Vísir - 06.12.1926, Page 2
yisiR
Þurkaðip ávextir:
Epli,
Apricots,
Ferskjur,
Blandaðir ávextir,
Sveskjur,
Rúsínur,
Grálíkjur.
Símskeyti
Khöfn 4. des. FB.
Fjármál Frakka.
Símaö er frá París, aö þeim
fjölgi óðfluga í landinu, sem æskja
þess, aö frankinn veröi veröfestur
hiö bráöasta. Ýmsar iöngreinar
í landinu standast ekki lengur er-
lenda samkepni, vegna þess að
frankinn fer stööugt hækkandi.
Hefir því verið gripiö til þeirra
ráða, að minka framleiðsluna, en
þaö hefíi* aftur leitt af sér, aö at-
vinnuleysi er í byrjun, og gæti þaö
orðið alment, ef svo heldur lengi
áfram sem nú. Leggja því æ fleiri
áherslu á, aö verðfestingin fari
Iram hið bráðasta, eða áöur en í
óefni er komið.
Frá Kína.
Símað er frá Shanghai, aö Can-
ton-herinn hafi tekið Fuchow her-
skildi.
Frá ftölum.
Símaö er frá Berlín, að ítalía og
Albanía hafi gert með sér vin-
áttusamning, og telja menn, að
samningur þessi muni leiða það af
sér, að ítölum veitist létt að hafa
óhrif á mál Albaníu.
Khöfn 5. des. FB.
Danskur stjómmálamaður látinn.
Danski stjómmálamaðurinn
Frede(rik) Bojsen (f. 1841) er
látinn.
Frá Noregi.
Símað er frá Ósló, að Amundsen
Og Ellsworth vilji ekki framvegis
vera heiðurðsfélagar í Norsk
I.uftsejlads Forening, þar eð No-
bile er í fyrirlestraferð um Banda-
ríkin með samþykki félagsins.
Júgóslavar hafa illan bifur á
samningi ítala og Albana.
Símað er frá Berlín, að Júgó-
slavar séu óánægðir með samning
Kmlmmm-
stígvél
laglag og sferk
adeins 11,50.
Ðvanibergsbræðnr.
þann, sem ftalir og Albaníumenn
hafa gert sín á milli, telja hann
styrkja aðstöðu ítala á Balkan-
skaganum. Giskað er á, að Eng-
land standi á bak við samnings-
gerðina.
Utan af landi.
—o—
Kirkjubæjarklaustri 5. des.
Dálitlu af smádóti hefir tekist
að bjarga úr Nystrand, með mikl-
um erfiðismunum. Hefir að eins
verið hægt að vinna að björgun-
inni um fjöruna. Undanfarna daga
hefir skipinu hallað til austurs í
sjó, en er nú komið á hliðina, og
er útlit mjög ilt, að unt verði að
bjarga meiru úr því. Er nú hætt
við að það sökkvi þá og þegar.
Sagt er að á Svínafellsfjöru í
Öræfum hafi fyrir alllöngu fund-
ist stórt alúmíníums-„hylki“, eins
og með vængjum, og liggur ann-
ar vængurinn hjá, brotinn aí.
Finnendur vissu ekki hvað þetta
var, en giskuðu á, að þetta væri
flugvél á hvolfi. Hefir- þetta ekki
verið rannsakað nánara.
Safnaðarfanduriim
i dómkirkjunni var svo fjölsóttur,
að eg hefi ekki veriö þar á jafn-
fjölmennum safnaðarfundi áður,
enda þótt veðrið væri óhagstætt
og engin deilumál á dagskrá. Má
af þvi marka, að safnaðarfólk
lætur sig trúmálin meiru skifta en
hér á árunum, er 20 til 30 manns
komu seint og síðar meirýi aðal-
safnaðarfundi í höfuðstaðnum.
Fundarmálin voru tvö: Ný
kirkja í Reykjavík og heimilis-
guðrækni.
Oddviti sóknarnefndar skýrði
fundarmönnum frá, aö samkvæmt
ósk síðasta safnaðarfundar liðið
vor, hefði sóknarnefndin sett sér-
staka nefnd til aö íhuga væntan-
legt kirkjubyggingarmál safnaö-
arins.
í þeirri nefnd hefðu tekið sæti
báðir prestar safnaðarins og auk
þeirra Jón Halldórsson trésmíða-
meistari, Magnús Blöndahl kaup-
maður, Matthías Þórðarson forn-
minjavörður, Ólafur Lárusson pró-
fessor, Sigurbjörn Á. Gíslason
cand. theol. og Sveinn Jónsson
kaupmaður. Hefði nefnd þessi
haldið tvo fundi um málið og full-
trúar hennar átt tal um það við
ríkisstjórnina, eiganda dómkirkj-
unnar, og legði nefndin til við
Versl B. H. Bjarnason.
Hefir nýfengið talsvert úrval af
góðum og gagnlegum
VEEDOL
Höfum fyrirliggjandi eftirtaldar tegundir af
jólagjöfnm
og ennfremur mikið úrval af
barnaleikföngom,
sem standast mimu alla samkepni.
