Vísir - 09.10.1926, Side 2
VtSIR
Höínm fyrlrliggjandi:
Steinsykar í kössam á 25 kg.
Strásykar í sekkjum á 45 kg.
Sallasykar i kössam á 45 kg.
newjflulKUR
Spanskflugan
Gamanleikur í 3 þáttum effir:
F. Arnold og Ernst Each,
veríur leikkin aunnudagiun 10. þ. m. kl. 8x/s e. h.
Hljómleikar milli þátta, undir stjórn E. Thoroddsen.
AðgöngumiSar verða seldir í Iðnó í dag frá kl. 4—7 og á
morgun 10—12 og eftir kl 2
ATH. Menn eru beðnir að koma stundvíslega, því húsinu
verður lokuð um leið og leikurinn hefst.
Sími 12. Sími 12.
PRESERVENE
þvottasápan
er hrein sápa öll í gegn, og því gersamlega óskaöleg þvott-
inum. Hreinsar þvottinn á skömmum tíma, betur en nokkur
önnur þekt sáputegund. Tekur öllum þvottaefnum fram.
Biöjiö um PRESERVENE og fariö eftir
notkunarreglunum.
Símskeyti
Khöfn 8. sept. FB.
Námamenn fella sáttatillögu
Baldwins.
Símaö er frá London, aö at-
kvæöagreiösla námamanna um
miölunartillögu Baldwins hafi
fariíS fram. Námamenn feldu til-
löguna er var þess efnis, aö stofn-
aöur yröí ríkisgeröardómur í
ágreiningsmálum, ef héraössamn-
ingar yröu geröir.
Poiacaré og skuldaskifti Frakka
og Bandaríkjamanna.
Sírnaö er frá París, aö Poincaré
óski þess, aö samþyktur veröi
fyrirvari, samfara fransk-ame-
ríska skuldasamningnum, til þess
að tryggja þaö, aö hinar árlegu
greiöslur Frakka samkvæmt
skuldasamningnum lækki, ef
skaöabótagreiöslur frá Þýskalandi
bregðast. Margir álíta fyrirvarann
ónógan, þvi aö sennilegt er, aö
mótspyrnan í þinginu gegn sam-
þykt skuldasamningsins veröi
mjög öflug.
Herra ritstjóri!
Geriö svo vel að ljá eftirfarandi
línum rúm í blaöi yöar.
6. þ. m. birtir „Skilnaöarmaö-
ur“ allharða ádeilugrein á einn af
ræðismönnum íslands og Dan-
merkur og hnýtir aftan í hnjóös-
yrðum til Dana og ræðismanna
vorra yfirleitt. Þar segir svo:
„Heldur þykir þeim, sem utan
hafa farið, bera lítið á íslenskum
fána og íslensku skjaldarmerki
hjá þeim ræðismönnum, sem eiga
að fara með utanrikismál Islands
í umboöi þess. Af framkomu
Dana .... veröur vart annað
ráðiö, en að reynt sé að dylja öör-
um þjóöum, að ísland sé þó að
nafninu til gengiö undan dönsku
valdi.“
Eg skal ekki um það segja,
hversu góöar heimildir höfundar-
ins eru til þessara almennu um-
mæla, en af því aö hann ber fyr-
ir sig þá, „sem utan hafa farið“,
og eg er einn í þeirra hóp, en þó
ekki einn af heimildarmönnum
hans og þeim ósamdóma, mætti
mér ef til vill leyfast aö segja frá
þeirri litlu reynslu, sem eg hefi
haft í þessu máli.
1924—25 var eg árlangt erlend-
is. Á þeim tíma hafði eg talsverö
skifti viö þrjá af sendiherrum ís-
lands og Danmerkur, og fann
ekki að þeir geröu neina tilraun
til þess aö helga sér mig eöa
breiða yfir þjóöerni mitt. Þeir
geröu mér þvert á móti sem ís-
lendingi sæmd á ýmsa lund. Á
tveimur af þessum stööum voru
flaggstengur tvær saman á hvor-
um staö, og sögöu sendiherrarnir
mér í óspurðum fréttum, aö aldrei
drægju þeir svo fána annars rík-
isins á stöng, aö fáni hins ríkisins
væri ekki dreginn upp líka. Og
annar sagöi við mig: „Ef þér
hefðuð gengiö hér fram hjá í gær,
hefðuð þér getað sannfærst um
þetta." — Sendiherrann í Berlín,
Zahle kammerherra, baö mig sér-
staklega að láta þess getið, að
honum væri þökk á og ánægja,
að íslendingar kæmu til hans,
þegar þeir væru þar á ferö, hvort
sem þeir ættu erindi við hann eða
ekki. — Og það þori eg að full-
yrða, aö- einlægari pg falslausari
vin á Island ekki í öörum löndum
en sendiherraritara Georg Höst í
Bern, sem aldrei mundi setja sig
úr færi aö vinna íslandi gagn og
halda uppi heiðri þess. ^
Eg lái engum, þó að hann segi
til syndanna, þegar á rétt vom er
gengið, en gæta verður þess, aö
beina ekki skeytunum víöar en
svo, aö satt sé sagt.
