Vísir - 06.10.1926, Blaðsíða 2

Vísir - 06.10.1926, Blaðsíða 2
VISIR Höfnm fyrlrliggjandi: Síemsykur í kössum á 25 kg, Strásykur í sekkjum á 45 kg. Sailasykur í kössum á 45 kg. Símskeyti —o— Khöfn 6. okt. FB. Skuldaskifti Frakka og Þjóðverja. Síma'ö er frá París, aö Calvin Coolidge Bandaríkjaforseti hafi tjátS sig mótfallinn því, aö þýsk járnbrautaveröbréf, sem áformaö er, aö Frakkar fái til yfirráöa, veröi seld Bandaríkjunum. Banda- ríkin eru því mótfallin, að Þýska- land hjálpi Frakklandi fjárhags- lega. Telja þau, aö lán frá Ame- riku séu hentugri frönskum fjár- málum, — en skilyröi fyrir þvi aö Frakkar fái frekari lán vestra eru þau, að Frakkar samþykki samninginn um ófriöarskuldirnar. Ríkisréttur Noregs og Berges- máliö. Símað er frá Osló, að ríkisrétt- urinn, sem dæma á i Bergesmál- inu, hafi veriö settur. Hundrað vitni eru leidd í málinu. Menn bú- ast tæplega viö dómi fyrir áramót. Eklci er ár liðið frá þvi er einn ræöismanna Dana (og íslendinga) nefndi fsland danskt amt í opin- berum skýrslum. Ekki hefir þaö spurst hingað enn þá, að honum hafi verið vikið úr embætti, og alj)ýða manna hefir eigi fengiö að sjá þá afsökunarbeiðni, sem utan- ríkisstjórn Dana hlýtur að ,hafa sent íslands-stjórn út af þessari móðgun. En það hneykslismál verður eigi gert að frekara um- talsefni hér. Nú hefir annar ræðismanna vorra erlendis sýnt íslandi og ís- lendingum lítilsviröing, er hann sendir danska skipstjórafélaginu frásögn um jarðarför landa vors, Péturs Sigþórssonar, er myrtur var i Rúðuborg suður á Frakk- landi. Liggur það í augum uppi, aö slíka skýrslu átti hann aö senda til íslands, annaðhvort rík- isstjórninni eða fréttastofunni. — Morgunblaðið hefir náð í frásögn ræðismannsins, og er útdráttur úr henni birtur í blaöinu síöastliðinn sunnudag. Er mjög leitt að sjá, aö jarðar- .förin hefir farið fram eins og Jæssi hrausti og hugprúði landi vor hafi verið danskur maður, en ekki íslenskur. Því aö kista hans var sveipuð dönskum fána, og borin þannig til grafar, — Því miður verður ekki séð fyrir víst af frásögn Mbl., hvort ræðismað- urinn í Rúðuborg hefir séð um út- förina, eða skipstjóri Péturs heit- ins, þótt heldur megi ætla hið síð- ara. Einstöku maður kann því að segja sem svo, að skipstjórinn muni eigi hafa átt íslenskán fána, og sé honum því vorkunn, þótt hann notaði J)ann danska. En — er það fastur siður við jarðarfarir, að kistur sé fánum sveipaðar? Og áefði ekki mátt fá íslenskan fána hjá „ræðismanni fslands" J)ar í borginni? — Það skal raunar ját- að, að svarið við síðari spurning- unni er mjög vafasamt. Því að heldur þykir þeim, sem utan hafa farið, l)era lítið á íslenskum fána og íslensku skjaldarmerki hjá þeim ræðismönnum, sem eiga að fara með utanríkismál íslands í umboði þess. Af allri framkomu Dana og Danstjórnar síðan sambandslögin gengu í gildi, verður vart annað ráðið, en að reynt sé að dylja öðr- um ])jóðum, að ísfand sé þó að nafninu til' gengið undan dönsku valdi. Hvar sem íslendingar ferð- ast, líta ræðismennirnir á þá sem danska þegna, og þótt þeir séu fallnjr í vaíinn, er reynt að telja ])á danska. Alþingi fslendinga má ekki láta þessi mál afskiftalaus. Það verður að sjá fyrir því, að bundinn sé endi á hina eilífu ókurteisi i ís- lands garð J)au fáu ár, sem vér eigum enn eftir að vera í sam- bandi við Dani. Skilnað armaður. BíistðjiiDiillHiiilislia