Vísir - 13.11.1928, Síða 2
VISIR
))MsrmaHi&OLSEwC
Höfum til:
Bætingsduft, ýmsar teg,
G©pdn£tid „Backin“,
Kökudpopa,
Cerebos bopðsalt í dósum.
Páll Úlafsson
prófastur í Vatnsfirði.
—x—
Sira Páll Ólafsson prófastur í
Vatnsfirði andaðist síðastliðinn
sunnudag' á lxeimili sínu. rúm-
Iega 78 ára að aldri, fæddur 20.
júli 1850 í Stafholti. Foreldrar
hans voru síra Ólafur Pálsson,
dómkirkjuprestur og frú Guð-
rún Ólafsdóttir Stephensen frá
Viðey. Páll varð stúdent 1869,
kandidat í guðfræði 1871, vígð-
ist 1873 aðstoðarprestur föður
síns, sem þá var orðinn prestur
að Melstað. Hann var eitt ár
prestur í Hestþingum í Borgar-
firði, fluttist að Stað í Hrúta-
firði 1877 og að Prestshakka
1880 og gegndi þar prestsstörf-
um til ársins 1901, en fluttist
þá til Vatnsfjarðar og bjó þar
upp frá því til dauðadags, en
fékk lausn frá prestsskap í síð-
ustu fardögum.
Páll prófastur var mikill mað-
ur vexti, fríður sýnum og liöfð-
inglegur mjög í allri fram-*
komu, skemtinn og glaðvær,
hjálpfús og vinsæll mjög af
sóknarbörnum sínum. Hann var
dugnaðarmaður mikill og ber
Vatnsfjarðarstaður miklar i
menjar atorku hans. Reglusemi !
hans i emhætlisrekstri er mjög
við brugðið, og var hann jafn-
an talinn með fremstu kenni-
mönnum þessa lands.
Símskeyti
Khöfn, 12. nóv. FB.
Poincare tekur aftur við
stjórnarformensku.
Frá París er símað: ping-
mannafundur radikalaflokksins
áleit tilslakanirnar, sem Poin-
care hauðsl til þess að gera, ó-
fullnægjandi, því að þær full-
nægi ekki kröfum radikala
landsfundarins og bannaði þess
vegna meðlimum radikala
flokksins að taka sæti í stjórn
Poincares.
prátl fyrir það, að radikalir
Iiöfðu þánnig neilað þátttöku í
sljórninni, tókst Poincare í gær
að mynda samsteypustjórn með
þátttöku sömu flokka og áður,
að undanteknum radikölum.
Stjórnin er því meira hægralit-
uð en fráfarandi stjórn. Poin-
care er stjórnarforseti, Cheíon
fjármálaráðh., Barthou dóms-
málaráðh., Briand utanrikis-
ráðh., Tardieu innanríkismála-
ráðh., Painleve hermálaráðh.,
F orgoet samgöngumálaráðh.,
Leýgoues flotamálaráðh., Bon-
nefous verslunarmálaráðh., Lo-
cheur atvinnumálaráðh., Mar-
raud kenslumálaráðh., Hebbe-
sey landbúnaðarráðh., Maginot
nýlendumálaráðh., Anteriou
eftirlaunamálaráðh., Eynach
flugmálaráðh.
Vafalaust verður reynt að
koma á samvinnu á milli radi-
kala og socialista eins og 1924,
hinsvegar ráða stuðningsflokk-
ar stjórnarinnar yfir kringum
350 af 612 þingsætum.
Vopnahlésins minst í Frakk-
landi og Englandi.
Mikil hátíðaliöjd í gær út af
10 ára afmæli vopnalilésins.
Mikil hersýning við gröf óþekta
hermannsins hjá sigurbogan-
um. Eftir hersýninguna „skrúð-
ganga“ fjölda blindra og fatl-
aðra hermanna. Opinberar
býggingar skrautlýstar.
