Vísir - 09.02.1926, Page 2
VlSIR
DMamainixOiusiEMC
„Crema“
dósamjólkin aftur fyrirliggjandi.
/
Veröiö afar lágt.
Nýf lélagsskapnr.
Menn hafa mjögf fttncliö tii þess
á undanförnum árum, síðan er
stjórnmáladeilum vorum við Dani
lyktaði í brá'ö meö sambandslög-
unum 1918, aS almennur stjórn-
mála-áhugi landsmanna færiþverr-
andi, og mörgum hefir fundist
þeir vera heimilislausir i stjórn-
málunum. — ÁSur höföu menn aö-
allega skiftst í flokka eftir afstöö-
unni til sambandsþjóöar vorrar,
Dana, en meö sambandslögunum
var sú flokkaskifting úr sögunnf
aö mestti. — Ýmsir þeir, sem áöur
höföu verið hinir áhugasömustu
um landsmál, hættu nú aö hugsa
um þá hluti að mestu, og almenn
stjórnmíála-deyfð lagðist yfir hugi
margra. —
Þetta er illa fariö, fyrir margra
hluta sakir. — í, fyrsta Iági vegna
þess, að það er ávalt skaðlegt, aö
eldurinn kulni á stjórnmála-arni
þjóöarinnar, því að þá má svo
fara, að hún gleymi sæmd sinni
og gæti eigi sem skyldi réttar síns
út á við. — í öðru lagi hefir svo
farið, á meöan sjálfstæðismenn
þjóðarinnar létu hlé veröa aö
mestu á lifandi, pólitískri starf-
semi sinni út um bygðir landsins,
að risið hafa upp hinir og aörir
flokkar, sem mörkuöu sér þröng-
an bás og bundu starfsemi sína
nær eingöngu við hagsmuni fárra
manna eða einstakra stétta. — Má
þar til nefna „Framsóknarflokk-
inn“, sem til þess er stofnaður, aö
vinna einhliða að hagsmunum
bændastéttarinnar, „íhaldsflokk-
inn“, sem hefir þaö aö höfuð-
markmiði, að hlynna aö efnuðustu
mönnum þjóðfélagsins, þó aö ann-
að sé látið í veðri vaka, og flokk
jafnaðarmanna, sem eingöngu lít-
ur á hag verkamanna. — Allir
eiga flokkar þessir sammerkt að
því leyti, að þeir eru hreinir stétta-
flokkar. — En þaö er eðli stétta-
flokkanna, að þeim hættir við að
beita aöra flokka, andstæöinga
sína, ofríki, hve nær sem fævi
býðst, og reyna að skara sem mest-
an eldinn aö sinni eigin köku. —
Harðvítugir stéttaflokkar eru eitt
hiö mesta skaöræöi i hverju þjóð-
félagi, því að þar gerir enginn öðr-
um rétt, og alþjóðar-heill er lægra
metin en hagsmunir flokksins.
Frjálslyndir menn hér í Reykja-
vík og raúnar um land alt, hafa
lengi fundiö til þess, aö svo búið
mætti ekki lengur standa. — Hin
írjálshuga, unga kynslóð hefir í
raun réttri árum saman verið hæl-
islaus í pólitiskum efnum. — Og
atgangur stéttaflokkanna hér er
nú orðinn svo magnaður og ásókn
þeirra svo harðvítug, aö fólkið
hefir engan frið fyrir ánauö þeirra
og gauragangj. —r En fjöidamarg-.
ir eru svoB^^>a|farnir,! þeír.
geta ekki veitt neinum þessara
þriggja flokka fylgi sitt. — Þó
mundi einna fráleitast um frjáls-
lynda, unga menn, að þeir gengi
til fylgis við íhaldsliöið. — Svæsn-
ustu íhaldsliöar hljóta að standa
feigum fótum í stjórnmálum þessa
lands. — Og öfgastefnurnar hinar
tvær, bændapólitíkin og jafnaðar-
menskan, eiga sammerkt um það,
að mönnum ofbýður óbilgirnin,
sem þar er höfð f frammi.j 1—
Samt er ekki fjarri sanni að ætla,
að ýmsir ungir menn, einkum í
kaupstöðum og sjávarþorpum,
hneigist fremur, af tvennu illu, að
stefnu jafnaðarmanna en aö ramm-
asta íhaldi. — í sveitunum reynir
„framsókn“ að véla unga fólkið til
fylgis viö sig með ýmsum brögö-
um. — Margir mundu þó, ef þessir
flokkar væri einir um hituna, alls
ekki fást til að gefa sig að stjórn-
málum, þeir er vel væri til þess
kjörnir, og væri það sýnn skaði
fyrir þjóðfélagið.
