Vísir - 29.01.1927, Blaðsíða 4
VISIR
Góðar búkonnr nota Gold Dnst
til alira þvotta. — Þær vita að það vinnur best og gerir þeim þvottadaginn
alt að þriðjungi ódýraii. — Fæst alstaðar. — 1 beildsölu hjá —
StuFlauguF Jónsson & Co. — Sími 1680.
Sjóvátryggingarfél. Islands
Reykjavík
tryggir fyrir sjó- og brunahættu með bestu kjörum, sem fáan-
teg eru.
Vegna þess, að félagið er al-íslenskt, gerir það sjálft upp alla
skaða hér á staðnum, án þess að þurfa að leita til annara landa,
sem tefja mundi fyrir skaðabótagreiðslum.
Ekkert tryggara félag sfarfar hér á landi.
Til þess að vera örnggir nm greið og góð skil
tryggiö alt adeins lijá. Sjóvá—
tryggingarfélagi íslands.
Sjódeild: Simi 542. Brnnadeild: Sími 254. Frkvstj.:Sími309
ssoooöotsootííSoatioooGOtiOííeíSö;
DAKSSKÓLI
iLNor
Siðasta dansæfing í þess-
um mánuði verður sunnu-
daginn 30. þ. m. kl. 9—1
í Bárunni.
SOOOOOOOOOOOÍSCÍSOtSOOOOOOOOtS
BARNAF AT A VERSLUNIN
á Klapparstíg 37. Nýkom-
ið silki, isgarn, kjólar og
treyjur. Ennfremur mikið af
ódýrum kvenhönskum.
Blásteinn
100 — 250 kg. óskast keypt hér á
staðnum nú þegar. A. v. á.
Yisis'aífiö gerir aila glaða
MA LTOL
Bajerskl
PILSNER.
BEST. - ÓDÝRAST.
INSLENT.
Munið eftir ódýru og fallegu
kvenkápunum í Fatabúðinni. —
Ennfremur Telpukápum, sem
hvergi eru eins ódýrar og fallegar.
Káputauin best og ódýrust í
Fatabúðinni.
Best að versla í
Fatebúðmni.
Bjúpnr.
Rjúpur á 40 og 45 aura, ný-
tilbúið fiskfars, nýtilbúið kjötfars.
Alt ódýrast.
Kjötbúðin I Von.
Sími 1448 (2 línur).
Kvenkápneíni
margar tegundir þ. á. m.
Plyds og Astrakan
seljast nú með 15 — 33% afslætli.
í NjSfiM § fjeit
Til leign
2 stór rakalaus kjallaraherbergi
nálægt miðbænum. Hentug til
vörugeymslu. A. V. &.
I
LEIGA
I
Piano til leigu, afar ódýrt, á
Grettisgötu 54. Sími 1356.(545
w
FÆÐI
4—5 menn geta fengið fæði
fyrir 65 kr. um mánuðinn. A.
v. á. (548
r
VINNA
Góð og ábyggileg stúlka ósk-
ast. A. v. á. (544
Stúlka óskast í vist ulanvert í
borginni. Uppl. á Hverfisgötu
67. (541
Menn teknir i þjónustu á Berg-
staðastræti 34 B, uppi. Einnig
tekið prjón og þvottur. (540
Geri við aluminium, kopar,
sink og tin ílát. Móttekið hjá
Geir Zoéga, kjallaranum. (537
Saumuð karlmannaföt á
Nýlendugötu 16. Lág sauma-
laun. (417
Guðm. Sigurðsson, klæðskeri.
Hafnarstræti 16. — Sími 377.
