Vísir - 29.07.1926, Blaðsíða 4
VISIR
ritstjóra MorgunblaSsins, er ný-
lega kominn hingaS fótgangandi
norSan úr landi, ásamt félaga sín-
um, norskum stúdent. Fóru þeir
af skipi á Akureyri, en þaSan
gangandi um Mývatnssveit til
Húsavíkur, en sí'öan sem leiS ligg-
ur um sveitir hingað suður. HéSan
er för þeirra heitið austur í Fljóts-
lilíS og víðar munu þeir ferðast
um hér á Suðurlandi.
Lúðvig Guðmundsson,
kennari fer utan í dag á Lyru
og ætlar að ferðast um Norðurlönd
og víðar í erindum Stúdentaráðs-
ins.
Ferðasögu
Karlakórs K.F.U.M., sem und-
anfarið ihefir birst í Vísi, er lokið
í blaðinu í dag.
Lyra
fer héðan kl. 6 síðdegis í dag til
Bergen, um Vestmannaeyjar og
Færeyjar. Meðal farþega verða:
Sigurður %Sigurðsson, fyrverandi
búnaðarmálastjóri, ungfrú Ragna
Sigurðardóttir, Reidar Sörensen,
ungfrú Lára Kristinsdóttir, Stefán
Runólfsson, Guðm. Runólfsson,
Guðm. Þorkelsson o. m. fl., flest
útlendingar,
Fylla
er væntanleg hingað i nótt
eða í fyrramálið með ihermála-
ráðherra Dana og nokkura gesti
aðra. Hafa þ«r farið til Jan May-
en, en koma nú frá Akureyri.
Tjaldur
fór liéðan í gærkveldi til Leith.
Meðal farþega var M. Copland og
nokkurir fleiri útlendingar.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 12 kr. frá L. í.
Gengi erl. myntar.
Sterlingspund .......... kr. 22.15
100 kr. danskar........— 120.77
íoo — sænskar ...... — 122.10
100 — norskar ........... — 100.18
Dollar .................. — 4.56)4
100 frankar franskir .. — 11.17-
tno — belgískir . — 11.29
100 —< svissn. ... — 88.41
100 lírur .............. — 14.67
100 pesetar ............. — 70.05
100 gyllini............. — 183.58
100 mörk þýsk (gull) — 108.52
Sonja, Valencia, Vals Gösta,
Susie, Tjufen i Bagdad, Picador,
Barcelona, Mr. Pickwick, og ótal
ný og gömul en vinsæl lög, á nót-
um og plötum, komu með Botníu.
Munið plötuútsöluna og litlu,
ágætu plöturnar, að eins kr. 6,50
fyrir 10 stk., annars 75 aura stk.,
2,90 og 3,50 fyrir stórar plötur.
Enn þá nokkrir ferðagrammófón-
ar eftir á kr. 65,00 (áður 115,00),
ómissandi í sumarfríinu. — Hljóð-
færahúsið, (765
Fersól er ómissandi við blóð
leysi, svefnleysi, þreytu, óstyrk
leik og höfuðverk. Fersól eykui
kraft og starfsþrek. Fersól gerij
líkamann hraustan og fagran
Fæst í Laugavegs Apóteki. (88
Við hárroti og flösu getið þér
fengið varanlega bót. Öil óhrein-
indi i húðinni, filapensar og
húðormar tekið burt. — Hár-
greiðslustofan, Laugaveg 12. —
Phönix
og aðrar vindlategundir frá
floiwitz&Rattenfid,
hefir fyrirliggjandi í heild-
sölu til kaupmanna og kaup-
félaga
nr n
Það sem eftir er af
siikipeysnm 1
°g |
blúsnm |
verður selt næstu daga \
mjög ódýrt.
VÖRUHÚSIÐ. g
Kaupið rúðugler og
búðargluggagler
hjá
Ludvig Storr.
Þar fáið þór hið besta gler, sem
framteitt er.
Mikil verðlækknn.
YisisKaííid gerir alla giaða.
Nýtt veðreiðhjól til sölu með
innkaupsverði. Sími 1335, kl. 5-6.
(761
Til sölu nýtt kassimír-sjal og
peysuföt á Spítalastíg 2. (760
Vandað, nýtt reiðhjól til sölu
með tækifærisverði. A. v. á. (772
Góöur, notaður ofn, helst Svend-
borg nr. 1, óskast keyptur. Uppl.
