Vísir


Vísir - 12.08.1926, Qupperneq 3

Vísir - 12.08.1926, Qupperneq 3
VISIR frá Finnmörku — þau eru úrkynj- u5. Nei, góð dýr fást ekki nema í Þrændalögum." Mér þótti nafn Lappans svo skrítið, að eg spurði hann hvernig á því stæði. Það minti mig svo á Dannebrog. Jú, Lappar sem setj- ast að meðal siðaðra manna taka sér oft nýtt nafn. Nú* hét hann Oddur Daneborg, — hann hafði gengiö á skóla suður í Danmörku og vildi hafa eitthvað til minja um ferðina! Svo hafði hann keypt sér smá- jörð uppi í Grænadal, giftist og fór að búa. En honum féll ekki lífið. Það átti ekki við hann að vera kyr. Og þá datt honum í hug það snjall- ræði, að kaupa hreindýr og flytja sig upp á fjöll. Þar r-eikar hann um með hjörðina sína og sér oft ekki nokkurn mann dögum saman. Konan hans stjórnar búinu. En hann er barn öræfanna og þar kann hann best við sig. Einkum þegar ekki er of heitt! — veröur á sunnudaginn kemur, eí véður leyfir, á túninu hjá Elli- heimilinu. Fyrirkomulagið verður eins og undanfarin ár. Aðalgestirnir, karlar og konur frá 60 til ioo ára að aldri, verða boönir velkomnir kl. 2 síðdegis, og hinir allir, aðstandendur gestanna vinir og stuðningsmenn Elliheim- ilisins velkomnir um nónbilið. Kaffi og eitthvað með því ókeypis handa öllum meðan nokkuð er á könnunni. Söngur og ræður verða ýmsar til skemtunar og uppbygg- ingar við og við til kl. 6, þegar heim verður farið. Meðal ræðu manna, sem þegar eru fengnir, má nefna báða presta dómkirkjunnar og Hognestad biskup frá Björg vin, sem flytur erindi kl. 4. Eins og menn kannast við, verður jafnframt ágætt tækifæri til að leggja gjafir i byggingar- sjóð Elliheimilisins. í fyrra komu um 1500 kr. En auðvitað er samt það aldrað fóllc allra mest vel komið, sent engu slíku hefir að miðla og fáa á að. Þar sem sumt af því fólki les ekki blöðin, eru nágrannarnir vin samlega beðnir að segja því frá aðalefni þessarar greinar. í því sambandi má bæta við, að gefnu tilefni, að það skiftir engu, þótt sparifötin séu ekki jafn „fín“ og ihjá ríkisfólki. Reynt verður, eftir því sem unt ■er, að sækja fatlað og gamalt fólk í bifreiðum, en þá verða menn að síma um það á laugardaginn ann- að hvort til mín (sími 236) eða til Þorkels Clementz vélfræðings (simi 1414), sem góðfúslega ætlar að hafa yfirumsjón ‘með þeim flutningi. En þar sem reynslan hefir sýnt, að mjög erfitt er að fá bifreiðir hjá bifreiðafélögunum til slíkra flutninga, eru þaö vinsam- ieg tilmæli nefndarinnar, að aðrir bifreiðaeigendur hlaupi undir bagga og flytji lasburða gamal nienni til hátíðarinnar frá kl. 12J4 til 2 og heiln aftur frá kl. 6—7 — 1 fyrra gekk eirin svo ágætlega fram í þvi, að hann keyrði alls «m 100 km. fyrir gamalmennin. Vel gert er að láta oss vita fyr ir helgina hverjir geta hjálpað x þessu efni. Undanfarin ár hafa ýmsar hús- mæður og sama sem allir bakarar borgarinnar hjálpað um kökur meö kaffinu, og kaupmenn hafa sent kaffi, sykur, kókó, brjóst- sykur, vindla og jafnvel neftóbak, já, einu sinni fengum við nokkur hundruð flöskur af gosdrykkjum, cf eg man rétt. Og við höfum enga ástæðu til annars en að búast við að svipað verði í þetta sinn, og þökkum því fyrirfram fyrir allar þær gjafir. Best er að geíendur sendu þær gjafir sínar að Grund á laugardaginn, en ]xó má láta vitja um þær, ef símað' er til Haralds Sigurðssonar (sími 685 og 135). Hann hefir yfirumsjón með öllum veitingunum. Þá þurfum við æðimarga sjálf- boðaliða, karla