Vísir - 16.11.1926, Page 2
y i s i r
HFfeffliNi & Olsem
Höfnm nú fyrirliggjandi:
Consum súkknlaði,
ísafold -
Bensdorps fin Vanille no. 5
Bensdorps Kakó.
Brindi um Njjála
—o—
Undanfarna vetur hafa nernend-
ur mínir oft flutt erindi, eSa lesiö
ritgeröir sínar í heyranda hljóöi
í lcenslustundum, enda er opinber
fyrirlestur i háskólanum einn þátt-
ur meistaraprófs í íslenskum fræö-
um. Þó aö erindi þessi hafi haft
á sér nokkurn frumsmiöabrag,
hafa þau oft veri'ö fró'ðleg og vel
hugsuð. Nú í haust hefir Njála
verið tekin til meðferðar með þess-
um hætti, og hefir mér hugkvæmst
að gefa almenningi kost á að
hlusta á erindin. Býst eg við, að
í þau megi sækja ýmislegan fróð-
leik um þessa ágætu og lítt könn-
uðu sögu. En einkum eru það til-
mæli mín til fróðleiksmanna vorra
um þessi efni, að þeir vildi gefa
þessum erindum gaum. Hér eru
þeir menn á ferð, sem landið eiga
að erfa, og þeim eru mikilsverð
kynni við eldri fræðimenn og á-
hugamenn, og að heyra athuga-
semdir um erindi sín frá fleirum
en kennara og námsbræðrum. Eitt
áhyggjuefni af mörgum við lítinn
háskóla, er fæð þeirra stúdenta,
er sömu fræði stunda. Þvi skap-
ast þar síður andrúmsloft sameig-
inlegs áhuga og rannsókna en við
fjölmenna háskóla. En hér geta
kynni nemandanna i íslenskum
fræðum við fróðleiksmenn utan
háskólans mikið bætt úr þessu.
Þessi tilraun stefnir ekki síst að
því að auka þau kynni.
Erindi þessi verða fyrst um sinn
flutt hvern fimtudag kl. 6—7 i
heimspekisdeild háskólans. Verður
jafnóðum tilkynt í blöðunum, hver
erindið flytur og um hvert efni.
Fyrstur flytur stud. mag. Kristinn
Andrésson erindi, fimtudaginn 18.
nóv. Efni: Hvar er Njála
r ituð?
Önnur ^dagblöð höfuðstaðarins
eru vinsamlegast beðin að skýra
frá þessu.
Sigurður Nordal.
VísindirannsókMr
Þjóðverja á Norðurlandi.
I gær var í Vísi getið um þýska
rannsóknarför til Akureyrar. Skal
tiú skýrt nokkru nánar frá máli
þessu og fyrirætlunum vísinda-
tnannanna.
í fyrrasumar gerði háskólinn í
IiamlDorg út vísindaleiðangur til
Akureyrar, undir forustu ungfrú
dr. Stoppel, einkadócents í lífeðlis-
fræði plantna. Með henni voru,
auk tveggja stúdenta, læknir og
lífeðlisfræðingur Dr. Voelker að
nafni. Dvöldu þau alt sumarið á
Akureyri, við rannsóknir sínar,
sem einkum voru íólgnar í því að
athuga og mæla áhrif þau, er
skifti ljóss og dimmu hafa á jurt-
ir, dýr og rnenn og þær sveiflur,
er verða á lífsstarfi þeirra á ýms-
um tímum sólarhringsins.
Leiddu þessar athuganir margt
nýtt og merkilegt í ljós, og hefir
nú verið áformað að halda þeim
áfram og taka ný verkefni til úr-
lausnar.
Hamborgar-háskóli og Notge-
meinschaft der deutschen Wissen-
schaft (félagsskapur til styrktar
þýskri vísindastarfsemi) kosta nú
að mestu nýjan leiðangur til Ak-
ureyrar. Nokkur þýsk iðnaðar-
íyrirtæki hafa og gefið til þessa
ýms rannsóknartæki. Auk ungfrú
Dr. Stoppel, sem er væntanleg
beint frá útlöndum til Akureyrar
með Goðafossi þ. 22. þ. m., ásamt
grasafræðingnum Dr. Friedl Feh-
se, tekur þátt i rannsóknunum eðl-
isfræðingurinn Dr. Hans J. Vog-
ler, aðstoðarmaður við Physica-
lisches Institut í Hamborg. Gert er
ráð fyrir að þau dvelji hér á landi
árlangt, eða lengur, ef unt verður
kostnaðar vegna.
Dr. Vogler kom hingað til bæj-
arins fyrir nokkrum dögum, til
þess að undirbúarannsóknirnar,og
fer hann norður í lok þessarar
viku.