Jón ófeigsson.
freycnóður Mm.
Málverkasýning.
•—o--
Það var einu sinni maður sem
tilbjó leikrit, sem heitir Smala-
drengurinn — þessi sami rnaður
sýnir nú málverk í Bárubúð. —
Ekki hefi eg rekist á dóma um
leikrit þessa manns og mun þaö
annað tveggja aö eg hefi /ekki
nægilega fylgst meö því sem ritað
hefir verið — eöa þá að snilling-
um okkar hefir yfirsést aö lesa
það ella fátt mn fundist og ekk-
ert viljað segja, en því man eg
eftir í byrjun efnisins að höfundur
lætur hund sinn líta á stúlku sína
i kíki, þar sem hún fór um veg,
og þótti mér það lýsa uppfinninga-
semi hjá þessum unga manni, og
get eg þess til aö hann eigi nú
eftir að mála skemtilega mynd af
þessu. — Maður þessi er Frey-
móöur Jóhannsson málari frá Ak-
ureyri, hann hefir feröast mikiö
í sumar, og gert myndir af mörg-
um fjarlægum stöðum, sumum
vinalegum og fögrum, öörum
hrikalegum eöa tignarlegum.
Freymóöur gerir engum meiri
greiöa meö sýningu sinni en ís-
lenskum listamönnum, sem geta
litið land sitt likum augum og
hann — því aö undirstaða málar-
ans fyrir því að geta oröiö lista-
maður, er vitnisburöur hans sjálfs
um verk sitt frammi fyrir fyrir-
myndinni sjálfri, og þeir málarar,
sem fagrar hugsjónir sækjaheim,
mega trúa sjálfum sér fyrir aö
geta gert verk sín einföldustu
augum sjáanleg sem sannan veru-
leika úr heimi andans, svo sann-
arlega sem þeir geta dregið fjalls-
tindinn sem allir sjá, rétt á blað.
Dyrafjöll, Borgarfjarðar og
Njarðvíkur á sýningu þessari eru
nægur vottur. um sannsögli og
náttúruleik þessa málara — en alt
umhverfi þeirra fögru sveita gera
sitt til þess aö hvetja dáö lista-
mannsins og hiö góöa fólk og
merkilega, sem þar býr. Meö sama
áframhaldi, viökynning íslenskrar
náttúru, fæst smám saman trygg
undirstaöa fyrir íslenska málara
til þess að byggja upp stóran
stíl, sem veitir sterkum og holl-
um áhrifum málaralistarinnar til
áhorfandans.
Jóhannes S. Kjarval.
Utan af landi.
ísafiröi 8. okt. FB.
Framboðsfundur.
Frambjóðendur Framsóknar-
flokksins boðuðu hér landsmála-
fund í gærkveldi. Auk frambjóð-
endanna töluðu á fundinum þing-
menn Isafjarðar og N.-ísafjarðar-
sýslu, Siguröur Kristjánsson og
Vilmundur Jónsson læknir. Hinn
síðasttaldi talaði af hálfu jafnað-
armanna og kommúnista og hvatti
sína samflokksmenn til þess að
kjósa Framsóknarlistann, en sitja
ekki hjá kosningunni. Franibjóð-
endurnir virtust ekki hafa fylgi á
fundinum. — Norðangarður hér í
nótt. Snjóaði til sjávar.
Akureyri 8. okt. FB.
Bráðapest í Eyjafirði.
Bráöapest, allskæð, gengur 1
sýslunni, og hafa um 100 kindur
drepist í Möðruvallasókn síöustu
viku og álíka margar í Saurbæj-
arsókn, en þar verður hennar mest
vart. —• Enn þá er sæmilegur
síldarafli í reknet. Skip hafa síð-
ustu dagana fengiö um og yfir
100 tn., sem þykir góður aflj. —
Jónas Rafnar hefir verið ráðinn
læknir Heilsuhælis Norðurlands
og fer utan á næstunni, til frekari
fullkomnunar í þeirri grein lælcn-
isfræðinnar. Heilsuhælið er kornið
undir þak.
(íslendingur).
Bíl-akstur
innanbæjar.