Athugið: Sauma ódýrast ný föt
fyrir fólk, hreinsa, pressa og
geri við gömul og ný föt. Snið
föt og máta fyrir þá sem óska
að sauma heima hjá sér. Notið
tækifærið. Sparið peninga. Fljót
afgreiðsla. (503
í
TILKYNNIN G
ODDUR (áður Harðjaxl) heitir
hið nýja timarit Odds Sigur-
geirssonar, og kemur það út
einu sinni i mánuði. Ivostar að
eins 15 aura. Fæst hjá ritstjór-
anum og söludrengjum. (543
2000 lcrónur óskast til láns i
arðvænlegt fyrirtæki. Tilboð,
merkt „2000“, sendist afgr. Vís-
is fyrir 1. næsta mánaðar. (538
Hár og augnabrýr litaðar.
Hárgreiðslustofan, Laugaveg 12.
Sími 895. (305
Frá Alþýðubrauðgerðinni. —
Til minnis: Aðalbúðin, Lauga-
veg 61. Sími 835. Brauð, kökur,
mjólk og rjómi. (711
r
TAPAÐ-FUNDIÐ
1
io króna seðill fundinn. Vitjist
á afgreiðslu Vísis. (888
Skinnhanskar (karlm.) og
kvenvetlingar hafa verið skildir
eftir í Bókaverslun Sigfúsar Ey-
mundssonar. (534
r
KAUPSKAPUR
Taða til sölu . Traðarkotssundi
3. Sigurður Jónsson. (551
Nýhrætt meðalalýsi er selt
á Laugaveg 18 C (3 pel. á 1 kr.)
(539
Fjóshaugur til sölu nú þegar
á Bergstaðastræti 6 C. — Sími
1544. Á sama stað getur stúlka
fengið leigt með annari. (542
Soyn-flöskur keyptar á Óð-
insgötu 3, á 10 aura stykkið. (536
Ef þér þjáist af hægðaleysi, er
besta rá'ðiö að nota Solin-pillur.
Fást í Laugavegs Apóteki. Notk-
unarfyrirsögn fylgir hverri dós.
(420:
Nýlegur ofn til sölu, af sér-
stökum ástæðum. A. v. á. (486'
í B Ú Ð.
Góð íbúð, 3 herbergi, stúiku-
herbergi og eldhús, með nútíma
þægindum, óskast 14. maí. — .
Tilboð, merkt „Ibúð“ sendist á
afgr. Visis.
prjú herbergi og eldhús til
leigu 1. febrúar. Sími 1516.(550
Tvær stofur til leigu: á fyrstu
hæð og i kjallara. Sérinngangur.
Uppl. Bergstaðastræti 51. (554
1
Verkstæðispláss óskast leigt
nálægt miðbænum. Tilboð,
merkt Verkstæði, sendist Visi.
(555-
Tvö samliggjandi herhergi í
nýju og vönduðu húsi, með öll-
um þægindum (miðstöð, haði
o. s. frv.) til leigu nú þegar fyr-
ir einhleypan mann (eða tvo).
Til sýnis á morgun eftir kl. 1 á
Nýlendugötu 22, uppi. (549
Stofa til leigu á Urðarstíg 8.
(547
Ibúð óskast 14. maí. Tilboð
sendist Vísi, auðkent „14. maí“..
(549
Herhergi til leigu á Lindargötu
10 B. (535.
Herbergi með húsgögnum
óska 2 menn að fá leigt yfir
febrúarmánuð. Uppl. í sima 643,
kl. 6—7 í kveld. (533-
Herbergi til leigu fyrir ein-
hleypa á Klapparstig 5. (505
Fj elagsprentsmiB j an.
I
AST O G ÓFRIÐUR.
líf og dauði hans sjálfs, hersins og jafnvel alls Prúss-
lands.
Við hlið hans var Daun marskálkur með lier sinn
eins og einhver ógnarbildur, sem maður veit, að er
í nánd, en getur þó ekki séð eða náð tökum á.
3. nóvember lenti herunum loksins saman.
Daun var á Siiptitzerhæðinni við Torgau og hafði
þar óvinnandi vígi. Og þó lagði konungur til atlögu
við liann — hlaut að gera það.
Á hina hliðina var herdeild Zietens hershöfðingja,
en konungur hélt yfir Dómitscherheiðina með aðal-
herinn.
