Vísir - 15.06.1927, Qupperneq 3
VISIR
man, sem Matthías Þóröarson í
þetta sinn mælti fram, kom hr.
Claesson fram á sviöiö i fögrum
átjándu aldar búningi. Mátti
ímynda sér, aö þar væri Bellnian
sjálfur kominn meö lútina reiöu-
búinn til aö taka lagiö. — Hr.
Cíaesson hefir fagra barytonrödd
vel stilta viö hæfi þessara vísna,
en leikarament hans er þó meiri,
enda er hann aöallega leikari og
starfar viö leikhús á milli þess er
hann bregöur sér út i heiminn
til aö syngja Bellmanssöngva.
Hann nær ágætlega þeim anda
sem menn ætla aö hafi rikt í
Stokkhólmi á tímum Bellmans.
Nægir aö nefna hér lög eins og
„Drick ur ditt glas“, „Kortspelet
paa Klubben", „Undan ur|vágen“,
• „Hvila vid denna kálla“ og „Kár-
a.ste bröder“, sem allir þekkja, en
nú fengu nýtt lif i meöferö hr.
Claessons. Sérstaklega framsagn-
arfimi sýndi hann í eintalinu um
„Öfverfarten till djurgárden",
sem er mest leikur án söngs.
Koma þar fram margar persónur
sem tala hver ofan í a'ðra, og náöi
hr. Cl. ]>ví listavel. Er ó])arfi aö
orölengja um þetta og hinar ágætu
viötökur áheyrenda. Þaö er svo
sem auövitað, aö allir þeir, sem
unna Bellman, munu nota þessi
fáu tækifæri sem enn gefast til aö
heyra verk hans svo fagurt’fram
borin. — Annaö kvöld mun hr.
Claesson syngja aftur, mest ný
lög, og er ráölegast aö taka text-
ana um leiö og aðgöngumiöa og
lcynna sér þá, því að þegar til
kemur, þarf að nota bæöi augu
og eyru til aö fylgjast vel meö.
— Plr. Claesson hefir hugsaö sér
aö fara út aftur á íslandi eftir
helgina. Hann er ráöinn til aö
leika sem gestur á saaiska leikhús-
inu í Helsingfors skömmu eftir aö
hann kemur heim. H.
A. Skásheim
flytur erindi annaö kveld kl
7 í Bárunni um Snorra Sturlu-
son og Noreg. Erindið er flutt
að beiðni stjómar U. M. F. I.
17. júní.
Viðbúnaður er nú mikill lijá
íþróttamönnum hér undir há-
tíðahöldin 17. júní. — Sá siður
hefir tíðkast hér undanfarin ár
að búðum væri lokað þennan
dag og verðm- það sjálfsagt
einnig gert að þessu sinni.
Sendiherrann frá Júpíter
veröur leikinn í síðasta sinn
kveld (ekki endurtekinn), Þetta
veröur því síöasta tækifæri til aö
sjá leikinn.
Sextugsafmæli
á héraðslæknir Jón porvalds-
son á Hesteyri í dag. Hann er
sem mörgum er kunnugt, vin-
sæll maður og mjög vel látinn
og munu honum berast mörg
heillaskeyti víðsvegar að við
þetta tækifæri.
Sigurður Gunnarsson,
jámsmiðúr, á Laugaveg 51, er
75 ára í dag.
Bmbættisprófi í lögum
luku þeir í gær Kristján Krist-
jánsson með I. eink., 131% st
og Jóhann Gunnar Ólafsson
ilieð II. eink. betri, 112 st.
Tjaldur
fer héðan í kveld kl. ,8.
sýna töfra sína í Iönó annaö kveld.
Þau liafa fariö nálega um allan
heim og sýnt listir sínar háum
sem lágum. Solimann er talinn
einhver mesti töframaöur, sem nú
er uppi hér í álfu. Hann er ætt-
aöur frá Póllandi og hefir stund-
að íistir sínar frá barnsaldri. Frú-
in er norsk og þykir einnig mikiö
koma til listfengf hennar. — Er-
lend blöö bera hiö mesta lof á
jessa töframenn.
Aðalfundur
Slúturfélags Suðurlands var
haldinn hér í gær og fyrradag.
Formaður var endurkosinn
Ágúst Helgason i Birtingaholti
og endurskoðendur þeir Eggert
Benediktsson í Laugardæluni
og Ólafur Ólafsson í Lindarbæ.
Trúlofanir.
Síðastliðinn laugardag opinber-
uöu trúlofun sína ungfrú Marta
Mariusdóttir, Hverfisgötu 92B, og
Pétur Ásmundsson frá Tindstööum
á Kjalarnesi. —• Sama dag opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Ilelga
Sveinsdóttir frá Lambavatni, og
Þórður Þorsteinsson frá Vigur.
ICappleik
K. R. og Englendinga af Hare-
bell lauk svo í gærkveldi, aö K.
R. vann með 4: o.
Einingarfundur
veröur ekki í kveld.
Gullfoss
fór frá Leith í gær áleiðis
hingað, með fullfermi og 40
farþega.
