Vísir - 21.08.1926, Side 3
VISI R
Pmionðt.
jl. Klasses Rost.l
1h Kr. niaanedlig, 18 Kr. ugeat-
lig. Middag Kr. 1,35.
—■ Kjendt nied Mændere. —
Frn Petersen,
Knbmagergade 26 C, 2. Sal.
Sýnir deyjandi barna nefnist
r.æsta ritgerðin; er það erindi, er
Haraldur prófessor Níelsson flutti
á prestastefnunni síðustu. Segir
hann frá allmörgum sýnumi, er
deyjandi börn hafa séð, og byggir
á þeim þá skoðun, að á móti þeim
sem deyja, muni í ósýnilegum
heirni taka þeir, sem hafa elskað
þá hér á jörðu og á undan oss eru
farnir. Erindið er mjög fallegt og
íhugunarvert.
Um föstuguðsþjónustur á virk-
um dögum skrifa þeir síra Ás-
mundur Guömundsson og cand.
theol. Baldur Andrésson. Segja
þeir þar frá slíkum gu'ösþjónust-
tim, er þeir hafa haldið í Eiöa-
kirkju, og er fyrirkomulagið
nokkuð frábreytt því, er tíðkast
hefir. Það er gott að sýna trygð
við gamlar og góðar venjur; en
■sannfærður er eg urn að það gæti
orðið til uppbyggingar, að nota
fagra tónlist meir en gert er við
guðsþjónustur, þar sem völ er á
góðum organleikara og æfðri
söngsveit. Hafi þeir sátnverka-
mennirnir þakkir fyrir það frame
faraspor er þeir hafa stigið. Rit-
gerðinni fylgir stutt föstutóu.
Loks eru ritdómar um erlendar
bækur, sem geta verið prestum
góð leiðbeining við bókakaup,
grein um Prestafélagið eftir próf.
S. P. Sivertsen, og grein um
kirkjumál á alþingi 1926 eftir
Magnús Jónsson dócent, og síðast
-jeikningur Prestafélagsins 1925.
Prestafélagsritið ber það með
sér, að til þess hefir verið vand-
að. Það er til sóma bæði Presta-
félaginu og ritstjóranúm, prófess-
or Siguröi P. Sivertsen, og þeim
öðrum, er í það hafa ritað.
F. Hallgrímsson.
Símskeyíi
Khöfn 20. ágúst. FB.
Árangurslausir samningar.
Símað er frá London, að fundur
námanianna og námaeigenda i
gær Ihafi orðið árangurslaus.
Námamenn kröfðust þess, að
vinnukjör yrðu í aðalatriðum
óbreytt.
Jámbrautarslys.
Símað er frá Berlín, að hrað-
lestfn á milli Berlínar og Kölnar
;hafi runnið af teinunum. Tuttugu
biðu bana. Teinarnir voru eyði-
lagðir af mannavöldum. Glæpa-
-mennirnir ófundnir.
Frá Rússlandi.
Símað er frá Moskva, að stjóm
iin hafi víðtækar umbætur i huga
til þess að spara sem rnest allan
stjómarkostnað. Stjómin mun og
á?tla að gera tilraunir til þess að
útvega fé til þess að stýrkja íðn-
aðinn i landinu.
Messur á morgun.
1 dómkirkjunni kl. 11, síra
Bjarni Jónsson (aldarminning
Helga lektors Hálfdánarsonar).
I fríkirkjunni hér kl. 2, síra
Árni Sigurðsson.
1 Landakotskirkju hámessa kl.
o f. h. Engin síðdegisguösþjónusta.
1 fríkirkjunni í Hafnarfirði kl.
2 e. h., síra Ólafur Ólafsson.
Sjómannastofan. Þar verður
cngin guðsþjónusta á morgun, en
þess í stað á mánudagslcveld kl.
8)4. Allir velkomnir.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 10 st., Vestm,-
eyjunt 10, Isafirði 8, Akureyri 7,
Seyðisfirði 9, Grindavík 10, Stykk-
ishólmi 11, Grímsstööum 6, Rauf-
arhöfn 7, Hólum i Hornafirði 12,
Þórshöfn í Færeyjum 13 (engin
skeyti frá Grænlandi), Kaupm.-
höfn 17, Utsira 14, Tynemouth 15,
Leirvík 13, Jan Mayen 1 st. —
Mestur hiti hér í gær 17.st., minst-
ur 9 st. — Djúp loftvægislægð við
Hjaltland. Hreyfist til noröaust-
urs.. Horfur; 1 d a g; Hægur vind-
ur og þurt veður á Suðurlandi.
Norðaustan og þurt veður á Vest-
urlandi. Norðaustan allhvass og
dálítil rigning á norðausturlandi.
í n ó 11: Gott veður á Suðurlandi
og Vesturlandi. Norðanvindur all-
hvass og rigning á Norðaustur-
landi.
