Vísir - 06.10.1925, Side 2
vIsir
iHaréma
Kanpnm
GARNIR og GÆRUR
PRESERYENE
{jyotta aðferðin er óðum að ryðja sér til rúms viða um
heim. Þegar að er gætt er það ekkert undrunarefni. Hvers-
vegna ættu konurnar að bogra yfir þvottabalanum í stað
þess að gera önnur heimilis verk meðan Preservene þvær
þvottinn hjálparlauit. Það er mjög fábrotið. Skerið sápu-
stykkið í þunna spæni og látið í 25 til 35 litra af köldu
vatni. Látið hinn óhreina þvott i vatnið og sjóðið í 20
mínútur. I venjulegan þvott eins heimilis þarf varla meira
en 3/4 hluta af einu sápustykki, jafnvel ekki meira en hálft.
Hér um ræður að vísu mestu hversu mikill þvotturinn er.
Það sem afgangs er af stykkinu má nota við næsta þvott
eða til annara þarfa, því að Preservene hreinsar allrar
sápu best alskonar yfirfatnað, hanska, gólfteppi, húsgögn
og svo framvegis.
(Lesið næstu auglýsingu.)
Símskeyti
■—X—
Khöfn 5. okt. FB.
Kafbátsslysið.
Síim‘5 er frá New York City,
aö kafbátur sá, er símaö var um
nýlega, hafi verið hafinn upp.
Allir skipverjar dánir.
Fárveður í Eystrasalti.
SímaS er frá Helsingfors, a'ð
þegar flotinn hafi veriö viö æfing-
ar i Botniska flóanum, hafi skoll-
iö á ákaflegt rok. Óttast menn, að
tundurspillir einn hafi sokkið
með allri áhöfn. Önnur skip eru
talin vera i talsverðri hættu.
Símað er frá Stokkhólmi, að
flotamálastjórnin hafi sent skip
til hjálpar.
Öryggismálin.
Símað er frá Locarno, aö ör-
yggismálaráðstefnan byrji i dag.
Mætast þar utanríkisráðherrar
Bandamanna og Þýskalands til
þess aö ræða öryggismáliö munn-
lega. Er þetta talin djarfasta til-
raunin til þess að koma á varan-
legum friöi, sem enn hefir verið
gerð.
Veisla í loftinu.
Símað er frá London, að bráð-
lega verði haldin stórveisla. i
stærstu flugvél Englands. Þátttak-
endur verða 20, og veröur veislan
haldin jjegar flugvélin fer eins
hátt og hratt og hún getur. Þetta
mun vera fyrsta loftveislan í sög-
unni.
Emil Telmányi.
—o—
1 kvelcl gefst Reykvikingum
i fyrsta sinni kostur á að heyra
þennan fræga listamann, sem
blöðin í mentalöndunum aust-
an hafs og vestan róma svo
mjög, eigi að eins fyrir leikni
lians, sem setji hann á bekk
með fremstu fiðlurum heims-
ins, heldur einnig fyrir þær
tilfinningar, sem hann er fær
um að leggja í leikinn. Sum
blöð eru með samlíkingar og
segja að hann minni á Joakim,
íem fremstur þótti allra með-
an hann lifði (um og fyrir
aldamótin siðustu). Önnur
nefna Wilhelmi og Kreisler. í
raun og veru getur verið mjög 1
villandi að bera einn listamann
saman við annan. pví sjálf-
stæðari sem þeir eru, því skýr-
ari eru persónueinkenni þeirra,
og fyrir þau er ekki til neinn
áreiðanlegur mælikvarði. —
Hér hafa áður heyrst að minsta
kosti tveir mjög góðir fiðlarar.
Hvorugur þeirra náði þó með
höfuðið upp i ljóma heims-
frægðarinnar. Nú er eftir að
vita hvort menn hér heyra
muninn á þeim og þessum. —
þ>vi miður munu færri en vilja
komast að í kveld, en tækifær-
ið gefst aftur á föstudaginn.
M.
Guðlang Arason
sjötug.
,—o--
Sjötug er í dag Guðlaug kenn-
ari Arason, ein af allra merk-
ustu konum höfuðstaðar vors.
Hún er komin af hinum bestu
ættum og fekk ágætt uppeldi
hjá föður sínum. Guðlaug er
kona gáfuð og vel að sér, fróð
og víðlesin. Hún hefir verið
kennari í barnaskóla Reykja-
vikur yfir 30 ár og farið það
starf ágætlega úr hendi. —• I
stjórnmálum hefir hún jafnan
haldið veg íslands og frelsi hátt.
Hún hefir og jafnan verið vin-
ur vina sinna, trygg og fastlynd.
Vísir óskar lienni til hani-
ingju.
Sigvaldi Kaldalóns:
Fimm sönglög.
petla er lítið og laglcgt söngva-
safn — að eins fimm lög. Eru
þau í aðalatriðum ekki mikið
frábrugðin eldri lögum höfund-
ar, og er auðfundið að þau eru
sömu ættar.