Það, sem hér fer á eftir, um
fyrirætlanir leiðangursmanna, er
haft eftir honum.
Ungfrú Dr. Stoppel og Dr. Feh-
se hafa undanfarið unnið saman
að lífeðlisfræðilegum plönturann-
sóknum, og hafa gert athyglisverð-
ar athuganir á því sviði og fundið
nýjar skýringar á ýmsum lífeðlis-
fyrirbrigðum í plöntum. Halda þau
nú á.Akureyri áfram þessum til-
raunum, sem einkum lúta að rann-
sókn á áhrifum raforku loftsins
og birtubreytinga á plöntulíkam-
ann. Á Akureyri, og yfirleitt á
Norðurlandi, munu skilyrði til
þessara rannsókna vera mjög góð ;
eru þau m. a.: rakalítið loft, tíð
norðurljós á vetrum og miðnætur-
sólskin um miðsumar; ennfremur
virðist rafeðli loftsins þar vera
einkar hentugt.
Dr. Vogler og Dr. Fehse ætla að
vinna að samanburðarmælingum á
breytingum þeim, sem á ýmsum
tímum sólarhrings verða á styrk-
leika merkja frá ýinsum loft-
skeytastöðvum í Norðurálfu og í
Vesturheimi. í sambandi við rann-
sóknir á viðtökuskilyrðum merkja
frá þessum stöðvum, sem „senda“
á 200—16000 metra löngum öld-
úm, verða rannsökuð viðtökuskil-
yrði merkja á stuttum öldum, 20
—100 metra.
Á Akureyri verður sett upp'ein
slík skammöldustöð; í Hamborg
hefir stöð sömu tegundar verið
komið upp, og á að gera tilraunir
með skeytasendingar milli þeirra
og nota til þess eins Iitla orku og
frekast er unt. Munurinn á þess-
urn stöðvum og vanalegum loft-
skeyta eða viðvarpsstöðum er, auk
munar öldulengdarinnar, fólginn i
því, að þessar skammöldustöðvar
komast af með örlítið brot þeirr-
ar starfsorku, sem hinar þarfnast.
Víðsvegar um heim, einnig hér,
hafa upp á síðkastið, verið gerðar
margar og merkilegar tilraunir
með skeytasendingar frá slíkum
stöðvum; og vænta rnenn sér mjög
mikils af þeim i framtíðinni. Þær
liafa m. a. þá kosti fram yfir lang-
öldustöðvar, að skeyti frá þeim
eru miklu óháðari raftruflunum
loftsins; ennfremur verður rekst-
ur þeirra miklu ódýrari, þar eð
þær nota aðeins nokkur Watt raf-
orku, í stað þess að flestar sendi-
stöðvar nota nú 500—10.000 Watt
og sumar enn meira.
Víðvarpsstöðin hér 1 Rvik notar
t. d. 500 Watt; er það lítið fyrir
langöldustöð, og því eigi að vænta
að styrkur hennar sé mikill i
íjarska. (Auk þess er liklegt að
óhaganlegt fyrirkomulag loftnets-
ins lami langdrag hennar enn frek-
ar a. m. k. til norðurs).
Frá skammöldustöðvum, sem
aðeins nota 10—15 Watt og minna,
hefir nú tekist að senda merki yfir
úthöfin, álfanna á milli. Merki frá
slíkri stöð í Norður-Ameríku, sem
notaði 12—15 Watt, heyrðust t.
d. vel i Vínarborg, sem er ca. 8000
km. frá henni. Trésmiður nokkur
í Hamborg smíðaði sér fyrir
skömmu slíka sendistöð; notar
hún aðeins 7—8 Watt, og heyrðust
skeyti frá henni til Madrid á Spáni,
en sú vegalengd er nál. 1500 km.
Loftskeytastöðin hér hefir einn-
ig komið sér upp skammöldustöð
til tilrauna, og notar hún 30 Watt
og sendir á ca. 40 metra Iöngum
öldum. Hafa merki frá henni
heyrst, svo vitað sé, í Suður-Eng-
landi, Hollandi og Danmörku. Er
nú þegar ákveðin samvinna um
þessar tilraunir og fleira þessu
skylt, milli hr. Friðbjarnar Aðal-
steinssonar, forstöðumanns loft-
skeytastöðvarinnar, og Dr. Vog-
lers.
Dr. Vogler hefir einnig með sér
mjög næm tæki til að rannsaka og
mæla geislunarmagn (radioaktivi.
tet) ýmissa efna. Með þeim ætlar
hann að mæla geislunarmagn
ýmissa steinefna, vatna, linda og
hvera í nánd við, Akureyri 0g í
Þingeyjarsýslu.* Má vera að þar
séu fólgnir í jörðu miklir fjársjóð-
ir. s. n. radioaktiv efni. Slík efni
eru m. a. radium, uran og thörium ;
eru þau mjög verðmæt, og kostar
nú 1 gram radium nál. 1 milj. kr.
