípróttafréttir.
Seyðxsfirði, FB., 22. maí.
Fimleikaflokkur’í.'R. á Seyðisfirði^
Kvennaflokkur, stjórnað af
Birni Jakobssyni, sýndi leikfimS
hér fyrir fullu húsi þ. 18. mai
við bezta orðstír.
Lundúnum, FB., 22. maí.
Fimleikaflokkurinn kominn
Komum til Aberdeen í gær-
morgun. Höfðum sýningu í Pa-
Iais de danse. Blaðadótnar á
,morgun. Héldum áfram um nótt-
ina til Lundúna um Edinborg,.
Gengur vel. Vellíðan. Kveðja.
„Selfoss14
fór í gær til útlanda. „Island-
ið“ fer í kvöld.
Dollar - stangasápan |
hreinsar betur og er miklu
mýkri fyrir fötin og hendur-
nar en nokkur önnur
Wft” þvottasápa,
Fæst vlðsvegar.
í heildsölu hjá
ffalldóri Eiríkssyni,
Hafnarstræti 22. Sími 175.