Vísir - 19.10.1928, Qupperneq 2
VISIR
tfl)) BtoTHm i Olseni ((
Fengum með Gullfossi:
Lauk i pokum.
Prima hollenskt jarSarherja-
og liindberjasyltutau í '« kg.
glösum og 5 kg. blikkdunkum
á lager og beint frá útlöndum.
A. Obenliau.pt.
Símskeyti
Khöfn 18. okt. FB.
Tilraun til að fljúga austur um haf.
Frá St. Johns á Newfound-
landi er símað: Breskur liðs-
foringi að nafni MacDonald
flaug af stað liéðan til Evrópu
í gær. Flýgur hann í litilli
sportsflugvél, sem hefir áttatíu
og finnn hestafla mótor. Flug-
vélar þessar eru kallaðar
„Havilla and Moth“ flugvélar.
Vængjamálið er að eins tutt-
ugu og sex fet. Flugvélin hefir
hvorki flothylki né radio.
Minningarhátíð um Amundsen.
Frá Ósló er simað: Stjórnin
í Noregi liefir ákveðið, að
fjórtándi desember í ár verði
hátíðlegur lialdinn til þess að
minnast Amundsens, en þessi
dagur er valinn til liátíðahald-
anna, af því að á honum komst
hann tii suðurpólsins. Ætlast
er til, að Norðmenn um allan
heim haldi daginn liátíðlegan.
Fundinn bensíngeymir af Latham-
flugvélinni.
Frá Niðarósi er símað: Ben-
síngeymir méð áletruninni
„Hydroavion Latham“ hefir
fundist á hafinu vestan við
Niðarós. Riiser-Larsen telur,
að fundurinn saiini, að Latliam
hafi steypst niður í hafið.
Látinn bankastjóri.
Frá New York er símað:
Benjamin Strong, forstjóri Fe-
deral Reserve bankans hér er
látinn.
18. okt. FB.
Bæjarstjórnarkosningar í París.
Frá París er shrraö: JafnatSar-
menn og radikalir hafa í bæjar-
stjórnarkosningum unnið allmörg
sæti frá ihaldsmönnum og mið-
flokkunum'.
Leikhúsbrnninn
í Madrid.
Einliver liræðilegasti bruni,
sem sögur fara af í Madrid, varð
þar sunnudagskveldið 23. f.
m., þegar Novedades-leikliúsið
brann. Talið er að 185 manns
hafi beðið bana, ýrnist troðist
undir eða farist í eldi, en mörg
liundruð meiddust. Eldurinn
gaus upp meðan stóð á leiksýn-
ingu, og læsti sig svo óðfluga
um húsið, að lítið ráðrúm gafst
til undankomu. Miklum ótta sló
á alla leikhúsgesti, og þustu þeir
i ofboði til dyra, og rak þá liver
skelfingin aðra. Fólk var troðið
undir, deytt og limlest og á því
troðið, sumir gripu til hnífa til
þess að brjóta sér leið og hver
maður liarðist sem óður fvrir
lífi sínu.
Novedades-leikliúsið, sem
reist var 1850, var að mestu úr
tim'bri. pað stóð í miðju hins
elsta liluta borgarinnar; og var
mjög fjölsótt, einkum á sunnu-
dögum. pá var oftast húsfyllir
og venjulega margt kveniia,
sem fóru þangað með börn sín.
pó vildi svo vel til þetta kveld,
að þar var venju færra, cn þó
um 2000 manns.
Eldurinn verður Iaus.
Laust fyrir náttmál, i því e.r
verið var að vinda upp tjaldið
eftir lilé milli þátta, skaut npp
skyndilega mikilli eldtungu á
leiksviðinu og fram yfir næstu
sæti. Angistarój) heyrðpst frá
konum um allan salinn, og
áhorfendur þustu óttaslegnir lil
dyra. Hljómsveitin sýndi það
• hugrekki, að liún tók til að leika
spánverskt gleðilag, til bess aö
sefa liina tryldu áliorfendur, en
það kom að engu liði. En áfram
var lialdið að leika lögin, þang-
að til eldurinn gekk svo nærri
sönglistarmönnunum, að hár
þeirra sviðnaði.
g Borgunarskilmálar. JJ
peir, sem sátu í stúkum og
neðstu sætum, komust greiðlcga
út, en göng og stigar liins gamla
leikhúss reyndust ofþröng liin-
um æðisgengna mannfjölda,
sem siðar fór, og í öllum stig-
um varð í einu vetfangi æpandi
þröng, sem braust áfram, en
konur og börn voru fótum troð-
in.
Eldurinn las sig um liúsið á
ótrúlega skömmum tíma, því að
allir viðir voru skraufþurrir.
Klæði sumra áhorfanda loguðu,
þegaf" þeir reyndu að brjótast
úr sætum sínum. þeir, sem sátu
á þriðja og fjórða lofti, rendu
sér liver um annan þveran ofan
stoðirnar, sem héldu loftunum
uppi, en sumir hlupu í æðu sínu
fram af skörunum og ofan á
mannfjöldann, sem undir var.
Einn maður, sem meiðst hafði
í troðningnum, æddi vitstola aft-
ur og fram og æpti í sifellu á
konu sína og börn. Hann liafði
farið með fimm börn sín i leik-
liúsið, af því að eitt þeirra átti
þá afmælisdag, að því er siðar
var sagt.
