Vísir - 19.03.1927, Blaðsíða 2
VíblK
)f te ™hmsO lsishC
Höfnm fyrirliggjandi:
Lauk,
Kartöflur.
Stundum er ekki tími
til þess a5 fara heim
í kaffi, og jafnvel erf-
itt að skreppa út til
Rosenberg. Ómögulegt
er þó að komast af án
einhverrar næringar.
M ir til ráfl
ifið Eiessu
Á leið til vinnu skjótist þér inn í næstu búð og kaupið
einn pakka af
TOBLERONE,
Það er Nærandi, Hressandi. Ljúffengt,
og engin tefst írá vinnu þó að hann fáí sér bita við og við.
M
Tólfl
i tunnum, kössum og skjöldum.
Sími 1020.
Símskeyfi
Iíhöfn, 18. mars. FB.
Rússar og Svisslendingar.
Símað er frá Genf, að sá orð-
rómur leiki á, að tilraunir séu
gerðar til þess að útkljá deilu-
mál þau milli stjórnanna í Sviss
og Rússlandi, sem komu upp
eftir morðið á fulltrúa Rússa á
Lausannefundinum 1923. Hafa
stjórnirnar síðan deilt um ýmis-
legt viðvíkjandi máli þessu og
eigi ræst úr og liefir rússneska
stjórnin, síðan morðið var fram-
ið, neitað að taka þátt i ráðstefn-
um, sem haldnar hafa verið í
Sviss.
Frá Kína.
Símað er frá London, að inn-
byrðis deilur Canton-manna
hafi þegar haft áhrif í þá átt að
tefja fyrir því, að herinn sæki
fram af jafnmiklum krafti og
til þessa. Jafnframt er af Can-
tonmanna hálfu lögð enn meiri
áhersla á undirróður gegn Eng-
landi.
Utan af landi.
Vestmannaeyjum, 18. mars.
Fiskflalningavcl hefir Gísli
Johnsen konsúll fengið og sett
upp hér. Var hún sýnd bæjar-
búum í dag og gekk ágætlega.
Fiskimatsmaðurinn kvað hana
fletja prýðilega. Eftir hraða
hennar í dag að dæma, fietur
hún um 1000 fiska á klukku-
stund. petta er fyrsta og eina
vélin hér á landi af þessu tagi,
en eftir þeirri reynslu, sem hún
virðist ætla að gefa, er enginn
vafi á að þessar vélar eiga
framtíð fyrir sér hér á landi og
verða sennilega taldar nauðsyn-
legar í hverri veiðistöð áður en
langt um líður.
Afli fremur tregur enn þá. 1.
mars var aflinn orðinn 4197
skippund.
Hersir.
Akureyri, 19. mars.
Besla tið, aflabrögð lítil. —
Hrognkelsaveiði að hyrja. —
Kíghóstinn kominn liingað,
nokkur tilfelli væg.
í sumar verður unnið liér
áfram að hafnarvinnunni, sem
byrjað var á i fyrra.
Byrjað verður á að malbika-
götur innan skamms og er und-
irhúningur undir það starf haf-
inn.
Frá Alþingi.
Efri deild.
par voru þessi mál á dagskrá
í gær:
1. Frv. til 1. um heimild lianda
ríkisstjórninni til að ábyrgjast
lán fyrir Landsbanka Islands,
frh. 2. umr. — Vísir sagði í gær
nokkuð frá ágreiningi um þetta
mál í efri deild. Nú héldu um-
ræður áfram og bar margt á
góma, þótt það snerti ekki bein-
línis það frv., sem þarna lá fyr-
ir. Loks var frv. vísað til 3. umr.
með öllum atkv. þm. gegn 1
(JBald).
2. Frv. til 1. um breyting á 1.
um sandgræðslu, 3. umr. petta
frv. var samþ. með litlum breyt-
ingum og afgreitt til Nd.
3. Frv. til 1. um stofnun hús-
mæðraslcóla á Hallormsstað, 1.
umr. Flm. þessa frv. er Ingvar
Pálmason og efni þess, að hús-
mæðraskóli skuli stofnaður að
Hallormsstað. Á rikissjóður að
Ieggja fram % stofnkostnaðar,
gegn % annars staðar að, og á
ríkissjóður að annast rekstur
slcólans að öðru leyti'. Heima-
vistir skulu vera við skólann
fjTÍr að minsta kosti 30 nem-
endur, og kúabú skal rekið í
sambandi við skólann. — Frv.
þetta fór umræðulitið til 2. umr.
4. Till. til þál. um að kaupa
eða leigja flugvél til póstflutn-
inga, fyrri umr. Jónas Jónsson
flytur þessa tillögu og er efni
hennar svo sem 1 fyrirsögn seg-
ir, en auk þess á að útvega liæf-
an erlendan flugmann til að
starfrækja flugvélina. Tilraunir
skulu hefjast þegar næsta sum-
ar. — Till. var vísað til siðari
umr. umræðulítið.
