Vísir - 07.08.1926, Síða 2

Vísir - 07.08.1926, Síða 2
jrisin R t k Q r tm *ut -S E1 N Ennþá er lítið aitt óselt ai Bánjáni. Höfum einnig fyrirliggjandi Zínco-Rnber Þtkpnppa, afar góð tegnnð. •i* Sífí Eggerf Pálssoa prófastur og alþm., frá Breiöabólsstaö í Fljótshliö, andaöist í gær í Kaupmannahöfn. Æviatriöa 'hans ver'Sur síðar getiö hér í blaöinu. Símskeyti —o— Khöfn 6. ágúst. FB. Fjármál Frakka. — Afborgana- sjóðurinn. SímaS er frá París, aö þingiö liafi samþykt lögin um afborgana- sjóöinn. Lausaskuldirnar nema fjörutíu og níu miljörðum. Tekju-> lindir sjó'Ssins verða sennilega ó- fullnægjandi. Fyrirhuguð aukning' seðlafúlgu Frakklandsbanka til kaupa á erléndum gjaldeyri orsak- aði verðfall á frankanum i Lon- don. Kolaverkfallið. Símað er frá London, að náma- inenn i tveimur námahéruðum hafi felt sáttatilboð biskupanna. — Inn- flutt kol néma sex hundruð þús- undum tonna. Manntjón af vatnavöxtum. Símað er frá Hankow, að flóð- garðar hafi bilað vegna feikna yatnsflóða. í Yangtsekiang drukn- uðu þrjár þúsundir manna í flóð- uni. Halldór Þórðarson bókbindari og fyrrum prent- smiðjustjóri er sjötugur í dag. Hann er einn meðal liinna merk- ustu og kunnustu borgara þessa bæjar, hefir dvalist hér hátt á fimta tug ára og rekið hér at- vinnu um langan aldur. Halldór er fæddur að Syðri- Reykjum í Biskupstungum 7. ágústmán. 1856; af góðu bergi brotinn í báðar ættir, kominn af merkisbændum, kynsælum klerkum og stórættuðum sýslu- mönnum, sem ættaskrár vísa. Hann var yngstur átta systkina. Lifa þeir nú eftir tveir bræður, Halldór og Jón fyrrum hrepp- stjóri á Álftanesi. Halldór réðst til sjóróðra í Njarðvík 16 ára og reri síðan flestar vertíðir haust, vor og vetur, uns hann hætti sjómensku sakir heilsubrests 1879. Honum hafði áður leikið hugur á að stunda skólanám, en því hamlaði féskortur. Réðst þá svo, að hann fluttist til Rúðngler rammagler, búðargluggagler, ó- gagnsætt gler, mislitt gler, kúpt gler, kantslípað gler, hurðar gler og glerhillur fæst ódýrast hjá Ludvig Stopp, Sími 333. Reykjavíkur og nam bokhand hjá Brynjólfi Oddssyni og tók sveinsbréf haustið ' 1882. Hóf hann þá sjálfur bókbancísiðn veturinn eftir og rak hana síð- an óslitið uns liann seldi verk- stofu sína Ársæli Árnasyni áríS 1917. Árið 1890 keypti Halldór með nokkurum mönnum öðruirr prentsmiðju þá, er Sigmundur prentari Guðmundsson hafði stofnað. Var hún síðan nefnd „Félagsprentsmiðjan“ og ber það nafn enn í dag. Halldór veitti prentsmiðjunni forstöðu um fullan fjórðung aldar með gætni og forsjá og aflaði henni trausts og vinsælda. Seldi hann loks eignarlilut sinn og réðst frá stjórn í árslok 1915. — Meðan Halldór stýrði prent- smiðjunni átti hann oft lilut að útgáfu blaða. Sjálfur kostaði hann „Elding“, vikublað, er Jón sagnfræðingur gaf út, og „Aug- lýsarann“. Landvarnarmenn prentuðu þar blöð sín, „Land- vörn“ og „Ingólf“ og önnur rit, er þeir gáfu út. Var Halldór þeim ávalt haukur í horni og áttu þeir þar örugt athvarf, þótt oft væri hart um fjárhaginn. Studdi Hatldór flokkinn drengi- lega í baráttunni meðan hún var sem hörðust, og mun þess lengi minst. Halldór er manna frjálslynd- astur, lileypidómalaus og ung- ur í anda, sjálfstæður og stað- fastur í skoðunum, sanngjarn, ráðhollur og vinfastur. Hófs- máður um hvern hlut. Snyrti- maður í allri framgöngu, kurt- eis og skemtinn í viðræðu. Hann er höfðinglegur á vélli og þrek- legur og ber aldurinn vel. Ekki hefir hann sókst eftir vegtyllum né virðingarstöðum, en hefir ó- bilandi traust allra þeirra, sem kynni hafa af honum haft og rekið ótal trúnaðarerindi fyrir fjölda manna fjær og nær. Á hann og miklum