Vísir - 06.05.1927, Blaðsíða 2
VlSIR
IBanHgfi g ÖLg^n
Hölnm fyrlrliggjandi:
RIO KaliL mjög ódýft.
Exportkaffi:
Ludv. David, Sóley og Hekla.
íslenskir málskættir III.
vBágt er cið halda útfúsum eyri“
ef hann á að fara fyrir BLUE BAND.
ffó Kristín 8. Mmm
andaSist á heimili sínu hér í bæn-
um í gær, eftir nær tveggja ára
sjúkleik, rúmlega sextíu ára aö
aldri, fædd u. des. 1S66.
Hún var fríöleikskona, þrek-
rnikil og hjálpfús og lét mjög til
sín taka um ýms mannúöarstörf
hér í bænum. Hún átti fjölda vina,
er lengi munu minnast hennar meö
viröingu og þakklátum huga.
Frú Kristín var tvígift og eru
synir hennar Haraldur kaupmaö-
ur Árnason, Árni B. Björnsson,
gullsmiöur, og BjÖrh Björnsson,
kgl. hiröbakari.
Sfmskeyti
—o—
Khöfn, 5. maí. F. B.
Fjármálastefnan í Genf.
Símað er frá Genf, að merk
ustu sérfræðingar þjóðanna í
fjármálum, séu meðal fulltrú-
anna á fjármálaráðstefnunni,
sem nú er þar haldin. Tlieunis
var kosinn forseti ráðstefnunn-
ar. í fyrstu ræðu sinni benti
Iiann á þá miklu þýðingu, sem
þessi fjárhagsráðstefna gæti
haft til þess að tryggja friðinn
i heiminum. Prófessor Cassel
fulltrúi Svía, hefir haldið ræðu
og krafist endurreisnar frjálsr-
ar verslunar og frjálsræðis fyrir
kapítal. Ranciman, fulltrúi al-
þjóða verslunarmála stofunnar
hefir og lialdið ræðu og skorað á
þjóðirnar að lækka tollana.
Vatnavextirnir í Missisippi.
Símað er frá London að Mis-
sisippi flói yfir landssvæði, sem
hún hefir ekki flætt yfir áður.
Tugir þúsunda heimilislausir, til
viðhótar við þúsundimar sem
áður voru heimilislausar. Kon-
ungur Bretlands og stjórnin í
Canada hafa vottað Coolidge
forseta og amerísku þjóðinni
hluttekningu sína og þjóða
sinna.
Utan af landi.
—o—
Akureyri, 6. maí. F. B.
Gilfer skákmeistari íslands
tefldi í gærkveldi samtímis við
25 keppendur skákmótsins,vann
16, tapaði 5, en gerði 4 jafntefli.
Ágætur afli við Grimsey.
Nokkrir vélbálar eru farnir til
veiða þangað.
Frá Alþingi.
Þar voru þessi mál til umræöu
í gær.
EFRI DEILD.
Frv. til 1. um hvalveiðar, 2. umr.
Um þetta frv. uröu nokkurar um-
ræöur og mjög skiftar skoöanir.
Jón Baldvinsson og Jón Þorláks-
son töluöu eindregið á móti frv.;
ein aöalröksemd þeirra var sú, aö .
ætti hvalveiðar aö komast hér til
framkvæmda á næstu árum, yrði
aö veita félögum með útlendu
íjármagni sérleyfi til veiöanna.
En það töldu þeir hættulegt vegna
grundvallarstefnu þeirrar, er fylgt
væri um fiskveiðar útlendinga hér
viö land. - Helstu rökin með frv.
voru aftur á móti þau, að hval-
veiöar væri stundaöar umhverfis
alt land af útlendingum og hval-
urinn dreginn burtu. Væri nær aö
íslenskir menn fengi að njóta
ágóöa og atvjnnu af veiöunum.
Þar til svöruöu þeir Jónar, aö
enginn vissi hve lengi hvalurinn
entist, ef hann yröi veiddur frá
íslandi. Mætti búast við aö út-
geröin hætti bráðlega aftur, og þá
væri þeir illa blektir, er þarna
heföi leitaö sér atvinnu. - Umræð-
unni lauk í gær, en atkvæða-
greiöslu var frestaö þar til í dag.
NEÐRI DEILD.
1. Frv. til I. um breyting á 1.
um skipun prestakalla, framhald
3. umr. Endurreisn prestse'mbætt-
is á Mosfelli haföist nú loks gegn
um neöri deild meö all-miklum at-
kvæðamun. Var frv. endursent
efri deild.
2. Frv. til 1. um sölu á nokkur-
um hluta úr kirkjueigninni Mos-
fellsheiðarlandi, 3. umr. Sumúm
þótti undarlegt, að vilja nú selja
mikiö af landareign Mosfells og
gera það aö kotjörð, einmitt er
verið væri aö koma þar upp lög-
legu prestsembætti á ný. UmræÖu
málsins var eigi lokið.
