Vísir - 26.07.1928, Síða 3
VISIR
Frá Borgarnesi til Blðnduóss
Mjög fljótar og góðar ferðir í bestu „drossiu bílum“. Hefír verið farið
i alt sumar og verður haldiS áfram meSan veSur leyfir. Mjög sann-
gjörn fargjöld. Næsta ferð fellur á laugardaginn kemur. Allar nánari
upplýsingar gefur J. Jónsson, verslunin Klöpp. §ími 1527.
BARNAFATAVERSLUNIN
Klapparstíg 37. Sími 2035.
Reifakjólaefnin eftirspurðu komin
aftur, ódýr svifaflónel og margt fl.
K. F. U. M.
XJnnið innfrá í kveld.
Félagar fjölmenni-
um önnur eins ræktunar- og
framfaraskilyrði gæti verið að
ræða hér á landi.
Siðan var gengið upp að Hlið-
arenda og um hliðina alí á
Gunnarshaug. Benedikt Sveins-
son alþingismaður liélt ræðu að
skálarústum Gunnars, og rakti
þar ýmsa meginþætti Njálssögu,
er hér lá opin fyrir auguní gest-
anna i örnefnum og endurminn-
íngum, er nú fengu nýtt, líf og
merkingu.
Sökum þess, live tíminn leið
nrt, varð eigi komið við í Odda
á heimleið, en haldið beint í
prastaskóg. Var klukkan langt
gengin 7 er þangað var komið.
Hafði hæjarstjórn Reykjavíkur
efnt til móttöku þar í hinu nýja
gistihúsi. Bauð borgarstjóri
gestina velkomna í stuttri ræðu
og mælti á íslensku. Síðan var
gengið inn að ríkulegu „borði
köldu“, þar sem horið var fram
kaffi, öl og gosdrykkir með
■smurðu brauði, og gat allur
hópurinn staðið að borðum í
hinum vistlegu og rúmgóðu
stofum. Torleiv Hannaas þakk-
aði hinar ágætu og óvæntu
viðtökur og mælti siðar fyrir
minni bæjarstjórnar. Ól. Frið-
riksson mælti fyrir minni nor-
jænna sævíkinga. Ben.Sveinsson
mælti snjalt fyrir minni Færey-
ínga, en Djurhuus svaraði. Var
söngur mikill og gleðskapur
meðan staðið var við, og öll var
samkoma þessi hin ! skemtileg-
asta og frjálsmannlegasta.
Bæjarfulltrúar allmargir voru
þar komnir, og gerðu þeir og
frúr þeirra alt sitt til þess, að
stund þessi yrði sem ánægju-
legust gestunum.
Á lieimleiðinni var komið að
Grýlu. Var jarðhitinn og hver-
arnir eðlilega það allra nýstár-
legasta er har fyrir augu Norð-
manna. Lét Grýla biða eftir sér
hátt upp í klukkustund, en gaus
svo allmiklu gosi, og varð það
ferðamönnun um ógleymanleg-
ur atburður, og lirifning þeirra
var almenn og mikil yfir þess-
um lokum langs dags og erfiðs,
er þó liafði verið þeim óslitið
nýstárlegt æfintýri frá uppliafi
til enda. —
Er heim kom til Reykjavík-
ur, var klukkan langt gengin 1
um nótt, og lá „Mira“ albúin,
þar eð hurtfarartími átti að
vera kl. 12 á jniðnætti. Urðu því
stuttar kveðjur, en lilýjar og al-
úðlegar milli gestanna og hinna
mörgu vina og kunningja, gam-
alla og yngri, er fylgdu þeim á
skipsfjöl. Var söngur og liúrra-
hróp á báða lióga. Og að lokum,
er „Mira“ seig hægt frá bryggju,
söng mestallur Norðmannahóp-
urinn „Ó guð vors lands“ á ís-
'lensku. Með því var lieimsókn
þeirra í Reykjavík lokið.
Jarðhitaraiinsdknir.
Jarðnafarinn hittir á vatnsæð
við þvottalaugarnar.
