Vísir - 18.07.1925, Síða 2
V !S1K
Höfnm fyrirllggjanði:
Rúgmjöi,
Hálfsigtimjöl,
Hveiti, Be3t Baker,
do. Cream of Manitoba,
do. Oak,
do. Gilt Edge,
Flórsykur,
Strausykur.
BYGGINGARVÖRUR
Galv. Þakjárn besta teg. allar lengdir, 30 Jiml. breitt (11 riflur)_
Slétt járn 30 þml. breitt. Asfaltpappi 3 teg. Loftrósettur og Loft-
listar. Linoleumgólfdúkar f jölbr. og ódýrt úrval. Skrár allar gerðir.
Hjarir allar gerðir. Huröarlokur allar stœrðir og gerðir. Hurðar-
húnar úr tré og málmi 20 mism. gerðir og verð. Gluggajárn galv.
„Gefion“-gluggaopnara patent — eftirsóktir og handhægir, þurfa
að komast á alla glugga sem opna á. Gluggagler. Naglar allar gerð-
ir og lengdir. Málaravörur og alt þar til heyrandi, þ. á. m. hol!.
Zinkhvítu og Blýhvítu, sem af öllum er skyn bera á slíkar vörur, ettt
taldir sterkustu og haldbestu litirnir. Lökk og „Bejtser“ og þurrir
litir af öllum tegundum. Látið engan telja yður trú um það, að
aðrir geti boðið yður góðar vörur fyrir lægra verð en við, og hafið
það fyrir fasta reglu að festa aldrei kaup annarstaðar, fyrr en þér
hafið skoðað varning vorn og spurt um verðið.
.Við kaupum alt einvörðungu fyrir peninga út í hönd, og sætum
því þar af leiðandi bestu kjörum.
Símskeyti
—X---
Khöfn, 17. júlí. FB.
Veiðar Færeyinga við Grænland.
Símað er frá Þórshöfn í Fær-
eyjum, að menn séu þar mjög á-
nægöir yfir veiðiför eins færeyska
fiskiskipsins til „Fyllabanken" vi'S
vestur-Grænland, einkanlega þar
eö veiði við ísland brást Færey-
ingum hálfgert i vetur.
Breskir námumenn hafna tillögu
stjórnarinnar um rannsókn-
ardómstól.
Símað er frá London, að námu-
menn hafi hafnað tillögu stjórn-
arinnar um rannsóknardómstól. —
Samþyktu námumenn þetta á afar
fjölmennum fundi. Útlitið rnjög
alvarlegt.
Skriðuhlaup á Þelamörk.
Símað er frá Osló, að geysilegt
skriðuhlaup hafi orðið í Lunde á
ÞelcUnörk. Áætlað erað3C>ookubik-
metrar hafi hrunið í fljótið við
Lunde.
(Lunde er hérað í Þelamerkur-
fylki (Bratsberg amti), fyrir vest-
an Norsjö; 259.65 ferkílóm. 2702
íbúar 1920).
Frakkar sækja á í Marokkó.
Símað er frá París, að Frakkar
sæki á og sigri síðustu daga í
Ivlarokkó.
Nýbýlin í Sogamýri.
„Við erum allir bændur eða
bændasynir," segja Búlgarar. Hið
sama má segja um Islendinga. Hér
er 2. kynslóð borgar- eða bæjar-
búa fyrst að verða til. Þeir eru enn
mjög fáir á fullorðinsaldri, sem
eiga innfædda Reykvíkinga að for-
eldri.
Bændablóðið er svo ríkt í okk-
ur Reykvíkingum, að þeir munu
fáir, sem ekki telja það unaðslega
tilhugsun, ef þeir gætu eignast
jarðnæði og snoturt bú, gætu lif-
að í sambandi við náttúruna, og
lagt fram krafta sína, henni til
hjálpar. Þrátt fyrir fólksstraum-
inn úr sveitunum, er þessi tilfinn-
ing vafalaust mjög rík í íslend-
ingum yfirle^tt. Vandinn er að
finna bestu ráðin til að fullnægja
henni, að skapa skilyrðin.
Félagið „Landnám" var stofn-
að hér í fyrra, til þess að stuðla
að nýrækt, fyrst. ög fremst nærri
Reykjavík og öðrum kauptúnum,
og aðstoða nýbyggjendur, eftir því
sem félagið hefir tök á. Sneri fé-
lagið sér til bæjarstjórnarinnar
vorið 1924 í því skyni, að bæjar-
stjórnin tæki nýbýlamálið til yf-
irvegunar. Voru undirtektir borg-
arstjóra og bæjarstjórnar hinar
bestu, og ákvað hún að ætla svo-
kallaða Sogamýri, er liggur bæj-
armegin við Elliðaárnar, sunnan
þjóðvegarins, til nýbýlaræktar.
Ennfremur var ákveðið að létta
nýbyggjendum byrjunina með því
að þurka landið með afrenslis-
skurðum, og tæta það, áður en
það væri afhent til erfðafestu.
Erfðafestuskilmálarnir eru í að-
alatriðum þessir:
Landið er ætlað til ræktunar og
byggingar nýbýlis, en ekki annara
afnota. Má því að eins reisa eitt
íltúðarhús á hverju landi og nauð-
synleg útihús vegna búskáþarins.
