Vísir - 26.10.1927, Síða 2

Vísir - 26.10.1927, Síða 2
V I S I R )) MmHM j ÖLSEÍHl (( Höfnm fyrirliggjandl: Þ a k ] á r n no. 24 og 26, 24 og 30 þnmlonga breitt. Göngnstafir margar tegundir nýkomnar 1 Austurstræti 1. U 6. öunnlauossan s Co. andaöist hér í bænum í gær eftir langvinnan sjvikleik. Hún var <lóttir Stefáns Bjarnarsonar sýslu- ínanns, en systir Björns heitins sýslumanns í Dalasýslu og þeirra systkina. Hún fór ung til Dan- merkur til menta og mun hafa veri'S fyrsta íslensk kona, sem lauk ]var stúdentsprófi. Hún var gift Magnúsi sýslumanni Torfasyni og eignuSust þau tvö börn, sem bæði eru hér í bænum, ungfrú Jóhanna, cand. pharm. og Brynjúlfur versl- unarmaöur. Frú Camilla var gáf- i’S og vel mentuð kona og áhuga- söm um mörg mannúöarmál. Símskeyti Khöfn 25. okt. FB. Tollmáladeila Frakka og Banda- ríkjamanna. Frá París er símað: Horfurnar á því, aS samkomulag náist í frakknesk-amerísku tollmáladeil- unni, eru nú taldar betri, þar eð Bandaríkin hafa falliö frá kröfu sinni um bestu kjör. Krefst Banda- rikjastjórnin aðeins, a'ö Frakka- stjórn lækki hæstu tollana. Líflátsdómur. Símað er frá Moskva, að þrír Rússar, er ákærðir höfðu v’erið fyrir að hafa haft njósnir á hendi fyrir Englendinga, hafi verið sek- ir fundnir. Voru þeir dæmdir til lifláts. Leikhúsbruni. Símað er frá Helsingfors, að kvikmyndaleikhús í bænum Tam- merfors hafi brunnið. Nítján menn brunnu inni, en margir hlutu meiðsli. (Tammerfors — á finsku Tam- ])ere - er mikil iðnaðarborg. íbúa- tala ca. 48.000. Þar eru stærstu verksmiðjur í Finnlandi). Noregfs- saltpétur. Norðmenn gerbreyta vinnslu- aðferðum sínum. —o— Síðan Norðménn, fyrstir allra þjóða. fóru að vinna köfnunarefni úr loftinu, sameina það kalksteini og selja sem áburð undir nafninu Noregssaltpétur, hafa ýmsar um- bætur orðið á aöferðunum til þess að ná köfnunarefninu úr loftinu og sameina það súrefni loftsins. Norðmenn notuðu og nota enn, aöferð Birkelands og Eyde, sem cr í því fólgin, að leiða andrúms- loft gegnum ofna, sem hita það upp i 3—4 þúsund stig, svo að það „brennur", ]>. e. köfnunarefnið sameinast súréfninu. Slikur fá- dærna hiti verður að eins fram- leiddur nieð rafmagnsblossa, sem leikur um ofninn innanverðan, og er aðferð þessi oft kölluð ljós- bogaaðferðin. Hún hefir þann rnikla ókost, aö hún er orkufrek. Hver ofn í aðalsmiðjuin Norsk Hydro á Rjúkan, notar 2—3 sinn- um meira rafmagn, en rafveita Reykjavíkur getur látið í té, og í verksmiðjum þessum eru ofnarnir 82. Orkan sem þeir þurfa, er því á 4. hundrað þúsund hestöfl, en ársframleiðslan rúm 250.000 smá- lestir af Noregssaltpétri, sem sam- svarar 33.000 smálestum af hreinu köfnunarefni. Nokkuruín árum eftir að Norð- menn fóru að nota ljósbogaaðferð Birkelands og jafnframt aðra ofnategund, seni kend er við Schönherr, fann þýski efnafræð- ingurinn Haber nýja aðferð og miklu orkusparari til þess að binda köfnunarefni loftsins. Er hún venjulega kölluð ammoníak- aðferðin. Þar þarf ekki nema 5—6 hundruð stiga hita til þess að binda köfnunarefnið, og aðferðin þarf ekki nema um fjórða hluta þeirrar orku, sem notuð er við ljósbogaaðferðirnar. Með öðrum orðum: Norsk Hydro gæti fer- faldað framleiðslu sina með því að taka upp Plabers-aðferðina, án ]æss aö auka orkumagn sitt. Það er þetta, sem nú á að gera. Rjúkan-smiðjurnar hætta við ofn- ana orkufreku, fleygja niargra miljón króna verðmæti á sorp- hauginn og kaupa ný áhölcl fyrir of fjár. Vegna þessara breytinga hefir félagið orðið að auka hluta- fé sitt um 19,3 miljónir króna, svo að nú hefir það 77 miljón króna hlutafé, og er stærst allra