Vísir


Vísir - 16.03.1927, Qupperneq 2

Vísir - 16.03.1927, Qupperneq 2
yisiR Böfnm nú fyrfrliggjandl: pFamons1 hveiti í 50 kg. léreftspokam. ,Oiiota‘ do. - — — ,Boffalof do. - — — VerSið er a8 mun lægra en síðast er vér höfðum þessar tegundir. AHar þessar tegundir eru frá sömu myllu og „Glenora". Það eitt er nseg trygging fyrir vörugæðum. m 233 Símskeyti , Khöfn 15. mars. FB. Rússar og Pólverjar. Sítnaö er frá Berlín, aö blöðin í Póllandi skýri frá því, aS stjórn- irnar í Rússlandi og Lettlandi hafi tjáö sig sammála um aöalatriöi hlutleysissamnings. Segja pólsku blöðin tilgang rússnesku ráöstjóm- arinnar meö því að koma á hlut- íeysissamningi við Lettland, aö koma í veg fyrir aö myndaö veröi and-rússneskt varnarsamband með- al ríkjanna á vesturlandamærum Rússlands. Englendingar ánæg'Öir meÖ gerðir Genffundarins. Símaö er frá London, aö almenn ánægja sé út af árangrinum af Genffundinum, einkanlega þeirri tilhögun, aö internationalt varðhð veröi notaö í Saar-dalnum. Hins vegar er taliö, aö ánægja yfir gerö- tun fundarins veröi ekki almenn í Þýskalandi, og búast menn við því, aö þær verði tilefni til árása í þinginu gegn Stresemann. Utan af landi. —0— Vestmannaeyjum 15. mars. FB. Einn bátur á sjó í dag. Blikinn misti mann útbyröis, Magnús Geirsson, Austfirðing. pjórsá, 15. mars. FB. Ágætt tíðarfar. Heilsufar dá- gott, nema kíghósti er viða. — I Sauðholti er altaf flóð öðru hverju og virðist aftaf vofa yf- ir, ef vatn vex í ánni. Fyrir helg- ina varð að sundríða að bænum. Vatnsflóð er sífelt mikið kring- um Sauðholt og eru býsna ískyggilegar horfur um þessi flóð þar. Borgarnesi, 16. mars. FB. Ágæt tíð, hláka og hlýindi. Heilsufar heldur gott; kíghóst- inn er að vísu viða, en yfirleitt vægur. Fyrir nokkrmi lést hér por- steinn Pétursson bóndi að Mið- Fossmn í Andakíl, dugnaðar- bóndi, um sextugt. Hafði hann átt við veilindi að striða um hríð. Verkamannafélagið í Borgar- nesi á nú í samningum við vinnuveitendur kauptúnsins um kaupgjald. Undirbúningur undir brúar- gertí á Hyitá hjá Ferjukoti er byrjaður. Einnig mim eiga að dytta að vegum, er skemdust í flóðunum í vetur. Finnbogi porvaldsson verk- fræðingur er hér staddur og starfar að bryggjumælingum. Var hann hér i haust og gerði mælingar og áætlanir. Nú mun helst vera i ráði, ,til þess að forðast dýpkanir og geypikostn- að af henni, að byggja bryggju á suðurodda Brákeyjar og brú yfir Brákarsund. En fullnaðar- ákvaðanir hafa auðvitað engar verið teknar enn. Frá Alþingi. Efri deild. Þar var aðeins eitt mál á dag- skrá í gær, og var þaö tekið út, sennilega með hliðsjón af því, aö tveir þingmenn deildarinnar (IHB og JJÓs) voru sjúkir. Neðri deild. Þar voru þessi mál til umræöu: 1. Frv. til L um stöðvun á verð- gildi íslenskra peninga. Fyrsta umræða hélt áfram í gær, og varö henni lokið, líklega mest sakir þess, aö forsætisráöherra var ófá- anlegur til að halda nema eina stutta ræðu. Vildi hann fá frv. felt þegar í stað, en ekki tók deild- in vel í það. Sendi hún þaö til 2. umr. meö 20:6 atkv., og sögöu þessir nei: Bj. Línd., H. Kr., J. Kj., J. Ól., M. Guöm., M. Jónss.; allir aðrir viöstaddir þingmenn sögðu já. 2. Frv. til 1. um breyting á 1. um fiskimat, 2. umr. Sjávarútvegs- nefnd neðri deildar flytur frv. þetta til að koma samræmi á fiski- matið í landinu, þannig að einn veröi skipaöur yfirfiskimats- maöur, og fari hann eftir- listferöir um landið í þessti skyni. Pétur Ottesen vill koma þessu öðru vísi fyrir, og bar fram brtt. í þá átt. Er hún á þá leið, að yfirfiskimatsmenn skulu árlega eiga fund með sér til að ræða um samræming og endurbætur á fiski- matinu. — Auk þess skal a. m. k. einn þeirra annaöhvort ár (eöa tveir þriöja hvert) fara til Miö- jarðarhafslanda, til þess að kynna sér kröfur neytenda um verkim fiskjarins og alla meöferð. Kostn- að af þessu á ríkissjóður oö borga. Umr. var ekki lokið, og máliö tekiö af dagskrá. 