Vísir - 28.08.1926, Blaðsíða 3

Vísir - 28.08.1926, Blaðsíða 3
jMessur á morgun. í dómkirkjunni kl. ii, síra FriS- rik Hallgrímsson. í fríkirkjunni kl. 2 síra Árni Sigurösson. Kl. 5 prófessor Har- •.aldur Níelsson. í Landakotskirkju : Hámessa kl. g árdegis. Engin siðdegis gu'Ss- þjónusta. Sjómannastofan: Guösþjónusta ;kl. 6 síöd. Allir velkomnir. VeÖrið x morgun. Hiti í Reykjavík 10 st., Vest- niannaeyjum 10, Isafiröi 7, Akur- cyri 12, Seyðisfiröi 10, Grindavík IO, Stykkishólmi 10, Grímsstöðum 10, Raufarhöfn 14, Hólurn í Hornafirði 10, Þórshöfn í Fær- •eyjum 11, Angmagsalik (í gærkv.) 4, Kaupmannahöfn 14, Utsira 12, Tynemouth 12, Leirvík 12, (ekk- ert skeyti frá Jan Mayen). — Mestur hiti hér í gær 12 st., minst- ur 8 st. — Úrkoma mm. 2.3. — Loftvægislægð yfir norðvestur- lándi. önnur nýmynduð fyrir suð- vestan land. Hreyfist sennilega til austurs. — Horfur: í dag: Vaxandi suðaustlæg átt og rign- ing á Suðurlandi og suðvestur- landi. Norðaustan átt, hæg, með skúragangi á norðvesturlandi. Hæg sunnanátt og þurt veður á norðausturlandi. — I n ó 11: Aust- læg og norðaustlæg átt. Rigning á suðvesturlandi og suðaustur- landi. — Hægur vindur og þurt veður að mestu á Norðurlandi. Dr. Ragnar Lundborg hefir ritað vel og hlýlega urn Bjarna Jónsson frá Vogi í Afton- bladet i Stokkhólmi. Adam Poulsen, leikari, er væntanlegur hingað i dag, landveg norðan af Akureyri. — Mun hann flestum kunnur hér frá komu sinni hingað 1925. —• Skemti hann þá með upplestri og auk þess lék hann í „Einu sinni var —“, með leikfélaginu. — Að þessu sinni ætlar hann að lesá hér upp miðaldaleikinn ,,Sérhver“, næstkomandi mánudagskveld. —• Var svo ráð fyrir gert, að hann léki aðalhlutverkið í leikriti þessu sem gestur leikfélagsins, en af því getur ekki orðið í þetta sinn. — Ástæðan er sú, að þeir bræðurnir, Johannes Poulsen og hann eigá 25 ára leikara-afmæli í nóvémber næstkomandi, og hefir konunglega Jeikhúsið i Kaupmannahöfn ósk-' að þess, að A. P. hraðaði ferð sinni sem mest. >— Er ákveðið, að hann skuli leika Skúla jarl x Konungs- cfnxxm Ibsens á afmæli sínu, og þarf hann þvi að vera kominn til Kaupm.hafnar tímanlega í næsta mánuði. —• Hr. A. P. hefir því óskað þess, að leikfélagið frestaði sýningu á leiknum, þar til á út- mánuðum i vetur, og mun hann taka sér fari héðan heiinleiðis 1. sept.-----Þeir, sem leiklist unna, ættu ekki að láta undir höfuð leggjast, að hlusta á upplestur lir. Adam Poulsens þetta éina kveld. — Hann er þaulvaxiur „upplesari" og danskaix verður undarlega fögur á tungu hans. — Danskir leikdóm- arar, sem yfirleitt hálda því fram, að danskir leikendur geti trauðla farið vel með lauskveð.ið mál .á uvisir leiksviði, viðm'kenna hiklaust, að A. P. geti það. — Það er og eng- um vafa bundið, að þeir sem leika hér á lauskveðnu máli eða hugsa til að gera það, geta haft mikið gagn af að hlusta á lestur þessa danska listamanns. — Og fyrir allan almenning, senx dönsku skil- ur nokkurn veginn, er það áreiðan- lega ómaksins vert, að sækjá upp- lestur hr. A. P. í Iðnó á mánu- dagskveldið, því að óvíst er, að siík skeintun bjóðist aftur i bráð. Er því fólki ráðið til þess, að ná sér i aðgöngumiða í tæka tíð. — Þeir eru seldir í Iðnó í dag og næstu daga. — N. O. Raasted og H. Diener halda Bach- hljómleika annað kveld kl. 9 í frí- kirkjunni. Gísli Sveinsson • sýslumaður kom til bæjarins í gær, snögga ferð. Fjórþrautarmótið hefst kl. 5pá siðdegis á morg- un. Aðgöngumerki verða seld á götunum og kosta 1 kr. fyrir full- orðna en 25 aura fyrir börn. Allir keppendur og starfsmenn eru beðnir að mæta kl. 5 síðd. við verslunina „Áfram“, Laugaveg 18. Kýja búð hefir skóverslun Lárus G. Lúð- vigsson opnað í Bankastræti 6, þar sem áður var verslun Helga Magnússonar .