Að aka i bíl — (eg nota ekki
orðið að ,,keyra“) er • nú sem
stendur óhóf hér innanbæjar, þvi
að bilar eru ekki hreyfðir fyrir
minna en 3 krónur. Þetta verðlag
er svo fjarri sanni, að það hreint
og beint útilokar alla þá, sem fara
skynsamlega með fé sitt, frá þvi
að taka bíl nema einhver sérstök
nauðsyn krefji. — Þó liggur opið
fyrir, hversu mikil þægindi það
gætu verið í sporvagnalausum bæ,
að geta fengið sér vagn fyrir sann-
gjarnt verð. Þegar litið er á þá ó-
sanngjörnu taxta, sem gilt hafa
fyrirfarandi, skyldi enginn ætla,
að bílafélögin hafi hag almenn-
ings að neinu leyti fyrir augum,
heldur að eins það, að fara sem
fæstar ferðir og dýrastar, þótt
þau auðvitað gætu haft alveg eins
gott upp úr því að fara fleiri
ferðir og ódýrari — með öðrum
orðum, að leggja sig dálítið i líma
til þess að fullnægja flutninga-
þörf fólksins. Auk þess sem hái
taxtinn er almenningi óþægilegur,
þá spillir hann sjálfum rekstri
bílanna. Menn verða skeytingar-
lausir með viðhald vagnanna og
yíirleitt ósparsamir með rekstur-
inn, kaupa altaf nýtt og nýtt og
auka innflutning á bílum og efni
til þeirra fram yfir það sem nauð-
syn krefur.
Kæmi hingað hagsýnn bíleig-
andi útlendur, mundi hann fljótt
sjá sér góðan hag í að auglýsa
innanbæjar akstur fyrir 1 krónu
ferðina, eða jafnvel minna, og
mundi hann fljótt fá svo mikið að
gera, að hann yrði að hafa marga
smábíla í rekstri til þess að full-
nægja eftirspurn.
í Kaupmannahöfn hefir frum-
taxtinn fyrirfarandi verið I kr.
Síðan krónan hækkaði þar, þykir
þetta svo ósanngjarnt, að aðal
bílafélagið, „Taxa“, fer með tóma
vagnana 45% af ökuleiðum sín-
um. Nú hefir bæjarstjórn K.hafn-
ar stungið upp á því, að frumtaxt-
inn skuli, vera 50 aurar og fyrir
það skuli aka alt að 600 metrum,
en 10 aurar bætist við fy.rir hverja
300 metra sem fram yfir verða.
Nú má geta þess, að danska krón-
an er 21% hærri en ísl. króna, en
þó er auðséð að rekstur bílanna í
K.höfn hvílir á eitthvað heilbrigð-
ari grundvelli en hér, þar sem slík-
ir taxtar eru hugsanlegir.
Um leið og bent er á þær kröf-
ur, sem almenningur á heimtingu
á í þessum efnum, má unna bíl-
eigendum þess sannmælis að þeir
leitast við að eignast stóra og
góða langferðabíla til fólksflutn-
ings, og hefir þar sýnilega orðið
góð framför. En innanbæjar fólks-
flutningsaksturinn er aftur í van-
rækslu, en til hans þarf mest-
megnis aðeins smærri bíla.
Að endingu skal geta þess, að
það má nú orðið fá ýmsan aksíur
langt undir hinimi venjulega tcixta,
ef menn eru sér vel úti um það.
En vegna hvers þá ekki að færa
taxtann í eitthvert samræmi við
það sanngjarna verð, sem reynslan
er að skapa? — í sámningsvinnu
cr t. d. vitanlegt að bílhlassið er
sumstaðar flutt fyrir eina krónu,
en þegar spurt er á Vörubílastöð-
inni, er sagt að taxtinn sé 3 kr.
Þessi mismunur nær auðvitað
engri átt, og sýnir að eins, að hér
er taxtinn fyrir löngu úreltur.
Vegfaraadi.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, síra Frið-
rik Hallgrímsson; kl. 2, barna-
guðsþjónusta, síra Friðrik Hall-
grimsson; kl. 5, síra Bjarni Jóns-
son.
í fríkirkjunni kl. 2, síra Árni
Sigurðsson; kl. 5, síra Haraldur
prófessor Níelsson.
í Landakotskirkju: Kl. 9 árd.
hámessa; kl. 6 síðdegis guðsþjón-
usta með prédikun.
Sjómannastofaa
er flutt í Tryggvagötu 39, réti
fyrir vestan hús V. B. K., og verð-
ur opnuð þar á morgun kl. 6 með
guðsþjónustu. Allir velkomnir.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 1 st., Vestm.-
ej'jum o, ísafirði 1, Akureyri o,
Seyðisfirði 1, Grindavík 1, Stykk-
ishólmi o, Grímsstöðum -f- 4,
Raufarhöfn ~ 1, Hólum í Homa-
firði hiti 1, Þórshöfn í Færeyjum
6, Angmagsalik 3, Kaupmanna-
höfn hiti 13, Kinn 5, Tynemouth
12, Leirvík 7, Jan Mayen 4 st. —1