Vísir - 16.07.1926, Page 3
VlSIR
það nieö húrra-hrópum. — Söng'-
ur fórst fyrir á hafnarbakkanum
vegna rigningar, en nokkurir menn
fóru út á 'hafnargarS og sungu þar
þjóSsöng NorSmanna, þegar Lyra
arendi út úr höfninni.
Mr. R. W. Orcutt
var meSal farþega á Lyru í gær-
Jjrveldi.
Misprentast
ihefir í Vísi i gær, að Ásgeir Ás-
geirsson væri skipaSur fræSslu-
málastjóri. Hann hefir veriú sett-
ur til-að gegna því embætti.
Skrimslis-saga.
Snemma í fyrra mánuði sáu
margir menn skrimsli eða ókenni-
legt ferlíki við ferjustaðinn á
Hólsá i Þykkvabæ í Rangárvalla-
sýslu. Það gerði ýmist að mara í
hálfu kafi eða stinga sér með tals-
verðum boðaföllum og stóð mönn-
mm allmikill stuggur af þvi. Það
mun hafa haldið sig þama um
vikutima, en hvarf þá og hefir
ekki sést síöan. >
Vörðurinn.
„Vörður“ er hlíf og skjöldur
þeirra manna, sem harðastir eru
■í íslands garð, sbr. faðmlögin við
Sigurð Þórðarson og nú hin hlýju
vinarorð í garð Knud Berlins.
R.
Prentsmiðjusími Vísis
er 1578. Opinn til kl. 2 daglega.
í»jófnaðir
á yfirhöfnum hafa verið alltíðir
á kaffihúsum bæjarins í vetur og
■sumar. Einkum eru mikil brögð
að þessu í forstofunni að kaffisal
Rosenbergs, enda liggur hún beint
við götunni. Er í raun réttri óverj-
andi að láta eigi gæta fata gest-
anna á svo stóru kaffihúsi.
Gestur.
Pósthússtræti
er nú verið að rífa upp, og verð-
ur grjótiö notað í göturæsi í
Tryggvagötu, sem einnig er í við-
gerð. Holræsin í Pósthússtræti
verða víkkuð allmikið. Einnig á
■að malbika akveginn og breikka,
en í stað þess verður gangstéttin
mjókkuð framundan Pósthúsinu
og Landssimastöðinni.
Félag frjálslyndra manna í Rvík
opnar skrifstofu i Bárunni, uppi,
Það sem eftir er af
Saotarkápw
verður selt með
33‘/Wo afslætti.
mmmmwfflw
Nýkomið
í Fatabúðina
mikið úrval af mjög hentug-
um vinnufötum og ferðaföt-
um, afar ódýrt. Ennfremur
hin óviðjafnanlegu karl-
mannaföt og yfirfrakkar, sem
eru orðin viðurkend fyrir
snið og efni. Stuttjakkar
fyrir drengi og fullorðna,
drengjafrakkar,brúnar skyrt-
ur, regnkápur, sokkar, húfur.
treflar, nærföt o. fl.
Hvergi fáið þið eins góðar
vörur fyrir svo lítið verð.
Best að kaupa allan fatn-
að i Fatabúðinni.
Komið og sannfærist.
í <iag. Veröur hún fyrst um sinn
opin kl. 8—10 síðdegis hvern virk-
an dag. Þeir sem óska að innrita
sig í félagið geta gert það þar.
Verðlaunagripir
þeir er veittir verða fyrir kapp-
sundið á sunnudaginn, eru til sýn-
is i glugganum hjá Guðna A.
Jónssyni úrsmið, Austurstræti 1.
íslandsglímunni
verður frestáð vegna rigningar.