Ólafur Magnússon,
ljósmyndari, kom í gærkveldi
austan úr Öræfum. Hann fór héð-
an í lok fyrra mánaðar þangað
austur, ásamt Einari E. Kvaran,
A. Rosenberg og frúm þeirra, en
varð eftir eystra, til þess að taka
rnyndir. Hann veiktist á heimleið-
inni og seinkaði nokkra daga, en
má nú heita heill heilsu. Hann tók
fjölda mynda af hinum fegurstu
stöðum, og mun síðar í sumar
halda sýningu á myndunum. Má
fullyrða, að þar verði margt fag-
urt að sjá.
Leikkveld
hr. R. Rasmussen í Iðnó í gær-
kveldi var mjög fjölsótt, nær hvert
sæti skipað, og stóðu margir. —
Fór hann fyrst með kafla úr „Vík-
ingunum á Hálogalandi“ og „Kon-
ungsefnúnum“ eftir Ibsen, og
skýrði gang leikritanna. Þótti
mönnum mikið koma til framburð-
ar hans á hlutverki Örnólfs gamla
í „Víkingunum á Hálogalandi“.
Samtal Skúla jarls og Nikulásar
biskups var einnig ágætt. — Síð-
an lék hr. Rasmussen tvo fyrstu
þættina af „Jeppa á Fjalli“ eftir
Holberg, með aðstoð þeirra Ind-
riða Waage og Brynjólfs Jóhann-
essonar. Tókst sú sýning afburða-
vel, svo að áhorfendur hlóu óslitið,
frá upphafi til enda. Var hr. Ras-
mussen tvisvar kallaður fram að
I sýningu lokinni, og honum færðir
I' tveir blómvendir. — Vísir skorar
fastlega á hr. Rasmussen að end-
urtaka leikkveld sitt, enda þótt
| auglýst væri, að svo yrði ekki gert.
Hanna Granfelt
kom aftur með „íslandi" úr fefð
sinni vestur og norður um land.
Söng hennar var tekið með mikl-
um fögnuði nyrðra, en sjálfri þóttu
henni fjöllin upp frá Isafirði einna
tilkomumest af því, sem hún haföi
fengið að sjá í ferðinni.
Þegar hún hélt síðacta hljómleik
sinn hér i fríkirkjunni, voru allir
iðgöngumiðar uppseldir um miðj-
an dag, og urðu síðan mjög margir
ið hverfa frá. Hún hefir þvi á-
kveðið að syngja nú í dómkirkj-
unni á mánudagskvöldið; þykir
söngur hljóma þar betur. Sigfús
Einarsson leikur undir á orgelið.
Verkefnið verður ýms gullfalleg
ljóð og sálmar, sem menn kannast
við, og viljum vér ráða mönnum
til að kynna sér söngskrána og
verða síðan fljótir til að ná sér í
aðgöngumiða, sbr. auglýsingu hér
í blaðinu.
Fertugasta og sjöunda
prestskaparár sitt byrjar síra
Ólafur Ólafsson frikirkjuprestur á
morgun. Hann tók prestvígslu 22.
ágúst 1880.
Jón Leifs
biður alla þá, sem kunna ein-
hver rímnalög, gömul sálmalög.
tvísöngslög eða önnur gömul
þjóðlög og mundu vilja láta hann
heyra þau, að gera sér aðvart
(sími 266). Jón fer aftur til út-
landa i byrjun næsta mánaðar og
óvíst' er hvenær hann kemur ihing-
að aftur. Þau lög sem liann tek-
ur hér á hljóðritara verða eilíf-
lega varðveitt í kopannótum til
afsteypu á Phonogramm-safni
rikisins í Berlin. Það mun vera
hverjum manni augljóst, 'hvílík
nauðsyn er á að þjóðlögin, sem
eru i þann veginn að deyja út, nái
að varðveitast áður en þau tapast
algerlega. Ættu þeir sem vita um
fólk hér eða í nágrenni bæjarins
er eitthvað kynni af vorum fornu
þjóðlögura, einnig að gera Jóni
Leifs aðvart.
Brynleifur Tobíasson,
Stór-Templar G.-T.-Reglunnar,
hefir verið á iheimsbindindisþing-
inu í Estlandi, og bindindisþingi
Norðurlanda á sama stað, kemur
með Botniu og hefir látið boða til
almenns telnplarafundar á mánu-
dagskvöldið 23. ágúst (sjá augl.)
og ætlar þar að gera grein fyrir
ferð sinni, og því helsta, sem gerð-
ist á báðum þessum þingum. Stór-
Templar var kjörinn af Stórstúk-
unni til þess að vera fulltrúi ís-
lands á þessum þingum, og var
samþyktur af landsstjórninni áður
en hann fór. Hann hefir sjálfsagt
frá mörgu markverðu að skýra.
