Vísir - 22.11.1927, Page 2
V I S I B
DMifffllNllQLSEíNlC1
Nýkomið:
Maís
Blandað hænsnafóður
Döðlur
Fíkjur
Rúsínur
Sveskjur
do. steinlausar
Kúrennur
Aprikósur
Exportkaffi
Steinsykur
Molasykur
Strásykur
Sallasykur
Kaffi
Vindlar
Kerti
Gúmmíbönd
Spil.
Símskeyti
—o—
Khön, 21. nóv. FB.
Samblástur gegn ítölum.
Frá Berlín er simað: Viðsvcg-
ar i Albaníu eru miklar æsing-
ar, sem beinast gegn Italíu, síð-
an hervarnasamningurinn milli
Frakklands og Júgóslaviu var
undirskrifaður. Búast menn
við, að stjórnin í ítaliu neyðist
til að breyta um stefnu gagn-
vart Alhaniu.
Samsæri gegn Pilsudski.
Frá Varsjá er símað: Lög-
reglan hefir uppgötvað sam-
særi til þess að myrða Pilsudski.
Nokkurir menn hafa verið
handteknir.
Flokksmenn Trotskis flokks-
rækir.
Frá Moskva er símað: ]7rjú
hundruð og fimmtíu fylgismenn
Trotski hafa verið reknir úr
komm únistaf lokknum.
Utan af landi.
Stykishólmi'2. nóv. FB.
Guðmundur Guðmundsson
héraðslæknir i Stykkishólms-
héraði hafði verið fimmtíu ár
alls héraðslæknir i júh i sum-
ar. Sagði hann af sér embættis-
störfum frá 1. nóvember þessa
árs. I tilefni af því héldu Stykk-
ishólmsbúar honum og konu
hans f jöhnent samsæti og færðu
lionum að gjöf veglegan sjón-
auka. Fór samsætið hið hesta
fram. Skemtu men sér við ræðu-
höld, söng og dans. Aðalræðuna
hélt Páll Bjarnason sýsíumaður.
Dánarfregn o. fl.
í Ðrápuhlíð ytri í Helgafells-
sveit andaðist fyrir nokkuru
Sigurður bóndi Illugason, góð-
ur maður og gegn. Hann var á
sjötugs aldri. Dvaldi allan ald-
ur sinn í Helgafellssveit.
Tíðarfar hefir verið mjög
milt. Er klaki mikið til farinn
úr jörð kringum Stykkishólm.
Heilsufar. pungt kvef hefir
gengið bæði um sveitirnar og
kaupstaðinn.
Afli er allgóður, þegar gefur
á sjó. Bætti mikið úr, að síld
hefir veiðst dálítið undanfarið
á Grundarfirði.
Barnastúka var stofnuð hér ný-
lega og eru 30—40 börn í henni.
Barnafélag (Barnavinurinn)
var enn fremur stofnað hér, og
eru í því börn yngri en 10 ára.
Eru haldnir fundir með börn-
unum, þegar messa ber í Stykk-
ishólmi. Er reynt að hafa álirif
á siðferðis, trúar og fegurðar-
hugmyndir barnanna. Enn
fremur verða þau frædd um
merka menn í sögu þjóðarinn-
ar o. fl., og loks fá þau, á fund-
unum, tækifæri til þess að vera
saman að leikum. I félaginu eru
50—60 börn.
Ritiregn.
Kristín Sigfúsdóttir:
Gömul saga.
Misjafnir hafa dómarnir yer-
ið um skáldskap Kristinar Sig-
fúsdóttur. ]?egar fyrsta bók
hennar kom út, úrskurðuðu
sumir „dómararnir“ þegar í
stað, að á insta skálda-bekknum
skyldi hún sitja, hvað sem taut-
aði. Dómai' af þvi tæmu eru
handhægir, hvort sem er til lofs
éða lasts. — Ýmsir muna sjálf-
sagt enn „stóra“ dóminn, sem
gekk yfir Guðmund á Sandi liér
um árið. Guðmundur hafði sagt
einhver ógætileg orð á prenti
eða á mannamóti. Stjórnmála-
flokki hafði sárnað ummælin.
