Vísir - 13.06.1928, Qupperneq 2
V 1 S I R
s
Hðfum til:
H veiti:
Cream of Man!tob*», Canadian
Maid, Buffdlo, Onota.
Rúgmj öl
frá Havnemöllen
Hálfsigtimj el
frá Aalborg Dampmölle.
A leiðinni:
Strausykup.
Fypirliggjandi:
Hrísgrjón, Kartöflumjöl, Hrísmjöl, Kaffl.
A. Obenliaupt,
Nýkomið:
Ferðajakkar, vatnsheldir. Sportbuxur. Rykfrakkar, beltis-
lausir, hneptir upp í háls, mjög góðir og ódýrir. Nærföt ágæt-
is tegundir. Hálsbindi, mikið úrval, Sokkar, mikið úr\al. Kven-
bolir. Kvenbuxur. Kvenundirkjólar, úr silki og lasting. Silki- og
ullarsokkar, mikið úrval. Morgunkjólar og svuntur. Lífstykki
o. m. fl.
Versl. BR0ARFOSS,
Laugaveg 18.
R e y k i 5
Teofani
eigareítur,
20 stk.
1,25.
Símskeyti
Khöfn, 12. júní. F. B.
Frá leiðangri Nobiies.
Frá Kingsbay er símað. Föru-
nautar Nobile hafa skifst í þrjá
fiokka. Fyrir aðalflokknum er No-
bile og eru 7 menn í flokki bans,
F'ótbrotnuöu 2 þeirra í lendingu.
Annar flokkurinn er 30 kílómetra
au.stan við Nobileflokkinn, en 3.
flokkurinn er lagður af stað til
lands. Flestir mennimir eru kaln-
ir á böndum og fótum. Matvæla-
forSi lítill. ísinn næstum ófær.
Stöðugt á reki.
Rússar senda ísbrjót til hjálpar
Nobile.
Frá Moskwa er símaö: Rúss-
neska stjórnin hefir ákveöiö aö
senda stærsta ísbrjót sinn til bjálp-
ar Nobile og mönrium bans.
Khöfn, 13. júní. iF. B.
Frá Kína.
Frá Peklng er símaö: Ágrein-
ingur fer vaxandi milli hershöfð-
ingja Suðurhersins, einkum milli
Feng Yu-hsiangs marskálks og
Yenhsisians. Vildi hvor um sig
ráöa yfir Peking. Borgarbúar úr-
skuröuöu, að Yenhsisan skyldi
hafa yfirráðin á hendi. Herliö
Feng Yu-hsiangs safnast saman
fvrir utan Peking.
Utan af landi.
Borgarnesi, 12. júní. F. B.
Svalviðri undanfariö, sólskin og
Jmrkar. í morgun-hafði veriö hvítt
ai hélu í Þverárhlíð og í gærmorg-
un var sumstaðar frosiö á poll-
um. Grasi fer lítið farm þessa
dagana vegna þurka og kulda.
I morgun var farið meö gríðar
mikla steypuvél upp að brúarstæö-
inu viö Hvítá. Undirbúningi und-
ir aö steypa stöplana mun nú lokið.
, Gott heilsufar.
Fyrir góðurri mánuöi hófst vega-
gerö í Norðurárdal.
Moldrokið.
Ólíft má nú heita á götum úti
hér í bænum daglega fyrir mold-
roki, og svo er jafnan þegar þurk-
ar ganga.
Marga daga undanfarna hefir
veriö norðan kaldi og rykmekk-
irnir hafa þyrlast um göturnar og
í vit allra þeirra, sem úti hafa ver-.
iö.
Og varla getur heitið, aö fært
hafi verið aö opna glugga í hús-
um við sumar götur bæjarins, því
aö rykiö hefir þá horist inn í stof-
urnar og spilt andrúmsloftinu.
En bæjarstjórnin gerir ekkert til
þess, að vökva göturnar, svo aö
borgurunum sé fært aö fara feröa
sinna undir berum himni.