Neðri deild.
par voru þessi mál rædd í
gær:
1. Sérleyfið til Titans. — Nú
var JAs lokið 2. umr. þessa
máls og það sent til 3. umr.
Höfðu þeir talaö fyrir málinu
Magnúsar Guðmundsson, Jóns-
son og Torfason, Jörundur
Brynjólfsson, Sveinn Ólafsson
og Klemens Jónsson. Hann var
framsögumaður samgmn., sem
hafði haft málið til meðferðar,
(pótt undarlegt megi kallast fór
það ekki til fjárhagsnefndar);
—- og hvíldi þvi á honum mest-
ur þungi af vörnum fyrir frv.,
og var svo að sjá, sem hann
ynni þar Ijúft verk. — pað sem
fylgismenn frv. bentu fyrst og
fremst á, var að þarna fengist
járnbraut austur fyrir mjög lít-
ið tillag úr ríkissjóði (2 miljón-
ir króna). Félagið myndi vinna
áburð úr loftinu og yrði þá hæði
ódýr og auðveld ræktun á ís-
landi. Rafmagn yrði þarna til að
lýsa upp og hita bæði sveitir og
kaupstaði. Ætti að selja það
ákaflega ódýrt. — Ekki væri
hætt við að ekkert yrði úr fram-
kvæmdum. Margir sterk-ríkustu
menn i Noregi hefðu lagt stórfé
í fyriij|ækið nú þegar, og mundu
ekki vilja glata þeim eignum
sínum. pví væri þeim nauðug-
ur einn kostur að halda áfram.
— M. Guðm. kvaðst hafa talað
við Aal málafærslumann í Osló,
einn af aðaleigendum félagsins
og mjög merkan mann, og liafi
hann sagt, að nóg fé væri fáan-
legt, bæði í Noregi og í Ham-
borg. — Frsm. samgmn., Kl. J.,
kvað óhætt að treysta sínum
upplýsingum í málinu, þar sem
Iiann hefði verið í stjórn Titans
síðan 1918, og verið á 8 stjórn-
arfundum félagsins, og fyrir
nokkrum árum séð hluthafa-
skrá þess. — pess er skylt að
geta, að Jör. Br. og Sv. Ó. töldu
sig fyrst og fremst vera með
sérleyfinu vegna járnbrautar-
lagningarinnar.
Sumum þm. leist ekki eins
vel á fyrirtækið og þeim, er nú
hafa verið nefndir. Sá sem mest
og eindregnast talaði á móti því
var Jakob Möller. Hélt hann 3
ræður, og verður hin fyrsta
prentuð í Vísi innan skamms.
Árni Jónsson frá Múla behti
á, að áburðarvinsla þætti illa
borga sig í Noregi nú orðið.
Stærstu verksmiðjurnar sums
staðar ónotaðar, af því að ekki
svaraði kostnaði að reka þær.
Væri þó miklu hægara um vik
að virkja fossa þar en hér. pótti
honum einnig undarlegt, að
þeir menn, er í fyrra hefðu talið
járnbrautina gróðafyrirtæki fyr-
ir ríkissjóð, teldu það nú góð-
verk af Titan að vilja leggja
brautina með ríkissjóðs styrk.
pó ættu flutningarnir að auk-
ast stórkostlega við byggingu
orkustöðvarinnar, svo að líklega
mundi járnbraulin þá ekki bera
sig lakar. — Var hann sammála
öðrum andmælendum um það,
að sennilega yrði aldrei neitt úr
framkvæmdum hjá félaginu.
pórarinn Jónsson talaði fyrst
og fremst fyrir brtt. þeirra B.
Sv. um að afnema tillag ríkis-
sjóðs til járnbrautarlagningar-
innar. Kvpð hann þá flm. altaf
hafa verið andvíga járnbrautar-
lagningu, og vildu þeir enn
ekki, að ríkissjóður legði þar í
fé sitt. En þó hefðu þeir ekki á
móti, að einkafyrirtæki tæki að
sér brautina, ef Alþingi þætti á
annað borð rétt að veita þetta
sérleyfi. — Um þessa brtt. sagði
Kl. J., að yrði hún samþ. mundi
ekkert verða úr framkvæmdum.
pó er það ekki nema 2 milj. kr.
viðbót við annan stofnkostnað
fyrirtækisins, sem er nálægt 50
miljónum króna.