Ýmsir góðir menn hafa nú kom-
iö sér saman um, að efna til fé-
lagsskapar hér í bæ og síðar um
land alt meöal frjálslyndra manna.
— Var fundur haldinn í því skyni
síðastliðinn sunnudag. — Undir-
tektir voru mjög góðar og töldu
ræöumenn nauðsynlegt, aö slíkum
félagsskap væri komiö á laggirn-
ar sem allra fyrst.
Er svo til ætlast, að félagið, er
því vex fiskur um hrygg, og í
santvinnu við samskonar félög um
land alt, safni undir vængi sína
öllum frjálslyndum íslenclingum,
sem ekki geta sætt sig við
eiginhagsmuna-róður stéttaflokka
þeirra, sem áður hafa verið nefnd-
ir. — Mun félagið bera heill al-
þjóðar fyrir brjósti fyrst og fremst
og leitast við að gæta hagsmuna
allra stétta þjóðfélagsins jöfnum
höndum. —
Frá Alþingi.
/
Þingsetmngin.
Setningu Alþingis var fram
haldið í gær kl. 1, og voru þá allir
þrn. komnir. Forsætisráðherra
kvaddi þá elsta mann þingsins,
Björn Kristjánsson, til þess að
stjórna kosningu forseta samein-
aðs þings. Aldursforseti mintist
fyrst látinna þingmanna og fyrv.
þingmanna, er látist höföu síðan
síðasta þing var háð, þeirra Hjart-
ar Snorrasonar, Sigurðar Jónsson-
ar frá Ysta Felli, Ara Brynjólfs-
sonar frá Þverhamri, Ólafs Briem,
Jóns Jacobsonar, Jóns Jónatans-
sonar og Stefáns Stefánssonar frá
FagraskógS, og stóðu þingmenn
allir upp í virðingarskyni við þessa
látnu þingmenn. — Þá skifti þing
sér í þrjár kjördeildir, til að rann-
saka k|örþréf þfiggja nýsra. þing-
túáí.mai þeirra Ágús ÍMÍéggasonar,
Kvensokkar og kven-
hanskar eru seldir með 20%
afdætti i verslun Ben. S.
Þórarinssonar.
Gunnars Ólafssonar og Ólafs
Thors, og varð þá 15 mín. fundar-
hlé. Að því loknu gengu þingmenh
aftur á fund. Framsögumaöur 1.
kjördeildar, Ámi Jónsson frá Múla
lýsti yfir því f. h. kjördeildarinn-
ar, að hún heföi ekkert að athuga
við kosningu þeirra G. ÓI. og Ól.
Th., og var kosning þeirra sam-
þykt í einu hljóði. Klemens Jóns-
son hafði framsögu fyrir 3. kjörd.,
er athugað hafði kjörbréf Ágústs
Helgasonar, og lýsti þvi yfir, að
við þá kosning væri heldur ekkert
að athuga, og var hún siðan sam-
þykt, einnig i einu hljóði. — Þá
var loks gengið til kosninga em-
bættismanna þingsins.
Forseti sameinaðs þings var
kosinn Jóhannes Jóhannesson, þm.
Seyðfirðinga, með 22 atkv.
Klemens Jónsson fékk 15 atkv.
og Sigurður Eggerz 5.
Varaforseti sam. þings var kos-
inn Þórarinn Jónsson, þm. V,-
Húnv., með 21 atkv.
Skrifarar voru kosnir með hlut-
fallskosningu: Jón A. Jónsson,
þrn. N.-ísf. og Ingólfur Bjarnason,
þm. S.-Þing.
Loks var kosin kjörbréfanefnd
og síðan slitið þessum fyrsta fundi
sam. þings, og fundir síðan settir
í deildunum.
í neðri deild stýrði Klemens
Jónsson kosningu forseta, og hlaut
Benedikt Sveinsson, þm. N.-Þing.,
kosningu með 17 atkv., en Kle-
rnens Jónsson fékk 11 atkv. i.vara-
forseti var kosinn Pétur Ottesen,
þm. Borgf., með 13 atkv., og 2.
varaforseti Sigurjón Jónsson, þm.
ísafj. Skrifarar voru kosnrr með
ldutfallskosningu: Magnús Jóns-
son og Tryggvi Þórhallsson.
í efri deild stýrði Björn Krist-
jánsson kosningu forseta, hlaut
Halldór Steinsson, þm. Snæf.,
kosningu, með 8 atkv. 1. varafor-
seti var kosinn síra Eggert Páls-
son, 1. þm. Rang., og 2. varafor-
seti Ingibjörg H. Bjamason, 6.
landsk., með sama atkvæðafjölda.
Skrifarar voru kosnir, með hlut-
fallkosningu: Gunnar ólafsson og
Einar Ámason.