og konur, við kaffivéitingarnar, og biðjum þá að snúa sér til ráðskonu Elliheim- ilisins, fröken Elinar Tómasdóttur (sími 1080). Ef einhver vill koma með fiðl- una sína eða annað hljóðfæri og spila lag, eða syngja, eða til að skrafa við einstæðinga, þá er hver ;á karl eða kona hjartanlega vel- kominn. Ef menn vcröa eins vel samtaka og undanfarið, þá verður þessi dagur „skemtilegasti dagfur árs- ins“ fyrir ýinsa, sem sjaldan eiga kost á miklum skemtunum. Vonum að svo verði. Fyrir hönd stjórnar Elliheimilisins Sigurbjörn Á. Gíslason. ivðjifl í Rasmus Rasmussen leikhússtjóri, syngur norsk þjóðlög og skemtivísur í Nýja Bíó, fimtudaginn 12. óg. kl. 7y2 síðd. — Páll Isólfsson aðstoðar. — Aðgöngumiðar á 3 kr. i bókaversl. ísafoldar, Sigf. Eymunds- sonar, hjá Katrinu Viðar og í Hljóðfærahúsinu. íslenskur iðnaður er enn á bernskuskeiði og hefir hann alt til þessa staulast áfram hjálp- arlaust eða hjálparlítið. Öllum mun ljóst, hvilík nauðsyn það er, að efla innlendan iðnað, en til þess að hann megi verða sem mestur og bestur, þarf öflug samtök, fyrst og fremst meðal framleiðenda, en einnig meðal kaupenda. / Slík samtök eru ný til komin í nágrannalöndum vorum, en hafa þegar áunnið sér traust og virðingu allra landsmanna. Fé- lög eru stofnuð beinlínis til þess, að styrkja innlendan iðnað, og láta þau ekkert ógert til þess að auglýsa ágæti vörutegundanna. Auglýsingum þessum er ýmsan veg háttað. Fyrst og fremst er gengið úr skugga um, að allir framleiðendur sambandsins noti merki félagsins á vörum sínum, og að merki þetta sje eigi niisbrúkað til þess að hylja yfir ókosti erlendsi glingurvarn- ings, sem inn er fluttur. Smá- kaupmennirnir keppast um að auglýsa innlendan varning, þeg ar sýrnt er, að hann stendur er- lenda varningnum fyllilega á sporði, en viðskiftavinirnir kaupa þá lieldur af þeim kaup- manninum, sem sýnir félags- tákn sitt í sýningarglugga 11 um, en liinum, sem glysið selur. — Smákaupmaðurinn verður þannig einhver öflugasti liður- inn í styrktarfélagi innlenda iðnaðarins. Umsvifameiri auglýsingar eru árlegar vörusýningar, en allir, sem til slíkra sýninga þeklcja, vita hvert gagn þær geta gert, ef þeim er vel og viturlega iýTÍr komið. En styrktarfélögin beita sér eigi einungis fyrir því, að inn- lendi varningurinn verði kunn- ur i landinu sjálfu. )>au gera alt, sem i þeirra valdi stendur, til þess, að gera iðnaðinn og iðn- aðarstofnanirnar kunnar lijá er- lendum þjóðum, og afla sér þannig nýrra markaða. Auglýs- ingar í stórblöðunum og blaða- greinar um iðnaðarstofnanirnar koma þar að góðu gagni, en merkilegasta, ódýrasta og við- tækasta auglýsingaaðferðin, er svo að segja lögð upp i liendurn- ar á mönnum. Alllangt er siðan erlendar póststjórnir tóku upp á þvi, að; láta stimpla öll bréf með sér- stökum stimplum í jþeim til- gangi, að auka þekkinguiia, ut- anlands og innan, á innlendum iðnaði. Er þetta gert að tilhlut- an liins opinbera, og sjá allir hversu viðtæk áhrif þessi aug- lýsing hefir, er þúsundir, jafn- vel miljónir brjefa berast til og frá um löndin og út fyrir lands- steinana á ári hverju. Spurningin er nú, live langt íslenskur iðnaður getur staul- ast án þess að honum sé rétt nokkur veruleg hjálparhönd. Hefir hann efni á samtakaleys- inu og hefir þjóðin efni á, að stjórn hennar noti sér ekki jafn- einfalda auglýsingaaðferð og hér liefir verið getið um? Framfaramenn á iðnaðar sviðinu, og þeir eru víst eigi allfáir, ættu að athuga múl þetta. L. S. