Vísir - 03.04.1926, Page 2
VÍSIR
)) ÍÍfcffllNl IÖLSEM ((
Snperfosiatið er komið.
Verður afgreitt frá pakkhúsi okkar nœstu daga.
Noregssaltpétar kemur með e.s. „Nova'í
Símskeyti
—o---
Khöfn 31. mars. FB.
Inflúensan í Færeyjum.
Símað er frá J?órshöfn, að
fólk hafi þyrjrst utan um grinda-
hvali er rak á land, og varð
þetta til þess að inflúensan
breiddist afar mikið út. Mörg
þús. manna eru veikir og hefir
skólum í pórshöfn verið lokað.
Er þetta stórhnekkir vorveið-
inni og hafa margir kúttarar
orðið að fresta íslandsför.
Kaupdeilur í Noregi.
Símað er frá Osló, að stjórn-
in hafi gripið í taumana til þess
að gera tilraun til að koma i veg
fyrir vinnutöf, vegna þess að
samningar eru út runnir og
samkomulag hefir ekki náðst.
Konow hefir sett á stofn sátta-
nefnd.
Khöfn 2. april. FB.
Flug yfir Atlantshafið.
Símað er frá New York, að
einn af fræknustu flugmönnum
Frakka ætli að fljúga yfir At-
lantshaf i sumar í einni stryk-
lotu.
Kommúnistar í franska, þinginu.
Simað er frá Paris, að i ný-
afstöðnum aukakosningum hafi
tveir kommúnistar komist að i
fulltrúadeildinni.
Kröfur norskra vinnuveitenda.
I dag barst skeyti til Kaup-
mannahafnarblaðsins Social-
demokraten frá Osló, og stend-
ur í því, að norskir vinnuveit-
endur krefjist 25% launalækk-
unar og að verkamenn fái
styttra sumarleyfi en áður.
Flugferðir.
Símað er frá Berlin, að vegna
náinnar samvinnu milli stærstu
flugfélaga álfunnar verði á
komandi sumri ákaflega aukn-
ar flugferðir. T. d. verður hægt
að fljúga frá Kaupmannahöfn
til Parísar á 6 klukkustundum.
Fx>á Alþingi
á miðvikudaginn 31. f. m.
Efri deild.
Þar voru 4 mál á dagskrá.
1. Frv. til laga um breytingu á
lögum nr. 43, 3. nóv. 1915, um at-
vinnu við vélgæslu á gufuskipum
var samþykt og afgreitt til stjórn-
arinnar, sem lög.frá Alþingi.
2. Frv. til laga um bæjargjöld
í' Vestmannaeyjum var samþykt
og afgreitt til neðri deildar.
3. Um Frv. til laga um breyt-
ingu á Iögum nr. 76, 28. nóv.
1919, um breytingu á yfirsetu-
kvennalögum nr. 14, 22. okt.
1912, stóð allmikiö þref; þótti
mörgum þingm. frv. ganga full-
langt í hækkun launanna og töldu
gjaldþoli sveitarsjóða vera íþyngt
um of með frv. AS síðustu varð
þó umræðunni lokið og gengið til
atkvæða. Voru breytingartillög-
urnar ýmist feldar að viðhöfðu
nafnakalli eða teknar aftur, en ein
var samþykt, frá Guðm. Ólafs-
syni (þm. Austur-Húnvetninga)
j)ess efnis, að i bæjum skyldu
öll launin greiðast úr bæjarsjóði-.
Var frv. síðan samþykt og af-
greitt til neðri deildar.
4. var Frv. um breytingu á lög-
um 1883 um slökkvilið á ísafirði
og var það samþykt til 2. um-
ræðu og sent til allsherjarnefndar.
Neðri deild.
Þar voru einnig 4 mál á dag-
skrá. ;
1. Frv. til laga um breytingu
á lögum nr. 28, 3. nóv. 1915, um
kosningar til Alþingis, var sam-
jjykt og afgreitt sem lög frá Al-
þingi.
2. Frv. til laga um sölu á kirkju-
jörðinni Snæringsstöðum í Vatns-
dal, var samjjykt til 2. umræðu
og sent til mentamálanefndar.
3. Frv. til laga um viðauka við
hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaup-
stað, nr. 19, n. júlí 1911, (3. um-
ræða). Komu nú fram breyting-
artillögur Jiær, sem boðaðar höfðu
verið við 2. umr. og voru sam-
jiyktar, en er frv., svo breytt, var
borið upp til atkvæða, var j>að
felt með 14 gegn 6 atkv.
4. Frv. til laga um bryggju-
gerð í Borgarnesi 0. fl. var sam-
jjykt til 3. umræðu.
Næstu þingfundir verða haldn-
ii á jiriðjudaginn kemur.
Hljómsveitina
þarf að efla.