vinsældum að fagna. Halldór reisti veglegt timbur- hús á horni Skólavörðustígs og Laugavegar árið 1886 og 1903 reisti hann íbúðarhús sitt við Ingólfsstræti, eitt hið fegursta íbúðarhús, er þá var i bænum. Var það fyrsta steinsteypuhús, er hér var reist, samtímis „Ing- ólfshvoli“, húsi Guðjóns úr- smiðs Sigurðssonar. Árið 1886 kvæntist Halldör Maríu dóttur Kristjáns stór- bónda Matthiesens á Hliði á Álftanesi, mestu rausnarkonu. Er heimiliþeirraviðbrugðiðfyr- ir snyrtimensku og myndarbrag. pau eiga eina dóttur barna, El- ísabet Guðrúnu, sem gift er pórarni útgerðarmanni Egilson í Hafnarfirði. Árna eg Halldóri pórðarsyni og frú hans langra og farsæl- legra lífdaga. Ben. Sv. Út ðt „itiÉrilðsinu" —o— Hinn ungi maður L. S!, sem um daginn skrifaði í Vísi um Dansk- ■ísl.-félagið og utanferðir ungo. fólksins, og gerði þetta í sömu andránni og hann varaði viö „hvítu þrælasölunni" úti í lönd'trm, vill auðsjáanlega ekki við það kann- ast, að neitt 'hafi veriö ofmælt í grein hans, eöa aS þar hafi veriS farið með dylgjur og staðl’awsar getsakir í garð félags vors. Þó get eg að sumu leyti verið ánægðúr með „svar“ hans. Eg hefi þó haft þaS upp úr skrifi mínu, að nú dregur ihann úr því, sem svo skilV yröislaust var talað x fyrri grein- inni, að félag vort hvetti og ýttíi undir fólk til fyrirhyggjulítilla ut- anferða. Nú fær maður að vita,. að félagið geri þetta aðeins óbein- línis með því aS bjóSast til að útvega fólki, sem engan á að, en íangar til að fara utan til að full- komna sig og menta í einhverri grein, dvalarstaði á góðum, dönsk- um heimilum, og með því að út- vega fólki, sem á visa dvalarstaði erlendis ívilnun í fargjaldi! Með þessu hefir grein hans hin fyrri fcngið nauðsynlega Ieiðréttingu, því að í þessu máli verSur alt af rnunur á „beinlinis" og „óbein- línis“. En þvi miöur hefir L. S. ekki viljaö verða við þeim tilmælum mínum, svo sem ærlegur maðury. að leggja spilin á borðiS, svo að séð verði, hvað hann hefir á hend- inni: hvað hæft er í aðdróttunurrí' hans um „stóru misfellin" og- dylgjum hans um fólkið, sem fé- lag vort hafi * gert aS vandræðá- fólki, með því fyrst að ýta undir það til fyrirhyggjulítilla utanférða og síðan, er því líkaði ekki: vist- arveran, sem útveguð hafði verið, að slá af því hendinni og láita það berast út á vegu auðnuleysis og ógæfu í glerhálku stórborgarlífs- ins. En þessi tregða L, S. er því kynlegri, sem hann hlýtur að skilja, að þar sem hér á að vera að ræða um fólk, er hafi farið utan á vegum félags vors og þá vitanlega fyrir milligöngu félagsdeildar vorrar, þá hljóti stjórn þessarar deildar að eiga heimtingu á, að sjá sönnunargögn- in í málinu lögð fram. Og þetta er því merkilegra, sem L. S. ætti a'ð geta séð, aö þessi tregða veikir málstað hans sjálfs, þar sem þab vekur grun hjá mönnum úm, að eitthvað sé bogið við þessar stað- hæfingar hans/og að það sé ekki eingöngu vandlæting vegna góðs málefnis, sem á bak við er, heldur einnig óskiljanleg löngun til að gera tortryggilegt í augum alþjóð- ar félag, sem enguni hefir nokk- HVEITI er best frá W. Verson & Soo, Llverpeel & Lendou. — Birgðir íynrliggjandi — Þórðsir Sveisssson & Go, Simi 701. uru sinni viljað meín gera, en kostað hefir kapps um að sanna tilverurétt sinn með því, að starfa fyrír gott og göfugt málefni, og þá ííka áunnið sér þakkir margra manna fyrir veittan stuðning og leiSberaingar. Dr. J. H. Messur á morgun: í dómkirkjúnni kl. n,. síra Bjarni Jónsson. — 1 Land’akots- kirkju: Hámessa kl. 9 árdégis. Engin síðdegisguðsþjónustat Sjómaimastofan. Guðsþjónusta á morgun Idl 6. Allir velkonuíir. