Vísir - 29.04.1925, Side 2
VfSIR
jtjl)) INfenr um I Olseíni ((
Nýkomið:
Rúgmjöl,
Hálf sigtimj öl,
Stransyknr,
Kandis.
Símskeyti
Khöfn, 28. apríl. FB.
Frá Belgíu.
SímaS er frá Briissel, aS samtök
um stjórnarmyndun hafi ekki tek-
ist, hvorki viS frjálslynda flokkinn
eSa þann kaþólska. Vandervelde
hefir því ekki tekist aS mynda ráðu-
neyti.
ÓeirSirnai' t Búlgœíu.
SímaS er frá Soffía, aS kommún-
istar hafi brent leikhúsiS og bóka-
safniS í bænum Plevna. Bókasafn-
iS þar var eitthvert besta bókasafn-
iS í ríkinu. ]7a5 er taliS fullsannaS,
aS Jugoslavia standi ekki á bak viS
hermdarverkin, og að hún hafi
hvorki beinlínis eða óbeinlínis stutt
aS uppreisn kommúnista. Samband-
iS á milli ríkjanna er því aftur í
lagi.
Kommúnislar í Frakf(landi.
Símað er frá París, að kommún-
istar nokkurir hafi ráðist inn á fund
hægrimanna og skutu þeir .J?rjá
þeirra. Alvarlegar áskoranir eru
birtar í blöðunum til stjórnarinnar
um að bæla niður kommúnista í
landinu. SvipaSar áskoranir hafa
komið fram í þinginu.
taks á því, og með úrskurði bæjar-
fógeta á ísafirði, uppkveðnum 22.
febr. J>. árs, var lögtakið heimilað.
í úrskurði þessum segir, að útsvars-
álagningin sé bygð á því, að téð
skip gerðarþola hafi stundað síld-
veiðar á SiglufirSi í fullar 4 vikur,
sumarið 1923, og haft þar bækistöð
í 5 vikur. — Ennfremur segir svo
í úrskurðillum:
„Að vísu er J>aS upplýst í mál-
inu, að mikill hluti aflans af skip-
unum Freyju og Frigg hafði verið
seldur fyrirfram, símleiðis héðan, en
afgangurinn að miklu leyti á þann
hátt, að einn meðeigenda firmans,
gerðarþola, er dvaldi mikið af út-
haldstímanum á Siglufirði, fekk
samþykki meðeigenda sinna til söl-
unnar, er þannig fór fram frá Siglu-
firði. En þó að síldinni væri þann-
ig að miklu Ieyti ráðstafað héðan
fyrirfram, J>á getur þaS þó eigi tal-
ist fullkomin sala fyr en síldin er
veidd og afhent, en hvorttveggja
virðist hafa fariS fram frá Siglu-
firSi.
AS því skipið „Sjöfn“ snertir, þá
virðist J>að upplýst í málinu, að
gerðar}>oIi tók á móti leigunni, 36%
af afla skipsins á Siglufirði og ráð-
stafaði honum j>ar, og það er ómót-
mælt í málinu, að gerðarbeiðandi
Iagði umgetnar 500 kr. í aukaút-
svar á þennan hluta af afla skips-
jns.
Frá Hæstarétti
24. þ. m.
par var sótt og variS málið:
Karl og Jóhann
gegn
Bœjarstjórn
Siglufjarðarkaup-
staóar.
Mál þetta er svo vaxið, að bæj-
arstjórn Siglufjarðar lagði aukaút-
svar á þrjá vélbáta firmans Karl
og Jóhann á ísafirði, fyrir árið
1923, og nam útsvarið kr. 1625.00.
