Vísir - 15.11.1927, Blaðsíða 2
VISIR
Höfum til:
HVEITI:
Cream of Manitoba.
Glenora.
Canaðian Maid.
Ðnota Bnfíalo.
Sailasykur.
StPásykur.
Marmelade.
Svínateiti.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við jarðarför
Kristjáns Þorgilssonar.
Systkini hins látna.
Hér með tilkynnist, að Sigríður Jóhannsdóttir andaðist í morg-
un að heimili sínu, Nönnugötu i.
F. h. aðstandenda
Susie Bjarnadóttir.
Símskeyti
Khöfn 14. nóv. FB.
Samningur Frakka og Júgóslava.
Frá Berlín er símað: Ahnent er
álitið, að stefna Mússólínis í mál-
um þeim, er snerta Tangier í Af-
ríku, hafi flýtt fyrir því að Frakk-
ar og Júgóslavar gerðu með sér
l.ermálasamning.
V ináttusamningar.
Frá Belgrad er símað: Menn
búast við því, að Frakkar og
Grikkir geri með sér vináttusamn-
ing og Grikkir og Júgóslavar einn-
ig. *Ætla menn að Frakkland og
Júgóslavía reyni á þennan hátt að
koma í veg fyrir að Balkanskaga-
áform ítala hepnist, en þau rniða
1 þá átt, að einangra Júgóslavíu
en auka vald Italíu á Balkanskag-
anum Miðjarðarhafs-megin.
Tolldeila Frafcklands og Banda-
rikjanna jöfnuð.
Deila sú, er kviknaði fyrir
skömmu rnilli Bandarikjanna og
Frakklands, út af tollmálum, er
nú jöfnuð. Hafa Frakkar slakað
til og ákveðið að lækka tolla á
Bandaríkjavörum.
Sérhivep.
—o—
Samtal við Adam Poulsen um ein-
kennilegasta leikinn, sem hér hefir
verið sýndur.
—o—
Við eigum von á nýstárlegu
leikkvöldi hér í höfuðstaðnum ann-
að kveld. Ber þar tvent til, annað
það, að hinn góðkunni leikari
Adam Poulsen, sem kom, sá og
sigraði, er hann sýndi „Der var
engang —“ hér fyrir tveimur ár-
ían, leikur aðalhlutverkið í leikn-
um og hefir búið hann undir sýn-
ingu, en hitt það, að leikur sá sem
í þetta sinn er í boði, er fyrir
flestra hluta sakir sérstæður.
Byssnrnar ern komn-
8r, Elnlileypui' og Tvíhleyp-
ur. Afbragðs teg. Lágt verð.
Versl B, H. Bjarnason.
Um kosti Adam Poulsen sem
leikara og leikstjóra, skal ekki
fjölyrt hér, því að þeir eru ílest-
um bæjarbúum svo kunnir. Eigi
skal efni leiksins heldur rakið; það
er bjarnargreiði við leikrit, sem
bæði er gott skáldverk og fjallar
um háleit efni, að reyna til að rekja
efni þess í stuttri blaðagrein. Því
verður undirfyrirsögn leiksins:
„leikur um dauða ríka mannsins“,
að nægja til þess, að gera mönn-
um grein fyrir efninu, þangað til
þeir hafa séð leikinn sjálfan.
„Vísir“ hefir haft tal af Adam
Poulsen. Hann kom hingað fyrir
viku, og á morgun fer fyrsta sýn-
ing leiksins fram. Má þvi heita
að góður skriður hafi verið á und-
irbúningi leiksins.
— Hvernig hefir verið hægt að
búa leikinn undir sýningu á svona
skömmum tíma ?
— Leikendurnir höfðu flestir
lært hlutverk sín áður en eg kom,
svarar Adam Poulsen. Og eg hafði
sent handrit mitt, með athuga-
semdum mínum viðvíkjandi með-
ferð hlutverkanna, hingað áður en
eg kom, og höfðu því leikendurnir
getað, æít ljeikinní nokkuð áður.