Eðli þessara efna er einkennilegt
og máttugt, og eru sum þeirra
dýrmætir læknisdómar. Stafa þau
frá sér geislum, er smjúga t. d.
hold og tré eins auðveldlega og
sólarljósið gagnsæa gluggarúðu;
líkjast þeir í því mjög röntgen-
geislum.
Af þessu yfirliti má sjá, að
vænta má mikils vísindalegs á-
rangurs af þessum rannsóknum.
Það eitt er ærin ástæða fyrir alla
íslendinga til að ljá þeim lið sitt.
Rílcisstjórnin, símastjórnin og
Eimskipafélag íslands hafa og
* Fyrir nolckurum árum rann-
sakaði Þorkell Þorkelsson geisl-
unarmagnið í gufu frá nokkurum
laugum og hverum á Norður- og
Suðurlandi. Skýrsla hans kom út
á ensku árið 1910. L. G.
%■■; ■ ->v, j fi-
VEEDOL.
Höfurn fyrirliggjandi efíirtaldar tegundir af
hinni heimsþekiu VEEB OL smurningsolíu :
Gufuvéla olía,
Bifreiða —
Skilvindu —
Koppafeiti fyrir allar tegundir af
vélum.
AthugiS verð og reynið gæð
þessara tegunda, og berið sanian
við verð og gæði annara tegunda.
Jóh. ÚUfssoa & Co. Roykjavik.
Aðalumboðsmenn fyrir:
Tide Water Oil Co. New York.
greitt götu þeirra og heitið þeirn
liðsinni sínu framvegis.
Auk vísindalegs árangurs, sem
ekki verður i aska látinn, má búast
við því að rannsóknir þessar beri
árangur er að notum má koma i
viðskiftum og daglegu lífi voru.
Lúðvig Guðmundsson.
í Kaupmannahöfn.
—O-f—
Um mánaðamótin hófst sýníng
á ýmiskonar matföngum og eld-
húsgögnum skipa í Kaupmanna-
höfn. íslendingum hafði verið boð-
in þátttaka,' og stóð Jónas Lárus-
son, bryti á „Gullfossi" fyrir ís-
lensku sýniugunni. Auglýst var,
að sýningjn næði bæði til islenskra
og danskra matfanga, og fyrir
anddyri sýningarskálans blöktu
fánar beggja landanna, en er inn
var komið, blasti fyrst fyrir mönn-
um íslenski hluti sýningarinnar, og
þó að hann væri miklu umsvifa-
minni en aðrir sýningarhlutar, þá
vakti hann fult svo mikla eftirtekt.
Það sem sýnt var á islensku
sýningunni voru aðallega ýmsir
réttir úr íslenskri síld, eitthvað i
kringum 30 talsins, 20 réttir úr
saltfiski og 8 réttir úr íslensku
saltkjöti, en auk þess síld og kjöt
í tunnuin og saltfiskur í mjög
hentugum tvípunds pinklum, og
auk þess fjöldi mynda frá sjó og
landi.
Ef sýningin gæti orðið til þess,
að auka markaðinn fyrir íslenskar
afurðir í Danmörku, kæmi hún að
góðu haldi, því að það hefir lengi
þótt vilja brenna við hjá vinum
vorum Dönum, að þeir hafa vilj-
að selja okkur setn mest af varn-
ingi sínum og kaupa í staðinn eins
lítið og hægt var að komast af
með af afurðum okkar.
Annars mætti geta þess hér, að
vér íslendingar kunnum eigi enn
að meta og eta vora ágætu síld,
eða búa til ljúffengar krásir úr
saltfiski, svo að ekki veitti af, að
sýning svipuð þeirri, sem Jónas
Lárusson hefir stofnað til í Kaup-
mannahöfn, yrði sem fyrst haldin
hér á landi, til þess að færa mönn-
um heim sanninn um ágæti þessara
matvörutegunda, þegar þær eru
rétt fram reiddar.
□ EBDA 592611167—
Fyrirl.h Br.‘. R/. M.‘.
Dánarfregn.
Látinn er hér i bænum i gær
Árni Gíslason, fyrrum póstur,
tæplega hálf-áttræður. — Hann
var lengi póstur milli Reykjavik-
ur og Hjarðarholts í Dölum og var
þá mörgum kunnur og öllum að
góðu. Hann var mjög duglegur
ferðamaður og annálaður fyrir