Finnlands-kvikmyndin
var sýnd allmörgum gestum í
Nýja Bíó kl. 3 í gær. Hr. Kl. Jóns-
son mælti nokkur orð áður en sýn-
ingin hófst, og kynti fundarmönn-
um hr. Loimaranta, fyrrum kirkju-
m Til útbreiðsla þessarar heimsfrægn
reiknivélar hér á landi höíam við ákveð-
iMLSSr [5 f samráði við verksmiðjana. að þeir,
sem iiaai 1. ágúst 1926 kanpa Trínmphatoy-reiknivél
greiði aðeins kr. 475,00 í stað 550 00 sem er útsöluverð
vélarinnar hér á landi.
F. M. Kjartansson & Co9 Reykjavík.
Rudge-Whiiworih
Briíains Besi Bicycle
reiðlijólin
svörtu (Aero-Special)
eru komin aftur Sömu-
leiðis barna-reiðhjólin.
Helgi Magnússon
& Co.
Rudge-Whiiworíh
Britain’s Besl Bicycle
SDCHARD,
Milka, Velma, Milkanut, Bittra
etc. Cacao og Confect afgreiðist
með original verði frá verksmiðj-
unni í Neuchatel, original faktúra
frá Suchard. Verðið hefir lækkað
mikið. Gæðin eru þekt á íslandi,
af 20 ára reynslu.
L Obenhaopt.
Einkasali fyrir ísland.
málaráðherra í Finnlandi, sem síð-
an ávarpaði gestina nokkurum
orðurn. Myndin er bæði fögur og
fræðandi, og eiga menn nú kost á
að sjá hana í Nýja Bíó. — Meðan
á sýningu stóð i gær, var leikið
á hljóðfæri, og þegar þjóðlag
Finna var leikið að lokum, risu
allir áheyrendur úr sætum sínum.
Elliðavatn
er boðið bænum til kaups fyrir
135.000 krónur, og hefir rafmagns-
stjórn hug á að gengið verði að
þessum kaupum, til þess að tryggja
rafveitunni nægilegt landssvæði til
uppistöðu fyrir vatn. Var málinu
vísað til 2. umr.
Nokkrar stúlkur
óskast til síldarvinnu á Hjalteyri.
Uppl. í dag hjá hf. Kveldúlfur.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. frá N. N., 5
kr. frá V. E.,‘ 3 kr. frá K. S.
SÖNGFÖR KARLAKÓRS K.F.U.M.
aas, „Ó, guð vors lands“ og „Sangerhilsen“ eftir Grieg.
Sungum við þar íjokkur lög. — Um kveldið .fóru svo
flestir í sporbraut upp á Flöj-fjallið; er hæð fjallsins
300 metrar, svo útsýni er gott yfir borgina. Var engn
likara, þegar upp var komið, en að maður væri kominn
fivo hátt upp, að maður sæi niður til stjarnanna, er niður
var litið áhinn ótölulega ljósafjölda í Bergen. — Snetnma
var gengið til hvílu, því að margir voru orðnir þreyttir.
Daginn eftir fluttu Bergensblöðin myndir af kórinu
og kvæði til þess. Þá birtu þau einnig grein eftir Leif
Halvorsen, söngstjóra „Handelsstandens Sangforening"
nm söng kórsins.
Þenna dag vorum við boðnir í bifreiðaferðalag út til
sumarbúða K. F. U. M. og sá félagið um alt viðvíkjandi
því ferðalagi með tilstyrk bæjarins. Höfðu einstakir menn
boðið fram liifreiðir sínar til ferðarinnar. Lagt var af
Stað kl. 12 á hád. og var, auk okkar, margt manna, þ. á.
