Vísir - 28.05.1926, Page 2

Vísir - 28.05.1926, Page 2
4fc VlSIR Símskeyti . —Q—— Khöfn, 27. maí. FB. Sundrung í frjálslynda flokknum. Símað er frá London, að hirt- ingarbréf það, er Ascjuith birti, og var tii Lloyd George fyrir af- skifti hans af kolamálinu, hafi vakið mikið umtal og athygli, sem heldur hafi aukist en hitt. J?ví er spáð, að frjálslyndi flokk- urinn muni innan skamms leys- ast upp,a. m. k. að Lloyd George flæmist úr honum og heitustu fylgismenn hans og sláist þeir síðan í lag með verkamönnum. Ný sáttatilraun í kolamálinu. Sá orðrómur liggur á, að stjórnin krefjist þess, að at- kvæðagreiðsla um miðlunartil- lögu þessa verði leynileg og greiði námamenn sjálfir at- kvæði en ekki fulltrúar þeirra fyrir þeirra hönd. Abdel-Krim gefst upp. Símað er frá París, að Abdel- Krim hafi gefist upp ásamt öllu fylgiliði sínu. Hann verður gerð- ur útlægur úr löndum Moham- medstrúarmanna. Allir þeir fangar, sem voru i liöndum Frakka og Spánverja hafa ver- ið látnir lausir. Dómur í seðlafölsunarmálinu. Simað er frá Budapest, að dómur sé fallinn í seðlafölsun- armálinu mikla. Graetz prins og Nadossy Iögreglustjóri voru dæmdir í fjögurra ára fangclsi, , Hood" st brúna, svarta og hvíta meS hrá- gúmmí- og gúmmísólum fyrir karlmenn kvenfólk og unglinga, fengum við með „íslandi“ 14. þ. m: Strigaskór þessir taka áreið- anlega öllum öðru:-: 'Uimmí- botna-strigaskóm frru- , bæði að útliti og gæðum. Kaupið þá! Hv^nnberg liihn fyrrnefndi, en þriggja hinn síðarnefndi. peir missa og öll borgaraleg réttindi. Sektirþeirra námu tíu miljónum. — Fjöldi manna, er voru að meira eða minna leyti við mál þetta riðnir, fengu vægari hegningu. „Hvað hefir íhalds- flokkurinn gert?“. --X— Eins og alljr vita, er þaö næsta rnikilsvert, að blööin sé .sannorð og skýri rétt frá atburðum. — 1- haldsflokkurinn, meö hina hrap- andi stjörnu, fjármálaráðherrann, í fylkingarbrjósti, hefir nú tekið sér fyrir hendur, að skýra alþjóð manna frá afreksverkum sínum, síðan er hann kontst til valda í landinu. — Byrjar flokkurinn þá starfsemi sína á grein með ofan- ritaðri fyrirsögn,' sem birtist x síð- asta tbl. ,,Varðar“, og munu þar margar á eftir fara. — Mundi kjós- Öndum ekki óljúft að fá sönii tíð- indi af afreksverkum flokksins og stjórnarinnar. En hætt er við, eft- ir upphafi þessarar. Varðar-grein- ar að dæma, að frásögnm verði harla lituð og Hkari gylling en sönnum tíðindum. — Það er upphaf að, lofsöng blaðs- ins, að getið er þrekvirkja þeii'ra hinna miklu, sem flokkurinn hafi unnið í þágu utanríkismála vorra. — Verður þá kjöt-tollurinn fyrst fyrir. — Er skýrt frá því, með nokkuru yfirlæti, að þar liafi íhaldið qg stjórnin unnið glæsi- legan sigur á örfáunt dögum. —• Blaðið er ekki að hafa- fyrir því að geta þess, að áður en íhalds- flokkurinn koinst til valda, var allri aðalvinnunni í þesstx máli lokiö. — Höfuð-orðugleikarnir voru í því fólgnir, að fá Stórþing- ið til að heimila norsku stjóminni að taka þetta mál út úr öðrum tollmálum og semja urii það við íslensku stjórnina. — Þessu var lokið, er núverandi stjórn komst til valda. — Og því lyktaði svo heppilega, sem raun varð á, ein- ungis sakir þess, hversu fyrver- andi stjórn (Sigurður Eggerz) hélt vel og. hyggilega á málinu gagnvart norsku stjórninni. — Og ætla má, að minna hefði verið gef- ið eftir af Islands hálfu, ef sú stjórn hefði að lokum ráðið mál- inu til lykta. Um ritsímasamninginn, sem „Vörður“ lofar stjórnina fyrir há- stöfum, er það að segja, að lands- simastjóri mun þar eiga mestan Nýkomið Skór og Sandalar með crep- griirimísólum á kvenfólk, ung- linga og börn, allar