Óðinsgötu 21, kl. 5—8 í kveld.
(77i
Ágæt bújörð í Ölfusi til sölu nú
þegar. Skifti á húsi geta komið
til mála. Uppl. gefur Pétur Jak-
obsson, Freyjugötu 10. Sími 1492.
(767
2 fallegar pelagoníur til sölu.
A. v. á. (616
jjjjgp Gott, snoturt steinhús ósk-
ast keypt gegn talsverðri útborg-
un. Verð alt að 20 þúsund. Uppl.
gefur Siguröur Þorsteinsson,
Freyjugötu 10 A. (739
HÚSNÆÐI
Herbergi til leigu vegna burt-
ferðar. Á sama stað er til sölu:
rúm, rúmföt, borð og 2 stólar,
ódýrt. Lystihafendur gefi sig
fram strax. Uppl. á Skólavörðu-
stíg 15, eftir kl. 7 síðd. (759
Til leigu lítið herbergi frá 1.
ágúst fyrir einhleypan reglumann.
Miðstöðvarhiti og rafmagn fylg-
ir. Vesturgötu 12. (754
Tvö herbergi til leigu frá 1.
ágúst. Uppl. í Málaranum. (753
1 til 2 ’herbergi og eldhús ósk-
ast. Tilboð auðkent: „100“ send-
ist Vísi. ■ . (752
r
TILKYNNING
1
Gisting fæst á Vesturgötu 14 B.
Inngangur frá Tryggvagötu. (205
VINNA 1
Stúlka eða unglingur óskast
strax i vist, Laugaveg 27, stein-
húsið, efstu hæð. (762
Unglingsstúlka sem hefir verið við búðarstörf áður, óskar eftir búðar- eða bakaríisstarfi. A. v. á.
(757
Stúlka óskast í vist 1. ágúst.
Uppl. í síma 780. (756
Tvær kaupakonur óskast á gott heimili í Þingvallasveit. Semjaber
við Samúel Ólafsson. (755
Kennari getur fengið atvinfiu
við heimiliskenslu, á góðu heimilí
á Norðurlandi. Góð kjör. Uppl.
gefur Aðalsteinn Eiríksson, Mið-
stræti 12. (751
Stúlka óskast í vist. A, v. á,
(769
Kaupamaður óskast á gott heim-
ili í Rangárvallasýslu. Uppl. hjá
Jóh. Ögm. Oddssyni, Laugaveg
%__________________________ (768
Gúmmílíming best og ódýrust á
Oðinsgötu 3. (766
Stúlka getui: fengið atvinnu nú
þegar. Úppl. i síma 187, kl. 6—7
i kveld. (764
Föt pressuð, þvegin og gert við.
\Teitt móttaka eftir kl. 6 síðd. —
A sama stað lakkskór til sölu.
Hverfisgötu 60, uppi. (763;
Kaupakona óskast á gott heim-
i!i í sveit. Þarf að kunna að
mjólka. Uppl. í síma 1932. (733>
Peningabudda með peningum
og lyklum týndist, frá Lands-
bankanum suður á Grímsstaða-
holt. Skilist til Vísis. (758'
Tapast hefir kvenúr frá Borg-
arnesi upp á íþróttamót sunnu-
daginn 25. þ. m. A. v. á. (770-
Félagsprentsmiðjan.
KYNBLENDING URINN.
þig og treystir þér, en aö hún lifði lengi og tryði þér
aldrei fi'amar?"
„Vitanlega! — Eg hefi hugsað um þetta alt saman.
— — Alluna — ])ú ert verri en nokkur eiturnaðra!“
„Þó að hann vissi leyndarmálið, þá er svo sem ekki
víst, að hann gengi aö eiga ihana. — Þú ert að visu hreinn
og flekklaus, en hinn maðurinn er djöfull — hreinn og
beinn erki-djöfull!----Líf góðs manns er of dýrmætt
til þess, að því sé fórnað fyrir sorgir annara — smá-
sorgir gleymast áður en árið er liðið.“ — Alluna bar
ört á og mælti á sína tungu, hún var mjög áköf og hélt
fast á sínu máli. Sá, sem hefði heyrt til hennar á þess-
um augnahlikum, nnmdi ekki hafa fullyrt, að kynkvísl
hennar væri heimsk og skilningslaus.
