Vísir - 12.06.1926, Blaðsíða 2
ViblR
Konungur vor og drotning komu
hlngaö í morgun kl. 9 á herskip-
. inu Niels Juel, og fylgdu þeim her-
skipin Geysir og Fylla. Veður var
hið fegursta, glaðasólskin, hæg
noröan átt og fögur fjallasýn. Fán-
ar blöktu um allan bæ, og öll skip
í höfninni voru fánum skreytt. —
Konungsskipin fóru frahi hjá
Vestmannaeyjum kl. 10 í gær-
morgun, en komu til Hafnarfjarð-
ar í gærkveldi og lágu þar i nótt.
Jafnskjótt sem konungsskipin
lögðust ihér, voru þau skreytt fán-
um, og í sama bili kom forsætis-
ráöherra, ásamt konungsritara út
að konungsskipinu, til þess að
fagna konungshjónunum. Margt
manna hafði þá safnast saman í
nánd við höfnina, og fór mann-
íjöldinn vaxandi eftir því sem á
morguninn leiö,
Þegar klukkan sló ellefu. kvað
viö fyrsta fallbyssuskot frá kon-
ungsskipinu, og sí'ðan hvert af
öðru, frá hinum herskipunum, á
meðan konunghjónin sigldu til
lands með föruneyti sínu.
Ofan við steinbryggjuna höfðu
verið reistir fjórir stöplar, hvítir
að lit, og kóróna yfir, en við
bryggjusporðinn var landgöngu-
fleki og rauður dúkur breiddur á
brvggjuna.
Feiknamikill mannfjöldi hafði
safnast saman við bryggjuna og
j.ar alt umhverfis. Hefir þaðsenn.i-
lega ekki verið færra en þá, er
konungshjónin komu hingað stð-
ast.
Forsætisráðherra og frú hans
tóku í móti konungshjónunmn,
jtegar þau stign á land og í sama
mund lék lúðrasveitin, undir stjórn
Páls ísólfssonar, jtjóðlagið: „Ó,
guð vors lands“, en mannfjöldinn
ihlýddi á berhöfðaður. Gengu kon-
ungshjónin upp bryggjuna, á með-
an lagið var leikið, og forsætis-
ráðherra og frú hans með þeim.
Ofan við bryggjuna biðu allir
helstu embættismenn landsins,
sendiherrar annara ríkja, og bæj-
arstjórn, með borgarstjóra. B.org-
arstjóri ávarpaði konungshjónin
nokkurum orðurn og bauð þau vel-
komin, og tók mannfjöldinn undir
það með níföldu húrra-hrópi.
Þá talaði konungur nokkur orð
og þakkaði viðtökurnar fyrir sína
hönd og drotningarinnar. Hann
mælti fyrst á danska tungu, en
síðan á íslenska (svo sem borgar-
stjóri hafði gert), og árnaði
Reykjavík og landi og lýð allrar
blessunar. Tóku menn undir það
með fagnaðarópum, og að jtvi
búnu var leikinn danski þjóðsöng-
urinn: „Kong Christian“.
Konungur og drotning heilsuðu
siðan þeim, sem næstir stóðu, en
gengu eftir það upp frá hafnar-
bryggjunni, þangað sem bifreiðir
biðu jteirra. Óku jtau upp að bú-
stað f.orsætisráðherra, ásamt föru-
neyti sínu, og stóð óslitinn mann-
garður tveim megin götunnar, alla
leið, en á eftir bifreiðunum flykt-
ust ungir og gantlir, og hefir sjald-
an sést hér nteira fjölmenni.
Konungshjónin búa á heimili
íorsætisráðherra á meðan jtau
dveljast hér.
í kveld kl. 7 heldur bæjarstjórn
samsæti fyrir konung og drotningu
og föruneyti þeirra á Hótel ísland,
en að öðru leyti verður jtessi til-
högun á konungsmóttökunni:
Á morgun kl. 10 f. hád. gengur
konungur í kirkju. Kl. 12)4 verð-
ur ekið af stað til Þingvalla. Verð-
ur landsstjórnin ]:>ar í fylgd með
konungi, konungsritari o. fl.
I.andsstjórnin heldur þar miðdeg-
isverð fyrir konung kl. 5. Verður
síðan ekið heim.
Á mánudaginn verður ekið á
stað til Ölfusárbrúar kl. 9. Þar
verður sest að morgunverði. Síðan
ekið austur um Flóa til Þjórsár-
brúar og til baka aftur að
Tryggvaskáíá kl. 4. Að afloknum
miðdegisverði j)ar, verður ekið til
Reykjavíkur.
Á þriðjudaginn verður ríkisráðs-
fundur uppi í Alþingishúsi kl. 9
að morgni. Kl. 11 leggur drotn-
ingin homsteininn undir Lands-
spítalann. Kl. 7 um kvöldið hefir
konungur boð hjá sér um borð í
skipi sínu. Lagt verður af stað
liéðan að morgni þess 16.
Engin viðkoma á Isafirði, vegna
taugaveikinnar.
Til Akureyar er búist við að
komið verði á föstudag þ. 18.