Og einhver „spámaður“ flokks-
ins tók sig til og úrskurðaði, eitt
skifti fyrir öll, að Guðmundur
skyldi ekki metast „vísufær“
upp frá þeirri stundu. J?etla var
einskonar pólitísk skáldabann-
færing. Síðan þetta gerðist eru
liðin 8 eða 9 ár. Og enn situr
Guðmundur i banni.------
Aðrir töldu skáldskap Kr.
Sigfúsdóttur laglegan. J>eir
fengu ekki með neinu móti séð,
að yrkisefni hennar væri stór-
feld né óven juleg að neinu leyti.
Og þeim fanst ekki heldur, að
með þau væri farið af tiltakan-
legri snild. En samt þótti þeim
skáldskapur hennar all-merki-
legur, er litið væri á hann með
hliðsjón af örðugleikmn þeim,
er höf. ætti við að stríða. það
er í sjálfu sér mjög merkilegur
hlutur, að önnum kafin bónda-
kona uppi í sveit, skuli geta —
í hjáverkum óg á hlaupum —
ritað allsæmileg skáklrit. — En
þetta hefir Kristín Sigfúsdóttir
gert og sýnt með því, að hæfi-
leikar hennar til ritstarfa eru
miklir — sennilega miklu meiri,
en séð verður af bókum hennar,
sem allar munu ritaðar á hlaup-
HKlSllS-kullð
verður haldið í Iðnó í kvöld kl.
8, til minninar um 95 ára af-
mæli og 75 ára stúdentsafmæli
þjóðskáldsins
Björnstjerne Björnson.
1. T. I. Lövland konsúll flytur
erindi um Björnson.
2. Adam Poulsen les upp ljóð
og leikkafla eftir Björnson.
Aðgangur heimill öllum. Miðar
fást við innganginn og kosta
eina krónu.
um, við margvíslegar búsýslu-
tafir og áhyggjur. — Og enn
voru þeir, er töldu bækur henn-
ar mjög lítilsverðar og liöfðu
jafnvel á orði, að þvílik ritverk
gæti önnur hver sveitakona lát-
ið eftir sig liggja. Sá dómur er
mjög rangur og fráleitt af góð-
um toga spunninn.
Siðasta bók Kristínar Sigfús-
dóttur, „Gömul saga“, er að
ýmsu leyti læsta ritverk hennar
að þessu. pví fer þó harla fjarri,
að efnið sé frumlegt á nokkurn
hátt eða óvenjulegt. pað er
marg-þvælt áður: Bræður tveir
elska sömu stúlkuna. Hún lof-
ast þeinx sem hún elskar ekki,
og alt lendir i vandræðum.
Bræðurnir leggja mikla fæð
hvor á annan, stúlkan veikist,
en húsfreyjan, móðir þeirra
bræðra, mæðist undir öllu basl-
inu og kuldanum og áhyggjun-
unx og reynir að gera gott úr
öllu. Stúlkan fær að lolcuixx
þann bróðui’inn, sem hún elsk-
ar, og þessi kafli sögunnar end-
ar á því, að þau flytjast af heinx-
ilinu. Móðir hans hefir keypt
jörð handa þeim lengst úti i
sveit og höf. skilur við þau, er
þau ríða í hlaðið á nýja býlinu.
petta er efnið í senx allra fæst-
um orðum. Menn sjá, að það
er ekki óvcnjulegt. Alt veltur á
því, hverixig nxeð það er farið.
Mér er ljúft að kannast við, að
og las bókina með mikilli
ánægju. Frásögnin er slétt og
hiklaus og víða falleg. Höf. ger-
ir nú blessunarlega lítið að því,
að seilast eftir „spaklegum“ af-
kara-setniiigum, senx venjulega
trufla alla frásögn og verða les-
andanum til angurs. I fyrri rit-
verkum Kristínar, sunxum að
minsta kosti, hefir nokkuð bor-
ið á þessum galla. — En liiin
nxá lieita laus við alt þvílíkt
,',moldviðri“ í þessari sögu, og
er það ekki lítill kostur og fx'am-
för. Frásögnin streymir áfram
nieð eðlilegum hraða, setning-
arnar eru víðast hvar blátt á-
fram, málalenghigar mjög litl-
ar, en hlýr og góðlátlegur blær
yfir öílu. Höf. treður sér hvergi
fram með dómum og athuga-
semdum og skýringum frá eig-
in brjósti.
petta er ekki nema hálfsögð
saga og endar í miðjum khð-
um. Er þess að vænta, að fram-
lialdið verði ekki lakara en upp-
lxafið, og munu margir bíða
þess með óþreyju.
