Vísir - 04.12.1926, Blaðsíða 4

Vísir - 04.12.1926, Blaðsíða 4
VÍSiR Laugardaginn 4. des. 1926. Ritfregn. —o--- Maud Rolleston: Talks with Lady Shelley. Harrap & Co. London 1925. Verð 2/6. Nafnið Shelley hefir slíkt seið- magn í sér fólgið, að það út af íyrir sig mundi ærið nóg til þess að draga athygli margra að þess- ari litlu bók. Fyrir það eitt munu sjálfsagt margir lesa hana, enda þótt þeir geri sér ekki vonir um að finna þar annað en „small talk". Fn þó að þar sé margt, sem ekki verðskuldar virðulegra heiti, er þar þó lika ýmislegt, sem flestir rnunu telja miklu merkilegra. Fátt er það í kverinu um Shelley eða samtíðarmenn hans, sem ekki var áður að finna í prentuðum rif- um, en þó ber það við, að brugð- ið er upp nýju ljósi yfir menn eða atburði. Mér er t. d. ekki kunn- ugt um að annarstaðar hafi verið sagt frá hinum skringilegu tildrög- um, sem leiddu til þess að William Godwin giftist Mrs. Clairmotií. Að visu mun það miklu tíðara en alment virðist ætlað, að konur taki sér bónorð fyrir hendur, en fáar munu þær hafa borið það upp sem skipun, eirts og Mrs. Clairmont, og fáir munu hafa látið leiðast eins sauðarlega eins og hinn frægi Godwin. En þó að Lady Shelley sjái það, hve kýmilegur atburður- inn er, þá er henni hitt ekki siður ljóst, hve sorglega hamingjulaus- ar afleiðingarnar voru. Og hún fer vafalaust ekki vilt i því, að God- win mundi hafa orðið alt annar maður hinn síðari hluta æfi sinn- ar, ef Mary Wollstonecraft hefði' orðið lengri lífdaga auðið. „'You know, dear, the woman can make or mar the man,“ segir hún við Miss Brooke (Mrs. Rolleston). Það eru hversdagsleg orð, en í þeim eru fólgin djúp sannindi, sem við sjáum staðfest á hverjum ein- asta degi: sannindi, setn heita ntá að móti alt mannfélagið til hins verra og hins betra. Það, sem gerir bókina mark- verðasta er það, að hún sýnir okk- ur með list einfaldleikans alveg óvenjulega fagra og göfuga sál. Lady Sheiley hefir verið dásamleg kona, og sannarlega þess verð að vera tengdadóttir skáldsins mikla, sem Dr. Fort Newton sagði um (í prédikun í City Temple, 4. april 1918) að hann hefði verið „the greatast teacher of the Christian doctrine of forgiveness among the poets of England“. Hvílikar kon- ur, þar sem þær taka við hver af annari, Mary Wollstonecraft, Mary Shelley og Lady Jane Shelley! Það má telja vafalaust, að frá sjónarmiði þeirra, sem leggja sig eftir dulrænum rökum, hljóti þessi htla bók að vera harla merkileg. Lady Shelley hefir haft slíka sál- ræna hæfileika, að svo er að sjá sem hún hafi sífelt staðið á þröslc- uldinum milli hins þekta og hins óþekta heims, og það er sem hún lifi i sífeldu samneyti við þá sem horfnir eru á undan henni inn fyrir fortjaldið, a. m. k. á þann hátt, að hún finnur til stöðugrar nálægðar þeirra, því það játar hún berum orðum. Margt af þvi sem hún seg- ir um reynslu sína, fellur mjög vel heim við þær kenningar, sem guð- spekingar alnn?nt virðast hallast að. Þannig er það, að þegar á barnsaldri man hún eftir sér á • fyrri tilverustigum. í einfeldni sinni segir hún bróður sínum og öðrum leiksystkinum frá þessum endurminningum, og það verður til þess, að þau uppnefna hana og kalla hana „Vitlausu Jóu“. A þenna hátt lærir hún að þegja yfir því, sem fyrir hana ber, og hún fer að hafa áhyggjur út af því, hvort hún muni ekki vera eitthvað geggjuð. „Eg man vel daginn (eg var þá átján ára), sem eg las það í bók, að samskonar minningar um það, sem gerst hafði fyrir þús - undum ára, hefðu stundum leiftr- að inn í huga höfundarins. Eg klappaði saman lófunum af gleði og sagði: „Eg er þá eklci brjál- uð, eftir alt saman.