fundinn? Skamt frá Nörrköping á bæ sem Ringstad heitir, hefir sænsk- ur maður, dr. Arthur Nordén fund- ið mjög glöggar rústir af stórbæ frá 6. öld. í rústunum fann hann skartgrip, sem með vissu verður sagt um, að sé eigi yngri en frá aldámótunum 600 e. K. Af bæjarna'fninu Ringstad, vill Nordén álykta, að staður þessi sé Hringstaður sá, sem nefndur er i Edcíu í Helga kviðu Hundings- bana. En Helgi Hundingsbani hef- ir alment verið talinn þjóðsögu- persóua og síst af öllu sænskur. Sumir visindamenn hafa viljað telja, að Hringstaður væri sami staðurinn og Ringsted i Dan- ntörku. Nordén styður álit sitt við ýms önnur nöfn, sem nefnd eru i sam- bandi við Helga Hundingsbana og telur sig finna þau á slóðunum! í grend við Nöirköping. Samkvæmt sögninni vinnur Helgi Bragalund, aðsetur Hundings og nokkru seinna sigrar hann sonu hans við Logafjall. Bragalund telur höf- undur sama staðinn og nú ér kall- aður Brakárr og áður var kallaður Bragakárr, og Logafjall telur hann hafa verið kallað Logaberg á gamalli sænsku og sé það staður sá, sem nú heitir Loberga. Önnur nöfn úr sögninni þykist Nordén finna í staðanöfnunum Svarins- hög, nálægt Svárdsbro, Tráeksta í Sonmda og Þéttnasund telur hann hafa verið við Tjöttrasjön, nalægt Ösmö. Annar maður, Ture Hederström, hafði rannsakað J)etta á undan Nordén og komist að sömu niður- stöðu. Hefir hann einnig bent á, að Granmar konungur, sá sem Helgakviða talar um.sé sá sami og Snorri Sturluson telur konung í Suðurmannalandi og barðist við fngjald illráða. Hafi súorustafarið frani J)ar sem nú er Montsey eða Munsö, í Málaren. Meðal fólks ])ar um slóðir lifir enn J)á sögu- sögn um mikla orustu, sem háð hafi verið í fornöld þar í bygðinni. Athuganir Jressar bera með sér nýjar líkur fyrir þvi, að hetju- sagnirnar gömlu séu ekki eintómur uppspuni, heldur hafi við einhver söguleg sannindi að styðjast, þó mjög hafi þær aukist í meðförun- um. Dananregn. Látinn er nýlega í Danmörku Brynjúlfur Magnússon, sonur sira Magnúsar prófasts Björnssonar á Prestsbakka. Hann var efnilegur maður, en misti heilsuna fyrir nokkurum missirum. Veðrið í morgun. Reykjavík hiti 5 stig, Vestm- eyjum 8, ísafirði 3, Akureyri 5, Seyðisfirði 6, Grindavík 2, Stykk- ishólmi 6, Grímsstöðum 3, (engin skeyti frá Raufarhöfn né Hólum í tíornafirði), Þórshöfn í Færeyj- um 12, Angmagsalik 1, Kaup- mannahöfn 10, Utsira 9, Tyne- mouth 13, Wick 12, Jan Mayen o st. — Mestur hiti í Reykjavík síð- an kl. 8 i gærmorgun 9 st., minst- ur 4 st. Úrkoma r,i mm. — Loft- vægislægð við suðvestur land. Hreyfist sennilega til norðurs og dýpkar. — Horfur: I dag: Vax- andi suðvestlæg átt og rigning á suðvesturlandi. Breytileg átt og rigning á norðvesturlandi. All- hvass sunnan og suðaustan aust- an lands. í nótt: Sennilega suð- vestlæg eða vestlæg átt. Allhvass og skúraveður, einkum á Suður- og Vesturlandi. Þórstína Jackson fer héðan á morgun áleiðis til Vesturheims. Skilnaðarsamsæti var haldið í gærkveldi henni til heiðurs á Hótel ísland. Heiðurs- gestinum var færð að gjöf útskor- in bókahilla, sem Soffía Stefáns- dóttir hafði skorið, en ræður fluttu síra Friðrik Hallgrímsson, Einar Benediktsson, Dr. Guðm. h innbogason, Jón Þorláksson, frú Bríet Bjarnhéðinsdóttir og pró- fessor Sigurður Nordal. Ungfrú Jackson J)akkaði með mörgum fögrum orðum þá sæmd og alúð, sem henni hefði