Vísir - 16.07.1925, Síða 2
VlSIR
Höfam fyrirllggjanði:
Rúgmjöl,
Halfáigtimjöl,
Hveiti, Be3t Baker,
do. Cream of Manitoba,
do. Oak,
do. Gilt Edge,
Flórsykur, c
Strausykur,
Símskeyti
Khöfn, 15. júlí. FB.
Orsakir krabbameins.
SímaS er frá London, að lyfja-
fræ'Sistofnun ríkisins hafi fundið
mikroskopiska organisma, sem or-
saki krabbamein. — Er hér um
merkilegan atburö aö ræöa í sögu
læknisvisindanna, en vafasamt er
taliö, hvort mikið praktiskt gagn
yerði af uppgötvuninni. Af stofn-
tmarinnar hálfu verður nánara
skýrt frá þessu bráðlega.
i Kolamálið í Bretlandi.
Símað er frá London, að rann-
sóknanefnd hafi verið skipuð í
'kolanámudeilumálunum.
Belgía og Rússland.
Símað er frá Brússel, að Vand-
ervelde hafi sagt, að belgiska
stjórnin sé þess ófús, að viður-
kenna ráðstjórnina rússnesku.
Bretar auka flotann.
Símað er frá London, að stjórn-
in hafi ákveðið að láta smíða 14
riý beitiskip á næstu 5 árum.
* Fjármál Frakka.
Símað er frá París, að skatta-
frumvörp Caillaux hafi verið sam-
þykt. Socialistar greiddu atkvæði
gegn stjórninni í vissu atriði. —
Vinstri flokkur þannig klofinn:
Stjórnin lafir af náð hægrimanna.
Haraldur Sigurðsson
píanoleikari. . ij;
Listin á rót sína að rekja til göf-
ugustu eiginleika sálarinnar. Hún
þægir andlegum þörfum mannsins
og svalar tilfinningum hans. Það
er hlutskifti flestra manna, að
þurfa fyrst og fremst að hugsa
um að sjá sér farborða í lifinu, og
tekur það svo mjög Itpp tíma
þeirra og hugsun, að lítið verður
hægt að leggja rækt við meðfædd-
Verkamanna og ferða
stigvél
úr vatnsleðri, mjög ódýr.
Hvannbergsbræðnr.
ar listkendir. Þjóðfélagið í heild
sinni styður lika öllu öðru frem-
ur þá starfsemi mannsins, sem ó-
aðskiljanleg er lifsviðhalclinu.
Sagan sýnir, að blómguri list-
anna hefir jafnan verið samfara
efnalegum uppgangi þjóðanna; þá
hafa þær fengið efni á því, að
láta hæfileikamenn sina verja
starfi sínu í þágu listanna. Sam-
fara hinum miklu og hröðu fram-
förum i vísindum og verklegum
framkvæmdum siðustu alda, hefir
tónlistin tekið hliðstæða fram-
þróun, og það, sem við nútíma-
menn viðurkennum sígilt í tónlist-
inni, er ekki nema nokkurra alda
gamalt, og er tónlistin sú listanna,
sem siðast nær fullkomnunarstigi.
Þróun tónlistarinnar má sam-
kvæmt þessu rekja innan sögu
ákveðinna þjóða, og hafa þær tek-
ið við hver af annari og lagt sinn
skerf til hennar. Smærri þjóðirn-
ar, sem til skamms tíma hafa ver-
ið undirokaðar eða lítilsmegandi,
hafa lengst af farið varhluta af
þessari þróun. Fyrst með vakn-
andi sjálfstæðismeðvitund hafa
augu þjóðanna tekið að opnast fyr-
ir mikilvægi og gildi listanna, og
þær kostað kapps að geta látið
til sín taka á því sviði. Að lokum
fer svo, að hver þjóð er metin að
miklu eftir þvi hverju hún fær
áorkað í listinni Má þessu til
sönnunar nefna t. d. Þjóðverja,
Norðmenn, Finna o. fl.
Framfarirnar hafa líka náð til
íslands, og sjálfstæðisbaráttu
Evrópu hefir Island einnig háð, og
nú erum við farnir að fylgjast með
í listum og mun sjálfstæðisvitund
okkar líka vera að vakna. Við
höfiun eignast listamenn á ýmsum
sviðum. Sá listamaður íslensk-
ur, sem lengst hefir náð í sinni
grein, er píanóleikarinn Haraldur
Sigurðsson. Hann er gæddur af-
burða hæfileikum 0g hefir náð
'þeirri fullkomnun í list sinni, að
hann þolir samanburð við afburða-
menn helstu menningarþjóða á
því sviði. tlefir hann komiö opin-
berlega fram víða um lönd(Þýska-
land, England, Danmörku) og
hlotið hvarvetna viðurkenningu
vandlátustu listdómara. Walter
Niemann, að likindum helsti list-
dómari um píanóleik, sem nú er
uppi, hefir i bók sinni, „Meister
des Klaviers" (14. útg. 1921), far-
ið svofeldum orðum um Harald:
St. Æskao nr. 1.
Þingvallaför stúkunnar verður
farin næstkomandi sunnudag, ef
veSur leyfir.
Farseðlar á kr. 3,00 verða seldir
í G. T. húsinu á morgun frá kl.
7-9 síðd.