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 12 st., Vest- mannaeyjum 13, ísafirði 8, Akur- eyri 9, Seyðisfirði (kl. 6) 11, Stykkishólmi 8, Grímsstöðum 6, Raufarhöfn 8, Þórshöfn í Færeyj- unr (kl. 6) 13, Angmagsatik (í gærkveldi) 6, Kaupmannahöfn 16, Utsira 14, Tynemouth 13, Leirvík 12, Jan Mayen 8. — Mestur hiti hér í gær 15 st., miristur 8. — Loft- vægislægð (747) fyrir sunnan land. Loftvægishæð yfir Græn- landi. — Horfur: í dag: Norð- austlæg átt, allhvöss viö norðvest- urland og Norðurland. Þurt á .Vesturlandi og Suðurlandi. Rign- ing á norðausturlandi og Austur- landi. í n ó 11: Norðaustlæg átt, þurt á suðvesturlandi og sennilega á norðvesturlandi. Dálítil úrkonra á Austurlandi. Síra Árni Sigurðsson fríkirkjuprestur er nýkomimr til bæjarins austan úr Rangárvalla- sýslu. H.F. EIMSKIPAFJELAG ÍSLANDS „Esja" Lyra fer héðan kl. 6 í dag til Björg- vinjar, um Vestmannaeyjar og Þórshöfn í Færeyjum. Meðal far- þega verða: Björgúlfur Ólafsson læknir og frú hans, Magnús dýra- læknir Einarson, Valgeir Björns- son, verkfræðingur, Halldór Vil- hjálmsson, skólastjóri á Hvann- eyri, Egill Vilhjálmsson bifreiðar- stjóri, Gunnar Finsen, stúdent, og margir útlendingar. Nafnlausa félagið átti 10 ára afmæli í gær. Það er kunnasta fjallgöngrifélag á land- inu, og er brautryðjandi þess, að menn ferðist um óbygðir í sumar- leyfi sínu. Hjúskapur. Síðastl. þriðjudag voru gefin saman í hjónaband ungfrú Mar- grét Finnbjarnardóttir og T. R. Hansen. Síra Bjarni Jónsson gaf þau sair\§n. Trúlofun. Nýdega hafa birt trúlofun sína ungfrú Sigríður Sigurðardóttir (,,klinik“-stúlka hjá Brynjólfi Björnssyni, tannlækni), og Róbert Þorbjörnsson, bakari, Sellands- stíg 3. R. Rasmussen, leikhússtjóri, syngur í Nýja Bíó í kveld. Eiga bæjarbúar þar von á nýstárlegri og vafalaust góðri skemtun. Tjaldur fór héðan í gærkveldi áleiðis til Englands. Farþegar voru m. a.: Ben. S. Þórarinsson kaupnr. og frú Ásmund og börn hennar. Kuldar og óþurkar lrafa verið á Norðurlandi undan- farna daga. f sumum sveitum nyrðra hefir enginn þerridagur komið vikunr sanran og horfir til nrikilla vandræða með heyþurkun, ef þessu fer franr. Skemtiför Templara að Kaldárseli vei'ður farin á sunnudag kl. 9 árd., ef veöur leyf- ir. Aðgöngunriðar verða afhentir á nrorgun frá kl. 4—9 í G.-T.-hús: inu. Tonrmeliten heitir fisktökuskip,’sem hingað konr í gær. Áheit á Strandarkirkju, afhent Vísi: 6 kr. frá konu á Vestfjörðum. fer héðan austur og norður um land á þriðjúdag 17. ágdst síðdegis. Vörur afhendist á föstudag eða laugar- dag. Farseðlar sækist á föstudag. „Lsgarfoss" fer héðan á mánudag 16. ágdst á kádegi til Hull, Hamborgar og LeitH. Kemur við í Hafnarfirði og fer þaðan kl. 6. Gengi erl. myntar. Sterlingspund ........ kr. 100 kr. danskar........— 100 — sænskar ...........—• 100 — norskar.......... — Dollar....................— 100 frankar franskir .. —. 100 — belgiskir . —■ 100 — svissn. .... — 100 lírur.................— 100 pesetar ..............— 100 gyllini ..............— 100 nrörk þýsk (gull) 22.15 121.04 122.13 99.98 4-57 12.95 12.83 88.36 15-49 69.78 ^■37 108.63 Reykið þeir munu Teynast best. Landstj ar nan. Kostakjör! Þa« sem eftir er af Sumarkápum selst fyrir liáifvirði. Alexandra, Almannadómur er, að Alexandra sé snildargott hvaiti, sem allir hæla á hvert reipi.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.