Tónlist tekur nú hér miklum
framförum. — Eitt gleðilegasta
táknið um })að er Hljómsveitin.
Þegar hún er orðin fullskipuð, má
telja að vér séum komnir í tölu
söngmentaðra Jijóða. Söngmenn-
ing án hljómsveita er nú á dög-
um óhugsandi hjá nokkurri J)jóð.
Þegar verið er að styrkja tón-
list — og fyrir því er nú vaknað-
ur áhugi hér — þá er nauðsyn-
legt að hafa í slíkum efnum rétt
hlutföll. Hér eru styrktir söngv-
arar til lærdóms, og er það gott
og blessað, þegar J)eir eru þá efni-
legir, sem þó tæpast verður sagt
um alla sem opinberan styrk hafa
fengið. — En þess er að gæta, að
söngvara ölum vér nær eingöngu
upp handa öðrum þjóðum, ef þeir
á annað borð komast áfram.
Söngvarar fá hér ekki fasta at-
vinnu, svo langt sem nú verður
séð út í framtíðina. Einn góðan
mann Jiyrftum við þó að hafa til
að kenna raddsöng, og þar með
búið.
En ef vér nú sjáum oss fært að
styrkja menn af landsfé til að
leita sér atvinnu við tónlist er-
lendis, j)á megum vér þó sannar-
lega ekki gleyma oss sjálfum. Og
allra síst megum vér gleyma að
yrkja hina föstu stofna innlendr-
ar hljómlistar, þar sem Hljóm-
sveitin hlýtur að verða í fremstu
röð.
Þar sem hljómsveitir eru laun-
aðar, kosta þær tugi og hundruð
J)úsunda króna. Og nær eins dæmi
er það, að þær beri sig sjálfar,
sem kallað er. Flestallar njóta
þær styrks.
Hér á það langt í land, aö vér
eignumst atvinnu-hljómsveit, þar
sem flokksmenn ekki þurfa að
stunda önnur störf. En óhugsandi
er, að slík stofnun geti staðið
lengi á áhuganum einum. Slíkt
væri hvorki réttmætt né heldur
æskilegt. Styrk verður sveitin að
hafa, bæði til þess að geta offrað
nokkrum tíma án beins efnatjóns
og svo líka til þess að hægt sé að
gera til hennar ákveðnar kröfur..
Sterkasta burðarafl sveitarinn-
ar nú, er að vísu áhugi flokksJ
manna og stjórnandans, Sigfúsar
Einarssonar. — En erfiðleikarnir
eru enn miklir, það vantar fleiri
menn, og það þarf að vera hægt
að kenna þeim á þau hljóðfæri
sem vantar.
Hingað koma nú á hverju ári
útlendir hljóðfæraleikendur, sem
þegar hafa orðið sveitinni til
ómetanlegs gagns. Enn þá meiri
gagn mætti J)ó af slikum mönn-
um hafa, ef sveitin hefði dálítil
peningaráð.
Þingið verður nú að sýna rögg
og hlaupa undir bagga með
Hljómsveitinni, og veita henni
svo sem 5000 krónur á fjárlögum,
með tilliti til þess, að hér er um
alj)jóðargagnsemd að ræða og
stofnun sem verður að vera til í
landinu á hverjum tíma sem er,
og ekki síst })jóðhátíðarsumarið
Í930. — Fyrir svo sem tveimur ár-
um voru ekki horfur á öðru, en að
leigja yrði fyrir stórfé útlent
„orkester“ hingað á J)jóðhátíðina.
Nú hefir skipast svo ákjósanlega
til, að hægt er að verja Jæssu fé
til varanlegs gagns, með því að
láta J)að ganga til Hljómsveitar-
innar, J)ví að ef nú verður ekki
slakað á klónni, getur hún að
fjórum árum liðnum verið orðin
alskipuð og fullfær.
Það er sagt, að J)að fari sjald-
an saman, áhugi á stjórnmálum og
söng. Alt um ])að ættu J)ingmenn
nú að fjölmenna á hljómleik
Hljómsveitarinnar á 2. í páskum
og ymnfæra sig um, að þar er
þjóðþrifa fyrirtæki á framsigl-
ingu. H.
iDflúenssn.
—x—
Fyrir nokkru barst blöðunum
símskeyti frá Færeyjum, ]>ess efn-
is, að inflúensa, lík spönsku veik-
inni geisaði þar. Skömmu síðar lét
landlæknir þau boð út ganga, al-
menningi til huggunar, að inflú-
ensa ])essi væri væg, „enginn dá-
ið“. — Enn hafa komið fregnir
um það, að veiki þessi breiðist út
i Færeyjum, þúsundir manna liggi
veikir, og óþægindi og tjón af
völdum hennar sé mikið.