m. herra Hognestad biskup, borgarstjóri, fonn. bæjar-
stjómarinnar og blaðamenn margir. Fyrst var ekið um
borgina óg okkur sýndar helstu byggingar og mann-
virki; síðan baldið út úr borginni og eftir að hafa ekið
rúma 7 km. komum við að Fantofte stafakirkju. Var þar
stigið úr bifreiðunum og safnast saman i kirkjunni. Er
kirkjan allstór og mjög fallpg, sérstaklega að utan. Herra
SHognestad liiskup hélt stutta ræðu í kirkjunni og skýrði
Ijyggingarstíl kirkna að fornu. Að ræðunni lokinni sungu
allir sálminn „Kirkja vors guðs er gamalt hús“, — viö
á íslensku, en Norðmen á norsku. Var þessi stnnd í
kirkjunni hin hátiðlegásta. ^Stafákirkja þessi er upp-
runalega reist í Sogni, en var flutt og reist í sömu mynd
þarna og gefin Bergen af norskum auðmanni. — Svo var
baldið áfram og út til Lönningen; þar eru sumarliúðir
K. F. U. M.; falleg og stór aðalbygging og aðrar minni,
sem eru svefnskálar. V ar þar máltíð framreidd 0g sest
þegar að borðum. Eftir að slökt var mesta matarlystin
byrjuðu ræöuhöldin. Sérstaklega er mér minnisstæð
ræða herra Hognestads biskups. Hann talar á nýnorsku,
hefir slétt málfar og setningarnar koma eins og meitlað-
ar; maður gleymir því ógjarnan, sem hann segir. Ágæt-
isræöur héldu og form. bæjarstj., Lorentzen, og Iversen
prófastur, form. K. F. U. M. Öllum ræðunum svaraði fyr-
ir okkar hönd, Pétur Halldórsson. Var ræða hans snjöll
og birtist i blöðunum i mörgum útgáfum ásamt þvi
helsta úr ræðum hinna ræðumannanna. Að borðhaldinu
loknu var gengið um úti við, myndir teknar, sungið og
talast við. Kl. 5 byrjaði kaffidrykkja og þá söng ein-
söng Anker Bergh og þótti góð skemtun að því. Stigu
menn síðan í bifreiðirnar og var þá haldið til Bergen.
Um kveldið var fyrsti samsöngur okkar, í Logen. Að-
göngumiðar voru allir seldir svo húsfyllir var. Heilsuðum
við með norska þjóðsöngnum, og féll það áheyrendum
vel í geð ; síðan var byrjað á söngskránni og klappaði
fólk óspart, og þegar við höfðum sungið „Slaa ring um
gamle Norig“, ætlaði alt ofan að fara af lófaklappi og
fagnaðarlátum; hefi eg aldrei heyrt eða séð neitt likt
því. Urðum við að endurtaka það lag, og síðan nærri
hvert einasta lag úr því. Sungum við að lokum „Ó, guð
vors lands“ og stóðu þá allir meðan það var sungið. Lars
Söraas afhenti söngstjóra blómvönd og þakkaði „hinn
ágæta“ söng og óskaði kórinu góðrar farar um Noreg.
— Þótti okkur vel tekist hafa, ef dæma mætti eftir þess-
um ágætis viðtökum áheyrenda, — en eftir var að vita
hvað söngdómararnir segðu.
Eftir samsönginn fórum við rakleitt út i skipið „Sfav-
anger I“, sem átti að flytja okkur til Stavangurs. Fylgdi
okkur til skips mikill mannfjöldi, og varð ekki hjá því
komist, að syngja nokkur lög áður en' skipið lagði frá
hafnarbakkanum. Var skifst á húrrahrópum og síðan
lagt af stað.
Veður var hið 'ákjósanlegasta og vorum við margir á
þiljum uppi, þvi að tunglsljós var á, sjór spegilsléttur og
hlýtt í veðri. Sumir skrifuðu bréf heim o. s. frv.
Til Stavangurs komum við snemma’að morgni dag-
inn eftir (28. apríl). Héklum við þegar til gistihússins
„Victoria“ og höfðum þar aðsetur meðan staðiö var vi‘5
í Stavangri. Flaggað var á öllum opinberum byggingum
og víða annars staðar i tilefni af konm okkar. — Okkur
var tilkynt, að við rarum boðnir út á Jaðar þá síðar
um daginn og einnig boðið að skoða dómkirkjuna..
Byrjuðum við daginn með því að kynna okkur hvernig
væri að syngja í sal þeim, sem samsöngurinn átti að vera
í um kveldið, og reyndist hann sæmilegur. Fórum við