Vísir - 31.03.1926, Qupperneq 3
VÍSIR
heldur þér uppi.
í heildsöln hjá Ásgeiri Sígurðssyui.
Páskamessur.
í dómkirkjunni: Skírdag- kl. n,
síra FriSrik Hallgrímsson og síra
Bjarni Jónsson (altarisganga;
skriítir kl. ioj4). — Föstudaginn
langa kl. n, síra Bjarni Jónsson;
kl. 5, sira FriSrik Hallgrímsson
(altarisganga). — Á páskadag kl.
8 árdegis, síra Friörik Hallgríms-
son; kl. n, sira Bjarni Jónsson.
— Á annan páskadag kl. n, síra
FriSrik Halgrímsson; kl. 5, sira
Friörik Friöriksson.
í frikirkjunni: Skírdag kl. 2,
síra Friörik Friðriksson (altaris-
ganga). — Föstudaginn langa kl.
2, síra Ámi Sigurösson; kl. 5, síra
Haraldur Nielsson, prófessor. —
Á páskadag kl. 8 árd., síra Árni
SiguriSsson og kl. 2, síra Árni Sig-
urösson ; kl. 5, síra Haraldur Níels-
son. — Annan páskadág kl; 2,
cand. theöl. SignrtSur Einarsson.
í Landakotskirkju: Skírdag kl.
9 árd. pontifíkalmessa; kl. 6 síöd.
guðsþjónusta. — Föstudaginn
langa kl. 9 árd., guösþjónusta, þrír
prestar tóna píslarsöguJesúKrists;
kl. 6 siöd. prédikun meö kross-
göngu. — Laugardag fyrir páska
kl. 6 árd., guðsþjónusta. — Páska-
dag kl. 6 árd., söngmessa; kl. 9
árd., upptaka krossins, helgiganga
og pontifíkalmessá meÖ prédikun ;
kl. 6 siðd. pontifíkalguðsþjónusta
með prédikun. — Annan páska-
dag kl. 9 árd. hámessa, og kl. 6
síðd. levitguðsþjónusta með pré-
dikun.
Sjómannastofan: Almehn guðs-
þjónusta alla helgidagana kl. 6
síðd. Allir velkomnir.
í Adventkirkjunni: Skirdag og
föstudag langa kl. 8 síöd., síra O.
J. Olsen. Páskadag og annan í
páskum kl. 8 síðd., síra O. J. Olsen.
Avextir
í dósum,
Súklíulaði
með tækifærísverði.
Gunnap Jónsson,
8kml 1S80. V öggur.
Veðrið í morgun.
Frost i Reykjavík 3 st., hiti
i Vestmannaeyjum 3, Isafirði
frost 2, Akureyri 1, Seyðisfirði
1, Grímsstöðum 3, Raufarhöfn
1 (ekkert skeyti frá Hólum i
Hornafirði), pórshöfn í Færeyj-
um -{- 2, Angmagsalik (i gær)
6, Iíaupmannahöfn hiti 5,
Utsire 4, Tynemouth 6, Leirvik
5, Jan Mayen — 1 st. — Mest
frost í Rvík síðan kl. 8 i gær-
morgun — 6 st., minst 2 st. —
Loftvægislægð fyrir sunnan
land. — Horfur: I dag: Vax-
andi austlæg átt á Suðurlandi
og suðvesturlandi. Kyrt veður
annarsstaðar. I nótt: Austlæg
átt á Suðurlandi og suðvestur-
landi. Sennilega allhvöss við
Suðurland. Norðaustlæg átt á
Norðurlandi og Austurlandi.