Fyrir nokkurum árum var þó
vatnsvagn haföur í förum hér urn
bæinn, þegar moldrokiö var
sem allra mest, og þótti þaö vera
til mikilla bóta. En nokkur sum-
úi undanfarin hefir honum ekki
verið flíkaö á almannafæri, og má
vera, að hann sé nú orðinn ónýtur.
Eins og allir mega skilja, er
mjög mikil óhollusta að þessu
moldryki og óþægindi fyrir alla,
sent úti í því þurfa aö vera. Er
næsta óyndislegt, aö sjá t. d. lítil
börn hrekjast aftur og fram um
göturnar, nálega hulin „þykkum
moldarmekki". En eins og m’enn
vita, á allur þorri barna hér í bæn-
un> hvergí athvarf utan húss —
nema á götunum.
Hér í Reykjavík er sjaldan logn
og kyrt veður, nema þá, ef til vill,
helst um síökveld og nætur.
Venjulega blæs vindur úr ein-
hverri átt, og æfinlega er moldrok
hér á götunum, ef ekki rignir degi
lengur. — Þetta veit bæjarstjórn-
in. Samt er ekki kunnugt, að hún
hafi gert neinar ráöstafanir til
])ess, að ráöa bót á hinu tíða,
með Fílnum og B. H.
B. stimplinum. —
Endurbætt bit. Bita
allra blaða best og
skila mestum hey-
feng, Lj ábrýni, H ver fi-
steinar, Brúnspónn,
Steðjar, Kiöppur —
Skllvinduolía, Þak-
járn galv. Girði og
alt annað sem búend
ur þarfnast er spurs-
málalaust best og
ódýrast í
Versl. B. H. BJARNASON.
óþægilega og háskalega mold-
roki.
En þetta er alveg óviðunandi.
Bæjarstjórnin veröur að afla sér
tækja til þess, að geta látið dæla
vatni á götur borgarinnar, þegar
þörf krefur. — Og hún verður aö
vinda svo bráðan bug að þessu,
aö komiö geti aö haldi í sumar.
Skólamálið.
—o—
Þær fregnir berast nú aust-
ur hingað, að „einvaldur“
landsins, mentamálaráðherr-
ann, sá hinn sami, sem kaus
Suðurlandsskólanum stað hér
uppi við fjöllin, sem lengst af
alfaraleið, hafi látið það hoð
út ganga, að ekki skvldi nema
25 nemendur teknir í fyrsta
hekk Mentaskólans á liausti
komanda, hversu margir sem
stæðist inntökúpróf í vor. Hin-
um er að sögn vísað á vonina
í húsnæðislausum og allslaus-
um skóla, sem ráðgert er að
setja á laggirnar. Sá skóli get-
ur þó með engu móti komið i
stað gagnfræðadeildar Menta-
skólans, eins og lil hans er
stofnað.
Fig geri ráð fyrir, að þetta
ofheldisverk ráðherrans sé
f\rrst og fremst sprottið af rót-
gróinni óvild hans til Reykvík-
inga. Það er kunnugt, að hann
muni hafa nokkura löngun til
að þröngva kosti þeirra, svo
sem auðið verður, hæði í skóla-
málum og ýmsum málum öðr-
um. - En liann gætir þess ekki,
sá góði maður, að miklar lik-
ur eru til, að þessi takmörkun
komi einna þyngst niður á
okkur sveitamönnum. Við höf-
um ekki aðslöðu til, að láta
kenna krökkum okkar svo
undir skóla, að miklar likur sé
til ])ess, að Reykjavíkur-börn
standi sig ver við inntökupróf-
ið. Líkurnar mæla beihlínis
allar með því, að kaupstaða-
unglingar verði hetur undir
inntökuprófið húnir yfirleitt.
Það gæti því farið svo, að
sveita-unglingarnir yrði flestir
gcrðir afturreka, því að vitan-
lega verða þeir 25 teknir, sem
hæstar einkunnir fá við prófið.
