Vísir - 06.01.1927, Page 2
VÍSIR
B«fnm fyrirliggjandi;
Rio kalíi
(sama góða tegundin og áður).
¥erdid ©1» afap'lágt.
Símskeyti
Khöfn, 5. jan. FB.
Amerísk tillaga um samband
enskumælandi þjóða.
Símað er frá London, að blað-
ið Daily Telegraph telji senni-
legt að merkir stjómmálamenn
í Bandaríkjunum muni styðja
tillögu þá um samband á milli
enskumælandi þjóðanna, sem
William R. Hearst hefir látið
blöð sín flytja og sem hann nú
lætur þau berjast látlaust fyrir.
Daily Telegraph álitur, að
bresk-amerískt bandalag væri
að mörgu leyti ákjósanlegt fyrir
Bretaveldi, einkum vegna
Ástralíu. Mundi þá öruggara
um, að takast myndi að varð-
veita friðinn við Kyrrahafið. En
liinsvegar álítur blaðið, að bresk
-ameriskt bandalag myndi varla
vera samrýmanlegt skyldum
Englendinga gagnvart pjóða-
bandalaginu.
Úr Austurvegi.
Símað er frá Berlín, að á fundi
þeim í Reval, sem utanríkis-
málaráðherrar Finnlands, Eist-
lands og Lettlands mættu á, hafi
verið samlþykt að gera nýja til-
raun til þess að koma á örygg-
issamningum við Rússland.
Utan af landi.
—o—
Akureyri, 5. jan. FB.
Bæjarstjórnarkosningar fara
fram hér i bæ þann 20. janúar.
Á að kjósa fjóra fulltrúa í stað
þeirra, er úr ganga. prír listar
eru komnir fram: A-listinn
(samvinnumenn): Ingimar Ey-
dal kennari og Jón Guðlaugs-
son bæjargjaldkeri. — B-Iistinn
(jafnaðarmenn): Steinþór Guð-
mundsson skólastjóri, Elísabet
Eiríksdóttir kenslukona, Svan-
laugur Jónsson verkamaður og
Jón Austfjörð smiður. — C-Iist-
inn (borgaraflokkurinn): Hall-
grímur Davíðsson verslunar-
stjóri, Indriði Helgason raffræð-
ingur, Kristbjörg Jónatansdótt-
ir kenslukona og Sigurður Sum-
arliðason skipstjóri. — Úr bæj-
arstjórninni ganga tveir úr
borgaraflokknum, einn sam-
vinnumaður og einn jafnaðar-
maður.
Leikfélagið er að æfa Spansk-
fluguna.
Kaupfélag Eyfirðinga hefir
kefpt frystihúsið með bryggju
af nýju eigendum Oddeyrarinn-
ar.
Frosthörkur hafa verið hér
síðustu daga.
Vestmannaeyjum, 5. jan.FB.
Fátt tíðinda hér, nema tíð
liefir ’verið stirð, gaddbylur í
gær og fyrradag og mikið frost.
Net loftskeytastöðvarinnar slitn-
aði í fyrradag, en mun nú vera
komið í lag.
Heilsufar er dágott. Inflú-
ensa hefir verið dálitið að stinga
sér niður, en ekki eru mikil
brögð að henni. Sjósóknir eng-
ar. Skipaferðir engar.
Bæjarstjómarkosningar fara
fram hér innan skamms, senni-
lega í lok þessa mánaðar. Gera
má ráð fyrir að minsta kosti
tveimur listum. Kjósa á 3 full-
trúa í stað þessara þriggja, er
úr ganga: Viggó Björnssonar,
bankastjóra, síra Jes Gíslasonar
og Halldórs Guðjónssonar.