Víðvarpsmálið.
t gærkveldi var haldinn fjöl-
mennur fundur í félagi víð-
varpsnotenda. Var þar og mætt-
ur form. viðvarpsféí. hr. Lárus
Jóhannesson. Spunnust alimikl-
ar umræður út af sérleyfi Víð-
varpsfél. til reksturs víðvarps-
stöðvar. Kom þar fram einróma
óánægja víðvarpsnotenda yfir
sérleyfinu og reglugerð Víð-
varpsfél., sem birt er í Löghirt-
ingablaðinu í gær. Komu jafn-
vel fram raddir um að fá víð-
varpsnotendur til þess að liafa
samtök að láta taka niður mót-
tökutæki sín. Varð þó að sam-
komulagi milli félagsins og for-
manns Víðvarpsfél. um að ekk-
ert skyldi að hafst fyrstu tvær
vikurnar og var nefnd kosin til
þess m. a. að ræða við Víðvarps-
félagið um nýjan grundvöll
þessa máls. Á hún að hafa lokið
störfum innan 14 daga. Voru
þessir kosnir í nefndina: Lúðv.
Guc|mundss. mentaskólakennari
(form.), porkell p. Clements,
vélfræðingur og Magnús H.
Thorberg, útgerðarmaður.
Stúdentafræðslan.
Á morgun kl. 2 talar cand.
BrynjóKur Bjarnason um hina
svonefndu „efnislegu söguskoð-
un“ (materialistiske Historieop-
fattelse) serrt einkum er kcnd
við Karl Marx, og jafnaðarmenn
byggja mjög á. Fyrri fyrirlest-
ur Brynjólfs var allvel sóttm%
þótti fróðlegur og skörulega
fluttur. — Til þess að geta tal-
að með eða móti jafnaðarstefn-
unni, þurfa menn að kynnast
skoðunum þeim sem þessi fyr-
irlestur fjallar um.
íþökufundur
i kvöld. Útvarpssöngur. Mætiö
stundvíslega.
í heilbrigðisreglum
bæjarins er bannað að bera sal-
ernaáburð á tún eöa garða, sem
liggja að alfaravegum. Samt mun
þetta þó látið óátalið, ef það er
gert í trássi við leyfi og reglur,
sé ekki kært yfir. En bæjarfélagið
sjálft mun ekki þurfa að biðja
um undanþágu né fara eftir sett-
um reglum, — eða telst ekki t. d.
Skothúsvegur alfaravegur? V.
Næsta blað Vísis
kenuu- út laugardaginn fyrir
páska.
Gullfoss
koni frá Vestfjörðum i nótt.
Draupnir
kom af veiðum í nótt.
Es. Ingerto
kom hingað í morgun, með salt-
farm. Skipið lá undir Kjalarnesi
í norðanveðrinu.
L ö gbirtingablaðið
(aukablað 30. mars) flytur
reglugerð um rekstur h.f. „Út-
varp“. Reglugerðin er i 18 grein-
Gengi erl. myntar.
Sterlingspund ......... kr. 22.15
100 kr. danskar ........— 119.28
100 — sænskar.........— 122.32
joo — norskar ... A . — 97-39
Dollar ..............— 4-56)4
100 frankar franskir ..'—- 15.86
100 — belgiskir — J7-59
100 — svissn. ... — 87.97
100 lirur ................— t8.55
100 pesetar ............. — 64.47
ioo gyllini ............ — 183.21
100 mörk þýsk (gull) — 108.60
Bifreiðafæri
er nú austur yfir Hellisheiði. Sjá
augl. írá B. S. R.
Heimsókn „Einingarinnar"
verður væntanlega fjölmenn, og
Hátiðamatar.
2000 kg. af norðlensku hangi-
kjöti, afar góðu, íslenskt smjör,
ódýrt, kjötlæri af völdum dilk-
um, nýtt og saltað, að ógleymdu
öllu til kökugerðar. Glóaldin
(appelsinur) og epli. — Alt á
einum stað.
VON, símar 448, 1448
og útbú á Brekkustig 1.
eru félagarnir hér með mintir á
auglýsinguna hér i blaðinu í gær.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Visi: 5 kr. frá V. P.,
5 kr. frá N. N., kr. 6,05 frá Álf-
konu, 50 (fimtíu) krónur frá Ó.
