Vísir - 06.12.1926, Side 3
VlSIR
MANCHETTSKYRTUR
í úrvali, ódýrastar hjá
V I K A R.
Veðrið í morgun.
í Reykjavík hiti 6 st., Vest-
tnannaeyjum 6, ísafirði 3, Akur-
■eyri 4, Seyðisfirði 3, Grindavík ö,
Stykkishólmi 6, GrimsstöSum -t-
2, (engin skeyti frá Raufarhöfn,
HomafírSi né Grænlandi), Þórs-
liöfn í Færeyjum 7, Kaupmanna-
höfn 1, Utsira 6, Tynemouth 6,
Hjaltlandi 7, Jan Mayen 1 st.
— Djúp loftvægislægS við SuSur-
Grænland, á norðvesturleið. —
Horfur: SuSvesturland, Faxaflói,
Breiðafjörður og Vestfiröir: í
dag: Hvass sunnan. Rigning. í
aiótt: Sennilega hvass suðvestan.
Skúraveður. — Norðurland og
Austfirðir: í dag: Vaxandi sunn-
anátt. Hláka. í nótt: Allhvass og
'hvass suðvestan. — Suðaustur-
land: I dag: Allhvass sunnan.
Rigning. í nótt: Hvass suðvestan.
3Páll Steingrímsson,
ritstjóri, hefir legið veikur síð-
an inn fyrri helgi og liggur enn,
-en er þó heldur á batavegi.
Fyrirlestur
dr. Guðm. Finnbogasonar í
Nýja Bíó í gær, um bölv og ragn
og þjóðnýting þess, var ágætlega
sóttur og þótti liinn skemtilegasti.
Leikhúsið.
Þar fell leiksýning niður í gær-
kveldi. Aðgöngumiðar, sem búið
var að kaupa að þeirri leiksýn-
ingu, gilda næst þegar leikurinn
■verður sýndur, hafi þeim ekki
verið skilað aftur í gærkveldi.
Strandmennimir
af „Nystrand" eru nýkomnir
hingað til bæjarins. Með þeim
komu hingað Lárus Helgason og
Jóhann Sigurðsson bændur á
Kirkj ubæj arklaustri á Síðu.
i6. kirkjuhljómleikar
Páls ísólfssonar verða haldnir
í fríkirkjunni næstk. miðvikudag
3íl. 8)4 síðd. með aðstoð hr. Ósk-
,ars Norðmann og hr. A. Wold
■með einsöng og celloleik. Efnis-
skráin verður mjög fjölbreytt. Sjá
augl. á öðrum stað í blaðinu.
Innbrot.
Brotist var inn í búð Kaupfél.
Reykvíkinga í Aðalstræti aðfara-
nótt sunnudags. Hafði kvistgluggi
á þakinu vestanverðu verið tekinn
í burtu og farið þar inn um og
gengið síðan niður í búðina og
inn í skrifstofuna. Litlu eða engu
anun þó hafa verið stolið og hefir
lögreglan þegar haft hendur i hári
'þess, seta valdur var að innbrot-
inu.
J?jófnaður.
Aðfaranótt síðastl. föstudags
var stolið 50—100 krónum úr
ljósmyndastofu Sigríðar Zoega
& Go., hér í bæ. Fé þetta var
eign „Minningarsjóðs Hrings-
ins“, en var geymt þarna til
bráðabirgða. Lögreglan er nú að
,'leyta sökudólgsins.
áSkipshvarfið.
Vísir hitti Axel V. Tulinius að
ENSKAR HUFUR
stórt úrval, ódýrast hjá
VIKAR.
FJÖLBREYTT úrval af sokkum.
Verð frá 75 aurum. Ódýr-
ast hjá VIKAR.
FYRIRLJGGJANDI sérlega stórt
úrval af flibbum, linum og
hörðum, ódýrast hjá Vikar.
Tilbúnir vetrarfrakkar, stöSugt
fyrirliggjandi hjá VlkaiP.
máli í morgun og spurði hann
fregna af Grænlandsfarinu, sem
sagt var í blaðinu á laugardag að
vantaði. — Skipið heitir A m e t a
(ekki Annette), er 175 smálestir
að stærð, nýtt skip og vandað að
byggingu. Hefir það legið í Hol-
steinsborg á Grænlandi, og kom
fyrirspurn hingað í októbermán-
uði um það, hvort hægt væri að
sækja skipið. A. V. Tulinius, sem
er sjótjónserindreki félags þess, er
skipið er vátrygt hjá, leitaði upp-
lýsinga hjá foringjum Islands
Falk, og var það álit þeirra, að
ekki væri gerlegt að sækja skipið
á þessum tíma. — Nokkru síðar
kom bréf hingað um, að noffeka
selveiðaskipið Buskö hefði verið
sent til að sækja Ameta. — Hefir
þegar verið sagt frá atvikum að
því er skipin slitnuðu sundur, og
að Buskö varð að leita hafnar.
