Vísir - 22.01.1926, Blaðsíða 2

Vísir - 22.01.1926, Blaðsíða 2
VÍSIR Símskeytí Khöfn 2i. jan. FB. Enn um seðlafölsunarmálið. Símað er frá Budapest, að þing- ið hafi samþykt að setja á stofn nefnd til þess að rannsaka fölsun- armálið. — Lögreglan heldur, að samtals hafi verið prentaðar 125 miljónir franka. Miklu mannvirki lokið. Símað er frá London, að hleðslu varnargarðanna við hina fyrirhug- uðu áveitu við hið svokallaða bláa „Nílarfljót“ i Súdanhéraði sé lok- ið. Þetta er með stærstu verklegum fyrirtækjum, sem gerð hafa verið. Tuttugu þúsundir manna hafa unnið við verkið. Áveitusvæðið er 200000 ekrur, og er áætlað, að bægt muni að rækta 40 miljónir bagga af baðmull á svæðinu ar- lega. Khöfn 21. jan. FB. Sundrung í frjálslynda flokknum breska. Símað er frá London, að menn búist þar við, að frjálslyndi flokk- urinn klofni og að Lloyd George muni leita samvinnu að einhverju leyti við jafnaðarmenn. Fjármál Frakka. Símað er frá París, aö ekkert samkomulag hafi enn náðst um fjárlagafrumvörpin. Fjármálaráð- herrann hefir lýst yfir því, að það sé alveg óhjákvæmilegt að ná sam- komulagi fyrir 1. febrúar. Briand reynir að koma þingmönnum í gott skap með því, að bjóðast til þess að hækka þingfararkaupið úr 27.000 í 42.000 franka. Utan af landi. —X— Akureyri 21. jan. FB. Þingmálafundur var haldinn hér í gærkveldi. Á dagskrá voru átta mál. Þingmaðurinn hélt hálfs ann- ars tíma inngangsræðu um lands- mál yfirleitt. Urðu miklar umræð- ur á eftir og urðu að eins 3 mál afgreidd: fjárhagsmál, gengismál og'seðlaútgáfan. Framhaldsfundur verður í kveld. Tillaga í fjárhags- málinu vár svohljóðandi: „Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir því, að fjárhag ríkisins má nú telja komið í gott horí og skorar jafnframt á þing og stjórn, að gæta framvegis eins og undanfar- i’ð fylstu varúðar í fjármálastjórn ííkisins. Hins vegar lítur fundur- inn svo á, að áhættulaust sé að létta nú þegar álögum af þjóðinni að einhverju leyti, og telur þá rétt að byrja á því að afnema gengis- viðaukann og að lækka útflutn- ingsgjakl á síld. Frá Dinmðrkn (Tilk. frá sendiherra Dana). Nýtt kirkjusögurit eftir biskup vorn. í „Nationaltidende“ birtist rit- dómur eftir prcstinn Dr. theol. Neiiendam um hið nýja ritverk Jóns bisktíps Helgasonar: „Is- lands Kirke fra dens Grund- læggelse til Reformationen.“ Segir þar, að útkoma rits þessa sje sannarlegt gleðiefni, þar sem höí'undurinn, sem sje maður vinveittur landi voru, sé hvort- tveggja í senn hinn fróðasti sögumaður og sjálfur starfandi kirkjunnar maður. Eftir að þar hefir verið farið mjög lofsamlegum orðum um áður útkomiðkirkjusöguritbisk- upsins er gerð greinfyrirefnirit- verks þess, er hér liggur fyrir, i höfuðdráttum þess og aðsíðustu tekið fram, að jafn alþýðlega samið sögurit og þetta muni vissulega eiga von góðrar út- breiðslu um öll Norðurlönd; því að auk þess sem i*it af þessari gerð vikkar sjóndeildarhring manna, þá hefir það það til sins ágætis, að biskupnum hefir tek- ist með sínum góða penna að gera hið annars strembna mið- aldasöguefni mjög svo meðfæri- legt. í þessu sambandi er lokið lifsorði á hlutdeild pórðar Tóm- assonar klausturprests í útgáfu þessa rits. Bókin er kostuð af Gads-bók- forlagi með styrk úr dansk-is- lenska sáttmálasjóðnum, og prýdd fjölda mynda. Fyr á timnm þá kostuðu Gillette rakvélar 15 til 25 krónur, en kosta nú að eins kr. 4.50 með einu blaði. VÖRUEÚSIÐ Frú Lanridsens Skole Hnsholdningsseminariet, Ankerhns Sorö, Danmark, tekur ungar stulkur til náms, hvort sem þær ætla sér að verSa kenslu konur siðar, eða taka einungis þdt í venjulegum 5 mánaða námskeiðum, sem hefjast t mai og nóvember. Nánari upplýsingar veiltar þeim, er þess óska. Útsalan hjá Hita & Ljós, stendur