3. Frv. til sveitarstjómarlaga, 2. umr. Allshn. haföi athugað frv. og lagði til aö.þaö væri samþykt óbreytt. Fann deildin ekki heldur ástæöu til annars og sendi það til 3. umr. 4. Frv. til fátækralaga. Þriöja umræöa þessa máls byrjaði lítið eitt, en-varð eigi lokið. Lá fyrir sandur af brtt., úr ýmsum áttmn, en frá efni þeirra verður eigi skýrt að sinni. önnur tnál voru tekin af dag- skrá. Fiskverslnnin er fyrirsögnin á „fáum athuga- se.mdum“, sem hr. Gunnar Egil- son þykist þurfa að gera viö skrif mín og skýrslur um þetta mál, í Morgunblaðinu, Verslunartíöind- unum og Vísi. — Það er naumast að hr. erindrekanum hefir orðið bumbult af ]>essum skýrslum, því hvorki fer meira eða minna en 31 dálkur í Verslunartíöindunum fyr- ir þessum „fáu athugasemdum". Hr. G. E. byrjar með því að vitna í grein imína í Morgunblað- inu í febrúar 1926, og víða kemur hann við skýrslu mína til Stjr. 1923, en það er sem hann fyrst vakni af þungum svefni og við i!la drauma, þegar mér verður það á, að segja um erindrekastarfið á Spáni, það sem flestir hugsa og tala um manna á milli. Þetta mikla 16 síðu málæði hr. G. E. er svo illa framreitt, að það þarf góðan tíma til að átta sig á því og fá úr því samanhangandi heild, en mergurinn málsins skilst mér þó helst vera sá, að það sé ódæði, að Iáta sér detta í hug, aðra sölustaði en Pyreneaskagann og ítalíu, fyrir fiskframleiðslu vora, og síst Suður-Ameríku, ’sem hann þó í öðru veifinu viðurkenn- ir, að séu einu stöðvarnar, umfram hinar framangreindu, sem vakið geti von um nýtt verksvið, en í hinu veifinu gerir hann sér far um að mðurlægja og tortryggja þann markað, og hyggur sig til þess ekki þurfa að seilast út fyrir skýrslur mínar. En svo eg viðhafi herrans eigin orð, þá eru þessar ályktanir mildast sagt æði fljót- færnislegar, ef ekki liggur þá fal- inn fiskur undir steini. Það er óþarfi fyrir h'r. G. E„ að væna mig um, að eg vilji villa mönnum sýn, utp S.-A.-markaö- inn. Til þess hefi eg of oft haldið því fram, að Miðj.hafs-markaður- inn, af skiljanlegur ástæðum, hlyti fyrst um sinn að verða aðalathvarf vort. —• En margt bendir til þess síðari árin, sérstaklega síðan fram- Ieiðslan jokst svo hröðum fetum, að það sé meira en valt, að byggja allar framtíðarvonir sjávarútveg- arins, á þessuím stöðvum. - Portú- galsmarkaðurinn er að vísu gríðar mikill, síðastl. ár um 43 þús. tons, sem mun vera mun meíra en allur innflutn. til Spánar, og þar höfum vér þó sama sem engin ítök. — Eg hefi því hvatt til þess að reyna með reglubundnum smærri send- ingum, smátt og smátt að ná þar ítökum, og helst að styrkja ungan, duglegan mann til að taka sér þar aðsetur. — Þá er Suður-Ameríku- markaðurinn. Vegna ýmsra ann- marka, sérstaklega með verkunar- mátann, umbúðirnar o. fl„ tekur Iangan tíma, að ná þar verulegum markaðstökum. Eg hefi því í seinni tíð gert mér töluvert far um, að fá menn tii að sinna þessum mark- Hér er sðnnnn af Virginia cigarettum F|ne Virglnia nr. 1 aði, með þvi að senda þangað i— 2 ár fyrst um sinn, reglubundnar smásendingar, og fyrir forgöngu mikilsmetins fjármálamanns þessa bæjar, lítur út fyrir að nú sé að koma skrið á þetta mál. Þegar eg fæ tóm til að góma aðalþræðina í framangreindum miklu málalengingum hr. G. E„ þá mun eg víkja nánar að öllu þvi, sem einhverju máli skiftir, og birta það í Verslunartíðindunum. —■ En af því að S.