„Ultima Thule, Island, krúnuland
Danmerkur, norður við heim-
skautsbaug, sem er nyrsti útvörður
F.vrópumenningarinnar, getur, sök-
um þess hve hið opinbera músík-
líf, sem er bundið við höfuðstaö-
inn Reykjavík, af skiljanlegum
ástæðum, að eins átt nokkra ágæta
organleikara _____ En þeim til
mikillar undrunar, sem þekkja
ekki hina miklu menningu og
þroska landsins í skáldskap, list-
um og vísindum, — þessarar snævi
þöktu eld-eyjar, sem umleikin er
af æðandi stormum, — er það, að
þetta land hefir þegar á að skipa
ungum koncert-píanóleikara í
fremstu röð — Haraldi Sigurðs-
syni. Tvisvar hefir hann unnið
Mendelsohnverðlaunin, og hefir
hann oft komið opinberlega fram
í þýskum og austurrískum tónlista-
borgum, er hann viðfeldinn, ná-
kvæmur og eðlilegur spilari, öfl-
ugur og frískur. Tónninn er
„pjastískur", framsetningin vitur-
leg og þaulhugsuð, svo að formið
fær notið sín, og leiknin er af-
burðamikil, skýr og hrein, lipur
og glæsileg. ....“
Haraldur Sig-urðsson efnjr til
hljómleika í Nýja Bíó á föstudag-
inn, og eru nú liðin tvö ár síðan
hann heyrðist hér síðast. Hljóm-
leikar Haralds hafa jafnan af
mörgurn tónlistavinum verið álitn-
ir bestu hljómleikar ársins, og má
ekki síður vænta þess nú, og
kunna bæjarbúar vonandi að meta
liann að verðleikum.
B. A.
Frá Danmörku
(Tilk. frá sendiherra Dana).
—x—
Rvík, 15. júlí. FB.
Garðar Gíslason, stórkaupmaður,
Gísli Johnsen, konsúll, Magnús
Sigurðsson, bankastjóri, Sæmund-
ur Halldórsson, kaupm. og Sigurð-
ur Kristinsson, forstjóri, hafa ver-
ið útnefndir riddarar af Danne-
brog. Ágúst Flygenring, alþm.,
hefir verið gerður Kommandör af
annari gráðu.
Seinni hluta síðastl. mánudags
gengu fulltrúar íslensku verslun-
arstéttarinnar á konungsfund,
ásamt formönnum stórkaupmanna-
félagsins og íslenska verslunarfé-
lagsins („Den islandske Handels-
forening"). Viðstaddir voru Stau-
ning forsætisráðherra og Jón kon-
ungsritari Krabbe.
Ernst Bojesen er látinn. Hann
var áðijr forstjóri „Det Nordiske
Forlag" og síðan 1903 með-forstj.
i „A.s. Gyldendalske Boghandel
Nodisk Forlag“.
Samkvæmt símskeyti frá Mon-
treal þ. 11. júlí, er lítill afli viti
suðurstrendur Newfoundlands. —*
Netjafiskveiðar fyrir suðurströnd-
inni árangurslausar. Fyrir norður-
ströndinni lítil veiði. Engin ný tíð-
indi frá Labrador. ís enn landfast-
ur við morðurströndina. Búist við»
að fiskveiðar fari að glæðast bráð-
lcga.
Magister Paul L. Múlier hef-
ir skrifað langan ritdóm í „Nati-
onaltidene" um útgáfu dansk-
íslenska félagsins á „Islandske
Ivulturbilleder“, eftir Sigfús Blön-
dal. „Að loknum lestri leggja
menn bókina frá sér með þeim
ásetningi, að lesa aftur og ræki-
legar þetta verk hiris lærða rithöf-
undar.“
(I Bæjarfréttir fl
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 10 st„ Vest-
mannaeyjum 7, ísafirði 9, Akur-
eyri 11, Seyðisfirði II, Grindavífc
9, Stykkishólmi 9, Grímsstöðuni
7, Raufarhöfn 10, Hólum í Horna-
íirði 12, Þórshöfn í Færeyjum IT,
Angmagsalik 9, Kaupmannahöfn
17, Utsire 15, Tynemouth 15, Leir-
vík 12, Jan Mayen 5 st. (Mestur
hiti í Rvík í gær 11 st„ minstur 6
st. Úrkoma mm. 2.6). — Loftvæg-
islægð vestan við írland. Veður-
spá: Kyrt á Vesturlandi. Hæg
norðlæg átt á Austurlandi. Úr-
komulaust víðast hvar. Þoka við
norðausturland.
Bræðurnir Espholin
hafa í hyggju að koma hér tipp
írystihúsi nteð nýtísku tækjuni,
sem mjög eru að ryðja sér til rúnjs
erlendis. Þeir hafa nýskeð fengið
sendingu af nýjum fiski og kjöti
frá Svíþjóð, sem fryst var þar
með þessari nýju aðferð og síðan
send hingað i venjulegum kassa-
umbúðum. I gær var sendingin
orðin 9 daga gömul, og reyndist
]tá fiskurinn algerlega óskemdur
og með nýjabragði, og kjötið eins.
Má því ætla, að aðferð þessi muni
gefast ágætlega vel til þess að
vernda fisk og kjöt frá skemdum
um langan tíma. Bræðurnir ltafa
í hyggjtt að frysta hér fisk og
kjöt í stórum stíl, bæði til útflutn-
ings og neyslu t bænum, og væri