3. Till. til þingsályktunar um
styrk handa stúdentaefnum frá
gagnfræðaskólanum á Akureyri
(fyrri umr.) var vísað til síöari
umr. og nefndar.
4. Till. til þingsályktunar um
yfirsíldarmatsmann á Seyðisfirði
(ein umr.). Till. skorar á ríkis-
stjórnina aö fá sérstakan mann í
þetta embætti á ný. Óþarfi er að
segja nánara frá málinu hér, ]iví
aö þaö var skýrt í sambandi við
fyrirspurn í efri deild úm sama
efni fyrir nokkuru.
5. Frv. til 1. um landnámssjóð
íslands, 3. umr. Þessu frv. var vis-
að frá meö rökstuddri dagskrá
frá meiri hluta landbúnaöarnefnd-
ar, í þeirri von, aö milliþinga-
nefnd sú til aö athuga landbúnaö-
arlöggjöf, sem í ráöi er að skipa,
taki þetta til rækilegrar íhug-
unar.
Nýjar tillögur.
Jakob Möller flytur till. til
þingsályktunar um ríkisrekstur
útvarps, og till. til þingsályktunar
um eignar- og notkunarrétt hvera-
orku.
Fjárhagsnefnd neðri deildar
flytur till. til þingsályktunar um
verslanir ríkisins.
Jónas Jónsson flytur í samein-
uöu þingi till. til þingsályktunar
um aukna réttarvernd fyrir sam-
vinnufélög landsins. í efri deild
flytur sami þingmaður tillögu til
þingsályktunar um skipun sparn-
aðarnefndar.
Jón Baldvinsson flytur tillögu
til þingsályktunar um að sátta-
Semjari hafi umboðsmann á Aust-
fjöröum.
Dýpra og dýpra.
—o—
(Niðurl.)
Er vonandi að Gunnar fari
ckki að minnast á það við þá
spönsku; þvi hver veit nema þá
kæmu þau skilahoð, að nú væri
hinu „fullvalda islenska ríki“
ekki framar leyfilegt að leggja
fé til bindindiseflingar, að þvi
viðbættu, að hver íslenskur út-
gerðarmaður sem gerðist ötull
templar, gæíi búist við tvöföld-
um tolli á öllu dauðu og lifandi,
sem liann sendi til Spánar.
Spánverjar gætu vafalaust skil-
ið ,með góðum útskýringum* að
öflug og alvarleg hindindis-
alda dregur meira úr vínkaup-
um á Islandi en lítil fækkun
sölustaða, svo þeir mega í'ara að
vara við innstreymi i Regluna,
sem haldnir eru af „spönsku
veikinni“. — Skyll er að geta
þess, að við atkvæðagreiðslu um
vínsölustaðina greiddi einn
ilialdsmaður, Einar frá Geld-
ingalæk, atkvæði á móti því, að
áfengisbúðum væri þröngvað
upp á meiri hluta lcaupstaðar-
búa. Hefir liann þó aldrei hamp-
að bindindis eða bannvinátlu
sinni fyrir kosningar svo eg viti,
eins og allmargir þeirra, sem
enga tilslökun vildu samþykkja,
eða engu sinna þvi, þótt kaup-
staðir afsegðu áfengisbúð.
Sumir eru að giska á að cin-
hverjir leynisamningar við
Spánverja valdi því, að hver
stjórnin eftir aðra er ófáanleg
til að fækka sölustöðum áfeng-
is. Er það næsta ótrúlegt. þvi
hvað gat komið Spánverjum til
að lieimta nokkurt baktjalda-
makk? Aðrir kenna um lijart-
veiki eða alveg ástæðulausri
hræðslu, nokkurskonar „bráð-
smitandi“, spanskri veiki, og þá
mætti segja að ósanngjarnt
væri að áfellast nokkurn þótt
hann veiktist. þriðja flokkinum.
sem líklega er fjölmennastur,
þykir framkoman í öðrum
áfengisvörnum benda til að hér
sé um vísvitandi blekkirigar að
ræða. „Spánska kúgunin“ sé
notuð sem Grýla eða Leppalúði
til þess að „krakkarnir séu ekki
með keipa“, og þá hefir Knud
Berlín, andbanningur og „ís-
landsvinur“ á sina vísu, satt
Nýkomiö:
Ðalu. Bárujórn oo slétt
allar lengdir 30 þaml. breidd-
ir nr 24 og 26. — fflifclar
birgðlr. — Gæðin óviðjafnan-
ieg. — Lægst verð,
Versl B. H. Bjarnason
sagt, er hann skrifaði i fyrra
sumar i dönsk blöð, að stjórn
íslands reki áfengisverslunina
með áhuga og dugnaði „sem
finasta gróðafyrirtæki.“
Vera má að of snemt sé að
hefja nýja Spánarsamninga á
bannlagagrundvelli, þótt það sé
órannsakað mál. En engin hætta
væri að aðgæta það og láta
pjóðabandalagið vita að ísland
kyssir ekki á spanskan vönd, en
er sáróánægt að mega ekki
sjálft ráða verslunarlöggjöf
sinn. '
Éngin leið^Tar að bendla salt-
fisk og Spánverja við síðari til-
lögurnar tvær, en þó var ílialds-
flokkurinn allvel samtaka að
búa þeim skjótan dauða (J. Kr.