verið áýnd, bséði hér og hvervetna annars staðar, þar sem hún hefði farið um landið. Stúdentsprófi lauk í Kaupmannahöfn mjög ný- lega Gisli Johnsen, sonur Gísla konsúls Johnsen frá Vestmanna- eyjum, og ‘nlaut I. einkunn. Knattspypnufél- Reykjavíkur. Skemtifundar verður haldinn laugardaginn 9. okt. kl. 8 l/2 í Iðnó. Fundurinn hefst með sameiginiegri kaffidrykkju, ræðuhöld- um og söng. Auk þess verður margt annað til skemtunar. Áðgöngumiðar eru seldir í verslun Haraldar Árnasonar og hjá Guðm. Ólafssyni, Vesturgötu 24. Verða félagsmenn að sækja aðgöngumiða fyrir föstudagskveld. Fjölmennið! STJÖRN K. R. Grammofónplötur. Landsins mesta úrval af grammdfónplfttum. Sérataklega viljum við benda á klassiska musik á „His Masters Voice * plötum, sem við höfum fyrirligijandi í mjög miklu úrvali. Verðið lækkað að miklum mun. Fálkinn. %-mm PRESGRTGNE þvottasápan er hrein sápa öll x gegn, og því gersamlega óskaðleg J)vott- inum. Hreinsar ])vottinn á skömmum tíma, betur en nokkur önnur þekt sáputegund. Tekur öllum þvottaefnum fram. Biðjið um PRESERVENE og farið eftir notkunarreglunum. Villemoes kom hingað úr hringferð í gær. Vísir er sex síður í dag. Sagan er í aukablaðinu. St. „íþaka“. Fundur í kvöld kl. 8)4 stundvís- lega. Áriðandi mál. Mætið, félagar. Stigstúkan. Framhalds stofnfundur á eftir Iþökufundi. Mínervingar, mætið. % Hanna Frederiksen opnaði hárgreiðslustofu í gær í Pósthússtræti 11. Þeir félagar íþróttafél. Rvíkur, sem ekki hafa verið með áður, en óska að vera með í vetur, snúi sér til skrifstofu félagsinsíKirkju- stræti 10, niðri. Opin mánu-, mið- viku- og föstudagskvöld kl. 8)4— 10. . Hermann Jónsson, kaupm., hefir selt verslun sína á Óðins- götu 32, Benedikt Fr. Magnússyni frá Spákonufelli. Leikhúsið. Annað kveld verður gamanleik- urinn Spanskflugan leikinn í Iðnó. Aðgöngumiðar seldir í dag og á morgun. Gjafir til ekkjunnar, afh. síra Áma Sigurðssyni, 10 kr. frá ónefndri, 5 kr. frá K. og S. — Samskotum þessum er nú lokið. Safnast liafa alls kr. 387.00. Vísir hefir safnað 135.00 kr. og sr. Á. S. hefir tekið á móti 252.00 kr. — Ofannefnd upphæð var afhent ekkjunni í gær. Beiddist hún Jæss, að öllum hinuni góðfúsu gefendum, sem hún veit eigi nöfnin á, væru vottaðar inni- legar þakkir fyrir hennar hönd og barna hennar, fyrir góða og mik- ilsverða hjálp. Réttur. Tímarit um þjóðfélags og menn- .. ingarmál. Tímaritið Réttur sem undan- farin 10 ár hefir komið út á Akur- eyri undir stjórn Þórólfs Sigurðs- sonar á Baldursheimi, hefir nú skift um ritstjórn, og um leið breytt til um efni og annan útbún- að, svo betur sé við hæfi almenn- ings. Um miðjan október kemur Réttur út í fyrsta skifti eftir biæytinguna, stækkaður svo að þetta hefti verður ca. 9 arkir. Þetta hefti verður rnjög fjölbreytt að öllu efni. Þar verða greinir um bókmentir, listir, þjóðfélagsmál, erlend og innlend tíðindi, og önn- ur almenn áhugamál, ennfremur skáldskap frumsaminn og þýddan. Nýlega hafa útgefendur sent út boðsbréf, og segir i því m. a.: „ .... Réttur mun gera sér far um að kynna mönnum erlend og inn- lend skáld og brautryðjendur. Fræða menn úm stefnur þær sem efstar eru á baugi á flestum lífs- sviðum..... Hann á erindi til allra hugsandi manna, er brjóta vilja til mergjar viðfangsefni nútím- ans. Hann vill ná til allra íslend-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.