Festið því ekki kaup annars stað-
ar fyrr en þér hafið skoðað vam-
ing vom og spurt um verðið, því
að við erum áreiðanlega
þess megnugir, að geta boðið yð-
ur þau kjör, sem þér fáið best
annars staðar.
Versl. B. H. Bjarnason.
hinni heimsþektu V E
D 0 L smurningsoliu :
Gufuvéla olía,
Bifreiða —
Skilvindu —
Koppafeiti fyrir aliar tegundir £
vélum.
Athugið verð og reynið gœði
þessara tegunda, og berið saman
við verð og gæði annara tegunda.
ATHS. Nú með „Lagarfossi"
er væntanlegt mikið og fjölbreytt
úrval af FLUGELDUM, bæði til
úti- og inninotkunar, og ennfrem-
ur skotfærin frá Eley.
Jóh. Ólafsson & Co. Reykjavík.
Aðalumboðsmenn fyrir:
Tide Water Oil Co. New Yonk.
Fyrat um sinn mega menn skila
7 myndum af einhverri einni af
þessum leikkonum:
1. Norma Talmadge,
2. M&rion Davies,
3. Mae Murray,
til þesi að fá verðlaun þau, sem
getið er um í pökkunum. —
Lncana no. L
B. H. Bjarnason.
safnaðarfund, að unnið sé að því,
að bygð verði ný kirkja austar-
lega í bæniun, t. d. á Skólavörðu-
holtinu, er taki úm 1200 manns i
sæti.
*
Sóknarnefndin hafði og rætt
málið og fallist á að mæla með
þessari tillögu.
Töluverðar umræður urðu um
þetta mál á safnaðarfundinum og
hnigu þær allar í þá átt að styðja
málið. — Að þeim loknum var
eftirfarandi tillaga samþykt í einu
hljóði:
„Safnaðarfundurinn felur und-
irbúningsnefnd þeirri, er sóknar-
nefndin hefir þegar sett, að vinna
að undirbúningi nýrrar kirkju-
byggingar í Austurbænum, á þann
hátt sem nefndinni sýnist best
henta.“
Oddviti sónkarnefndar flutti
inngangserindið um heimilisguð-
rækni. Mintist hann meðal annars
á einverustundir við bænagjörð að
morgni dags, morgun- og kvöld-
bænir barna, borðbænir og liús-
lestra. Drap hann að lokum á,
hvort ekki væri unt að koma á
einhverskonar samtökum meðal
þeirra bæjarbúa, sem vildu hafa
daglegar guðræknisiðkanir á
heimilum sínum, hugði að það
kynni að verða þeim styrkur, sem
einhverra hluta vegna ættu erfitt
með að byrja á þeim sið, þótt þá
langaði til.
Við umræðurnar á eftir tóku
þessir til máls, og sumir tvisvar:
Sigtnundur Sveinsson umsjónar-
maður í Barnaskólanum, Sigurður
Sívertsen prófessor, síra Bjarni
Jónsson dómkirkjuprestur, Jón
Halldórsson trésmíðameistari, Páll
Sigurðsson prentari, frú Valgerð-
ur Flelgason, Jón Helgason prent-
ari og fundarstjóri. Sigmundur
Sveinsson og Jón Helgason töldu
trúarglundroðann valda miklu um
þverrandi heimilisguðrækni og á-
mæltu nýju guðfræðinni fyrir að
hún segði Jesús vera Jósefsson, en
þar var Sigurður Sivertsen pró-
fessor til andsvara, og tók allhart
á ræðu hins fyrrnefnda, en fékk
svo aftur góð svör og gild hjá sr.
Bjarna Jónssyni.
Fundarstjóri gat þess, að þess-
um fundi hefði ekki verið ætlað að
deila um gamla og nýja guðfræði
og því legði hann ekkert til máls-
ins að þessu sinni, enda þótt Lud-
vig Guðmundsson guðfræðisnemi
hefði í fyrirlestrum sínum i Nýja
Bíó lýst svo guðfræðiskenslu há-
skóla vors og trú yngstu prest-
anna, að nóg efni væri til aö
minnast rækilega á það á öðruin
stað síðar.
Aðalumræðurnar snerust um
sjálft fundarmálið, og að þeim
loknum var þessi tillaga samþykt
i einu hljóði:
„Safnaðarfundurinn telur mjög
æskilegt að allir húsráðendur
safnaðarins leitist við að hlynna
sem best að sameiginlegum guð-
10°|o af sláttur
af öllum vörum til jóla hjá
Vikar.
ræknisstundUm á heimilum sín-
um.“
Var svo fundi slitið með bæn og
söng og hafði hann þá staðið
nærri 3 stundir (2^ stundar).
S. Á. Gíslason.
Við fullypöum
aS bestu og ódýrustu vörurnar í borginni séu hjá
ARALDI
Hvað segið þép ? .
Þreifið á áður en þér trúið.
Við viljum selja mikið, og til þess erum við nú að selja alt
með óheyrilega miklum afslætti
15 til 33S 0
af öllum vörum nema Saumavélum 10%, Prjónavélum 5%.
Haraldur Árnason.