& Co. — Þar er seldur gúmmískófatnaður og ýms- ar aðrar gúmmivörur. Út af grein, sem um mig var i Vísi nýlega, vil eg geta þess, að mér er batnað íyrir brjósti, en hefi verið lasinn af gulu og húðsjúkdómi, en er á batavegi. Eg býst ekki við, að eg þurfi á spítalavist að halda, en hitt kæmi mér vel, að fá gott her- bergi með eldhúsi til ibúðar. Eg bý nú í Tjarnargötu 6, en ekki 8. Ingimundur Sveinsson. Knattspymumót Reykjavíkur. í fyrrakveld keptu Frain og Vik- ingur, og urðu úrslit þau, að Fi-am vann með 2:0. í kveld kl. 6X/ keppa Fram og Valur, en á mánu- dag K. R. og Víkingur, og er það úrslitaleikur mótsins. St. Einingin fer skemtiför á morgun, ef veður leyfir. Farið verður upp að Selási og lagt af stað frá G.-T.-húsinu kl. 1 miðdegis. Sjá augl. Cjöf til fátæku konunnar: 10 kr. frá R., afh. Vísi. „Dönsk kurteisi". Fyrir nokkrum áx-xun kom fyrir íKaupmannahöfn svipað atvik þvi, sem „Vísir“ getur um í gær, að komið hafi fyrir á „Hótel ísland“. Vinnuklæddur maður kom inn á eitt af veitingahúsunum í miðbæn- um og vildi rnatast þar inni. Þjónn- inn vísaði honum inn í óæðri hluta veitingahússins, vegna þess, að maðurinn hafði ekki hvítt um háls- inn. Þetta atvik vakti geysilega gremju og mótmæli í blöðunum, enda varð þessi skifting manna eítir því, hvort þeir hefðu hvítt um hálsinn, að maklegleikum að athlægi. Almenningsálitið sýndi glögglega, að nú á dögum fyrir- lita rnenn í Danmörku slíkajx hé- gómaskap. — Enda þótt þjónninn á Hótel ísland hafi hagað sér á þenna hátt, ber síst að telja það d.æmi dansks hugsunarháttar eða íramkomu Dana gegn hérlendum mönnum, eins og sjá má á ofan- greindu dæmi frá Kaupmannahöfn. Internationalis. Valgeir Kristjánsson klæðskeri hefir opnað sauma- stofu á Grettisgötu 56 A. Sjá smá- auglýsingar. íþróttamót heldur Málfunda og íþróttafélag Kjalnesinga á Mógilsáreyrum á morgun, og hefst það kl. 2 síðdeg- is. Dansað verður á eftir. Veiting- ar fást á staðnum. Dansskemtun og bögglasala verður í Valhöll á Þingvöllum í kveld. Sjá augl. Itt oe Þetta. Yfir Ermarsund. Allur heimurinn talar um ame- risku sundmeyna Gertrude Ederle, sent fyrst allra kvenna hefir orðið til þess að synda yfir Ermarsund, — frá Frakklandi til Englands. Fimrn karlmenn hafa gert þetta á undan henni, en voru allir miklu lengur á leiðinni. Eigi er sundaf- rek þetta þó eingöngu dugnaði stúlkunnar að þakka, heldur var hún með afbrigðum heppin með veður og hafði •meðstraum alla leið. Tíu mínútum eftir að hún var kornin á land, bi-eyttist straumur- inn svo, að engum hefði verið fært að náEnglandsströnd á sundi. Fara hér á eftir nöfn þeirra, sem nú hafa synt yfir Ermarsund. Þrír þeir fyrstu syntu frá Englandi til Frakklands, en hin öll frá Cape Gi'izenes til Englands. 1875 Capt. Webb .... 211. 45 m. 1911 T. W. Burgess .. 22-35 — 1923 Sullivan .........26-50 1923 Tiraboschi ----- 16-33 — 1923 Toth ........... 16-54 — 1926 Gertr. Ederle ..... 