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík tt st.,. Vestm:- eyjum 9, Isafirði 11.,. Akureyri 10, Seyðisfirði 12, Grindavík ir, Stykkishólmi 12, Grímsstöðum. 14,. Raufarhöfn 13, Hólum í Horna- firði it, Þórshöfn 1 Færeyjum 12, Angmagsalik (í gærkveldí) 12, Kaupmannahöfn 1:8; Utsira 14, Tynemouth 13, Leirvík 14. Ekkert skeyti frá Jan Mayen. — Mestur liiti hér í gær 14 st', minstur n. Úrkoma 1,5 mm. — Loftvægislfeegð við suðvesturlandí — Horfurr I d a g: Suðaustan, allhvass, og;rign- ing á suðvesturíandi, austlæg átt og þurt veður á norðvesturlandi, sustan átt fremur hæg og; dálítil rigning á suðausturlandi, hægviðri og þurt á Nonfurlandi og Austur- landi. — í'nótt: Sennilega all- hvöss suðausffan átt og rigning á Suðurlandi. Austlæg att fremur hæg annarsstaöar. — Úrkoma á Vesturlandí og suöausíurlandi, að mestu þuut veður norðanlands. Hanna Granfelt söng í annað sinn í Nýja Bíó í gær, fyrir nær fullu húsi af áheyr- endum er gerðu hinn besta róm að söngnutn. Á mánudagskvöldið kl. 9 syng- ur hún í fríkirkjunni, með aðstoð Páls ísólfssonar. Á skránni eru ýms lcirkjuleg lög, sem áreiðan- !ega munu falla mönnum I geð, þar á meðal „Vor guð er boi'g á hjargi traust“ og þrjú önnur sálmalög. Auk þess lofsöngur eftir Beethoven, Ave Maria eftir Schu- bert, Abendliecl eftir Schumann, VöggUvísa eftir Pál ísólfsson o. fl. Ekkjan Vigdís Bergsteinsdóttir. spítalaráðskona á Kleppi, á sjö- tugsafmœli í dag. — Vigdís er hin mesta myndarkona, dugleg, skyldu- rækin og vinsæl. Hún er móðir Bjarna Bjarnasonar, skólastjóra í Hafnarfirði, og þeirra sys.tkina. Ef veður leyfir xnun Matthías fomminjavörðiu; flytja erindi á Þingvöllum! w morgun um þingstaðinn. Mua ibann meðal . annars minnast k deilurnar um hvar Lögberg haö verið. Erindið verður flutt af hálfu Stúdentafræðslunnar, og verður það auglýst i Valhöll, e£ það verður haldið. Skipafregnir. Lagarfoss er væntanlegur hing- að á þriðjudag. Gullfoss er í Kaupmannahöfa. Esja fór frá Hofsósi í morgUJ*. Guðrún, Ieiguskip Eimskipafé- fagsins, er x Leith. Hafnarfjarðarhlaupið veröur háð á morgun kl. 1. Þátttakendur verða 5, þar á meðai' Magnús Guðbjörnsson, sem unnið heffr verðlatmabikarinn tvisvar sinnum. Sigri hann nú í þriðja sinn, vei-ður bikarinn eign hans. Hlaupið endar á íþróttavellinum. — Aðgangur ókeypis. Skúli Skúlason, bfaðamaður, sem nú er búsettur x Noregi (Nesbyen í Hallingdal), héflr nýlega ritað grein um ísland í danska hlaðið „Verden og Vi.“ — Greinin er prýdd mörguin myrrdum, svo sem af Vatnajökli, Mýrdalsjökli, Eyjafjallajökli og skriðjöklunum í Langjökli sunnaw og austanverðum (hjá Hvítár- vatni). Listaverk Nínu Sæmumisson verða tií sýnis á morgun kl. I—3 í Alþing- íshúsinu, uppi. Sundfélag Reykjavíkur var stofnað hér í fyrrakvóld, og var aðalforgöngumaður þess Valdimar Sveinbjörnsson, sund- skálavörðttr. Stjórnina skipa þeir Erlingur Pálsson, form,, Ingihjörg Brands, Valdimar Sveinbjörnsson, Jóhann Þorláksson og Ólafur Páls- son. Félagið mun á allan hátt efla gengi sund-íþróttarinnar og leggja áherslu á, að baöstaöir vorir verði sem best húnir að öllum þægind- um fyrir þá, sem sund iðka, jafn- framt því að stuðla að því, að sem flestir læri sund og temji sér það. Ættu menn að styrkja þennan nauðsynlega félagsskap, með því að gerast meðlimir. Listi Iiggur hjá sundskálaverði til áskriftaf, Útflutningur íslenskra afurða nemur sam- kv. skýrslu Gengisnefndar 3,050,950 krónum í júlímánuði. Samtals á árinu 20,210,190 í seðlakrónum en 16,509,650 í gullkrónum. 1 fjTra liafði á sama tíma verið flutt út fyrir 31.231,664 seðlakr. sem iþá jafn- gilti 20,788,130 gullkrónum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.