var þó á móti lánum). Fór önn-
ur þeirra fram á að hætta að
lána út áfengi úr áfengisverslun
ríkisins, en liin vildi láta Lög-
Ijirtingablaðið flytja 4 sinnum
á ári skýrslur yfir það áfengi,
sem læknar og lyfjabúðir láta
af hendi. Hefir sú aðferð reynst
vel í Noregi, og mundi gera
margan gætnari hérlendis sömu-
leiðis. En það fekst ekki að
þessu sinni. Ihaldsflokkurinn og
nokkrir fleiri „bindindisvinir“
gengu af þeim dauðum.
pað er engin furða að þessar
aðfarir séu þeim gleðiefni, sem
hugsa mest um það að koma
stjórnarflokknum á kné sem
fyrst. það er ekki svo langt til
kosninga að nokkur von sé til að
kjósendur gleymi þessu áður.
Hitt er og eðlilegt að þeir
bindindis og bannvinir, sem
stutt liafa íhaldsflokkinn með
atkvæðum sínum, séu ekki jafn-
kátir, er aðaláhrifamenn flokks-
ins sýria að þeir vilja engar um-
bætur á þessum svokölluðu
bannlögum, sem vér höfum, og
er áhugamál að áfengið renni
út í fólkið, svo að eitthvað komi
í rikissjóð.
pá óheillastefnu gelur eng-
inn sannur bindindisvinur og
bannvinur stult, þólt samleið
kunni að eiga með íhaldsflokkn-
um bæði i gengismáli og
fleiri málum; og fyrst stjórnar-
flokkurinn réttir bannvinum
■slík hnefahögg, er auðsætt að
liann kærir sig ekki um atkvæði
þeirra og þykist nógu sterkur
samt. Er ekkert annað við því
að gera en að losa flokkinn við
þá „æsingamenn“, sem lionum
mun þykja stefnufastir bann-
menn vera. Ástæða er til að tví-
undirstrika orðið stefnufastir,
því bcrsýnilegt er að þingflokk-
urinn hefir góð tök á að snúa
hinum, svo templurum sem
öðrum, eins og leiðtogum hans
sýriist. Yæri um það margt að
segja, en mun þó réttara að
geyma það til stórstúkuþingsins.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
Frá KMriMi
í gær.
—o—
Ókeypis vatn var samþykt að
„Óðinn“ og „pór“ eigi að fá
framvegis. Einnig var samþykt
að fella niður kröfu á 3,050 kr.
fyrir vatn, sem skip þessi hafa
fengið undanfarið. Var þetta
samþykt að beiðni dóms- og
kirkjumálaráðuneytisins.
Hafnarlóðirnar enn. Sigurgeir
Einarsson heildsalivill fá keypta
16x18 ferfaðma lóð við Hafn-
arstræti. Út af þessari beiðni
vildi meiri hluti hafnarnefndar
fá heimild til að selja allar lóð-
ir hafnarinnar milli Tryggva-
götu og Hafnarstrætis o. fl. —-
Minni hlutinn (Har. Guðm.)
var mótfallinn sölunni og kom
með tillögu um að fresta mál-
inu. Taldi réttast að athuga,
hvort ríkisstjórnin þyrfti ekki
að fá þessar lóðir fyrir pósthús ■
og tollbúð, áður en þær væru
látnar af hendi til annara. —
Frestunartillaga Har. Guðm. var
samþykt.
Tvívegis áður hafa komið
fram lillögur um sölu á lóðum
þessum, en i bæði skifti hafa
þær verið feldar, þvi upphaf-
lega var það ákveðið, að allar
lóðir hafnarinnar skuli leigja
en ekki selja.
Rafmagnið. Samþykt var að
liækka gjald af hemlum upp í
660 kr. árslcwt., en lækka ljósa-
gjald úr 65 a. í 55 a. kwst. frá 1.
sept. þ. á.
Ennfremur var samþykt að
byggja spennistöð suður á mel-
um vegna loftskeytastöðvarinn.
ar.
Út af erindi frá Bernliard
Petersen um rafmagn til fisk-
írijöls verksmiðju var rafmagns-
stjóra falið að fá nánari upplýs-
ingar hjá Petersen um málið.
Að gefnu tilefni var rafmagns-
stjóra falið að sjá um, að lög-
giltir rafmagnsvirkjar hafi sjálf-