yfir að- eins til næsta laugardags. — Nokk- ur stykki af reglulega fallegum Ijósakrónum, úr eir og kopar, eru enn óseldar. Komið fljótt. Útsöl- unni er að verða lokið. H.f. Hiti & Ljós. frá birstjóroarfumli í gær. 1. Borgarstjórakosningin. Les- in var upp tilkynning atvinnu- málaráðuneytisins um að það telji ekki rétt að breyta sam- þykt bæjarstjórnar i því máli og eigi hún því að standa óhögguð. — J?ar með er Knud Zimsen sjálfkjörinn borgarstj. næstu sex ár. 2. Bensingeymi vill Lands- verslun fá að setja á horn Tryggvagötu við vestari hafn- arbakkann, og var það samþykt. 3. Erindi stjórnarráðsins um frv. til sjúkratryggingar hafði fjárhagsnefnd rætt og lagði fyr- ir fundinn nefndarálit, sem fer í þá átt, að frumvarpið sé ekki þess eðlis, að æskilegt sé að það sé gert að lögum, og samþykti bæjarstjórn álit nefndarinnar. 4. Tillaga kom frá fjárhags- nefnd um, að framvegis verði fjárhagsnefnd, fasteignan, og gasnefnd hver um sig skipuð fjórum bæjarfulltrúum, auk borgarstjóra, í stað tveggja auk borgarstjóra, sem verið hefir. Tillaga kom fram frá St. Jóh. Stefánssyni um að visa þessari till. til bæjarlaganefndar til um- sagnar, en hún var feld. er fyrirmyndar bifreið. Á síðast liðnu ári seldust fleiri Chevrolct vörubifreiðar hér á landi en nokkru sinni áður hafa verið seldar af nokkurri ann- ari bifreiðategund a einu ári. petta er meðal annars ein sönnun fyrir ágæti bifreiðanna. Margar mikilsverðar endurbætur hafa verið gerðar á Chev- rolet vörubifreiðinni „Model 1926“ svo sem: 1. Öflugri grind 6 þumlunga breið með 6 sterkum þverbit- um, og lægri að aftan svo hægra sé að hlaða bifreiðina. 2. Heilfjaðrir að framan og aftan. 3. Sterkari framöxull. 4. Fullkomnari og sterkari stýrisumbúnaður, sem gerir bif- reiðina miklu auðveldari í snúningum. 5. Gerbreyttur afturöxull svo losa má öxla og stilla drifið án þess að taka öxulhúsið undan bifreiðinni, og án þess að taka þurfi af henni lilassið. 6. Allir öxlar snúast í kúlulegum, sem eigi slita öxlunum. 7. Tryggará fyrirkomulag á bremsum. 8. Öll hjól jafn stór, sem hefir þann mikla kost, að hægt er að slíta gúmmíinu út að fullu, þannig að nota má slitna afturhringi á framhjól til stórsparnaðar. Chevrolet bifreiðin ber lþ^ tonn, og með það hlass fer hún flestar brekkur með fullum liraða (á 3. giri). Clievrolet bifreiðin er með diskkúplingu, liinni lieimsfrægu Remy rafkveikju og sjálfstartara, hraðamæli og sogdúnk. Sé tekið tillit til verðs, á Chevrolet engan sinn líka að vél- arkrafti, flýti, styrkleika og þægindum. Viðhaldskostnaður á Chevrolet er hverfandi lítill samanborið við aðrar bifreiðir. Verð íslenskar kr. 3400.00 uppsett í Reykjavík, eða á hvaða höfn sem er, sem hefir beinar samgöngur við Kaupm.höfn. Einkasalar fyrir ísland: Jóh óiafssoa & Go. Reykjavik Wllllams & Hambert. MOLINO Sherry. Sést alstaöar þar sem gott vm er boðið. Biðjlð nm það. y '• 5. Fjölgun bæjarfulltrúa. — þórður Bjarnason bar fram till. um, að fela bæjarlaganefnd að semja frv. til laga um fjölgun bæjarfulltrúa, og verði það frv. lagt fyrír næsta alþingi. Var til- lagan samþ. með 9 : 1 atkv. 6. „Naustin“ á að heita drátt- arbraut og skipaviðgerðarstöð, sem hlutafélag ætlar að koma á fót við vesturhöfnina,þar sem nú er Slippurinn og Hauksbryggja. 7. Kolakrana var h.f. Kol og Salt leyft að setja upp á eystri hafnarbakkanum, með ýmsum skilyrðum þó, þar á meðal, að hafnarnefnd samþykki borgun fyrir leigu á krananum, þegar hann vinnur fyrir aðra en eig- endur. 8. Hafnarlán. — Samkvæmt heimild atvinnumálaráðuneytis- ins var samþykt að taka 800 þús. króna lán til að gera fyr- ir nýjan garð og bryggju í höfn- inni, og til að greiða með lausar skuldir hafnarsjóðs.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.