-A.-málið, sem stend- ur, er á dagskrá hér, verð eg hér, með sundurliðun, að sýna fram á að hr. G. E. fer með blekkingar, er hann staðhæfir, að eg taki að- eins nokkurn hluta kostnaðarins til S.-A., til þess að láta söluhorf- urnar þar sýnast betri en þær raunverulega séu. 1 skýrslu minni 25. okt., er til- greint verð í S. Paulo, um miðjan sept. 150 Milreis per kassa á 58 Icíló, og reiknað út í ísl. krónum 268.00 per skippund. Hér frá hefi eg dregið allan kostnað, með krón- um 90.00, Og verða þá eftir sem svarar til fob. kr. 178.00 per skip- pund. — En drádreginn kostnaður er þessi: Flutningskostn. til San- tos, svk. gjaldskrá Eimskipafél.pr. skpd. 20.00. Kassaumb. 11.00. Sjó- vátr. & 3 mán. disconto 5.00 = 16.00. Áætlað flutn.gj. til Santos- S. Paulo 5.00. Tollur og verðt. 32.00 = 37.00. Kælihúsgeymsla og umboðslaun 2% = 7.00. Rýrnun í vigt fyrir meiri þurk en til Mið- jarðarhafs 10.00 = kr. 90.00 á skpd. Sem heild ætti þessi kostnaðar- áætlun að standast. — Hugsast getur að umb. séu reiknaðar full- lágt, ef þær ættu að kaupast hér í Rvík, en þess gerist ekki þörf. — Við útreikning er Milreis reikn- að á 7%g d., en var þennan ciag yy2 d., sem samsvarar Brúttó i'úml. 284 kr., með 22 kr. gengí. — Það verður því trauðla sagt, að eg hafi farið óvarlega í út- leikninginn. Um hina staðina er það að segja, að þar er alt hið sama frádregið, nema tollur og kælihússgeymsla, serii ekki kemur til greina af því verðið þar er miðað við cif-verð, eins og hinn mikli verðmunur í S. Paulo t. d., og Rio, ber með sér. — En geta má þess þó, í þessu sambandi, að gengið á Milreis mun víðast hvar reiknað lægra en það raunverulega var á hinum ýmsu tilfærðu tímum. Eg hefi í bili ekki tóm til að fara nánar út i útreiknings-til- færslur hr. G. E. í Portúgal o. s. frv., enda skiftir minna þó þaö bíði. En það verður athugað síðar. Framangreint er nægilegt til að sýna, á hvaða rökum, staðhæfing- ar hr. G. E. eru bygðar hvað Bras- ilíu snertir, og svo mun reynast víðar, þegar nær er gengið. Reykjavík, 15. mars 1927. Pétur A. ólafsson. HæstarétbrdéBir var upp kveðinn í dag, í máli því, sem réttvísin lét höfða gegn hjón- unum Guðbirni Jónssyni og Jón- önnu Stefánsdóttur á Reykjarhóli í Fljótum í Skagafirði, fyrir illa meðferð á drengnum Jóni Jóhanns- syni frá Sauðárkróki. Þessa máls hefir eitt sinn verið lauslega minst í Vísi, þegar samskota var leitað handa drengnum, og síðan hefir Vísir flutt gjafalista nálega’ á' hverjum degi. Fé það, sem safn- ast hefir, nemur fullum 1700 króu- um, og er geymt í Landsbankan- um. Hér skal stuttlega skýrt frá helstu atriðum þessa máls, sem er eitt hið átakanlegasta, sem komið hefir fyrir islenska dómstóla síð- ustu áratugi. Sumarið 1924 var Jón litlí Jó- hannsson (þá 9 ára gamall) lán- aður til snúninga að Reykjarhóli, til fyrrnefndra hjóna, sem bæði eru ung. Hann virðist hafa kom- ið þangað fullfrískur. Eitthvað fimm vikum síðar er stúlka þar á ferð um landareignina, og kem- ur auga á drenginn, þar sem hann liggur á grúfu úti í haga, með báðar hendur í buxnavösum, og lætur ekkert á sér bæra. Fer hún þá að tala við hann, en það var illskiljanlegt, sem hann sagði. Flutti hún hann þá heim að bæu- um Saurbæ. Bóndinn í Saurbæ segir svo frá komu drengsins, í bréfi til oddvita: „Eg sat inni og vissi ekki fyr en stúlkan kom með hann inn úr baðstofudyrunum. Því lík sjón, andlitið blásvart og hend- Ekta Wo 'W M ydjjfo Gillettevélar og Gilletterak:- yyf'fyí fáat nú sem fyr, hj4 mér. Verðið hvergi leegra. VÆi iriaÁon

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.