Bátar þessir stunduðu síldveiðar frá
Siglufirði sumarið 1923, og skiftist
útsvarið svo niður á þá, sem nú skal
greina:
Freyja skyldi greiða kr. 600.00
Sjöfn — — — 500.00
Frigg — — — 525.00
Karl og Jóhann töldu sér ekki
skylt að greiða útsvar þetta, en bæj-
arstjórn Siglfjarðar krafðist þá lög-
Rétturinn lítur J>ví svo á, að það
sé nægilega upplýst í málinu, að
framangreind skip gerðarþola hafi
stundað síldarveiði á Siglufirði, síð-
astliðið sumar, fullar 4 vikur, og að
hér sé J?ví um síldarveiði er gerðar-
beiðandi hafi haft heimild til að
jafna á aukaútsvari, sbr. 1. nr. 58,
28. nóv. 1919, 19. gr. 3. málsgr.
Verður útsvarsálagning sú er hér
hefir átt sér stað að teljast lögleg
og útsvarið að taka lögtaki.
pví úrskurðast:
Hið umbeðna lögtak á fram að
fara.“
Urskurði þessum var skotið til
Hæstaréttar, og var sækjandi hrm.
Björn P. Kalman, en verjandi
hrm. Guðmundur Ólafsson.
Sækjandi krafðist J>ess, að úr-
skurðurinn yrði úr gildi feldur, en
til vara, að áfrýjendum yrði aðeins
gert að greiða útsvör fyrir Freyju
og Frigg. Verjandi krafðist stað-
festingar á úrskurðinum.
Prófessor Einar Arnórsson skip-
aði dómarasæti L. H. Bjarnason,
sem enn er veikur.
S. R. F. í.
Fundur verður haldinn í Sálar-
rannsóknafélagi íslands, fimtudag
30. aprfl, kl. 8/2 í BárubúS.
Próf. Har. Níelsson flytur er-
indi. Efnið er: Lœl(nisfrú cerður
heimsfrœgur miSill.
STJÓRNIN.
Dómur Hæstaréttar var upp
kveðiim 27. þ. m. og var á þá leið,
að firmanu Karl og Jóhann var gert
að greiða útsvör J>au, sem lögð voru
á Freyju og Frigg, en ekki útsvar
það, sem lagt var á Sjöfn. Máls-
kostnaður falli niður.
Frá Alþingi
í g æ r.
I Ed. varð nú loks lokið frh. 2.
umr. um Landsbankafrv.^ og var
dagskrá meirihl. fjárhagsnefndar
um að vísa málinu frá, feld með
7 : 7 atkv., en frv. síðan samj>.
til 3. umr.
Frv. um tolllaga breytinguna (tó-
bakstollinn og afnám tóbakseinka-
sölunnar), var næsta mál, (var til
1. umr.) og urðu umr. æði Iang-
dregnar, og virtust vera J>ýðingar-
litlar, J>areð frv. hefir verið rætt út
í æsar í Nd., en úrslit málsins í Ed.
’■ sjáanleg fyrirfram. Var frv. samþ.
! til 2. umr. með 9 : 5 atkv. og vís-
að til fjárhagsnefndar. — 3. mál
var frv. um breytingar á lögum um
tekju og eignaskatt, (1. umr.), og
urðu umr. einnig æði miklar um
þetta mál; var J>að 5. Iandsk. þm.
(Jónas frá Hriflu), sem oftast og
lengst talaði í gær, í J>eim málum,
sem á annað borð urðu umr. um. —
Frv. var svo samþ. til 2. umr. og
vísað til fjárhagsnefndar, með 9 : 4
atkv.
Frv. um breytingar á 33. gr. laga
um laun embættismanna, var samþ.
umr. laust til 2. umr. og í nefnd.
Frv. um Ræktunarsjóð íslands,
var samþ. til 2. umr., að aflokinni
stuttri framsögu fjármálarh. (J. J?.)
og vísað til landbún.nefndar.
Frv. um breyting á 1. um útflutn-
ingsgjald, var samj>. umr.laust til
2. umr. og í nefnd.
J?á var ákveðið, að fara skyldi
fram síðar ein umræða um till. J>ál.
um að landsstjórnin skýri J>inginu
frá, hvað hún hyggst fyrir um sam-
göngubætur milli Reykjavíkur og
Suðurláglendisins.
Fundurinn stóð til kl. 10 síðd.
