Vísir - 10.09.1925, Blaðsíða 2

Vísir - 10.09.1925, Blaðsíða 2
ylsiR Vísis-kaffið gerir aUa glaða. Höíum íyrirliggjandi: Kartöflur. Parkerpipnr nýkomnar. Landstjarnan Símskeyti Khöfn, 7. sept. FB. Viviani látinn. SímaS er frá París, aS Viviani, fýrverandi forsætisrá'ðherra Frakk- lands, sé nýlátinn á geSveikrahæli. HafSi hann veri'ö sinnisveikur um nokkurt skeiö og er álitiö, aö of mikil andleg áreynsla við ýmiskon- ar ábyrgðarmikil störf, hafi or- gakað veiklun hans. Leynisamtök reyhd milli þýskra og enskra námueigenda. Símað er frá Köln, að reynt hafi verið að mynda kola-„trust“ leynilega, á milli bresks kolaiðn- aðar og Ruhrhéraðs. Komst þetta upp og mætti geysilegri mót- spyrnu i innlendum og útlendum bíöðum. Khöfn, 10. sept. FB. Mannfall Frakka í Sýrlandi. Símað er frá Berlín, að sam- kvæmt símfregnum til „Tageblatt" frá Bagdad, hafi 1500 Frakkar fallið í skærunum í Sýrlandi. Skrítin sending. Símað er frá Genf, að óþektur Vesturheimsmaður hafi sent Al- þjóðabandalagsráðinu 12 gull- saumaðar, skinnbryddar silkikáp- ur. — Gjöfin var endursend sam- stundis. Samvinna þýskra iðjúhölda. Símað er frá Berlín, að flestar stóriðnaðargreinir eigi í samning- um um að sameinast í geysistóran félagsskap með 800 miljóna gull- marka hlutafé. Frá Marokkó. Simfregnir herma, að landgöngu- tilraun sú við Marokkóströnd, sem símað hefir verið um, hafi mis- hepnast, vegna harðvítugrar mót- spyrnu. Fellibylur í Kóreu. Símað er frá Tokíó, að á suð- vesturströnd Kóreu, hafi fokið í fellibyl 300 hús. Lestir fuku af teinum og skipum hvolfdi. Sknldaskifti Frakka og Breta. —x— Þegar styrjöldinni miklu var lokið, voru .bandamenn komnir í gífurlegar skuldir, sem Þjóðverj- um var ætlað að greiða. En það kom brátt í Ijós, að þeim voru slíkar skuldagreiðslur langt um megn, og fóru bandamenn þá að „gera upp reikningana“, og krafði hver sinn skuldunaut. Bandaríkja- menn höfðu lánað mest og kröfðu Breta, Frakka, ítali og Belgi um skuldir þeirra. Bretar einir brugðu við og sömdu tafarlaust um skuld- ir sínar við Bandaríkin og greiða af þeim um 30 miljónir sterlings- punda á ári, uns þær eru allar greiddar, eftir 62 ár. Hinir skuldu- nautar þeirra hafa engin skil gert enn. Þó hafa Belgir nýlega gert sa|mninga um skuldir sínar við Bandaríkin. Bretar eiga geysimikið fé hjá Frökkum og öðrum bandamönn- um sínum hér í álfu, og hafa sí- felt verið að ganga eftir skuldum sínumí síðan þeir tóku að greiða Bandaríkjunum. Hafa fjölmargar orðsendingar farið í milli Frakka og Breta út af þessum skuldaskift- um, og síðast í fyrra mánuði kom Caillaux, fjármálaráðherraFrakka, til Lundúna, til þess að binda enda á málið, ef verða mætti. — Þeir Winston Churchill og hann sátu á fundi 24. og 25. f. m., og lauk þeirra skiftum svo, eftir tveggja daga þóf, að þeir urðu ekki á eitt sáttir, og Caillaux bjóst til að halda heimleiðis næsta dag. Bretar telja, að þeir eigi að réttu lagi að fá 30 miljónir sterlings- punda á ári frá Frökkum upp í skuldirnar, en Churchill bauð, til samkomulags, að lækka þá kröfu nær um helming, og krafðist 16 miljóna á ári. Caillaux bauð 10 miljónir. Þegar slitnað var upp úr samn- ingum milli Churchills og Cail- laux, sagði Churchill öðrum ráð- herrum frá því, og sýndist þeim þá að halda samningunum áfram. Chamberlain var þá falið að boða Caillaux á nýjan umræðufund, 26. ágúst, og þá féll alt í ljúfa löð, og eiga Frakkar að greiða I2J4. miljón sterlingspund