Stjórnin tilkynti, að hún ætlaði
að leggja fyrir neðri deild ])essi
frv.: Um lærðan skóla í Reykja-
vík, um fræðslu barna, frv. til fjár-
laga fyrir árið 1927, frv. til samþ.
á landsreikningum fyrir 1924,
frv. til fjáraukal. fyrir 1924, frv.
um útsvör, frv. til 1. um viðauka
við lög nr. 68, 14. nóv. 1914, um
áveitu á Flóann, frv; um kynbætur
hesta og frv. um bryggjugerð í
Borgarnesi og tillögu til þingsá-
lyktunar um sæsímasamband við
útlönd o. fk, og fyrir efri deild:
frv. til laga um skipströnd og vog-
rek, frv. til laga um happdrætti
og hlutaveltur, frv. til laga um
heimild fyrir ríkisstjórnina til að
ganga inn í viðbótarsamning við
myntsamning Norðurlanda, frv.
til laga um veitingasölu og gisti-
húshald o. fk, frv. til laga um
raforku-virki, frv. til laga um
kosningar í málefnum sveita og
kaupstaða,-og fr.v...tiklaga um-Iög*.
g-ftíálú:itcfúíútioðef»drjpIn. aí nv ilqo
lúmia tfQV ðív llójjt StícT .tnu
CHÉVRO
er fyrirmyndar bifreið.
Á síðast liðnu ári seldust fleiri Chevrolet vörubifreiðar hér
á landi en nokkru sinni áður hafa verið seldar af nokkurri ann-
ari bifreiðategund á einu ári. petta er meðal annars ein sönnun
fyrir ágæti bifreiðanna.
Margar mikilsverðar endurbætur hafa verið gerðar á Chev-
rolet vörubifreiðinni „Model 1926“ svo sem:
1. Öflugri grind 6 þumlunga breið með 6 sterkum þverbit-
um, og lægri að aftan svo hægra sé að hlaða bifreiðina.
2. Heilfjaðrir að framan og aftan.
3. Sterkari framöxull.
4. Fullkomnari og sterkari stýrisumbúnaður, sem gerir bif-
reiðina miklu auðveldari í snúningum.
5. Gerbreyttur afturöxull svo losa má öxla og stilla drifið án
þess að taka öxulhúsið undan bifreiðinni, og án þess að
taka þurfi af henni hlassið.
6. Allir öxlar snúast í kúlulegum, sem eigi slíta öxlunum.
7. Tryggara fyrirkomulag á bremsum.
8. Öll hjól jafn stór, sem hefir þann mikla kost, að hægt er
að slita gúmmíinu út að fullu, þannig að nota má slitna
afturhringi á framhjól til stórsparnaðar.
Chevrolet bifreiðin ber 1Y2 tonn, og með það hlass fer
hún flestar brekkur með fullum hraða (á 3. gíri).
Chevrolet bifreiðin er með diskkúplingu, hinni heimsfrægu
Remy rafkveikju og sjálfstartara, hraðamæli og sogdúnk.
Sé tekið tillit til verðs, á Chevrolet engan sinn líka að vél-
arkrafti, flýti, styrkleika og þægindum. Viðhaldskostnaður á
Chevrolet er hverfandi lítill samanborið við aðrar bifreiðir.
Verð íslenskar kr. 3400.00 uppsett í Reykjavík, eða á hvaða
liöfn sem er, sem hefir beinar samgöngur við Kaupm.höfn.
fyrir ísland:
Jóh. Ólafsson & Go.
Reykjavlk.
skulda-okur og hræöslu vi'ö Al-
þjóöabandalagiö. Kveður hann
framkomu þeirra í garö Évrópu
skammarlega.
Kolanámur Breta.
Simað er frá London, aö kola-
námumálunum sé þannig variö nú,
að námueigendur krefjist þess, aö
vinnutími veröi lengdur og laun
lækkuö, en verkamenn krefjast
þess, að fyrst og fremst verði
þessu í engu breytt sem stendur,
Skyndisalan
stendur enn yfir.
Allar hinar vönduðu vörur i versluninni eru seldar með
minst 10% afslætti. Tækifæriskaup á mörgú, þar á nieðal á
kvénsjölum, kjólum og kápum, einnig á Vetrarfrökkuni karla.
Ullarfatatau og Ullarkjólatau eru sérlega mikið niðursett. —-
Símskeyti
—o—
Khöfn 8. febr. FB.
Gerard sendiherra vítir landa sína.
Símað er frá New York, að Ger-
ard, sendiherra Bandaríkjanna í
Berlín á styrjaldarárunum, hafi
opinberlega vítt Ameríkumenn
fyrir miskunnarlaust styrjaldar-