Nd. Frv. um framlenging á gildi
laga um bráðabirgða verðtoll á
nokkrum vörutegundum, var fyrsta
mál á dagskrá og stóðu umr. (2.
umr.) um J>að allan dag til kl. 7
síðd., en frv. var að lokum samj>.
til 3. umr.
Till. til J>ál. um viðbótarbygg-
ingu á Kleppi o. s. frv. var umr.
laust samj>. til síðari umræðu,
3. mál voru tekin út af dagskrá.
Fjárlögin eru til 2. umr. í Ed. í
dag, en varalögreglan í Nd.
VeSrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 2 st., Vestm.-
eyjum 4; ísafirði 7, Akureyri 5r
Seyðisfirði 3, Stykkishólmi 5, Gríms- »
stöðum -j- 3, Raufarhöfn 3, Hólum
í Hornafirði 3, pórshöfn í Færeyj-
um 4, Kaupmh. 4, Utsire 5, Tyne-
mouth 4, Wick 4, Jan Mayen 0 st.
— Loftvog lægst fyrir vestan land.
Veðurspá: Suðlæg átt; úrkoma á
Suðurlandi.
Fyrirspurn soarað.
Eg sé nú ekki, að J>að komi al-
menningi mikið við, hvað eg geri við
fugla, sem eg afla mér, til J>ess að
selja eða láta í skiftum fyrir aðra
fuglá. Býst heldur ekki við að neinn
maður með viti krefjist J>ess af mér.
í girðingunni við tjörnina hafa al-
drei verið fleiri en 14 súlur, og hvað
sé orðið af J?eim, gæti eg best trú-
að, að spyrjandinn í Vísi í gær, vissi
betur en eg. Mér J>ætti ekkert ótrú-
legt, að það væri einmitt hann, sem
hvað eftir annað hleypti út súlun-
um fyrir mér, og honum væri J>á
nær að vita en mér, hvað orðið hefðl
af J>eim, sem J>á töpuðust.
Einhver náungi gat fengið sig til
J>ess að skjóta fyrir mér eina súlu
inni í girðingunni, og tvær eða J>rjár
hafa drepist í vetur, enda hefi eg
ekki gert mér von um, að J?ær yrðu
ódauðlegar, J?á eg eignaðist J?ær,
jafnvel J?ó enginn hrafn og engin
oeiðibjalla hafi drepist hjá mér í
vetur, J?rátt fyrir J?að J?ó maðurinn,
sem kærði mig fyrir illa meðferð á
fuglunum segði í kæruskjalinu, að
veiðibjöllurnar mundu allar drepast.
pað mál er nú fyrir hæstarétti, og
ætli J?að væri ekki rétt fyrir J?á, sem
vilja væna mig um illa meðferð á
fuglunum, að bíða J?ar til dómur
fellur?
Annars hefði mig langað til J?ess
að spyrja, ef eg hefði vitað hvern
eg ætti að spyrja: Hverjir eru J?að,
sem skorið hafa á netið hjá veiði-
bjöllunum mínum 33 eða 34 sinn-
um? Hverjir eru J?að, sem hafa rif-
ið gat á vírinn hjá hröfnunum og
hleypt J?eim út, eitthvað 48 sinnum?
Ólafur Friðriþsson.
Skipafregnir.
Diana kemur hingað norðan og
vestan um land, en ekki sunnan um
land.
♦
Mercur kom til Bergen í gær-
morgun.
Botnía er væntanleg frá ísafirði
í dag.
Fundur
um heilsuhælismál Norðlendinga
verður haldinn annað kveld. í Kaup-
J?ingsalnum kl. 8’/2- Málshefjandi
síra Jakob Kristinsson. Skorað á
Norðlendinga að koma á fundinn.
Flelgi Cuðmundsson,
fyrrum bóndi á Tjarnarkoti í
Vestur-Húnavatnssýslu, sem mjög
hefir orðið að dveljast hér vegna
veikinda, liggur nú í Landakots-
spítala, en J?ar var skurðlækningar-
tilraun gerð á honum 17. J>. m.