Amgr. Fr. Bjamason,
oddviti í Bolungarvík, hefir ver-
ið staddur hér undanfarna daga,
til þess að undirbúa til fram-
kvæmda nýja framlengingu á öldu-
brjótnum í Bolungarvík. Hefir
hreppsnefndin þar keypt stein-
nökkva til framlenging'ar þessar-
ar, sem bygður er úr járnbentri
steypu, sterkari en tök eru á að
gera hér á landi, svo telja má ör-
uggt að eigi bili. Nökkvi þessi var
bygður í Liverpool 1919, og kost-
aði þá frekl. y milj. kr., og er 57
m. langur, 9*4 m. á breidd, og
frekir 5 m. á dýpt. Nú var nökkv-
inn, sem liggur á Hesteyri, keypt-
ur af hreppnum fyrir kr. 17.500,
sem má telja mjög ódýrt, en vitan-
lega verður mikill kostnaður við
að fullgera verkið, þó að nökkv-
inn sé fenginn. Þegar þessi viðbót
er fengin við öldubrjótinn, breyt-
ist öll aðstaða við útveginn, bæði
íslands
S|óv6tryggingarfél«
Reykjavík
tryggir fyrir sjó- og bruna-hættu meS bestu kjörum, sem fáanleg eru
Vegna þess að félagið er alíslenskt, gerir þaö sjálft úpp alla skaða
hér ú staönum, án þess a8 þurfa a8 Ieita til annara landa, sem tefja
mundi tyrir ska8abótagrei8slum.
Ekkert tryggara félag stariár hér á landi.
Til þess að vera örngglr um greið og góð skil
tryggið alt aðeins hjá Sjóvátrygg-
ingarfélagi Islands.
SJóðelld: Simi 542. Frkvstj.: Simi 309. Brnnadeild: Simi 254.
Steinolínlampar:
Borð- Hengi- Skerm- Vegg- og
Náttlampar, Lampaglös, allar
stærðlr, Kúpplar. Lampa-
brennarar, Kyeikir, Storm-
lugtir og Handlugtir.
Mlklar blrgðir. Lægst verð.
Versl. B. H. BJARNASON.
fyrir heimabáta og aðkomuskip.
Er vel farið, að fyrirtæki þetta
komist í það horf, að geta sýnt
gagnsemi sína, því aðstaða frá
Bolungarvík bæði til þorskveiða
og síldveiða, einkum með reknet-
um* er hin besta, og Bolvíkingar
sægarpar miklir, eins og kunnugt
er.
Hjúskapur.
í dag eru gefin saman í Viðeyj-
arkirkju Gyða EggertsdóttirBriem
og Héðinn Valdemarsson fram-
kvæmdastjóri.
75 ára afmæli
á á morgun Sigurður Einars-
son frá Reynisvatni, nú til heim-
ilis á Frakkastíg 26 A hér í bæ.
Loftur Guðmundsson
biður að geta þess, að ljós-
myndastofa hans í Nýja Bíó verði
framvegis opin á sunnudögum kl.
1—4.
Skaftfellingur
hleður í dag til Víkur og Skaft-
áróss. — Þetta verður siðasta
ferð hans til Skaftáróss á þessu
sumri.
Knattspyrnumót Rvíkur
hefst á íþróttavellinum á morg-
un kl. 6)4, og keppa fyrst Valur
og Vikingur. Búast má við góðri
skemtun og mikilli aðsókn.
Unglingastúkan Unnur
fer skemtiför á morgun, ef veð-
ur leyfir, upp í Hveradali. Lagt
verður af stað kl. 8 árdegis, frá
Goodtemplarahúsinu.
Skemtibáturinn Kelvin
fer daglega til Viðeyjar, sjá augl.
Gullfoss
fer héðan til Vestfjarða á morg-
un, kl. 6 síðd.
f Kaldárseli
hefir K. F. U. M. í Reykjavík
og Hafnarfirði reist sumarskála,
[iOg ætla félögin að hafa þar sam-
komu á morgun. Má búast við að
margir fari þangað, þar sem það
er einn af fallegustu og einken’ni-
legustu stöðum liér í grend.
Áheit á Strandarkirkju,
afh. Vísi, 2 kr. frá P.
H.F.
EIMSKIPAFJELAG
ÍSLANDS
„Eullfoss"
fer héBan til Vestfjarða á sunnu-
dag 22. ágúst kl. 6 siSd.
SkipiS fer héSan tii útlanda
30. ágúst.
• Alullar
Peysnfata-sjðl
í Ijósum iitum seljast á
30 og 33 hr.
hjá
Fjórþrautarmót
heldur Sundfélag Reykjavikur
sunnudaginn 29. ágúst þ. á. Verð-
ur þá kept um Fjórþrautarbikar
í. S. í. Verða,keppendur að þreyta
1 km. hlaup, i km. hjólreiðar, X
km. róður og x km. sund. Mótiö
hefst inn við Barónsstíg og endar
út við sundskála þar sem sundiS
fer fram'. Þeir sem taka vilja þátt
í þessari kepni gefi sig fram viS
sundskálavörðinn sem fyrsL Fyrir
utan fjórþrautina verða ýms sund
þreytt þennan sama dag út víð
sundskálann.
■ií.íVáf