stærðir. Strigaskór margar nýjar teg. í öllum stærðum. Stefán Gnnntrsson Skóverslun. Austurstræti 3. hlut að máli, og hafa lagt til alla þekkinguna við þá samningagerð. Ullartollsmálið, sem blaðið hæl- ir stjórn vorri fyrir, er nú væntaxx- íega komið í betra horf 'en áður var. — Utanríkismálaráðuneyti Dana mun hafa annast allar fram- kvæmdir ntálsins, samkvæmt ósk h'éðan, og líklega hefði niðurstað- an orðið svipuð, hvaða stjórn sem setið hefði að völdum hér á landi. — Ea rétt er að geta þess, að ó- viðfeldið er það i meira lagi, að stjórnarblaðið skuli gera erlendri ríkisstjórn þær getsakir, að ullar- tollurinn hafi verið hækkaður vegna steinolíu-einkasölunnar. — Slikt nær engri átt. —• Það verður örðugt verk fyrir srjórnar-Vörð, að fá íslenska kjós- endur til að trúa þvþ að efsti mað- ur á landskjörs-lista íhaldsins, nú- verandi fjármálaráðherra Jón Þor- láksson, sé sæmilega til þess fall- inn, að gæta íættinda vorra út á við, því að það er alkunna, að hann var einn hinn kargasti inn- limunarmaður og lítilhugaðasti fyrir landsins hönd, allan síðasta ýratuginn, sem vér*’háðum stjórn- málabaráttu vora við Dani. Ög ekki ber það vott um mikið ástríki af stjórnarinnar' hálfu eða ihaldsins, til sjálfstæðismála vorra, að blað fjármálaráðherrans,„Vörð- ur“, hefir sungið „Nýja sáttmála", bæklingi Sigurðar Þórðarsonar, mikið og ómengað lof. — Liggur nærri að ætla, að blaðinu sé ljúf- ast lofið um pésann sakir þess, að reynt er þar að svívirða sjálfstæð- ishug þjóðarinnar og sjálfstæðis- menn vora ýmsa, þá er fremstir hafa staðið á síðustu tímum, sem allra eftirminnilegast. Þá er komið að fjöreggi þeirra íhaldsmanna: viðreisn fjárhags- ins. • Blöð íhaldsmanna eru látin flytja þjóðinni þann gleði-boðskap, hvað eftir annað, að íhaldsflokk- urinn hafi bjargað fjárhag þjóð- arinnar. — Vörður sagði einu sinni, að mikið væri vald þess flokks, sem með stjóririna færi í landinu. — Hann meinti það vist sem aðvörun til allra þeirra lán- leysingja, sem gegn íhalds-valdintt stæði, og klöknaði við, er hann hugleiddi afleiðingarnai-. — Og nú lýsir 'hann yfir þvi, að þessi volduga ihaldsstjóm hafi kipt öllu í lag á einu ári, og sat hún þó við minnihluta-fylgi i þinginu! — Hún er ekki lengi að því sem litið er, blessunin! Lýsing blaðsins á fjárhag rikis- sjóðs, áður en núverandi stjóm tók við völdum, er heldur óglæsi- leg. —• Og þeir menn munu vera til, sem vilja fullyrða, að hún sé hvergí nærri rétt. —• Þegar að „lausu skuldunumj“ kemur, slær út i fyrir greinarhöfundi, og lend- ir þá alt i læpttlegri aðdáun á fjár- Jarðarför elsku lilla drengsins okkar, Jónasar, fer fram frá heifnili okkar, Nýlendugötu 4, laugardaginn 29. mai kl. 1 e. h. Guðfinna og Einar Pálsson. BSES6SÍ Sildarnet frá Johan Hanscns Sönner A/s., Bergen. höfum við fyrirliggjandi og seljum með verksmiðjuvérði. Þórðar Sveinsson & Co. málaráðherranum. — En það er nm þessar „lausu skuldir" að segja, að fyrverandi stjórn studdi Landsbankann til þess, að fá 200 þúsund sterlingspunda lán í Bret- landi, eða nál. 6 miljónir í ísl. kr., og var þá jafnframt svo til ætlast, að „lausu skuldirnar“ í Lands- Lankanunt skyldu verða „fasta skuldir". — Fyrverandi stjórn hafði lýst yfir þvi, utan lands og innan, að nauðsyn bæri til, að landsbúskapurinn yrði rekinxt hallalaust. — Þurfti því ekki að stofna íhaldsflokk, til þess að gefa þeirri stefnu byr undir vængi. — Og fyrverandi stjórn hafði í verkinu lýst fylgi sínu við þessa stefnu árið 1923, er hún ákvað að draga úr opinberum framkvæmd- um, þeim er einhverja bið þoldu. — Var sú ákvörðun vel íallin til þess, að