—o—
Þegar verið var að hora eft-
ir jarðhita við laugarnar í gær,
varð vatnsæð fyrir jarðnafrin-
um á 11% m. dýpi. Þegar kom-
ið var á 13 metra dýpi i gær-
kveldi, var vatnsrenslið upp
um hóluna orðið tæpur líter á
sekúndu og hiti vatnsins 92
stig. — Þessi uppspretta ligg-
ur tveim til þrem metrum
hærra en uppsprettur þvotta-
lauganna, en liitinn i þeim er
venjulega 88 stig og aldrei
meiri en 89 slig. Þar er vatns-
renslið um 10% 1. á sekúndu,
eða rúmlega tiu sinnum meiri
en í þessari nýju lind.
Ekki liefir þess enn orðið
vart, að vatnsrensli liafi þorrið
í laugunum, þó að þessi nýja
lind opnaðist, en verið gæti, að
það kæmi síðar í Ijós.
Nú verður lialdið áfram að
bora þarna niður og má vænta
mikils af þessum merkilegu
rannsóknum.
Sigurður Skagfeldt.
söngvari kom liingað i gær-
kveldi með Goðafossi. Hann
syngur fyrir bæjarbúa annað
kVeld kl. 7% í Gamla Bíó, með
aðstoð Emils Thoroddsen. Sig-
urður liefir dvalið langvistum i
þýskalandi og sungið þar við
óperurnar i Rostock og Dres-
den, en komandi vetur er hann
ráðinn til óperunnar i’ Köln. —
Sennilegt er, að þetta verði c-ina
söngskemtun Skagfeldts hér,
því að hann lieldur áfram norð-
ur með Goðafossi.
Botnia
fór til útlanda í gær. Meðal
farþega voru frú Bergþóra
Thorsteinsson, ungfrú Iv. Ólafs-
son, Guðni Jónsson stud. mag.
og fleiri.
Lyra
fer héðan i kveld áleiðis til
Noregs.
Goðafoss
kom liingað í gærkveldi kl.
11, frá Hamborg og Hull, full-
fermdur af vörum og með
fjölda farþega. Meðal þeirra
ur, Ól. H. Ólafsson verslm.,
stúdentarnir Leifur Ásgeirsson,
Hólmfreður Franzson, Eiríkur
Einarsson og Einar Sveinsson,
og inargir erlendir ferðamenn,
þýskir og enskir, alls um 35 far-
þegar.
Gullfoss
kom til Leith í gærmorgun
og fór í gærkveldi áleiðis til
Kaupmannahafnar.
Bruarfoss
er á Akureyri. Kemur hingað
31. þ. m.
Lagarfoss
er í Kaupmannaliöfn. Fer
þaðan 3. ágúst.
Esja
fór frú Seyðisfirði i gærkveldi.
Selfoss
er á Vestfjörðum.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 13 st„ Isafirði
9, Akureyri 9, Seyðisfirði 8,
Vestmannaeyjum 10, Stykkis-
hóhni 8, Blönduósi 7, (engin
skeyti frá Raufarhöfn), Hólum
í Hornafirði 11, Grindavílc 13,
Færeyjum 9, Julianehaab 12,
Angmagsalik 6, Jan Mayen 5,
Hjaltlandi 12, Tvnemouth 14,
Kaupmannahöfn 14 st. — Mest-
ur hiti hér í gær 20 st„ minstur
11 st. Er þetta heitasti dagur,
sem komið hefir á sumrinu.
Lægðin er nú komin austur að
Stað i Noregi. Háþrýstisvæði
fyrir vestan land, á austurleið.
— H o r f u r; Suðvesturland: I
dag og nótt norðan og norðvest-
an kaldi. Viðast þurt veður, sum
staðar smáskúrir. Faxaflói,
Breiðafjörður og Vestfirðir: I
dag og nótt norðan og norðaust-
an kaldi. þurt og hjart veður.
Norðurland: I dag og nótt hæg-
ur norðan. Skýjað loft en úr-
komulítið. Norðausturland: í
dag og nótt norðan átt, þykt
loft, dálítil rigning. Austfirðir:
I dag og nótt norðafi kaldi. Víð-
ast þurt veður. Suðausturland: í
dag og nótt hægur norðan og
norðaustan. Sennilega þurt veð-
ur.