“ Þegar talið barst að því, sem kalla mætti hin stærri svið tilver- unnar, eru hugleiðingar hennar stundum skáldlega fagrar, og, að því er mér virðist, þrungnar af eftirminnilegum sannindum. Á- iyktanir þær, er hún dregur, fæ eg ekki betur séð, en að falli al- gerlega saman við það, er þeir menn hafa sagt mér, sem eg veit mest allra manna hér á landi hafa leitast við að safna þekkingu á þessum efnum. Eina sögu segir Lady Shelley sem beina gamansögu, en það þyk- ir mér furða, ef enginn sér neitt alvarlegt við hana, enda þótt eg verði að játa það, að eg hefi ekki minsta hugboð um þau rök, sem þar kunna að liggja til grundvail- ar. Sagan er á þá leið, að hún var kunnug manni einum — stak- asta ágætismanni, — sem hélt því fram, að hann væri tvær persón- ur; þannig sæi hann sig greini- lega. Önnur persónan var sú, sem Lady Shelley þekti, og var góð; en hin, sem var ill, var í Ástralíu og lifði þar stjórnlausu lífi. Hann sagði það þráfaflega, að hinn illi belmingur feinn mundi verða hengdur langt í burtu á ákveðn- um degi, sem hann tiltók. Yíir þessu var hann alls ekki hnugg- inn. En það sem var merkilegast, var það, að þegar hinn tiltekni dagur rann upp, þá fanst maður- inn dauður í rúmi sínu. Hafði dá- ið rólega í svefni. „Eg hefði gjarna viljað fá að heyra meira um illa helminginn/í segir Lady Shelley. „Eg geri ráð fyrir, að hann hafi verið hengdur.“ Út af þessu spinst það, að hún segir einu draugasöguna, sem hún þekti af eigin reynslu. Sú saga er of löng til þess að segja hana hér, og líka of ótrúleg, þvi að ægilegri draugasaga er varla til í íslenskum þjóðsögum. Þó var fjöldi manns vottar að henni. Flún gerðis: í húsi sem bygt hafði verið á s:að þar sem glæpur hafði verið framinn mörgum árum áður. Það eru margar sögur til um það, aö glæp- ir (morð) sjáist endurtaka sig þar sem þeir hafa verið framdir, en við þessa sögu er það merkileg- ast, að það sem gerðist í húsinu, fór fram með alt öðrum hætti en verið gat um hinn upprunalega glæp, enda þótt sömu hvatirnar virðist enn hafa ráðið. Hitt er og eftirtektarvert, að þótt myrta stúlkan að sögn reiki um í hús- inu, þá er það ekki hún, sem gerir óskundann. Það virðist miklu fremur vera sjálfur moröinginn, sem þar er að verkum. Enn skal hér bætt við einni sögu, þótt ekkert sé fágætt við * De anerkjendte TRÆKSPIL j*. staar fremdeles WmftlSQ heiest som kvalitets» /l'V instrument. Luksuskatalogen 1926 (med nye modeller) íendes grati* og franko. !Brukte spil til&algs. Norderw Musikforretning | Kirkegaten 15. Oslo. (Norges starstt spedalforretning i trækspil) Nýkomið: | Mikið úrval af Samkvæmiskjólaefimm, Dllartanum, fflorgunkjólaefnum o. fl. SOOOOÍXSOÍSOOÍÍOOOt Frskka- og fata- efni vönduð og i stóru úrvali með góðum afslætti til jóla. fl. Andersen & Sön, Aðalstræti 16. Atbngið! J?rátt fyrir allar útsölurnar fáið þið hvergi eins góð kaup á öllum fatnaði og i Fatabúðinni. Karlmannaföt og yfirfrakkarn- ir er nú orðið viðurkent fyrir snið og efni. Yið seljum fötin frá 55 kr. — mjög vönduð föt. Ennfremur drengjaföt frá ferm- ingaraldri. Kvenkápur frá 35 kr. Kápur, sem