Laugardaginn þann 19. verður
farið inn í Eyjafjörð, að Krist-
nesi og Grímd. Boð hjá konungi
í skipi hans, kl. 7 um kvöldið.
Sunnudaginn þ. 20. verður farið
austur í Vaglaskóg, ef veður leyf-
ir, til baka aftur samdægurs, og
frá Akureyri þá um kvöldið.
Komið verður til Seyðisfjarðar
að kvöldi þess 21. Fer konungur
og fylgdarliö hans þar í land þ.
22.
Símskeyti
Khöfn 11. júní. FB.
Er Þjóðabandalagið að klofna?
Símað er frá Genf, að Þjóða-
bandalagið hafi afnumið eftirlit
með fjármálum Austurríkis.
Símað er frá Washington, að
mikið sé rætt um að setja á stofn
Þjóðahandalag Ameríku, er í séu
öí) ríki véstúrálfu, ef Brazilía segi
sig úr Þjóðábandalaginu.
Eignir þýsku furstanna.
Uppþot í þýska þinginu.
Símað er frá Berlín, að miklar
æsingar hafi orðið á fundi í Ríkis-
junginu. Marx hótar jiingrofi,
verði fjárgreiðslur til furstanna
feldar. Hann varði bréf Hinden-
burgs, en jafnaðarmenn ásaka
Hindenburg um hlutdrægni. —1
Demokratar og miðflokkarnir and-
vigir kanslaranum i bréfmálinu.
í prússneska þinginu neyddist for-
seti til þess að slíta fundi, vegna
móðgana kommúnista í garö Hind-
enburgs.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 10 árdegis.
Dr. Jón biskup Helgason. — Kon-
ungshjónin hlýða á messu. — Eng-
in síðdégisguðsþjónusta.
í fríkirkjunni kl. 2, sira Ámi
Sigurðsson. — Nýja orgelið verð-
ur vígt.
í Landakotskirkju kl. 9 árdegis
hámessa, og kl, 6 síðd. guðsþjón-
usta með prédikun.
Sigvaldi læknir Kaldalóns
og fjölskylda hans fara liéð-
an til F"lateyjar 15. þ. m. og telc-
ur hann þar við læknisembætti.
Vinir hans héldu honum skiln-
aðarsamsæti á Skjaldbreið í
fyrrakveld, og voru þar haldn-
ar margar ræður. Töluðu meðal
annara, þorsteinn ritst. Gislason
og síra Bjarni Jónsson. Gjöf var
honum gefin að skilnaði. Er það
vandað viðtæki, sem sett verð-
ur upp á heimili lians -þarvestra!
Sigvaldi læknir er mjög vinsæll
maður og fylgja honum og fjöl-
skýldu lians hamingjuóskir
margra vina.
Þýska hljómsveitin.
Hljómleikarnir á fimtudags-
kvöldið voru vel sóttir. Var þar
leikið ,,Siegfried-Idyll“, kvintett
eftir Beethoven og Violinkonsert
eftir Mozart. Þar hafði forfiðlari
Fritz Leue einleik, sem áheyrend-
ur gerðu mjög góðan róm að. —
I gærkveldi var Eroica-sýmfónian
endurtekin í dómkirkjunni og var
nú hvert sæti skipað.
Villemoes
kom i morgun. Á meðal farjiega
voru Sigurður Eggerz og Magnús
Kristjánsson. Þeir héldu fundi á
Seyðisfirði og í Vestmannaeyjum
og var góður ró'mur gerður að
rnáli Sig. Eggerz á báðum fund-
unum.
Bæjarstjómin
bauð jiýsku hljómsveitinni í gær
austur yfir fjall. Var lagt af stað
kl. 10 og komið laust eftir hádegi
að Tryggvaskála og snæddur þar
miðdegisyerður. Pétur Halldórs-
son hafði orð fyrir bæjarstjórn-
inni, en formaður hljómsveitar-
innar, J. Rieckmann þakkaði fyr-.
ir hönd sveitarinnar. Eftir borð-
haldið voru blásin nokkur íslensk
attjarðarlög og síðan haldið upp
að Sogi. Var haldið kyrru fyrir i
Þrastaskógi um stund og síðan
haldið heimleiðis. Var jiá kl. um 4.
Numið var staðar á Kolviðarhól
og drukkið kaffi. Veður var liið
besta, sólskin og logn. Nutu gest-
irnir ferðarinnar hið besta og töldu
þetta skemtilegasta daginn sem
þeir hefðu dvalið hér. Einkum.
voru þeir hrifnir af útsýninni af
Kömbunum.
Hljómsveitin þýska
hefir „Wienar-valsa“-kveld á
morgun (sunnudag) kl. 9 síðdegis.
Sjá augl.
Eirca Darbo
söng í Nýja Bíó í gærkveldi, og
var fagnað ágætavel.
Henry Erichsen
, leikur á harmoniku í síðasta
sinn í kveld. Hann hefir jafnan
'haft húsfylli áheyrenda. — í gær
skemti hann á Elliheimilinu.
t