iðnað- aríyrirtækja i Noregi. Hefir fé- lagið skiftst á hlutabréfum við hið þýska félag, sem á einkaleyfi Habers, en það er hið heimskunna fyrirtæki Badische Anilin- und Sodafabrik, sem nú hefir dregið til sin ýmsar éfnasmiðjur og nefn- ist síöan I. G. Farbenindustrie. Ilefir það um hrið rekið köfnun- atefnisiðju, en saltpétur þess hef- ir eigi unnið sér eins gott álit á heimsmarkaðinum og norski salt- péturinn, enda var hann kominn fyrr. Hins vegar hafa Rjúkan- smiðjurnar ekki getað fullnægt eftirspurn á Noregssaltpétri. En nú verðnr samvinna milli félag- anna, hins norska og þýska, einn- ig hvað sölu snertir. Norsk FTydro var byrjað á að byggja nýtt orkuver við Tyin- fossa, inst i Sogni, og áttu að fást þar 100.000 hestöfl. Vegna breyt- inganna á Rjúkan verður þessari Itygging frestað, því að áburðar- t'ramleiðsla félagsins á Rjúkan á að aukast úr 250.000 upp í 800.000 til 1000.000 smálestir á ári, þegar bi eytingarnar þar eru konmar í kring. Er gert ráð fyrir, að þessi íramleiðsla nægi eftirspurninni næstu árin og að hægt verði að selja Noregssaltpétur til fjarlægra landa, svo sem Egiptalands og Kyrrahafsstrandar Ameríku, sem hingað til hafa ekki fengiö nema brot af því, sem þau hafa beðið um. En eitt skiftir þó niestu máli: Lækkar verðið á áburðinum við þessa breytingu ? Þannig munu margir spyrja hér á landi, sem farnir eru að nota áburðinn. Sennilegt er, að áburðurinn falli nokkuð viö það, að teknar eru upp hinar nýju aðferðir, en þó hvergi nærri í hlutfalli við orkusparnað- inn. Því að kostnaðurinn við áburðarframleiðsluna stafar ekki síst af flutningum kalksteinsins í smiðjurnar og áburðarins frá þeim til hafnar, og haldast þeir út- gjaldaliðir vitanlega óbreyttir, þótt framleiðsluaðferðirnar verði hagkvæmari. Frá Rjúkan er löng leið og erfið til næstu hafnar; verður bæði að nota járnbraut og eimferju. Mun jafnvel hafa komið til mála að flytja smiðjurnar frá Rjúkan niður að sjó og leiða ork- una ])angað, en það þótti þó of viðurlitamikið. Mý bók er fyrir nokkuru komin i bóka- verslanir hér í bænum, er heitir: „Heimilisguðrækni. Nokkrar b e n d i n g a r t i 1 h e i m i 1- a n n a“. Hefir Prestafélag íslands gefið bókina út, en höfundar eru: Sira Ásmundur Guömundsson skólastjóri, Sigurður P. Sivertsen prófessor og síra Þorsteinn Briem. Nöfn höfundanna ættu aö vera næg trygging þess, að eitthvað sé í bókina varið, þótt ekki sé stór (um 100 bls.). Að minsta kosti munu allir þeir, sem trúar- og sið- gæðismálum unna, telja bendingar þær, er í bók þessari felast, þarf- ar og tímabærar, og miða til sannra ])jóðarheilla. Allir alvar- lega hugsandi kristnir menn hljóta að vera höfundunum samdóma um, að byrja beri á heimilunum, ]>egar um vakningu og glæðingu trúar- og bænalífs sé að ræða. Þar beri að leggjá grundvöllinn, þann er haldbestur sé, og vænlegastur til að byggja ofan á. Er þessu lýst mjög vel í formála bókarinnar. Eæklingurinn er vel og skipulega saminn, og ritaður af frábærri hlýju og trúaralvöru: er honum Grammófónar aðeins bestu og nýjustu gerðlr Hljóðfærahúsið Listi yfip nýjasta danslðg. Because I love you. — I syvende Himmel. — Jeg er ligeglad — By By Blackbird — Det gör Konen med — Billy Boy — Smil Köbenhavner — Stjernetango 0. íl. 0. íl. á nótum og plötam. Hljóðtæpahúsid. iiirMmT~~iwaMrMæii»rnariTrnrrnTMirnriii skift í 6 kaíla, og er efnið þetta: Eænin. Lestur i einrúmi. Húslestr- ar. Við sérstök tækifæri á heirnil- inu. Trúaruppeldi barnanna á heimilinu, og er nálega hverjum kafla aftur skift í smærri greinir. Loks eru 2 sálmar eftir Hallgrím Pétursson, og aftast bókaskrá. Verðinu