J?jórsá, 6. jan. FB.
pjórsá hefir gert nokkurn
usla i Villingaholts og Gaul-
verjabæjarhreppum.Sprengdi á-
in af sér ís í hlákunni um jólin
og hljóp upp nálægt Mjósundi
í ViIIingaholtshreppi. Einhverj-
ar skemdir munu hafa orðið á
flóðgátt áveituskurðarins hjá
Mjósundi, brýr af skurðum
sópast burt o. s. frv. Annars
vita menn ekki til, að veruleg-
ur skaði liafi orðið af flóði
þessu. Áin flæddi dálítið upp á
láglendi, þar sem hún hefir ekki
flætt áður, svo menn viti ,og þar
sem hlöður eru grafnar í jörð
mun vatn hafa flætt i þær. — Á
milli bæja var farið á bátum.
Vatnið er ekki runnið alveg af,
en fór tiltölulega fljótt að fjara
út. Heilsufar sæmilegt þar sem
til spyrst. Ágætisveður, þítt og
hlýtt, er nú komið eftir frost-
hörkuna. I fyrradag voru hér
17 stig C. og eina nóttina 20 st.
Hveranotknn.
—o—■
I.
Á þessu ári, sem nú er at5 hefj-
ast, niun gangskör verða gerö aö
því a'ö rannsaka, hvert gagn megi
verða aö hverum og laugum hér
á landi, en þaö gagn er mikitS og
rnargháttaÖ, og eru hverar og
laugar einhver skemtilegustu gætSi
þessa lands. Þegar landsmönnum
hefir lærst að hagnýta þau hlunn-
indi, munu þeir furtSa sig á því,
hve seinir menn hafi ortSitS til
framkvæmda í þessu efni, því aö
ekki vantar þatS, aö oft hefir veriB
á þaö minst, aö gagn msetti hafa
af hverunum,
Þó atS hvera sé lítt getiö í forn-
um fræöum, íslenskum, þá er eng-
inn efi á þvx, aiS landnámsmenn
hafa furiSaö sig á þeim, og era
örnefni þar ólygnust vitni. En
lengi hefir mönnum oröiö lítiö
gagn aö hverurn og laugum. Þó
befir sund verið snemma iökatS í
laugum og þvottar þvegnir, og
þurraböö voru á nokkurum stöö-
um og þóttu gefast vel viö. sum-
urn kvillum. Á sumurn stöðum
mun hafa veriö soiSiö í hverum
um langt skeiö, og brauð hafa
víða veriö bökuö viö jarðhita, en
þá mun upptalið það gagn, sem
orðið hefir að hverum hér á landi
til skamms tíma.
Á átjándu öld var saltsuðu
komið á stofn á Reykjanesi við
Isafjarðardjúp, en ekki bar sá iðn-
aður sig. Höfðu menn lengi áður
ráðgert að sjóða salt úr sjó við
hverahita, og víst hefir óhentugur
útbúnaður valdið því, að saltsuð-
an svaraði ekki kostnaði. — Þó að
%
rnjög lítið væri gert til þess . á
síðustu öld, að nota hverahita, þá
hafa menn þó trúað því, að gagn
rnætti hafa af hverum. Til dæmis
segir Magnús prestur Grímsson
svo: „ísland er á að sjá fátækt
að náttúrugæðum og hrjóstrugt,
en þó mun í þvi leynast margt
það, sem mikið gagn mætti að
verða. Af sumu vitum vér, en höf-
um annað hvort ekki dug í oss
til að nota það, eða efni á því,
t. a. m. hverina, sem víða eru, og
mikil not mætti af hafa ...(sjá
Úrvalsrit M. G., bls. 182). — Út-
léndingar, sem hér hafa ferðast,
hafa og margsinnis ritað um þau
not, sem hafa mætti af hverum,
og er sérstaklega ástæða til að
minnast skemtilegrar greinar, sem
frú Hulda Garborg ritaði, og lét
birta í ísafold árið 1903 eða 1904.