Harebell
enska herskipið, fór héðan í
nótt.
Af veiðum
komu Gulltoppur í gær en
Apríl og Hilmir í morgun.
Esja
fór í gærkveldi i hringferð
með fjölda farþega.
Villemoes
kom frá Englandi í morgun.
St. „íþaka“.
Fundur í kvöld, á venjulegum
stað og tíma.
Island
fór héðan í gærkveldi tii Ak-
ureyrar, skyndiferð. Með skip
inu fór héðan knattspyrnusveit
úr Val, sem ætlar að keppa við
Akureyringa.
Bro
aukaskip Eimskipafélagsins
0
H
Íaí)RIMí5»í
COCOA.
s ®
X 05
e m
* ©
® Ö ©
* ot §»
►e1 c»
& *
©" *
0. HJ
©
©
- ©
I B (Q
«3
Skrifstofa
Frjálslynda flokksins
(C listans)
@p í Bárimni uppi.
Opin daglega eftir kl. 2.
Sími 2092.
©
í4- s»
Q*
cs
9
5
wííj.
PF
W:
fS
Mí
&
Þvott^stell frá io kr., Kaffistell fyrir 6 frá 14 kr., Kökudiskar
frá 50 au., Blómsturvasar frá 75 aur., Bollapör og allar PpStu-
líns-, Leir- og Glervörur ódýrastar hjá ,
K. Einarsson & Björnsson.
Bankastræti 11.
luið eftir Bókav. Þorst. Glslasonar.
BARNAKERRUR,
þær bestu, sem tii lands-
ins flytjast, nýkomnar.
---- Verðið lágt. ---
F Á L K I N N.
Allskonar sæl-
gæti er best að
kaupaí
Landstjörnanni.
Nafnið á langbesta
Gólfábupðinum
er
Snmarskðfataaðar
allskonar.
Léttur, GóBur og Ódýr.
S. B. S.
Laugaveg 22 A. Sími 628.
fór frá Hafnarfirði í gær með
fullfermi.
Misprentast
hefir i Vísi í gær nafn annarar
.stúlkunnar, sem sýndi björgunar-
tilraunir á Álafossi. Hún heitir Ás-
dís Jesdóttir (Gíslasonar) frá
Vestmannaeyjum.
Guöm. Gamalíelsson
hefir tekið upp nýtt fyrirkomu-
lag á bókasölu, sem er á þá leið,
að kaupendur geta skilað keypt-
um bókum eftir viku, og fá þá
mikinn hluta verösins endur-
greiddan. Siðan er bókin seld
lægra v.erði ööru sinni og tekin
aftur gegn endurgreiöslu mikils
hluta verösins. — í bókabúð Guð-
mundar geta menn fengiö nánari
upplýsingar um þetta sölufyrir-
komulag.
Áheit
á Strandarkirkju, afh. Vísi, 10
kr. frá G. G.
Fæst ( öllum veralunum.
Notuð íalensk
frímevki
eru keypt
hœsta verði í
BóRabúPinoi,
Laugaveg 46.
Ódýr bök. - Góð bðk.
„Frá Vestfjörðum til Vestri-
byggðar" heitir afarskemtileg
bók (með mörgum myndum)
eftir Ólaf Friðriksson. — Hún
er um ferðalag Friðþjófs Nan
sen. — Kemur út í þrem heft-
um á kr. 1,50 hvert.
Nafnið á langbesta
Skóábupðinum
ep
Fsest í skóbúðum
og versluuum.
Nýkomið.
Japan hrísgrjón, Viktoríubaun-
ir og gerhveiti. Kelloggsvörur.
. oniiji
Skólavörðust. 22 og Laugav. 70.
HvítibiBðsiilanr
sendið börn og hjálpið sjálfir
til að selja blóm 16. og 17.
júní. — Einnig þakksamlega
þegin hjálp sem flestra bama.
Blómin eru afhent á þessum
stöðum:
Laugaveg 15, frú Hanson. ’
Skólavörðustíg 18, Kristín Jó-
hannesdóttir.
Lokastíg 19,' Sigurbjörg por-
láksdóttir. f
Vesturgötu 31, Kristín Arú-
grímsdóttir.
Baðhúsinu, Áslaug þórðardóttir.
ll
SOKOGOOíXXÍOnOOOOOOOOOOOOO*
X
X
X
X
mai’geftirspurðu, eru kom-
in aftur. Eiijnig kvenreið-
fataefnin i mörgum litum.
Smávara til saumaskapar,
mikið úrval nýkomið. —
Sama lága verðið.
Bnðm. B, Tlkar.
Laugaveg 21. Sími 658.
CXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXí
Fatabúðin hefir fengið feikna
mikið úrval af ljómandi falleg-
um karlmannsfötum og ryk-
frökkum, alt klæðskerasaumað,
með nýjasta sniði. Ennfremus
millipeysur og vesti, milliskyrf-
ui’, stakar buxur, sportbuxur,
erfiðisföt, nærfatnað, sokka,
slifsi o. fl-
Ódýrast og best í horginm.
Best að versla í
Fatabáðinni,