Lög Kaldalóns liafa átt all-
mikilli úthreiðslu og vinsældum
að fagna, og má þakka það Ijóð-
rænni gáfu hans, og liefir hon-
um stundum vel tekist með lag-
línu, t. d. „Jeg lít i anda liðna
tíð“. Lög hans eru bljúg og við-
kvæm. pað sem háir höfundi er
vöntun á þekkingu í tónfræði,
og sérstaklega er stílvifund hans
lítið þroskuð. Verður mikið vart
suðrænna (sérstaklega ítalskra)
áhrifa í lögum hans, og fer oft
illa á, þegar hann sameinar ís-
lensk ljóð óskildum tónum, t. d.
siðasta lagið í hef tinu, „Leiðsla“,
sem er spánskur dans (Haban-
era), hefir sérmerki hans i fall-
anda og hljómbrigðum.
Sigvaldi Kaldalóns skipar
sess á meðal fyrstu söngvahöf-
unda okkar, og má sjá að hann
hefir sterka skapandi æð í eðli
sínu; hafa lög hans átt mikinn
þátt í þvi að gefa góðum kvæð-
um líf hjá þjóðinni, og hefir
viðleitni hans, þrátt fyrir erfiða
aðstöðu til listaþroska, borið
þann ávöxt, sem mörgum liefir
orðið gleði að. B. A.
□ EDDA 59251067-1
Veðrið í morgun.
Hiti i Réykjavík 4 st., Vest-
mannaeyjum 2, ísafirði 0, Ak-
ureyri 1, Seyðisfirði 4, Grinda-
vik 2, Stykkishólmi 2, Grims-
stöðum 3, Raufarhöfn 0, Hól-
um í Hornafirði 5, pórshöfn í
Færeyjum 9, Angmagsalik (i
gær) 1, (ekkert skeyti frá
Kaupmannahöfn), Utsire 11,
Tynemouth 12*, Leirvík 11, Jan
Mayen 0. — Mestur hiti í Rvik
síðan kl. 8 i gærmorgun 9 st.,
minstur 3 st. Crkoma 2.2 mm.
— Loftvægislægð fyrir austan
land. — Veðurspá: Norðlæg átt
á Austurlandi. — Norðlæg átt
fyrst í stað og síðan norðvest-
læg á Vesturlandi. — Líklega úr-
koma á norðvesturlandi.
Friðrik Björnsson,
læknir, opnar lækningastofu
sína i dag í Thorvaldsensstræti
4. Hann hefir stundað nef-, háls-
og eyrnalæknigar um langt skeið
erlendis og ætlar að starfa að
þvi hér framvegis. Símanúmer
hans er 1786. sjá augl. í blaðinu
í dag.
Stúdentar
sem ætla aS stunda nám við há-
skólann í vetur, eru nú flestir
komnir til bæjarins frá sumar-
vínnunni. Er hlutur þeirra mis-
jafn, og flestra rýr, og mun skamt
hrökkva til námsins. Veröa þeir
því flestir að vinna marga tíma á
dag auk námsins, til þess að geta'
lifaS. Þeir bæjarbúar, sem óska aö
fá heimiliskennara úr hópi stú-
denta, ættu a‘S snúa sér til LúSvígs
GuSmundssonar kennara. Hittist
á SmiSjustig 6 kl. 12—x og 7—8.
Hljómleikasveit,
þriggja manna, kom til Café
Rosenbert/ á Lyra í morgun og
leikur þar fyrsta sinni kl. 9 í
kveld.
Guðmundur Guðmxmdsson,
kandidat x læknisfræöi, hefir
veriö settur til þess að þjóna hér-
aðslæknisembættinu í Reykhóla-
héraði frá 1. þ. m., þar til er öðru-
vísi verður ákveðið.
Otto Kildal,
cand. juris, hefir verið viður-
kendur vicekonsúll við norska
aðalkonsúlatið í Reykjavík.
Söngfélagið jTrestir
i Hafnarfirði fór um síðustu
helgi lil Eyrarbakka og Stokks-
eyrar, og söng þar á báðum
stöðunum við góðan orðstír, og
fyrir fullu húsi áheyrenda.
Gengi erlendrar myntar.
Sterlingspund ...... kr. 22.45
100 kr. danskar......— 111.91
100 — sænskar........— 124.73
100 — norskar........ — 93.06
Dollar............... — 4.65
Af veiðum
konm í morgun: Ása (160 föt),
Menja (100), Njörður og Gull-
toppur.
Lyra
kom frá Noregi í morgun. Með-
al farþega voru Dr. Kort Kort-
sen og Einar Einarsson Markan,
söngvari.
Áheit á Strandarkirkju,
aflient Visi: 2 kr. frá O. G., 2
kr. frá p. S., 10 kr. frá M. S.„
2 kr. frá N., 15 kr. frá DreL
Schiffburschen.
Douro
er í Vestmannaeyjum. Kemnr
hingað i fyrramálið.
/