Landið skal girt gripheldri girð-
ingu innan 4 mánaða, og íbúðar-
hús reist innan 2ja ára. Ræktun
landsins skal lokið á 10 árum, og
má rækta til túns, matjurtagarða
eða annarar sáningar. Fyrsta árið
greiðist ekkert erfðafestugjald af
landinu. Næstu 9 árin er gjaldið
10 kr. af hektara. Að þessum 10
árum liðnum (þegar landið á sam-
kvæmt samningnum að vera full-
ræktað), verður eftirgjaldið af
hektar andvirði 180 lítra nýmjólk-
ur, miðað við meðal útsöluverð
hér í bænum árið áður. Þlvenær
sem bæjarstjórn telur sig þarfn-
ast landsins, er leiguliða skylt
að láta erfðafesturétt sinn af hendi
gegn 10 aura gjaldi fyrir hvern
fermeter í fullræktuðu landi. Er
í verðinu tekið tillit til þess, að
bærinn hefir sjálfur kostað miklu
til flndirbúnings ræktuninni. Bæj-
arstjórn á forkaupsrétt á Iandi sem
leigutaki vill selja, og getur tekið
eignina fyrir matsverð. Leigutaka
er heimilt að veðsetja landið og
byggingar á því og selja það eða
afhenda með þeim takmörkunum
er að ofan segir, en byggingar
skulu þó ávalt fylgja landinu, og
landinu má ekki skifta i sundur.
Þeim hluta Sogamýrarinnar, sem
Nýjar vörur með hverri ferð. Nú síðast Steinolíulampar og
Luktir af öllum gerðum, og alt þar til heyrandi, ýmisk. Járnvörur
og Postulínsvörur m. m. ALT Á EINUM STAÐ.
HEILDSALA. SMÁSALA.
Verslun B. H. Bjarnason.
Tómir stórir kassar
með gjalverði í
Versl. B. H. Bjarnason.
liggur nær bænum, hefir nú verið
skift í 12 spildur, sem hver er 2
—4 hektarar að stærð. Landið var
ræst fram í fyrra og hitteðfyrra,
og er óðum að verða þurt. Skift-
ingunni er hágað þannig, að hin-
ir stóru framræsluskurðir sem um
landið liggja verði sem víðast á
Iandamerkjum; við það sparast
girðingar að mun.
—Ætlast er til, að býlin standi við
vegina sem þarna eru. 1 hlíðinni
að sunnan og vestan, neðán vatns-
veituvegarins, en nærri þjóðveg-
inum á þeim löndum, sem að hon-
um liggja.
Bæjarstjórnin hefir þegar af-
hent 7 af þessum löndum, og er
byrjað að vinna þau með þúfna-
bananum. Er ])ess varla að vænta,
að allir nýbyggjendur geti komið
ræktuninni verulega áleiðis í ár úr
þessti, en margir eru þeir áreið-
anlega, sem vona að hér sé hafin
byrjun, sem verða megi landi og
lýð til gagns.
Nýbýlamálið á alveg vafalausf
mjög miklum vinsældum aðfagna;
hugsunin að rækta og klæða land-
ið á sterk ítök í huga hvers góðs
íslendings. Það má að visu vera
öllum ljóst, að ræktun lands vors
hefst ekki fyrir alvöru, íyrr en
þjóðin er orðin svo efnum búin
fyrír hinn mikla dugnað, sem í
landsmönnum Ieynist, og auðæfi
okkar ágæta lands (þ. e. sjávar),
að peningar fást að láni við vöxt-
um, sem bóndinn þolir. Þess verð-
ur sennilega ekki rnjög langt að
bíða ,— ef þær stórkostlegu von-
ir rætast, sem forráðamenn ís-
lenskra fjármála virðast byggja á
stefnu sína. En einmitt vegna þess
að vonin um ræktun lands vors
í stórum stíl er enn í bili að eins
von, — sem rætast mun að vísu, —
er nýbýlaræktunin, sem liggur nær
veruleikanum og getu manna.hent-
ugt verkefni, fyrst um sinn.
Eg þykist mega óska nýbyggj-
endunum í Sogamýri góðs gengis
í nafni fjölda Reykvíkinga. Við
erurn margir, sem óskurn þess að
sjá hvern ræktanlegan blett í um-
hverfi borgarinnar breytast í
skrúðgræn tún og akra, þar sem
ánægðir menn og konur búa á
snotrum býlum.
P. H.
til ritstjóra Vísis.
—o—
Kæri herra: — Ef til vill þykir
yður ekki úr vegi að birta, í heiðr-
uðu blaði yðar, hvernig aðkomu-
manni kemur yðar fagra land fyr-
ir sjónir, eftir 47 ára fjarveru. Hin
fagra höfn vakti vissulega undrun
mína; svo stór og sterk sem hún
er En bærinn sjálfur vakti mér og
bæði gleði og undrun og eins hin
fögru skip, sem landið hefir eign-
ast. Hér hefir orðið bylting án
blóðsúthellinga, síðast liðna liálfa
öid. Það er Alþingi og stjórn þessa
bæjar til rnikils sóma. Og ekki má
gleyma íamvinnu meðal allra
stétta. — Gistihús eru hér góð og
með nýtísku sniði: — raflýst hátt
Mest úrval af
Höfuðíötnm
Hattar
fleiri tegundir.
Enskar húfur,
karla og drengja.
Regnhattar,
karla og drengja.