er mjög stilt í hóf, kr. j.50 ób., kr. 2.50 i bandi. Pantanir er ætlast til að séu sendar præp. hon. Skúla Skúla- syni. Það mun einlæg ósk höfúndanna, að bæklingurinn komist inn á sem flest, helst öll heimili í landinu, og mun margur taka undir þá ósk með þeim. 8 -f- 10. =o< skal vakin á því, að ekki verður hægt að sýna leikinn á sunnudag- inn, sakir forfalla eins leikandans. Félag frjálslyndra manna heldur funcl annað kveld i Báru- húsinu uppi, kl. 8)4- Umræðuefni: Sambandslögin. — Málshefjandi Guðm. Benediktsson, cand. jur. ritstjóri. Prófessor Auer flytur háskólaerindi kl. 6 i kveld i Kaupþingssalnum. — Ókeypis aðgangur. Allir velkomnir. Páll ísólfsson heldur tólftu kirkjuhljómleika sina í fríkirkjunni annað kveld. Á söngskránni verða lög eftir Norð- urlanda tónsmiði og franska, þar á meðal hin fræga Suite Gothique, eftir Boellmann. Axel Wokl að- stoðar. S| Bæjarfréttir I 0<=XK Dáuarfregn. í fyrrakveld andaðist i Landa- kotsspítala Þorsteinn Tómasson hreppstjóri á Skarði í Lundar- reykjadal, eftir langvarandi veik- indi, rúmlega fertugur. Hann var prúðmenni hið mesta, athafnasam- ur og fyrirmyndar bóndi. Áhuga- samur mjög um þjóðfélagsmál og andleg mál, svo -að af bar. Þeir, sem þektu hann, munu lengi minn- ast hins góða drengs og vitra manns. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 3 st., Vestm,- eyjum 5, ísafirði 1, Akureyri o, Seyðisfirði 2, Blönduósi o, Þing- völlum.2, (engin skeyti frá Grinda- vík), Stykkishólmi 1, Grímsstöð- um -j- 3, Raufarhöfn o,-Hólum í Hornafirði 4, Kaupmannahöfn 12, Utsira 8, Tynemouth 13, Hjalt- landi 8, Jan Mayen -4- 3 st. — Mestur hiti hér í gær 3 st., minst- ur 1 st. Úrkoma 5,1 mm. Djúp lægð fyrir sunnan land. — Horfur: Suðvesturlancl: I dag og nótt aust- an, hvass úti fyrir. Dálítil rigning. Faxaflói, Breiðafjörður: I dag og nótt norðaustan. Úrkomulítið og frostlaust. Vestfirðir: Stormfregn: í dag og nótt hvass norðaustan. Sumstaðar snjókoma, Norðurland, norðausturland: I dag og nótt all- hvass norðaustan. Snjókoma. Aust- firðir, suðausturland: í dag og nótt austan átt. Dálítil rigning. Leikhúsið. „Gleiðgosinn“ verður leikinn annað kveld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir í dag og á morgun. Athygli Jón Þorláksson alþm. hefir verið kosiun fulltrúi í bankaráði Islandsbanka. Eru það hinir dönsku hluthafar bank- ans, sem hafa kosið hann, og er ]:á einum islenskum manni fleira en áður í bankaráðinu, því að danskir liafa áður skipað þetta sæti. En nú þykir hentara, aö bankaráðsmenn sitji hér svo margir, að skjóta megi á lögmæt- um fundi á bankaráðinu, þegar þurfa þykir. Leynivínsala tvo alkunna, þá Sigurð Bernd- sen og Gest Guðmundsson, hefir lögreglan tekið höndum nýlega og lmept í varðhald. Hafa þeir lengi rekið ólöglega vínsölu hér i bæ, sem kunnugt er, en löngum sloppið við refsingu, þó að dóm- ar hafi yfir þeim gengið, sakir ].ess að heilsufar þeirra hefir ver- ið talið svo bág'borið, að þeir þyldu ekki fangelsisvist. Kans póstur Hannesson er sextugur í dag. Norskar síldarmjölssmiðjur hafa í haust keypt talsvert af sild héðan og flutt til Noregs til bræðslu. Ástæðan til þessa er sú, að því er „Bergens Tidende“ segja, að smiðjunum norsku hefir borist miklu minna af bræðslusíld en venjulegt er. Segir blaðið, að ein smiðja í Haugasundi hafi keypt 4000 mál af bræðslusíld frá Norðurlandi og sé hún komin til Noregs, og að aðrar smiðjur hafi fest kaup á íslenskri bræðslusíid og' sé hún væntanleg til Noregs í þessum mánuði. Um verðið á síld- inni er ekki getið. v

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.