Það flýtti vitanlega stórmikið fyr-
ír. Og síðan eg kom, hefir verið
æft mjög kappsamlega. — Annars
verð eg að segja leikendunum
hérna það til verðugs lofs, að þeir
hafa búið sig undir leikinn með
aðdáanlegri elju og áhuga, og eru
mjög fljótir að setja sig inn i hlut-
verk sín, enda þótt suma þeirra
vanti kunnáttu og næga æfingu.
Mér hefir því verið það mjög ljúft
verk að starfa með þeim að undir-
búningi þessa leiks. Það er sjald-
gæft að hitta fyrir jafnáhugasamt
fólk.
— Hafið þér ekki orðið að
Vlsis^aíílð gerlr alla glaða
sleppa eiirstökum atriðum úr leikn-
um, til þess að getá sýnt hann
hér ?
— Nei, ekki einum staf. Þegar
j;essi leikur var sýndur í fyrstu,
var mikil áhersla lögð á stórfekl
leiktjöld og víðáttumikið leiksvið.
A þennan hátt var leikurinn t. d.
sýndur fyrst á kgl. leikhúsinu í
Khöfn, og var ])að eftir fyrirmynd
Max Reinhardt. En eg hefi víða
leikið í „Sérhver" og séð um sýn-
ingar á honurn, l>æði í Khöfn og
i smærri bæjum dönskum, í Sví-
jjjóð, Noregi og Finnlandi, og nú
síðast í sumar sýnt hann á „Fri-
luftsteatret“ hjá Kaupmannahöfn,
og ég verð að segja, að mér finst
hann njóta sín betur í „smærra
brotinu", án mikils viðbúnaðar á
sviðinu, með litlum og einföldum
tjaldaútbúnaði.
— Um leikinn sjálfan er j>að að
segja, að mér þykir liklegt, að
hann vekji athygli bæjarbúa. Aö
því er mér virðist, er efni það, sem
þar er tekið til meðferðar, íslend-
ingum mjög hjartfólgið, og þeim
er gjarnt .til að vilja brjóta til
mergjar ráðgátur lífsins og hug-
leiða livað við tekur eftir dauðann.
Eg hygg, að íslendingar séu
lengra á veg komnir i j>essu efni
en nágrannaþjóðimar. Um dauð-
ann og dauðastundina hafa vitan-
lega, margir skrifað —■ lika í leik-
ritsformi — en drögin til eínisins
í ,,Sérhver“ mun mega rekja lengra
aftur í tímann en efni flestra
]>eirra leikrita, sem nú koma fyrir
manna sjónir. Flelgisagan, sem
leikurinn byggist á, er uppruna-
lega kominn úr Búddatrú, en síðar
skrásett af Jóhanni frá Damaskus,
erkibiskupi í Antiochia. Síðan hef-
ir hún borist víða um lönd, m. a.
hefir verið samið upp úr henni :i
ensku leikritið „Everyman“, ka-
þólskir menn hafa tekið hana upp
í trúarleiki sína, hin svokölluðu
„Mysteria" og loks hefir þýska
skáldið Hugo von Hoffmannsthal
gert úr henni leik, er fullnægir
kröfum tímans, og farið hefir frá-
bæra sigurför meðal mentaðra
þjóða.
—• Hver er jjungamiðja leiksins,
i fáum orðum?
—• Þungamiðjan? Eg verð að
svara eins og Indverjinn, sem
hérna var í sumar, þegar hann var
spurður urn hvað honum virtist
um Krishnamurti: „Yður má í
léttu rúmi liggja hvað mér virðist
um hann ; kynnist þér honum sjálf-
ur.“------
------Auk aðalhlutverksins, sein
Adam Poulsen leikur sjálfur, eins
og fyr er sagt, hafa m. a. þessir
leikendur hlutverk: Indriði Waage
leikur Dauðann, frú Guðrún Ind-
riðadóttir Trúna, ungfrú Emilía
Indriðadóttir móður Sérhvers, Br.
Jóhannesson Vininn, Tómas Ilall-
grímsson Mammon og Valur
Gíslason skulduga manninn.
Adam Poulsen dvelst hér skamma
stund, og fer héðan norður um
land til útlanda. Má því búast við
að færri en vilja komist að því að
sjá jjennan leik.