Frú Garborg ferðaðist hér surnar-
ið 1903, og hvatti hún menn til
þess að nota hveravatn til þess að
hita upp vermihús. Er það eftir-
tektavert, að svo liðu um tuttugu
ár, að enginn varð til að sinna
þessu, þó að það hafi nú að lok-
um komist til framkvæmda, en þó
í smáum stíl, móts við það, sem
verða mætti.
CHEVROLET
Nú í vetur byrjaði General Motors að smíða sérstaka gerð af 5
manna opnum Chevxolet bifreiðum, sem eru svo útbúnar, að hægt
er á nokkrum mínútum að taka af aftari hluta yfirbyggingarinnar
og setja í staðinn bretti eða kassa til vöruflutninga.
Þessi gerð er sérlega hentug fyrir stærri sveitaheimili og aðra
sem hafa töluverðan flutning á fólki og vörum.
Chevrolet bifreiðarnar eru við-
urkendar fyrir kraftgóða og ben-
sínsp'ara vél, og verða þess vegna
mjög ódýrar og skemtilegar í
notkun.
Þessi nýja gerð af Chevrolet
kostar ekki. nema kr. 3600.00 upp-
sett í Reykjavík.
Aðalumboðsmenn á íslandi.
Jóh. Ólaisson & Co. Reykjavík.
'0P’ Bestu og ódýrustu
Sólarolíu
selur Alfred Olsen & Co. a/s. Kebenh.
beint til kaupmanna, kaupfélaga og stórútgerðarmanna.
Umboðsmenn: Þópður Sveinsson & Co.
Eftir Skúla Skúlason.
II.
Björgvin er ekki norskur bær
í orðsins fylsta skilningi. pang-
að hefir safnast fjöldi útlend-
inga um undanfarnar aldir,
kaupmenn, verslunarmenn, sjó-
arar og iðnaðarmenn og aukið
iþar kyn sitt, eins og ljóst má
sjá af bæjarskránni. par úir og
grúir af allskonar útlendum
nöfnum — einkum þýskum. En
flest þessi nöfn eru orðin göm-
ul í borginni, margar ættimar
hafa átt þar heima í margar
aldir og eru orðnar svo innlend-
ar sem þær geta orðið. pessi
norsk-þýski kynstofn telur sig
vera hina eiginlegu íbúa borg-
arinnar. Er það fólk flest vel
gefið og dugandi, fjörlyndara
en Norðmenn yfirleitt og meira
á lofti. pjóðlegt vill það vera,
eins og oft er um fólk, sem
komið er frá útlöndum. Annar
meginhluti Björgvinjarbúa er
bændafólk úr nágrannahéruð-
unum, sem bærinn hefir dregið
að sér; kalla hinir útvöldu það
„stríla“. peir eru auðþektir frá
öðru fólki, þéttir á velli og þétt-
ir í lund, dugnaðarmenn en
nokkuð sérvitrir og þröngsýnir.
Og svo er iBjörgvin fólk úr Nor-
egi endilöngum, frá Nordkap til
Líðandisness. par eru allraþjóða
kvikindi og allrar þjóðar kvik-
indi.
Björgvinjarbúar tala „Björg-
vinsku“; syngja það sem þeir
segja, hægt og með semingi,
eins og þeir ætlist til að maður
taki vel eftir því. peir segja „r“
með gorhljóði sem er miklu
tignarlegra en það danska og
kemur með öldufalli xir kokinu,
og tala hátíðlega. Strílarnir tala
sitt „móðurmál“, og best kunni
eg við mál Sygna, sem ennþá
nota langt „á“ í stað „0“ (aa) i
mörgum orðum. peir eru fjöl-
rnennir í Björgvin.
Björgvinjarbúar eru montn-
ustu menn sem jeg hefi fyrir
hitt. Björgvin er i þeirra augum
riki í rikinu, skipað einvalaliði
í öllum greinum. Tali maður
við kaupsýslumanninn,' dregur
hann ekki dul á, að verslunar-
Tegia Yörntalningar
verður biidin lokuð
allan daginn á morgun.