Allar bifreiðir, sem þarna
voru í nánd, og þar á meðal 50
leigubifreiðir, fekk lögreglan til
þess að flytja slasað fólk í
sjúkrahús, óg fótgönguliðssveit
var fengin til hjálpar úr næsta
hermannaskála.
Björgunartilraunir urðu taf-
samar vegna ljósleysis, því að
sloknað liafði á rafljósum öllum
og gasljosum þar í kring. En úr
því bættist nokkuð þegar flokk-
ur verkfræðinga úr hernum
kom með björt blys. -— Eríitt
reyndist að ná þeim, sem lágu
eftir á efstu loftunum, því að
allir stigar ofan við neðsta loft
höfðu brunnið.
Tveggja ára gamalt liarn
fanst í hnipri undir brotinni
lmrð i einu liorni, og var nálega
ómeitt; hafði hurðin hlíft því,
en hundruð manna höfðu lilauj)-
ið þar yfir barnið.
Flest líkin, sem fundust, voru
blá og marin undan fótum
þeirra, sem yfir þau höfðu þust.
Ekkert öryggistjald.
prír verkfræðingar, sem kom-
ust lífs af, segja liræðilegai' sög-
Smámeyja vetrarkájiur
eru fallegastar, hlýjastar og ó-
ódýrastar í
Yersl. Ben. S. Þórarinssonar.
Allar í bestu litum og með
skinnum.
Drengjafatnað
skyldu allir kaupa i
Yersl. Ben. S. Þórarinssonar
meðan til endist.
Karlmannanærfatiiaí
sokka, hálsbindi, trefla (úr silki
og ull), vasaklúta, húfur o. fl. fl.
þykir ávalt best að kaujia í
Versl. Ben. S. Þórarinssonar
Allir, sem kaupa í
Versl. Ben. S. Þórarinssonar
fara ánægðir út og koma aftur
og aftur. par er verð og vörur
bestar.
ur af þvi, sem fyrir augu bar.
Iíarlar og konur hegðuðu sér
eins og villidýr. Svo hamslaus
var ákefðin til að bjargast, að
margt fólk virtist enga . hug-
mynd liafa um, hvað það gerði
lil þess að komast undan. Kon-
um og börnum var lirundið uni
og troðið á þeim, þegar fólkið
ruddist út. peir, sem máttar-
meiri voru, neyttu þess oft við
hina máttarminni, og öll vcl-
sæmistilfinning virtist fyrir
borð borin. Á sumum Ííkum sá-
ust-liræðilegar hnífstungur og
aðrir höfðu jafnvel verið bitnir,
og var auðséð, að óðir menn
hefði veitt þessa áverka þeim,
sem á undan þeim fóru, til þess
að komast út, hvað sem öðru
liði.
Slökkvitæki leikhússins virt-
ust vera í ólagi, og ekkert ör-
yggistjald var fyrir leiksviðinu.
Svo er sagt, að slökkviliðið hafi
sjö sinnum kært til yfirvald-
anna yfir þessu leiklnisi, scm
þótti að ýmsu leyti illa úr garði
gert, en þær kvartanir voru að
engu liafðar.
Verslun
Ben. S. Þórarinssonar
fekk með síðustu skipum mik-
ið og fallegt úrval af silkifatn-
aði (nær-og millifatnaði) handa
kvenfólki. Sömuleiðis margar
tcgundir og stórt úrval af kven-
siikisokkum hinum ágætustu,
er tii bæjarins flytjast. Allir
með nýtískulitum. —
Svartir silkisokkar gleymdust
ekki að flytu með.
Lífstykki eru best í
versl. Ben. S. Þórarlnssonar,
enda úrval mest. Verðið frábært
SOOOÍÍOOOOWÍÍSÍÍÍSÍSÍXSOOOOOOOÍSÍ
Barnaföt og barnahúfur eru ný-
komin i verslun Ben. S. J?órar-
inssonar. Efni og litir hinir
bestu og verðið dýrðlegt.
SOOOÍSOÍSOOÍSÍSÍXSÍSÍSÍSÍSOOOOÍSOOOÍ
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 2 st., ísafirði 4,
Akureyri 5, Seyðisfirði 8, Vést-
mannaeyjum 3, Stykkishólmi 5;
Blönduósi 4, Raufarhöfn 6, Hól-
um í Hornafirði 5, Grindavík 4,
Færeyjum 7, Julianehaab 3, Ang-
magsalik 5, Hjaltlandi 9, Tyne-
mouth 8, Kaupmannahöfn n, (ekk-
ert skeyti frá Jan Mayen). Mest-
ur hiti hér i gær 8 st., minstur 1 st.
— Djúp lægð fyrir austan land. —
Austan noröaustan snarpur vindur
á Halamiðum. — Horfur: Suð-
vesturland: 1 dag og nótt norðan
kaldi' og þurt veður. Faxaflói: í
dag vaxandi norðanátt, sennilega
allhvass með kveldinu. Víðast úr-
komulaust. Breiðafjörður, Vest-
firðir, Norðurland: í dag og nótt
vaxandi norðan og norðaustan átt.
Hvass úti fyrir. Rigning eða snjó-
koma í útsveitum. Austfirðir: í
dag og nótt vaxandi norðán átt,