P. S.
Besta Cigarettan i 20 stk. pökkmn,
sem kostar 1 krðnn, er
BLUEBAND
Tiorxii, Tiimiu,
| CIGARETTDR.
Fást í öllum
vepslunum.
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMI
Thiele
10 Kirkjustræti 10
framleiðir handa öllum hin heimsfrægu X ll i e 1 e —
gleraugu, sera gefa yður fullkomna sjón og vernda
augu yðar.
Komið og látið sjóntækjasérfræðing minn gefa yður
upplýsingar.
| Bæjarfréttir íj
Jarðarför
frú GutSrúnar Pálsdóttur fer
fram á rnorgun og hefst kl. \/2
frá húsi K. F. U. M.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 3 st., Vest-
mannaeyjum 5, ísafirði -4- 2, Ak-
ureyri 1, SeyöisfirNi 4, Grindavík
6, Stykkishólmi 1, Grímsstöðum
-4- 2, Raufarhöfn o, Hóluni í
Hornafirði 3, Blönduósi O, Þing-
völlum 2, Færeyjum 6, Angntag-
salik.-i- 1, (engin skeyti frá Ivaup-
mannahöfn), Utsira 1, Tynemouth
8, Hjaltlandi 4, jan Mayen 3 st.
— Mestur hiti hér í gær 3 st.,
minstur -4- 2 st. Úrkonxa 0,5 mm.
— Djúp lægö nálgast úr suövestri.
Sennilega noröanátt á morgun. —
Horfur: Suövesturland: Storm-
fregn. í dag og nótt hvass suð-
austan. Rigning. Faxaflói, Breiöa-
fjörður: Stormfregn. í dag all-
hvass suðaustan. í nótt hvass aust-
an. Dálítil úrkoma. Vestfirðir,
Norðurland, norðausturland, Aust-
firðir: í dag vaxandi austan. í
u.ótt allhvass austaji. Sennilega
snjókoma. Suðausturland: Storm-
fregn. í dag vaxandi suðaustan. í
nótt hvass austan. Rigning.
Leikhúsið.
„Sérhver“ verður leikinn ánnað
kveld. Aðgöngumiðar seldir í dag
síðdegis og á morgun kl. 10—12
og eftir kl. 2. Lækkað verð.
Minningarsamkoma
verður haldin í Iðnó í kveld unx
Björnstjerne Björnson skáld. — Á
þessu ári eru 95 ár liðin frá fæð-
mgu Björnsons, 75 ár síðan hann
varð stúdent, 70 ár síðan .„Sigrún
á Sunnuhvoli“ kom út og 50 ár
síðan hann hélt hina nafntognðu
ræðu unx „at være i Sandhed". —
í Noregi verður haldin minningar-
hátíð um Björnson á þessu ári.
Hér í Reykjavík verður þessara
afmæla hins niikla skálds og and-
lega höfðingja minst með sam-
komu í Iðnó i kveld kl. 8. Vara-
ræðismaður Lövland flytur erindi
um Björnson, en leikstjóri Adam
Poulsen les upp kafla úr leikrit-
rrn hans og sum glæsilegustu
kvæði skáldsins. Aðgangur kostar
1 kr. Má vænta þess, að samkorn-
an verði fjölmenn.
Björn ólafsson
kauprjiaður hefir fengið nokk-
ura rnenn í félag við sig til þess
að vinna að stofnun ferðamanna-
félags, sem fyrst og fremst á að
greiða fyrir ferðunx innlendra
tnanna hér á landi. Slík félög eru
víða um lönd og hafa unnið mik-
ið gagn. Vísi er kunnugt um það,
að Gunnlaugur læknir Einarsson
hefir fyrir nokkuru fært það í tal
við fáeina rnenn hér í bæ að stofna
slikt félag, og hefir hann aflað
sér nxargvíslegra heimilda um
starfsvið samskonar félaga í öðr-
u.m löndum. Má ætla, að hann og
aðrir, sem þessu nxáli eru hlyntir,
slái sér sanxan' og styðji þenna
nauðsynlega félagsskap.