Norska herskipið Tordenskiold
átti að koma liingað þ. 27. þ.
m„ en nú hefir norska aðal-
ræðismanninum hér horist
skevti þess efnis, að skipið sé
enn notað í leitinni að Amund-
sen kringum Spitzhergen, og að
þess sé því ekki von liingað fyr
en um 1. næsta mán. (FB).
þorstcinn Gíslason
ritstjóri liefir nú tekið við
hókaverslun sinni aftur af
Skúla Tómassyni, er keypti
hana i fyrra. Sjá augl. í blað-
inu í dag.
Gísli J. Ólafson
hefir verið skipaður lands-
simastjóri.
Súlan
hætti við að fljúga til Seyðis-
fjarðar í gær. I dag er ráðgert
að hún fari til Vestmannaeyja.
Ný bók.
„I leikslok“, smásögur eftir
Axel Thorsteinsson, koma út i
dag. Fást á afgi'. Vísis og hjá
bóksölum.
E. s. Nordland
lcom liingað i gær með sem-
entsfarm til J. porláksson &
Norðmann og H. Benediktsson
& Co .
Gjöld fyrir blaðaskeyti
lækka til mikilla muna frá 1.
ágúst til þessara landa: Dan-
merkur, Noregs,Sviþjóðar, Eng-
Framvegis verður síma-
númer rnitt
1995.
Sigurhans Hannessou
verfestjórl hjá h.f. I s a g a.
Rjómbússmjöp
alveg nýtt, 2,10 kr. ú2 kg.
KLEIN,
Frakkastíg 16. Sími 73.
Ný Rauðaldiu,
Tomatap fsl.
1.75 kr. V2 kg.
ELEIN,
Frakkastíg 16. Sími 73.
> i
Reiðbuxur,
góðtegund,ný-
komnar.
iis-kal gerir aila glala.
lands, eins og sjá má af aug-
lýsingu i hlaðinu i dag. Ilr. land-
símastjóri Gísli J. Ólafson lief-
ir í siðustu utanför sinni unn-
ið að því að koma á þessari
lækkun, og munu allir kunna
lionum hestu þakkir fyrir. —
Blöðin munu að sjálfsögðu láta
lesendur sína njóta góðs af
þessari lækkun með því að
flytja meiri skeyti en áður.
Guðm. Guðfinnsson
er nýkominn lir ferðalagi og
tekur á móti sjúklirigum á
venjulegum stað og' tíma fram
til 3. ágúst.
Kolaskip
kom í nótt til li. f. Kol og
Salt.
Áheit á Strandarkirkju,
afh. Vísi: 50 (fimmtíu) kf.
frá N. N„ 10 kr. frá N. N, 5 kr.
frá Möggu, 5 kr. frá Sigríði.
Reykvíkingar!
Notið sjóinn og sólskinið!
Til Þingvalla
fastar ferSir.
Til Eyrarbakka
fastar ferðir alla miðvikudaga.
Austnr í Fljótshiíö
alla daga kl. 10 f. h.
Afgreiðslusímar: 715 og 716.
Bifrelðastöð Rviknr.
Nytt
Hveitikorn, blandað hænsnafóður
íeilmals, hænsnabygg, ungafóður,
egg, lundi frá Brautarholti kem-
ur nú daglega.
VöN OG BREKKUSTÍG1.
Líkkistur
vandaðar að efni og öllum frá-
gangi hef ég altaf alveg tilbúnar.
Likvagn leigður,
Sé um útfarir.
Tryggvi Árnason.
Njálsgötu 9. Sími 862.
vSy íX? Ö5 \Xr
Sartöilnr
nýjar sérlega ódý.rar
í lieilum pokum.
Hðlir i Humrsson.
Abalstræti 6.' Sfmi 1318
Vantap HUS.
Hús helst nálægt miðbænum,
eða á góðum stað i bænum,
óskast til kaups. — Útborgun
frá 7—10 þúsund. — Tilboð
merkt: „Vandað Ms“
sendist Vísi fyrir 30. þ. m.