Skipin skildu á 6i° 35' n. br.
33° 55' v- k og er Þa® nær miðja
vegu milli Reykjavíkur og suður-
odda Grænlands, ea. 300 sjómílur
héðan. —: Ameta hafði nokkur segl
og getur notað 1 cylinder af vél
sinni, og vistir voru í skipinu til
fimm vikna. — 1 kveld fara tog-
ararnir Austri og Ari að leita
skipsins, og verða skipstjóri og
stýrimaður af Buskö með þeim.
♦
Mme Germaine le Senne
söng í Nýja Bíó á föstudags-
kveldið. )?ar á meðal voru tvö
lög úr Carmen, sem féllu áheyr-
endum mjög í geð, eitt lag eftir
Schumann (Frulilingsnacht),
Elegie eftir Massenet o. fl. prjú
íslensk lög voru á skránni. Hlaut
alt þetta liinar hlýjustu viðtök-
ur og þakklæti áheyrenda. —
Næst syngur frúin annað kveld
kl. 7 Yz í Nýja Bíó.
Bruni við Ölfusárbrú.
í fyrri nótt kom upp eldur í
vörugeymsluskúr, sem átti
verslunin „Höfn“ (áður versl-
unin ,,Hekla“) við Ölfusárbrú.
Var þar aðallega geymd stein-
olía og benzín, kol og þesshátt-
ar. Hafði kviknað í bensíninu
og brann skúrinn til ösku. Vind-
ur var hagstæður svo að hægt
var að verja þau hús, sem næst
voru eldinum, og í mestri hættu
voru af lians völdum, en það
var fjós og heyhlaðat Tjón varð
því eigi annað en að því sem
brann í skúrnum og var það eigi
mjög mikið, að því er Vísi var
sagt í símtali við Tryggvaskála-
Botnvörpungurinn Kári
slitnaði upp í Viðey i gær og
rak á land, en losnaði og komst
aftur á flot með flóðinu sam-
dægurs. — Enginn leki kom að
skipinu og virðist það vera
óskemt. ;
Kvöldvökurnar.
í kvöld lesa upp: Prófessor
Sig. Nordal, frú Theódóra Thor-
oddsen og Árni Pálsson, bóka-
vörður.
Ge^mania
heldur fund í Iðnó á mið-
vikudagskveld. — Dr. Kristinn
Guðmundsson flytur erindi um
það, hvernig pjóðverjar komust
út úr fjárhagsvandræðunum.
Sjá auglýsingu.
Jólatré Hjálpræðishersins.
pegar Reykvikingar ganga
fram hjá „Herkastalanum“ í
kvöld, þá mun þar blasa við
þeim gríðarstórt jólatré, 6V2 m.
á hæð, uppljómað með marglit-
um skrautljósum.
Sjálft tréð er gjöf frá Eggert
Kristjánssyni & Co. til Hjálp-
ræðishersins, en herra Júlíus
Bjömsson raftækjasali hefir
lánað hernum allar perumar
endurgjaldslaust, og síðast en
ekki síst hefir Rafveita Reykja-
vikur annast og útbúið allan
ljósaumbúnað trésins, hernum
að kostnaðarlausu og gefur hon-
um allan þann straum, sem tréð
þarf.
Oss hefir hugkvæmst jþessi
nýbreytni sem meðal til auk-
inna samskota nú fyrir jólin.
pvi þar eð neyðin mun vera
hér miklu nærgöngulli nú en
undanfarin ár, þá dylst oss eigi
nauðsyn þess, að jólaúthlutun
vor verði mun meiri nú, en
nokkuru sinni fyr, og vér mun-
um gera alt, sem í voru valdi
stendur, til þess að svo megi
verða-
Við jólatréð hangirjólapottur,
sem horfir biðjandi á sérhvern
vegfaranda og væntir þess af
öllum Iþeim, sem framhjá hon-
um ganga, að þeir rétti honum
nokkra aura í hvert sinn sem
leið þeirra liggnr þar um — til
jóla. pað verður fróðlegt að vita,
hvað þessi eini pottur fær miklu
safnað til j óla-útlilutunarinnar,
en vitanlega verða fleiri jóla-
pottar hengdir út síðar.
pað verður enginn vörður við
tréð, en vér væntum þess samt,
að það fái að njóta fullrar frið-
lielgi vegna þess mannúðar-
starfs, sem því er ætlað að
styðja. Jólapottinum verður læst
við girðinguna. Minst þú þess,
kæri vegfarandi, að sérhverj-
um eyri, sem þú leggur í hann,
verður varið til þess eins að
gleðja og seðja einhvern öreiga
um næstu jól. pað hafa nú þeg-
ar svo margir leitað aðstoðar
vorrar, að jóla-úthlutun vor má
ekki nema minnu en 6 þúsund
krónum nú i ár, en helst mikið
meiru.