á ári, (eða 2% af öllum skuldunum), en verð- ur veittur skuldgreiðslufrestur til ársins 1930. Þó er þetta því skil- yrði bundið, að Frakkar fái jafn- góð kjör á skuldgreiðsluin sínum hjá Bandaríkjastjórninni, og fer Caillaux vestur um haf í þessum mánuði til þess að semja um þær skuldir. Ef Bandaríkin krefjast t. Alfred Olsen & Co. A. s. Eaupmannahöfn. Smnrningsoliur allar tegnndir. ÍUmboðsmenn; Þórjðnr Svein’sson & Co. d. 3/4% eða 3% af skuldum sín- um árlega hjá Frökkum, þá er til- boð Breta úr sögunni, því að þeir hafa áskilið sér sömu kjör sem Frakkar nái hjá Bandaríkjutnönn- um. Þetta nýja tilbo'rf er heldur óvin- sælt í Englandi og þykir stjórnin hafa verið of mild við Caillaux, en hann hafði verið hinn glaðasti, þegar samningunum var lokið. Kolaskip kom í gær; h.f. Alliance o. fL áttu farminn. Skip kom í gær með trjávið og se-> ment til Timbur og Kolaversl.* Reykjavík. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavik jg st., Vestm.- eyjum 8, ísafirði 9, Akureyri 9, Seyðisfirði 3, Grindavík 9, Stykk- ishólmi 8, Grímsstöðum 4, Raufar- höfn 8, Hólum í Hornafirði 6, Þórshöfn í Færeyjum 7, Angmag- salik (í gær) 7, (ekkert skeyti frá Khöfn), Utsire 10, Tynemouth 11, Leirvík 10, Jan Mayen 4 st. (Mest- ur hiti í Rvík síðan kl. 8 í gær- morgun 11 st., minstur 7 st.). Loft- vægishæð (768) fyrir sunnan land. Veðurspá: Hæg suðvestlæg átt. Þurviðri á Norðurlandi og Austur- landi. 40 ára hjúskapaíafmæli eiga á morgun frú Ingibjörg Pálsdóttir og síra Ólafur Ólafsson, præp. hon. frá Hjarðarholti. Guðm. Ásbjömsson, kaupm. og bæjarfulltrúi, er 45 ára á morgun. Jón Á. Egilson datt og rifbrotnaði síðastliðinn j sunnudag og hefir legið síðan, en er nú á batavegi. i Af síldveiðum j komu í gær: Margrét, Seagull, ! Kakali, Skjaldbreið, Iirefna og ; IhO. Af veiðum j kom Snorri goði í gær með IOO . tunnur. i Völundur < fekk trjáviðarfarm I gær. í „Grímumaðurinn". Lokið er í dag sögu þeirri, sem verið hefir að undanförnu í Vísi, og átt hefir miklum vinsældum að fagna. Þess skal getið, að sagan verður ekki sérprentuð. Lyra fer héðan kl. 6 í kveld. Meðal farþega verða síra Steingrímur Þorláksson og frú hans, frú Hen- riette Strindberg, G. Funk, verk- fræðingur, G. Fannberg, A. Bent- sen, Forberg landsímastj., frú T. H. Ólafsson. Til Vesturheims fara: Frú Valgerður Helgason, ungfrú Kristín V. Poulsen og Kristín. Oddgeirsdóttir. Nýja Bíó sýnir í kveld og annað kveld hina kunnu og ágætu mynd „Sig- rún á Sunnúhvoli“, sejln hlotið hef- ir meiri og almennari vinsældir en flestar aðrar myndir, sem hér hafa verið sýndar. Gamla Bíó sýnir þessa dagana Paramount- mynd, sem heitir „Karlmenn“. — Pola Negri leikur annað aðalhlut- verkið, en hún er svo sem kunnugt er, einhver hin snjallasta leikkona, sem hér hefir sést í kvikmynd. Þýsku stúdentamir sungu á Arnarhólstúninu í gær- kveldi fyrir (miklu fjölmenni og skemtu áheyrendur sér vel. Ræður fluttu þeir Ólafur G. Eyjólfsson og prófessor Haraldur -Níelsson, er sögðu deili á stúdentunum og mæltust til þess, að bæjarbúar hýstu þá, með því að þeir voru bæði húsviltir og félausir. — Að- alræðismaður Þjóðverja, Sigfús Blöndahl, lætur flytja stúdentana til Þingvalla í dag. Þaðan fara þeir gangandi til Geysis, Gullfoss og Heldu, en ræðismaður lætur sækja þá austur að Þjórsárbrú þegar þeir koma frá Heklu. Héðan fara þeir svo norður til Akureyrar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.