Héðinn Valdimarsson gerði
lítið úr því, að Reykjavikurbær
fengi ódýrt rafmagn hjá Titan.
pótt eitthvað yrði úr fram-
kvæmdum þess mundi verða of
langt fyrir bæinn að bíða eftir
rafmagni úr þessari átt. Nú þeg-
ar sé þörf bæjarins orðin svo að-
kallandi, að á allra næstu árum
verði að auka rafmagnið. Verði
þá sjálfsagðasta ráðið að virkja
Sogsfossana, sem miklu hægari
og ódýrari sé í meðförum en
pjórsá. — Héðinn kvaðst fylgj-
andi járnbraut austur, en hann
vildi ekki að þessu félagi væri
fengin hún í hendur. pað yrði
til að tefja málið, og auk þess
væri hún þess eðlis, að sjálf-
sagt væri að ríkið ræki hana
sjálft.
í síðari ræðum sínum mintist
Jakob Möller m. a. á það, að
ef iðnrekstur Titans kæmist í
framkvæmd (sem heldur væri
ósennilegt) og hinum útlendu
eigendum þætti illa ganga, gæti
vel komið fyrir, að þeir legðu
árar í bát og hættu öllu. Og hvar
væri þá staddir allir þeir verka-
menn, sem gintir liefðu verið
frá öðrum atvinnuvegum til
þessa.
Eitt af því, sem bent var á
um traust Títans var það, að
fyrir fám dögum hafi verið seld
hér á uppboði 9 þúsund króna
hlutabréf í félaginu og farið
fyrir 301 krónu.
Að umr. loknum var frv. sent
til 3. umr. Brtt. pórJ. og BSv.
var feld með miklum atkvæða-
mun. Að eins 2 þm. (JakM. og
pórJ.) greiddu nú atkvæði gegn
frv., en ýmsir tóku fram að þeir
fylgdu því að eins til 3. umr.
2. Frv. til 1. um breyting á 1.
um notkun bifreiða, 2. umr. —
Frv. var visað til 3. umr. með
nokkrum breytingum, sem alls-
herjarn. hafði lagt til að sam-
þyktar yrði.
3. Frv. til 1. um sölu þjóð-
jarðarinnar Sauðár til Sauðár-
Itróks, var til 1. umr. og var vís-
að til 2. umr. og nefndar.
Ný frumvörp.
Ingólfur Bjarnarson flytur
frv. til 1. um breyting á I. um
ritsíma og talsímakerfi.
Meiri hl. landbúnaðrn. flytur
frv. til I. um sauðfjárbaðanir.
Æfiferilsskýrslan
og Kristján Albertson.
Kristján Albertson segir í Verði
á dögunum, aS sér sé ákaflega ó-
ljúft að leggja orð í belg um við-
skifti Leikfélagsins og Guðmund-
ar Kambans. — Hann virðist
halda, að hann geti hulist bak við
þessa hræsnis-blæju, sem er a£
af sama toga spunnin og vandlæt-
ishjúpur sá, sem hann brá yfir
sig í upphafi blaðamensku sinn-
ar. En honum ferst fátt höndug-
lega, og eins og svo oft áður, þá
skin hræsnin enn í gegn um um-
rnæli hans.
Á fundi Leikfélagsins, sem réðí
þessu Katnbans-máli til lykta,
mæltist Kr. A., sém er fyrv. for-
maðtir félagsins, þótt við litinn
orðstír sé, til þess, að hvernig sem
málinu lyki, þá yrði það ekki gert
að opinberu deilu- eða blaðamáli.
En í fyrsta tölublaði blaðs síns,
sem út kom viku síðar, notar hann
þó tækifærið til þess, að lýsa
það hneyksli, að Leikfélagið hafn-
aði tilboði Kambans. „Vandlætar-
inn“ mikli bar þó ekki við, að gera
nokkra grein fyirr því, hvers
vegna það væri hneyksli. Hann
var ek'ki að liafa fyrir þvx, að segja
sögu málsins. Hann hélt bara á-
frám uppteknum hætti, að reyna
að gera Kamban „mikinn mann“,
þó aS efnin væri lítil, svo lítil, að
skálda þurfti upp tilboð um leik-
stjórn úr ýmsum á'ttum, til'boö,
sem spáð er að ekki muni reynast
mikils virði. — Þetta asnaspark
Kristjáns til Leikfélagsins var þó
látið afskiftalaust. En fyrverandi
formaðurinn gat þó ekki setið á
sér, að vega að Leikfélaginu á ný.
Og nú tekur hann sér það „til-
efni“ til þess, að „Vísir“ hafi skrif-
að ómaklega um Kamban. Hann
getur ekkert um það, að áður en
„Vísir“ tók til máls, hafði Kamb-
án hafið eltingaleikinn við Leikfé-
lagið og farið um það, og látiö
fara, mjög lítilsvirðandi og ómak-
legum orðum í þremur greínum í
„Morgunblaðinu“. — Hinn „sam-
viskusami“ blaðamaðui’ vill láta
lita svo út, sem „Vísir" hafi að