:fS>paMr^
VIRGINÍA
CIGARETTES
1200 kr,
teOFAN! K CO.I.TD
'5.GLD BON'Q.ST.,
VLONDON.tNGLANO.
Fyrsta flokks danskur skó-
fatnaður verður seldur nú í
nokkra daga með gjafverði
í Fatabúðinni.
*Að vísu hefir landlæknir boðað
Jiað, að eitthvaö eigi að gera, til
J;ess að verjast J)ví, að veikin ber-
ist hingað til lands. — Mér virðist
þetta ekki nærri nóg að gert. Mér
virðist að mikið, mjög mikið, eigi
að gera til þess, að koma í veg
fyrir, ef unt væri, að inflúensa
])essi gangi hér yfir nú-í vor. Því
þótt hún verði, ef til vill, ekki
mannskæð, })á vitum við J)að öll,
— og J)að er síður en svo, að til
þess þurfi læknisvif, — að margir
verða þeir, er til grafar verða
bornir af völdum inflúensunnar, nú
sem fyr, ef hún fer hér um landið.
Eungnabólga og margir aðrir
kvillar sigla í kjölfar hennar alla
tið, og það er öldungis undravert,
með hvílíkri ró heilbrigðisstjórn
vor horfir á slíkan vágest á næstu
grösum, án þess að hefjast handa
i tíma. Eða hvað hefir verið gert?
Hafa verið gerðar ráðstafanir til
])ess, að millilandaskip, er hingað
sigla, komi ekki við í Færeyjum,
meðan á þessu stendur? Ekkert
hefir heyrst um það. Hafa verið
bannaðar samgöngur við færeyska
fiskimenn, er hafna leita hér, nema
öruggt sé, að þeir hafi ekki veik-
ina? Ekkert hefir heyrst um það.
Þeir munu vera margir, ein-
yrkjar í sveit, og verkamenn í
kaupstöðum, sem illa mega missa
tíma til þess að liggja í inflúensu
og fara svo gætilega með sig á
eftir, sem með Jiarf. Landið má
yfirleitt illa við ])ví vinnutjóni,
sem af J)ví hlýtur að leiða, að ó-
gleymdum mannslífunum, sem
hljóta að missast, gangi inflúensan
yfir.
Landlæknir og heilbrigðisstjóm
mega ekki skella skollaeyrum við
slíku alvörumáli. Og fari svo, að
ekki verði alt gert, sem ,hægt er
að gera, til þess að forða landinu
frá inflúensunni nú, þá kalla eg,
að þeir, sem um ])essi mál eiga
að sjá, standi ekki vel í stöðu
sinni.
Borgari.
G. Montagu Harris:
Local Government in
Maný Lands. A. Com-
parative Study. P. S.
King & Son, Ltd. Lon-
don, 1926. Verð 15 sh.
Árið 1923 lét breska stjórnin
safna afar-nakvænnun skýrsl-
um um fjTÍrkomulag sveitar-
stjórna, nálega um allan heim.
—•. Var þetta gert fyrir beiðni
nefndar, sem þingið hafði kosið
til þess að endurskoða sveitar-
stjórnarlöggjöf Bretlands, bg
var Onslow lávarður formaður
nefndarinnar. I þessum ítarlegu
skýrslum frá liverju einasta
menningarlandi í heimi, var,
eins og gefur að skilja, ógrynna
fróðleikur saman kominn, og
var nafnkunnur lögfræðingur,
Mr. G. Montagu Harris, skrif-
stofu^tjöri i Heilbrigðisráðu-
neytinu, skipaður til þess að
vinna úr þeim, vitaskuld með
aðstoð margra þar til hæfra
manna. — Árangurinn af starfi
hans er stór og mikil bók.ótæm-
andi fróðleiksnáma um þetta
efni og með svo nákvæmri efn-
isskrá, að hún er lykill að hverju
einasta atriði, sem bókin fjall-
ar um. En efnið er margbreytt,
þvi orðið sveitarstjóm er notað
í rýmri merkingu en alment
gerist. Eins og sést hér að ofan,
kom hókin ekki út fyr en eftir
siðastliðið nýár, en Union Inter-
nationale des Villes et Com-
munes lét þegar þýða hana á
frönsku, og er sú þýðing nú þeg-
ar komin út. Vafalaust koma
fljótlega þýðingar á fleiri mál-
um, t. d. þýsku. Er ekki ósenni-
legt, að einhverja Islendinga
langi til að kynna sér efni bók-
arinnar, þri þó að það sé ef til
vill gott og blessað, að við fylgj-
um sem dyggilegast danskri
fyrirmynd i sveitarstjórnarlög-
gjöf, þá getur það sennilega ekki
skaðað okkur að vita um fyrir-
komulagið hjá fleiri þjóðum. —
Danir eru menningarþjóð, en
ekki eru þeir eina menningar-
þjóðin.