„Heldur þú að tíminn lækni allar sorgir og öll ásta-
mein ?“
„Já, áreiðanlega. Það gerir hann, blessaður tíminn.
Hann læknar alt.“
„Jæja, kona góð! — Þú veist ekki betur en þetta. —
Ef til vill getur þetta borið við i glaumi borganna og
hringiðu lífsins, en hér í fásinni óbygðanna er öðru máli
að gegna. — Já, tíminn — eg hefi kynst honum í ein-
verunni. — Eg hefi lifað héi» á útigangi í fimmtán ár,
og minningarnar hafa verið mér ærið fylgispakar. Og
eg geri ráð fyrii', að þetta hefði orðið svipað annars-
staðar. — Á hverri nóttu dreymir mig liðna ævi og at-
burði og dag hvern eru þeir í huga mér. — Eg sé and-
lit í eldinum og í golunni heyri eg raddir, sem eg kann-
ast við. ■—• Á hvérri illviðris-nóttu kallar á mig stúlka,
sem eg þekti, og biður mig að koma með sér. — í hverj-
um sólargeisla og mánabrosi sé eg hana hlæja við mér,
yndislega, ástúðlega, fulla af kærleik og mildi. — Og
svona var hún. Fædd til þess að standa sólarmegin í
lifinu, og Necia er lík henni. — Eg segi þér satt, All-
una: Ástin er það eina í öllum heiminum, sein aldrei
deyr. — Tími'nn megnar ekki að deyða hana. — Hún
fágast og- fegrast með árunum og að lokunr verður hún
eina uppsprettulindin, sem þreyttur og vegmóður ein-
stæðingurinn getur fundið svölun í.“--------Hann lét á
sig hvítan, barðastóran hatt, sem hann hafði fleygt á
liorðið þegar hann kom inn, og gekk til dyra.
„Iivert ætlarðu aö fara?“ spurði Alluna hrædd.
„Til herbúðanna. — Eg ætla að selja mig réttvísinni
í hendur."
Hún rak upp ihátt og sárt vein, stökk á hann, eins
og köttur, og vafði sig utan um hann,
„Þú hefir aldrei elskað mig, John, og hefi eg þó ver-
ið þér góð kona. Og samt vissi eg, að þú varst alt af
að hugsa um aðra, og skeyttir ekki um mig, nema at
þörf og nauðsyn. —- Eg hefi elskað telpuna, af því að
þú elskaðir hana. Eg hefi hatað óvini þina, af þvi aö
þú hataðir þá, og nú man eg eftir því, sem þú hefir
gleyrnt —.“
„Sem eg hefi gleymt? — Hverju hefi eg gleymt?“'
„Stark!“
Gale nam staðar. „Já, eg var nærri því búinn að gleyma-
honum, — gleyma honum eftir fimmtán ár.“
„Við skulum drepa hann í kveld. Og svo getum við-
farið til liðsforingjans á eftir, — hlið við hlið, — þú
og konan þín. — Necia getur verið heima og litið eftir
börnunum.“
Gale starði á hana. — llann starði á eir-rauðan hör-
undslitinn, liárið strítt og stíft, eins og fax, sk'ræpótt
sjalið, olögulega skóna, sem hún bar á fótunum, óþrifa-
leg og illa sniðin fötin, og þá mintist hann þess alt i
einu, að eitt sinn, fyrir mörgum árúrn, þegar hann sá
liana fyrst, hafði hún verið grönn eins og vi'ðartág,
.þögul, hljóðlát vera, meö stór, gáfuleg augu og hreina,
flekklausa sál. — Engin kona hefði getað verið trygg-
ari en hún, og hún kvartaði aldrei. — Hann hafði rifiö
hana upp úr jarðvegi sínum, og hún hafði fylgt honumr
fagnandi, trygg og hlýðin á flækingi hans út i auðnir
og óbygðir. — Hann hafði hrakist undan óttanum og
hún hafði aldrei yfirge'fið hann, aldrei efast, aldrei spurt
neins, sem hún bjóst viö að gæti sært hann, ávalt þjótt-
að honum eins og ambátt, án allrar hlutdeildar í þeim