B. E.
Athygli
skal vakin á augl. frá Bakara-
meistarafélaginu.
Hitt oé Þetta.
Slys í heimskautaför.
pegar leiðangursmenn Wil-
kins norðanfara voru komnir
til Fairhanks i Alaska, laust fyr_
ir miðjan þenna mánuð, vildi
svo slysalega til, að fréttaritari
einn frá Bandaríkjunum, varð
fyrir skrúfublaði á einni flug-
vélinni, sem verið var að reyna
á landi, og lamdist til bana. -
Hann hét Palmer Hutchinson og
ætlaði að taka þátt í norðurför
þeirra Wilkins.
Járnbrautarslysið mikla,
sem varð í Costa Rica i Mið-
Nýkominr
RYKFRAKKAR
úr ullarefni frá 50 kr., eimig
I £3
ip kápur sniðnar fyrir peysu- j
KantiO í fðiii
áður en þið festið kaup
annarstaðar. — Hvergi fáið
þið eins góð kaup á kari-
mannsfötum og yfirfrökk-
um. Fegurstá snið og best
efni í borginni. — Best að
versla í FATABÚÐINNL
Nýkomið:
PETER ■'-skotfæri, adskonar,
stúrt úrval, ódýrt.
Spartiuli Reykjavíkur.
(E nar Bjftrnsson).
Ameriku sunnudaginn 14. þ. m.,
er eitt hið mesta og ógurlegasta
slys þessháttar, sem sögur fam
af. Talið er að 248 manns hafí
beðið bana en 93 meiðst. pús-
und manns var í lestinni, mest
bændur og verkamenn, og voru
að skemta sér. Lestin rann af
teinunum og brotnuðu þrír
vagnar; einn þeirra féll út af
brú, sem lestin var að fara yfir,
en hinir héngu á gljúfurbann-
inum, sem var 190 feta liár. —
Rauði krossinn í Costa Rica hóf
samskot til að bæta úr brýnustu
neyð ekkna og bama þeirra,
sem fórust, og var forsetinn í
Costa Rica efstur á samskota-
listanum.
Mannfjölgun í Frakklandi.
Heilbrigðisráðuneytið i Frakk-
landi hefir nýlega látið birta
skýrslur um mannfjölgun þar í
landi. — Rað hefir lengi verið
áhyggjuefni Frakka, að tala
fæddra barna hefir farið sílækk-
andi, svo að horfa þótti til þjóð-
arböls. En samkvæmt þessum
nýju skýrslum hefir þetta breyst
svo til batnaðar, að tala fæddra
barna fer hækkandi, — var 191
móti 10 þúsundum 1913, en 192
árið 1924, en meðal allra ann-
ara stórþjóða fer tala fæddra
barna minkandi, og er t. d. í
Englandi orðin lægri en í Frakk-
landi. það þykir undarlegt, að
fjölgun barna hefir orðið til-
tölulega mest i þeim héruðum,
sem harðast urðu úti í viður-
eigninni við f>jóðverja 1914—
1918.
Bamadauði í Frakklandi er
ekki svo ískyggilegur sem af
hefir verið látið. Fyrir 25 ámm
dóu þar 170 börn, yngri en árs-
gömul, af hver jum 10000, en ekki
nema 85 árið 1924, og þó hefir
dánartalan lækkað síðan. — Til
samanburðar má geta þess, að
í Englandi er dánartala bama
á fyrsta ári 75, en í J?ýskalandí
108, Ástraliu 139 og Rúmeníu
207 af 10 þúsundum.
Eins og áður er sagt, fæðast
nú hlutfallslega færri böra i
Englandi en Frakklandi, en dán-
artala þeirra er lægri. Til Frakk-
lands flvtjast á ári liverju fleiri
menn, en til nokkurs annars
lands í álfunni og eru Frakkar
nú ókviðnir um fólksfækkun.