Nú heyrðist áköf fallbyssuskotahríð álengdar og
datt honum i hug, að Zieten hefði þegar lagt til orustu.
Hann réðist þvi þegar á fjandmennina með framlið
sitt, enda þótt alt riddaraliðið, stórskotaliðið og nokk-
ur hluti í'ótgönguliðsins væri langt á eftir honum.
Frá hæðunum var tekið á móti hinum liraustu há-
rekkum með ákafri skothríð og féllu þeir unnvörp-
um. Nýir herflokkar ruddust fram, en það fór á sömu
leið og stráféllu þeir fyrir magnaðri kúlnadrífunni.
Konungur sá þetta og heyrði fullur skelfingar.
„Hvaða ógurleg skothrið er þetta! Eg hefi aldrei
heyrt slíka,“ sagði hann við einn aðstoðarforingja
sinn.
Skothríðin varð æ tryldari. Himininn var þakinn
regnskýjum, en þau liðu nú burt og skein sólin á
skjálíandi vígvöllinn. En liún líktist ekki neinni von-
arstjörnu í þetta sinn. Hún skein á alblóðugan víg-
völlinn, þar sem lietjur Friðriks konungs hörðust
við dauðann.
Öll þessi feikna áreynsla kom að engu gagni. Fót-
gönguliðið varð að Iiopa og gat ekki lengur staðist
hina mannskæðu stórskotahrið.
En loks, þegar mest á lá — klukkan var þá orðin
fjögur siðdegis — kom prússneska riddaraliðið til
Dómitscherheiðarinnar. Riddaraflokki þeim, sem
prinsinn af Holstein var fyrir, tillieyrðu einnig her-
deildirnar Bayreuth, Sclnnettau og Spaen og er nafns
þeirra getið með ódauðlegum heiðri i hvert skifti, sem
minst er á Torgauerorustuna.
pað var stór hætta á ferðum þegar riddaraflokkar
þessir hleyptu fram úr skóginum, þvi að sigurinn
var þegar farinn að verða Austurríkis megin. pá
gerðu þeir áhlaup á óvinina, án þess að skipta sér i
reglulegar fylkingar — þessar prúðu lietjur, riddar-
arnir frá Höhenfriedberg og Leutlien, hugumdjarfir
og sigri lirósandi eins og herskörum Friðriks kon-
ungs einum var tamt að þeysa fram til sigurs eða
falla.
Reutlingen höfuðsmaður fór fyrir herdeild sinni
og var i vígahug miklum. Hann var fremstur allra
með herflokk sinn. Heiðin var mýrlend og djúpir
skurðir á henni hingað og þangað.
í þvi hann sá óvinaherinn fram undan sér, varð
allmikil á á vegi lians. Hún var of djúp lil að riða
hana og hreiðari en svo, að hestarnir gætu stokkið
yfir liana — að mista kosti leit það svo út.
En yfir liana varð hann að komast — það var ekk-
ert umtals mál og hver mínútan var dýrmæt.
„Áfram!“ sripaði höfuðsmaðurinn.
Hestur lians Iienti sig eins og örskot yfir ána og
öll lierdeildin þeysti á eftir honum með einhuga of-
urkappi. Fáeinum mistókst stökkið, en flestir kom-
ust yfir og gerðu nú snarpa atlögu að varnarlausri
fylkingarhlið óvinanna. Fylgdu þeir allir Reuthngen
fast eflir.
Fótgöngulið óvinanna tók nú að riðlast og var mik-
ill hluti þess hertekinn. Hin snarpa riddaraatlaga
hafði rutt sigrínum braut.
pó var hann ekki vís enn. Daun átti sifelt nýjum
hersveitum fram gegn Prússum og var ósýnt hverjir
sigra mundu. Friðrik konungur var sífelt þar, sem
kúlnadrífan var þéttust og harðast var harist og
eggjaði sína menn.
Kúla kom í brjóst konungi og féll 'hann af hestin-
um. Hinir trúu þegnar hans, er þar voru nærstaddir,