kostuðu 175 kr., nú 75, 65, 60 og 40 kr. — Alt mjög vandaðar vörur. — ÖIl sam- kepni útilokuð. — Káputauin best í Fatabúðinni. Best að kaupa jólafötin í Fatabúðinni. hana. Lady Shelley fer til konu sem er miðill, og fær henni silfur- hring, sem tengdafaðir hennar (Shelley) hafði átt. Konan heldur hringnum við enni sér og fellur í mók. Lýsir hún þá því, sein fyrir hana ber, og er það Róm á dög- um Nerós. Lady Shelley er ekki ánægð með þessar upplýsingar, og spyr hvort hún sjái ekkert annað. Konan lýsir þá tveim unguin mönnum, er hún sjái á gangi sam- an, og er þar svo greinilega frá sagt, að ekki er um að villast, að hún lýsir Shelley og Byron, enda gekk hún svo langt, að hún lýsti skaplyndi þeirra og líferni. En hringurinn var rómverskur pen- ingur, og var á honum mynd af Neró og konu hans. Ekkert vissi miðillinn hver Lady Shelley var, og fékk aldrei að vita það. Sn. J. |CXÍÍX10ÖOGÍÍOÖtXXÍOOOOOtííÍOG «< 5 í i t Jt ÍOO<X>OOOOÍÍO«OOÖOOÍ50<ÍOOOOÍ| j Nýjasta nýtt! j « Bráðnauðsynlegt hverjum lijólreiða- « manni I ií Allar slðnguviðgerðir óþarfar í I | Hvaö er Gúmmílysiíi ? ? ð | i< GU3IMILYS1N Iagar af sjálfu sér allar skemdir á slöngum 5; jí fyrirhafnarlaust, hvort sem þær orsakast af nöglum, gler- 5; Íbrotum, hvössum steinum eða þess háttar. « GUMMILYSIN gerir allar slöngur Ioftþéttar þó óþéttar séu |t ij °g gerir þær mjúkar eða þensluliprar, þannig, að gamlar % « ónýtar slöngur verða nothæfar. í, g GUMMILYSIN varnar loftinu að sytra út, eykur haldgæði « g togleðursins og veitir þannig hjólreiðamanninum ýms þæg- B tj indi sem spara tíma, peninga og erfiði. p GUMMILYSIN geta allir notað fyrirhafnarlítið. Nákvæm « |t notkunaraðferð er prentuð á hvern pakka (öskju)- \\ VERÐ: 1 askja: 1 kr. « Er nægileg á eina lyóliiestsslöngu í eitt ár. fannig íj nægja 2 öskjur fyrir lijólhestinn, fyrir mótorlijólhest 4 öskjur í eitt ár. Hið lága verð Gummilysins liverfur, er það er horið saman við hina miklu kosti þess Fæst hjá aðalnmboðsmanni Guðm. Péturssyní nuddi. | Eskifirði. p Fæst fyrst um sinn hjá aðalumboðsmanni pr. borgun eða eft- g irkröfu, uns útsölumenn koma í Rv/k og öðrum kaupstöðum y landsins. ij iooooooooooooooooo<iotioooo;i<ititioo;xioootit;tx;vooo,iotitititx;tit>o< SicM-límduft er langsamlega besta limið, sem enn er til. — Nothæft stra; Pakki sem dugar á 14 enskar rúllur koslar kr. 1,25. Málarinn, Sími 1498 Bankastræti 7. Jólin nálgast, Við erum því miður ekki göldróttir, og getum þar af leiðandi ekki keypt vörur heim í dag til að selja þær með afslætti á morgun; en viS getum selt þær ódýrara en aðrir, og þaö gerum viö og getum, vegna þess hvað- verslunarvelta okkar er mik- il. Við viljum þvi benda heiöruðum viSskiftavinum okkar á aS verSiS er lægst hjá okkur eins og aS vanda, þó aS við engan afslátt gef- um. Barnajólabasarinn var opn- aSur 1. des. og eru þar á boS- stólum feiknin öll af leik- föngum og jólatrésskrauti, mun ódýrara en þekst hefir áSur. KomiS, og þér munuS sannfærast. Enginn afsláttur gefinn, fast verS á hverjum hlut, sem sé þaS lægsta. Vörnhnsið. Hálsbindi, vetrarhanskar, silki- Ireflar, ullartreflar. Ódýrast hjá Vlkar. 1 Fruskbranð Off Normalbranð einnig rauðseytt rúgbrauð. Altaf nýtt. Skáldsagan / Fórnfús ást fæst hjá afgreiðslumanni Vísis í Hafnarfirðl, Kolbeini Vfgfússynl, Suðurgötu 14.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.