Vísir - 23.08.1926, Blaðsíða 3

Vísir - 23.08.1926, Blaðsíða 3
^IMB Alullar Peysiiatfi-Bjðl í Ijósum lituna seljast á 30 og 33 kr. hjá Færeyjum, sem alvarlegar þykja. ítalskt útgeríSarmannafélag ætlar 3.8 ráðast i stórkostlega togaraút- gerð frá eyjunum. Félagiö ræður atS sögn yfir 18 togurum, og ætlar pa.8 aö gera flotann út frá Skála- íiröi, en þar á að byggja höfn og pnnur nauösynleg mannvirki. jHefja á beinar feröir milli Fær- eyja og ítalíu, en ítalir ætla aö íána Færeyingum tvo togara, sem Færeyingar geröu svo sjálfir út. Auk þess ætlar félagiö aö ráöa Færeyinga á skipin og veita þeim a'öra atvinnu í landi viö fram- ícvæmdir verksins. Aö sögn vofir atvinnuleysi yfir í eyjunum, svo' ■aiS loforö ítala hljóta að láta Fær- eyingum vel í eyrum eins og sak- jr standa. En á þatS hefir veriö bent, af reyndúm mönnum íslensk- um, þeim Kristjáni Bergssyni og Ólafi Tlliors, aö atvinna sú,-sem Færeyingar hljóta í svip er skammgóöur vermir. Sömu menn segja, og ekki þarf mikiö hyggju- vit til þess aö sjá sannleika oröa þeirra, að úm leið og Færeyingar hleypa útlendingum inn í landið til þess aö stunda fiskveiðar, þá steypa þeir undan innlendum at- vinnurekstri, sem ekki stenst harðsnúna samkepni. En um leið og vér íslendingar vörum Færey- íinga viö hættunni, ættum vér að sjá bjálkann í voru eigin auga, og vér ættum sem fyrst að kippa að •oss hendinni við útlendinga þá, sem ihér reka fiskveiðar í skjóli tvíræðra laga eöa lúalegra leppa. En þó að Færeyingum stafi hætta af fyrirætlunum ítala, þá mun öllum mönnum augljóst, að hér er einnig hætta á ferðum fyr- ír oss íslendinga, þótt hún sé ekki jafn mikil og fyrir Færeyinga sjálfa. Ef ítalir taka að reka út- gerð frá Færeyjum, er markaður vor á ítalíu sennilega horfinn úr höildum oss. Önnur afleiðing er sú, að verðfall verður á fiskinum,- og það ihélst, ef ekki verður unt -að koma fiskiafurðunum á nýja markaði. Hér er hættan mesta, því að útgerðin má ekki við svo alvar- legu áfalli. Það mun enn ekki fullráðið, hvort úr ráðagerðufn ítala verður eða ekki, en full ástæða er til þess •að krefjast þess, að ráðgjafar- nefndin dansk-íslenska taki málið til athugunar, ef-til framkvæmda kemur. Að sjálfsögðu mun lög- jþing Færeyinga þurfa að sam- þykkja ráðagerðimar, og mættu jþingmenn þá vel muna, að fisk- yeiðar Færeýinga við ísland var 'OÍt Qg tíðúm björgin, sem seinast dxtást, A^nars er ekki ástæða til þess að fjölyrða um málið að sinni, best er að sjá hvað' úr ráðagerðum Itala verður. Komi til kasta Fær- eyinga sjálfra, treysta Islendingar því, að þeir reynist oss vel og tefli ekki á tvær hættur fyrír báÍS- ar þjóðirnar, nema brýnasta nauð- syn reki þá til þess, o^þrautreynt sé að engar aðrar leiðir séu þeim færar. L. S. Mðrsfc stjórnmáL Nokkur stórmál. Eftir L. Hjelle, blaðamann. —o—■ Níðurlag. Landamærin. Auk hermálanna eru ýms önnur mikilvæg mál á dagskrá í Noregi. Stjórnin hefir um þessar mundir fullar hendur" af utanríkismálum sem engu sinni áður. Nær þetta þá fvrst og fremst til landamæra- ákvörðunar gegn Svíþjóð og Finn- landi. Á landamærum Noregs og Svíþjóðar eru skógar miklir, ár og stöðuvötn, er engin föst ákvæði eru til um áður. Eru þó þess hátt- ar ákvæði nauðsynleg, m.a. sökum þess, að miklu timbri úr norskum skógum er fleytt eftir ám, er eiga upptök sín i Noregi, en renna til sjávar í Svíþjóð. Er margra ára starf að mæla þessi geysi miklu svæði, gera af þeim landabréf og ákveða skiftingu þeirra. Hið sarna gildir og um landamærin rnilli Norður Noregs (Finnmerkur) og