14 - 39 — Hefir því miss Ederle synt yfir sundið á tveim stundum skemri tíma en nokkur maður á' undan lienni. Margir hafa reynt að synda yfir Ermarsund í sumar, en engurn tek ist, netna stúlku þessari. Meðal þeirra, sem reyndu, var sundgarp- ur einn norskur, Farstad lögreglu þjónn frá Niðarósi. Gerði hann tvær tilraunir og rnunaði minstu aö sú fyrri hepnaðist. En í seinna skiftið varð hann að hætta á miðri l’leið, vegna óveðui'S. Frægur rithöfundur látinn. ísrael Zangwill lést snemma þessmn mánuði í Englandi, sex tíu og tveggja ára gamall. Hann var heimsfrægur maður, sumpart vegna ritverka sinna, serii voru mörg og mikil, og sumpart vegna baráttu þeirrar, sém hann háði urn mörg ár til þess að vernda hags rnuni Gyðinga. Hann var sjálfur Gyðingur, og voru foreldrar hans nýlega komnir frá Rússlandi til Lundúna, þegar hann fæddist. Hann ólst upp í mikilli fátækt, en vakti snemma athygli á sér fyrir framúrskarandi námsgáfur, og var ungur settur til menta, og gerðist rithöfundur um tvítugs aldur. — Skáldsögur hans þykja lýsa Gyð- Vinnniðt afar ódýr: Buxur kr. 5.50. Treyjur kr. 7.00. Buxur með smekk kr. 6.75. Sloppar kr. 12.00. Skyrtor kr. 5.00. STendborgaroínar af margskonar gerðum og stærðum ingum ágætlega vel, og þeir áttu þar, sem hann var, einn langbesta talsmann sinn og foringja. Ævilok Kitcheners. Svo sem kunnugt er, fórst Kit- ’ | chener marskálkur á iherskipinu Hampshire, skamt frá Orkneyjum í júnímánuði 1916. — Svo sviplegt þótti fráfall hans, að nrnrgir vildu ekki trúa því, að hann hefði í raun og veru farist, og spunnust um það hinar ótrúlegustu sögusagnir. Breska stjórnin hefir nú gefið út opinbera skýrslu urn afdrif skips*- ins og þeirra, sem á þvi voru, og samkvæmt ’henni er það efalaust, að Hampshire barst af réttri leið vegna stórviðris og rakst á þýskt tundurdufl, og er enginn flugufót- ur fyrir þeim orðrómi, að skipið hafi farist vegna sviksemi einhvers skipsmanns. Ekkert verður um það sagt, af framburði þeirra fáu manna, sem komust lífs af, hvernig Kitchener lét líf sitt. Hann sást á þilfarinu skömmu eftir árekstur- inn á tundurduflið, en aldrei eftir það, en ekki eru hinar rninstu lílc- ur til þess að hann liafi komist lífs af. Hitt er og tilhæfulaust, sem margir hafa trúað, að lík hans hafi fundist sjórekið í Noregi. Kenningar Voronoffs. Síðustu árin hefir verið fremur hljótt um yngingarkenningar Stei- nachs og annara þeirra, sem með einföldum uppskurði hafa látið gamalmenni kasta ellibelgnum. En á nýafstöðnum lífeðlisfræðingá- fundi í Stokkhólmi hélt einn yng- ingarpostulinn, rússneski prófess- orinn Voronoff, fyrirlestur um þetta efni, senx heldur en ekki þótti matarbragð að. Hefir hann gert 1100 yngingarskurði með ágætum árangri, einkanlega á karlmönn- um. Telur hann eflaust, að hægt sé aö lengja mannslífið upp i 140 ár, með því að græða kynfæri úr chimpanse-öpum á kynfæri manna. Einnig hefir hann grætt eggja- stokk úr konu í kvenapa einn, sem hann kallar Nóru. Nú er Nóra orð- in þunguð, og prófessorinn býst við afkvæminu eftir tvo mánuði. Og hann býst sterklega við, að þetta afkvæmi verði ekki api, held- ur — barn, vegna eggjastokksins, sem hann hefir sett x apann. Fræði- menn hafa tekið þessum nýju k’enningum Voronoffs heldur fá- lega, og sérstaklega hafa hinar nýju kynbætur hans sætt ónxildum dómum og þótt óviðfeldnar. Eri hvað gera menn ekki fyrir „vís- indin“ ? Voronoff er læknir í Paris, og þegar fyrir löngu ktmnur fyrir yngingar sínar. Hann segir kven- ávalt fyrirliggjandi. Johs. Hansens Enke. Laugaveg 3. Sími 1550. 10 ei Phönix- Lopez- Cervantes- Amistad- Flor de Portaga- Flor de Mexico- Romanos- Esta Marca, Black & White eða aðrar tegundir af Horwitz & Kattentid vindlnm. Það besta er ódýrast! ÍQQQQQQQQQQOCXX KXtitXíílíÍOOOGt Steindór sendir sínar ágætu Buick- bifreiðar á rnorgun: Til Hafnarfjarðar. Til Vífilsstaða. Til pingvalla. Til Sogsbrúar. Til Ölfusárbrúar. Til KOLLAFJARÐAR, þar sem útiskemtun verður á morgun. tXKæoOOQQOQQQC fólkið miklu tregara til að láta yngja sig upp en karlmennina, þó ótrúlegt sé.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.