RINSO
Sérhver,
leikur um dauöa liins rika manns,
eftir
HUGO VON HOFFMANNSTHAL
verður leikinn í Iðnó miðvikndag 16., fimtudag 17. og föstu-
dag 18. þ. m. kl. 8 síðdegis
Hr. leikliússtjóri Adam Poulsen hefir sett leikinn á svið og
leikur sjálfur hlutverlc Sérhvers.
Söngurinn æfður af hr. Emil Thoroddsen.
Aðgöngumiðar seldir í dag kl. 1 -7 og dagaua sem leikið er
frá kl. 10—12 og eftir kl. 2.
Sími: 12.
Bæjarfréttir
Dánarfregn.
í morgun kl. 7j4 andaðist á
heimili sínu, Nönnugötu 1, ungfrú
Sigríður Jóhannsdóttir, sem um
mörg ár hefir verið 'forstöðukona
Smjörhússins hér í bæ.
Veðrið í morgun.
Hiti um land alt. í Reykjavik 3
st„ Vestmannaeyjum 7, ísafirði 4,
Akureyri 7, Seyðisfirði 3, Grinda-
vík 4, Stykkishólmi 3, Grímsstöð-
um o, Raufarhöfn 3, Hólum í
Hornafirði 5, Blönduósi 6, Þing-
völlum 2, Þórshöfn í Færeyjum 5,
Kaupmannahöfn 3, Utsira 4,
Tynemouth 2, Hjaltlandi 3, Jan
Mayen 2 st. ('Engin skeyti jfrá
Angmagsalik). — Mestur hiti hér
í gær 4 st„ minstur 2 st. Orkoma
14,8 mm. — Lægð fyrir vestan
land á leið noröaustur. Iiægur í
Norðursjónum. — Horfur: Suð-
vesturlánd, Faxaflói, Breiðafjörð-
ur og Vestfirðir: í dag og í nótt:
Suðvestan, sumstaðar allhvass.
Skúraveður. — Norðurland, norð-
austurland og Austfirðir: í dag og
i nótt: Suðvestan, sumstaðar all-
hvass. Þíðviðri, en úrkomulítið.
— Suðausturland : í dag og í nótt:
Suðvestan. Regnskúrir.
Alþingi
verður kvatt saman 19. dag
janúar næstk.
Páll ísólfsson
heldur þrettánda orgelkonsert
sinn i fríkirkjunni fimtudaginn
17. þ. m. Óskar Norðmann aðstoð-
ar. Aðgöngumiðar fást í hljóð-
færaverslun frú Katrínar Viðar.
Talning atkvæða
frá prestskosningu á Akureyri
hefst kl. 3 í dag á skrifstofu bisk-
ups. Þá verða og talin atkvæði úr
SaurbæjaiJjingum í Dalasýslu og
Staðarhraunsprestakalli, ef koniin
verða. — Atkvæði frá kosningu í
Laufássókn eru komin, nema úr
einu bygðarlagi, svo að 'fresta
verður talningu þeirra fyrst um
sinn.
Leikhúsið.
Annað kveld verður Sérhver
leikinn í fyrsta sinni. Aðgöngu-
miðar verða seldir í dag frá kl.
4—7 og síðan daglega kl. 10—12
og eftir kl. 2. Aðgöngumiðar
kosta 3 kr„ 3,50, 4,50 og 6 kr.
Sigurður Skúlason
magister flutti fróðlegt erindi í
Gamla Bíó á sunnudaginn um Jón
biskup Gerreksson. Salurinn var
alskipaður, erindið skörulega flutt
og lófatak áheyranda mikið að
ræðulokum.
Ljósálfar
heitir ný kvæðabók eftir Sigur-
jón Jónsson, mjög vönduð að öll-
um frágangi, og með skrautlegri
mynd á kápu eftir Tryggva Magn-
ússon. Verður síðar minst.
Slökkviliðið
var kvatt upp að Hverfisgötu
32B.Í gær. Hafði þar kviknað í
kolageymslu í bakhúsi, og þykir