vekja þjóðina og sýna henni frarn á nauðsyn hin? mesta sparnaðar. Fyrv. stjórn hafðjrixg ljóslega sýnt, hversu mikil alvara henní var í þessu nxáji, með því að leggja gengisauka-frumvarp fyrir þingið, en það varð rikis- sjóði til ntikils hagræðis og jók tekjur hans drjúgum. Þá er á jxað að líta, hver tekju- aukafrv. íhaldsstjómin hafi lagt fyrir þingið 1924. — Því er fljót- svarað: — íhaldsstjórnin sýndi alls enga tilburði í þá átt. — Að vísu kom annað tekjuaukafrv. fram i þinginu, verðtolls-frum- varpið, en það var ekki frá ríkis- stjóminni, heldur frá fjárhags- nefnd n. d. — Svona er sagan rétt sögð, og má sanna þetta með til- vitnunum í Alþingistíðindi og Stjórnartíðindi. - Núverandi stjórn gerði ekkert á Alþingi 1924, til viðreisnar fjárhag landsins. — Það verður því trauðlega séð, með hverjum rétti eða sanni íhalds- fiokkurinn muni geta tileinkað sér neinskonar bjargráð við fjárhag þjóðarinnar. Á þinginu 1924 vildu allir þingmenn sparnað, eða ná- lega allir, að minsta kosti. — Það var alda, sem fráfarandi stjóra hafði vakið. Það er vitanlegt, að fjárhagur ríkissjóðs hefir batnað til stórra muna síðustu tvö árin, — En það er ekki ríkisstjórninni að þakka. Það er að þaklra veltiárinu 1924. — Þá blómguðust Ævinnuvegim- ir. Þá mátti segja, aT srnjör drypi af hverju strái, og naut ríkissjóð- ur Jxess í miklum mæli. — Enginn hafði búist við slíkum uppgripa- tekjum. Tekjur ríkissjóðs 1925 urðu helmingi meiri en áætlað hafði verið. — Og þær hefðu orðið al- veg jafnmiklar, þó að enginn í- MwM leiini. Almenn heilbrigðis- og feg- urðarleikfimi. Kensla í lima- burði, gangi, andardrætti. Sömu- leiðis gert við skökkum og bognum hrygg og misfitu. Fyrir konur og unglinga mánud., fimtud., þriðjud. og föstudaga. Fyrir börn föstu- daga. — Uppl. í síma 100. Helga Sætersmoen. haldsflokkur eða íhaldsstjóm hefði verið til í landinu. — Ríkis- sjóði er venjulega óhætt, ef at- vinnuvegir þjóðai-innar standa í blóma. — Ef Jxeim hnignar til muna eða falla í kalda kol, er sýnn voði fyrir dyrum. Núkynni einhver að spyrja, hvort stjórnin kunni ekki að hafa veitt atvinnuvegunum einhvern mikils- verðan stuðning, sem réttlætt geti skrum stjórnarblaðsins um afreks- verk íhaldsins í fjármálum Jxjóðar- innar. — Aty innurekendurn i r geta best svarað því sjálfir, hver dreng- ur eða hjálparhella stjórnin hafi reynst Jxeim í Jjessum efnunx. — Sumum atvinnurekendum að minsta kosti hefir legið Jxungt hug- ur til stjórnarinnar fyrir afskifti hennar af gengismálinu síðastlið- ið ár. — Nokkurum þeirra mun hin öra hækkun krónunnar hafa komið á kné, en lamað fratn- kvæmdajxrek annara. — Það virð- ist Jxví ekki ugglaust, að atvinnu- rekendur landsins telji sig eiga stjórninni mikla Jxakkarskuld að gjalda. — Þeim mun áreiðanlega finnast, suinum hverjum, sem hún hafi verið rangsýn á öðru auga en steinblind á hinu. Þá er annað atriði, sem snertir atvinnuvegina mjög, og alla fjár- hags-afkomu Jxjóðarinnar. — Það er fyrirkomulag seðlaútgáfunnar, grundvöllurinn undir skipulagi bankamálanna framvegis. —Versl- unarstéttin hefir algerlega for- clæmt þær leiöir, sem stjórnin viU fara i þessum málum, sbr. fundar- ályktun á verslunarmála-þinginu hér í bænum í vetui\ — Og versl- unarstéttin stendur áreiðantega ekki ein uppi um það, að andmæla framferði stjórnarinnar í banka- málunum, — Þeim mönnum fjölg- ar nú daglega, að heita má, sem ganga undan merkjuxn íhalds-for- kólfanna, sakir skammsýni þeirra í Jxessum málum. — Það er engum vafa bundið, að stjórnin, eða fjármálaráðherrann að minsta

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.