finnlands. Undir eins og farið er að hagnýtá þessa miklu skóga, reynist brýn nauðsyn á skýrum og ótviræðum ákvæðum um alt, er að þessu lýtur. Til þessa hefir tíðast gömul venja verið látin skera úr málum, en nú orðið reynist það eigi nægilegt. Verða þvi hlutað- eigandi ríki að koma sér saman um nýtt skipulag. Landhelgin. Landhelgismálið er enn eitt stór- málið. Noregur , ihefir 4 mílna (kVartm.) landhelgi, meðan t. d. England og ýms önnur lönd halda r.!g við 3 mílna ákvæðið. Hafa því sum þeirra landa verið óá- nægð með norsku landhelgis- ákvæðin, og hefir þess jafnvel ver- iö krafist utan að, að Noregur færði inn landhelgismörk sín. En það er landinu allsendis ófært. Strendur Noregs eru vogskornar mjög og svo sundurklofnar, að þótt landið í orði kveðnu hafi 4 mílna landhelgi, stendur það þó eigi eins vel að vígi sem t. d. England með sínar 3 mílur. Sker og hólmar og grunnar gera 4 rnílna takmörkin víða æði reikul og ófullnægjandi. I raun og veru nær því landhelgi Noregs víða eigi nema um 2 'míl- ur á haf út, þótt sjókortin sýni 4. Er því fremur þörf á víkkun land- helginnar heldur en þrenging henn- ar. Hafa einnig öðruhvoru komið fram kröfur í þá átt. Sumstaðar hagar nfl. þannig til, að fiskimið (grunnar) eru alls engin innan landhelgismarka, en þegar rétt ut- an viö þau og utar. Á þeim slóðum standa fiskiveiðamenn eigi jafnt að vígi þeim, er öll fiskimið sín eiga innan landhelginnar, Noregur hefir eigi gefið neitt úr- slitasvar við þessum erlendu til- mælum um breytingu landhelgis- marka. En sjómenn hafa rístð g-em eina maður gegá K^r' þrenging landhelginnar, og hafa tyUp margra merkra manna. te^Ja vafalaust, að Stórþingið muni ta.^a fult tillit til þessa og haga sér sam* , kvæmt því. Dánarfregn. Hjónin Herdís og Axel Ströra prentari urðu fyrir þeirri sorg í gær að missa dóttur sína Ingrid, ársgamla. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 10 st,, Vest- mannaeyjum g, Isafirði xo, Akuf- eyri 11, Seyðisfirði 11, Grindavík 10, Stykkishólmi iO, Grímsstöðum g, Hólum i Hornafirði 11, Þórs- höfn í Færeyjum 12, Utsira 10, Tynemouth 13, Wick 12, Jan Mayen 2 st., (engin skeyti frá Raufarhöfn, Angmagsalik né Kaupmannahöfn). — Mestur hiti hér síðan kl. 8 í gænnorgun 12 st., minstur 8 st. Úrkorna 0.2 mm. — Djúp loftvægislægð fyrir suðvest- an land, á leið til norðausturs. — Horfur: I dag: Vaxandi suð- austlæg átt og rigning á Suður- landi. Suðaustan og þurt veður á norðausturlandi og Norðurlandi. I n ó 11: Sennilega Ihvass suð- austan á suðvesturlandi. Annars staðar vaxandi suðaustlæg átt. Rigning á Suðurlandi og suðvest- urlandi. Rasmus Rasmussen, leikhússtjóri, heldur skemti- kveld í Iðnó á morgun, kl. 8)4 síðdegis. Leikur hann þar hlut- verk „Jeppa á Fjalli“ í fyrsta og öðrum þætti, en syngur auk þess ymsar skemtivísur. Þótti rniklð til leiks hans koma i „Jeppa“ um daginn og hafa margir skorað á listamanninn að endurtaka skemt- unina. - Hr. R. Rasmussen hverf- ur aftur heimleiðis á Lyra næst og verður þetta þvi áreiðanlega síðasta tækifærið til að hlusta á hann hér. — Aðgangur kostar 2 krónur. Gullfoss fór héðan kl. 6 síðd. í gær til Vestfjarða. Á meðal farþega voru: Eggert Claessen, bankastj., Fr. Andersen, Páll Jónsson, verslun- armaður, Valdemar Daðason toll- vörður, Amgrímur Fr. Bjarnason, Helgi H. Zoéga, O. Malmberg, frú Svane frá Stykkishólmi og nokkurir fleiri. Botnía kom hingað i gærdag kl. 2J4- Farþegar voru 62 frá útlöndum og auk þess fjöldi frá Vestmanna- eyjum. —• Meðal farþega voru: Jensen