Kristian Johnsen
adjutant.
GENGI ERL. MYNTAR.
Sterlingspund.......'kr. 22.15
100 kr. danskar .... — 121.70
100 — sænskar .... — 122.01
100 — norskar .... — 116.53
Dollar.............. - - 4.5714
100 frankar franskir — 18.56
100 -— belgiskir — 12.78
100 -— svissn. . . — 88.36
100 lírur............ — 20.26
100 pesetar............— 69.86
100 gyllini ..........— 183.10
100 mörkþýsk(gull) — 108.68
Leiðrétting.
FallitS haföi úr auglýsingu Ár-
sæls Árnasonar á laugardaginn á
eftir „Einn 50 aura vindill á dag“
í eitt ár.
Bílst j ór aklúbbnrinn
heldur dansæfingu sína í Heklu miðvikudagian 8. þ. m. kl. 9 síðcL
Áðgöngumiðar seldir hjá Filippusi Bjarnasyni, Baldursgötu 37 a
Mætið stundvíslega.
Kven hússkór 2,75. 3,75. 3,90. 4,50. 5,75.
Kven götuskór 6,50. 7.75. 9,50. 10, 11, 12.
KaFlmannaskÓF 12,- 15,75. 16,75. 18,75. 21.
Barnaskófatnaður allskonar.
Alt nýjar og góðar vörnr. Verðið sýnfr sig sjáltt.
Skóverslnn B. Steiánssonar,
Langaveg 22 A-
Jólin nálgast
Við erum því miður ekki
göldróttir, og getum þar af
leiðandi ekki keypt vörur
heim i dag til að selja þær
með afslætti á morgun; en við
getum selt þær ódýrara en
aðrir, og það gerum við og
getum, vegna þess hvað
verslunarvelta okkar er mik-
il. Við viljum því benda
heiðruðum viðskiftavinum
okkar á að verðið er lægst
hjá okkur eins og að vanda,
þó að við engan afslátt gef-
um.
Bamajólabasarinn var opn-
aður i. des. og eru þar á boð-
stólum feiknin öll af leik-
föngum og jólatrésskrauti,
mun ódýrara en þekst heíir
áður. Komið, og þér munuð
sannfærast.
Enginn afsláttur gefinn,
fast verð á hverjum hlut, sem
sé það lægsta.
VörnhAsið.
Hálsbindi, vetrarhanskar, silki-
treflar, ullartreflar. Ódýrast hjá
Vikar.
Sich'S MMt
er sá besti, heilnæmasti og drýgsti
kaffibætir.
Fæat hjá kaupmanni yðar, i
pk. á x/8 kgr. á 35 aura.
I heildsölu hjá
Sv. A. Johansen.
Sími 1363.
Isl. Smjöp
2.40 pr. i/2 kg. — Riklingur —♦
Tólg — Spaðkjöt — Kartöflur
— Gulrófur og flestar aðrar
matvörur góðar og ódýrar. —<■
Guðmnnöar Sigmundsson,
Njálsgötu 14. Sími 958.
Saltkjöt
í tunnum, afaródýrt. — Kartöfl-
ur — Gulrófur og Hveiti í heil-
um pokum sérstakt tækifæris-
verð. — Sveskjur — Rúsínur og
Súkkulaði. Lægsta heildsöluverð
/Hannes Jónsson,
Laugaveg 28.
Germania
heldur fund miðvikudaginn 8.
des. í Iðnó, kl. 8/4 stundvíslega.
Dagskrá:
Dr. Kristinn Guðmundsson flyt-
ur erindi.
Söngur, veitingar og dans.
Stjómin.
N. N. átti afmæli á laugar-
daginn, stóð aldur hans á tug,
og fanst vinum hans þeir þurfa
að hafa sérstakt við. Einn sendi
honum að gjöf heilkassa af vindl-.
um, annar 3 tegundir, og sjálfsagt
hinar dýrustu, af Spánarvínum,
þriðji Ménn og menntir I—IV.
Hvern gefandann metið þér mest,
lesari góður, eftir gjöfuntun að
dæma? Hver af þessum þremur
gjöfum, sem þó allar munu hafa
kostað svipað, haldið þér að hafi
mest gildi fyrir þiggjandann? i—:
Þann fjórða vissi eg um, úr
mentastétt, sem hafði með stéttar-.
bræðrum sínum verið að sýna há-
stig íslenskrar menningar á full-
veldisdaginn (ekki í „háborginni",
af þvi að hún er ekki til enn þá),
þ. e. verið á ballinu, og hafði því
ekki efni á að gefa neitt!