Hinir verða allir reknir lieim,
jafnvel þó að þeir standi sig
vcl í prófinu og fái hærri ein-
kunnir, en til þess þarf, að
komasl inn í skólann. En í
þeim flokkinum getur vitan-
lega verið margt af gáfuðustu
unglingunum, þó að aðrir hafi
liaft betri undirbúningskenslu
og hlotið hærri vitnisburði við
prófið.
Núverandi kenslumálaráð-
herra mun lengi hafa búið yfir
þessari ráðagerð. Hann var
eitthvað að skrifa um því lík
mál hér á árunum, og upp úr
þeim skrifum var farið að tala
um „gáfnaprófið“ svo nefnda,
aðallega i skopi. Hann þykist
nú líklega vera að framkvæma
skólamála-hugsjónir sínar með
þessari vitleysu. Eg hafði hugs-
að, að rpðherrann væri í raun
og veru sæmilega frjálslyndur
maður, en iiltektir hans í
skólamálunum sýna, að lnmn
er hinn mesti afturlialdsmaður
í mentamálum þjóðarinnar. -—
Öðru máli væri að gegna, ef
komið liefði verið á fót full-
komnum gagnfræðaskóla i
Reykjavík. Þá liefði gagn-
fræðakenslan í Mentaskólanum
mátt falla niður og sennilega
fallið niður af sjálfu sér. I
Mentaskólann hefði þá ekki
aðrir farið en þeir, sem ætluðu
sér frá uþphafi að ná stúdents-
prófi. — Meðan ekki er stofn-
settur fullkominn gagnfræða-
skóli i Revkjavík, er það eklc-
ert annað en gerræði og skræl-
ingjaháttur, að nieina æsku-
lýðnum að sækja þann eina
gagnfræðaskóla, sem til er hér
sunnanlands.
Eg vona að fregnin um þetta
„afreksverk“ ráðherrans reyn-
ist ósönn. —- lig trúi því 'ekki
fyrr en í allra síðustu lög, að
núverandi kenslumálaráðlierra
sé í raun réttri einhver allra
harðsvíraðasti afturhalds-gaur-
inn í kenslumálum þjóðarinn-
ar.
Sveitakarl.
□ EDDA. 59286167 = 2.
Veðrið í morgun.
Hiti í Rekjavík 9 st„ ísafirði 7,
Akureyri 9, Seyöisfiröi 4, Ve9tm,-
eyjum 8, Stykkishólmi 11, Blöndu-
ósi 8, Raufarhöfn 8, Hólum í
ííornafiröi 11, Grindavík 10, Fær-
eyjum 5, (engin skeyti frá Juliane-
haab, Jan Mayen, Hjaltlandi,
Tynemouth), Angmagsalik 7,
Kauptnannahöfn 10 st. — Mestur
hiti hér í gær 11 st„ minstur 7 st.
Úrkoma 0,04 mm. Mjög grunn
lægö yfir mröju íslandi á suöur-
leið. Hæö viö Suöur-Grænland og
noröur eftir Grænlandshafi. —•
Horfur: Suðvesturland, Faxaflói,
Breiöafjöröur,' Vestfiröir: í dag
og nótt: Hægur norðan. Sumstað-
ar skúraleiðingar. Bjart veður í
nótt. Norðurland: í dag og nótt
hægur norðan. Skýjaö loft. Úr-
komulaust. Noröausturland, Aust-
firöir: í dag og nótt austan átt.
Skýjaö. Úrkomulítiö. Suðaustm--
land : í dag og nótt hægviðri. Víö-
ast þurt.
óðinn
kom í gærkveldi meö þýskan
botnvörpung, Regulus fra Geeste-
múnde. Hafði hann veriö aö veið-
um í landhelgi skamt frá Eldey,
en hélt til hafs þegar varöskip-
iö kom. Varð óðinn aö skjóta n
skotum á Regulus áður en hann
nam staðar. Máliö veröur raim-
sakað í dag.
Leikhúsið.
„Æfintýrið“ veröur leikiö ann-
aö kveld. Alþýðusýning'. Aö-
göngumiöar seldir í dag og á
inorgun.
Súlan
flaug héöan kl. 9)4 í morgun á-
leiöis til Vestmannaeyja, með far-
þega og póst.