Bjerg, kaupmaður og fjöl- skylda hans, Gunnar Gumiarsson, kaupmaður, N. P. Dungal, lækn- ir, Brynl. Tobíasson, kennari, Tage Möller, kaupmaður, Pétur Sigurðsson, magister, frú Flygen- ling og dóttir hennar, ungfrú Kvaran, A. Wiíhelmsen og frú, Guðm. Jakobsson og frú, frú Anna Möller, ungfrú A. Friðriks- dóttir, frú Guðr. Bramm og dóttir liennar, frú Helga Hersir og börq hennar,' frú Fanny Benónýs, ung- frú Elísabet Þorgrímsdóttir, utig- írú Jötísaóttft xy. (I. 2 til 4 berbergja ibúð, óskast sem fyrst. Míels P. Dangaí. Slmi 194. Uálning. Teggíóðnr. Bsejarms bestu og þektustu málnmgarvörur eru fyrirliggj- 8ödi með lægsta verðL „DURAZINE“ er drýgsti, besti og ódýrastí úti farfi. — ajávarseltu, þekur vel og springur ekki. Af ,VEGGFÓÐRI gefum við 15% til máuaðamóta. Málarinn, Sfcni 1408. Bankastræti 7. TroUe&Rothehf.Rvík. Ekte ▼itryggingarakrifstofa landsiiuu Stofnuð 1910. Aunast vátryggingar gegn Sjó og bnmatjðni með bestu fáaniegrs kjörum bjá ábyggilegum fyjsta flokks vá- tryggingarfélögum. Itergax miljónir króna greiddar innlendum vátryggj- endum f skaðabætur. Látið þvf aS eins okkur annast allar yðar vátrygging- ar, þá er ySur áreiðanlega borgiS. Böm á berjamó. Morgunblaðið leitar samskota i gær í því skyni að koma fátæk- um börnum á berjamó. Vafalaust fær þessi beiðni góðar undirtekt- ir, en með því að svo má skilja orð blaðsins, að ekki hafi áður verið hugsað fyrir þessu, þá er ekki neúia sanngjarnt að geta ]ess, að félög og stofnanir hér í bænum hafa flutt nokkur hundruð börn ókeypís á berjamó í sumar og séð þeim fyrir góðri fylgd. — Finst mér rétt að skýra frá því, íorgöngumönnunum til maklegs- lofs. , M. Magnús Pétursson bæjarlæknir fór til Borgarness í gær á e.s. Suðurlandi, og ætlar þaðan í kynnisför norður í Húna- vatnssýslu. Hann mun verða á þriðju viku að heiman. Helgi Magnússon kaupmaður datt ofan stiga i gærmorgun og viðbeinsbrotnaði og meiddist eitthvaö á höfði. Fjöldi fólks fór héðan upp i sveit i gær- morgun, flest i bifreiðum, en sumt á hjólum eða hestum eða gangandi. Veður var gott fyrri hluta dags, en rigndi nokkuð þeg- ar á daginn leið. Bann-bandalag var stofnað hér í gær með full- trúum frá 9 félögum (bæjar og lands félögum) í samráði og saín- vinnu við formenn ýmsra annara félaga. Síra Guðm. Einarsson á Þingvöllum (fulltrúi Prestafélags- ins) var kosinn fonrraður banda- lagsina. Kappleikurinh millí Víkings og Vals íóf á þá ieið í giírkvétdt, á'ð ’Vftójpgút Krossviðup úr eik, mahogni, birki og elri. Þykt: 3, 4, 5, 6, 8, 9, 10 mra. Lágt verS. Ludvig Storr, Sími 333. vann með 3 móti o. I kveld keppa Fram og K. R., og er þá búist vi5 snarpri viðureign. Glímufél. Ármann boðar til fundar kl. 8 i kveld t I'ðnó, uppi. Sjá auglýsingu. . t. Kirkjukonsert frk. Granfelt verður kl. g í kveld í dómkirkjunni, eins og auglýst er hér í blaðinu. Er nú Ðhver síðastur að heyra til þessarar ágætu söng- konu, því að hún mun ætla utan með Lyra næst. Jóhann Kristinn Jóhannsson, Suðurgötu 8A, á afmæli í dag. Áheit á Strandarkirkju afhent Vísi: 2 kr. frá konu f Hafnarfirði, 2 kr. frá ónefndutn. Gengi erL rayntar. ^ " Steriingspund ........ kr. agjfá 100 kr. danskar.......... — jiða.17 100 — sænskar — I22j20 100 — norsbar w.,..... — ioa^ Ðollar ...--------------- — 4.5654.' 100 frankar franskir „. — 13.33 IOO — belgiskir „ — 12.84 IO0 — svfeö. .....— 88^3 aoo iírur .......1..*.y— 154^ 100 pesetar --------.... — 7088 100 gyllini . — ^83‘áZ IOÖ tnörk þýsk (gull) w ■*- 108459

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.