Frá London er símað: í við-
ur vist konungsins og stjórnar-
innar söfnuðust tugir þúsunda
í Whitehall til þess áð minnast
vopnahlésins. Kl. 11 .tveggja
mínúlna kyrð í öllu Bretáveldi.
Utan af landi.
Isafiröi. 12. nóv., F.B.
Þingmálafundir hafa verið
haldnir í inndjúpinu undanfariö.
Þing- og héraösmálafundur er boS-
aður í SúSavík 25. nóvember. Er
íctlast til aö sæki hann kjörnir full-
trúar úr öllum hrepjmm Nor.öur-
ísafjaröarsýslu.
Árlegur þing- og liéraösmála-
fundur Vestur-ísafjaröarsýslu
veröur haldinn á SuÖureyri í þess-
um mánuöi. Þingmaöur kjördæm-
isins mætir þar.
Smásíld hefir engin veiöst und-
anfariö og tregur ]>orskafli viö
djúpiö.
Akureyri, 12. nóv., F.B.
Fyrir forgöngu U. M. F. A. ,og
Stúdentafélags Akureyrar var
„Matthíasarkvekf' haldiö í gær-
kyeldi. Síra Friörik J. Rafnar setti
samkomuna sem formaöur Stú-
dentafélags Akureyrar cg flutti er-
indi um skáldiö. F. A. Brekkan
í ithöfundur flutti annaö erindi um
skáldskap sira Matthíasar. Har-
aklur Björnsson og Ágúst Kvaran
lásu upp fyrsta þátt úr' þýöingu
I\Iatthíasar á ,,ManfreÖ“. Karla-
l.óriö Geysir söng á milli og síöast
,.Ó, guö vors lands.“
Var skemtun þessi afar vel sótt.
, Leikfélag Akureyrar sýnir
..Munkána á Mööruvöllum" um
næstu helgi. Aöalæfing veröur á
föstudaginn. Ágúst Kvaran. og
Haraldur Björnsson leika aöalhlut-
verkin, príórinn og Óttar.
Hér’ snjóaði í gær. Rigning 1
dag. ■
Skip strandar.
Vík í Mýrdal, 13. nóv., F.B.
1 ofsaveðri á sunnudaginn strand-
aöi togarinn Solon frá Grimsby,
sennilega austarlega á Mýrdalg-
sandi. Skipverjar björguöust í
land, en einn mannanna dó úr vos-
búð og kukla á leiöinni að Fagra-
dal í Mýrdal. Strandmennirnir
koma hingað i dag. Skipið var að
koma til landsins beina leið frá
Grimsby.
Sýslumaður hefir sent menn
austur með söndunum til þess að
leita skipsins. Hér var þoka og
iHviðri á sunnudag, svo ekki sást
ti! sjávar.^
Tyrkjaveldi hií nýja.
Þjóðþingið í Ángora, sem haldið
var fyrir fimm árurn, lýsti y.fir því,
að það hefði tekið í sínar hendur
yfirráð alls Tyrkjav^klis, og nami
úr lögum soldáns-tignina. Var þá
lckið soldánsvekli því ,sem verið
hafði • í Tyrkjalöndum síðan á
þrettándu öld. en við völdurn tók
lii.8 tyrkneska lýðveldi.
Sú var tiðin að Tyrkir voru.van-
ir að deila um, hvort betra væri
að taka upp vestræna menning eða
halda við hina austrænu. E11 þeg-
ar Kemal og flokkur hans hafði
sigrað. þá gengust ]3eir undir vest-
ræna menningu, þó aö vestræmt,
þjóðirnar hefðu verið þeim and-
vigar. Hinn nýi siður var boðaður
af mikiií kappi og- miskunnar-
leysi, undir forustu Mustafá Ke-
mals og félaga hans tveggja, Is-
mets og Fevzis. Öll mótspyrna var
harðlega bönnuð. Jafnvel enn sér
engin niinstu merki lýðsstjornar í
Tvrklandi. F.kki hafa sögur farið
af meiri grimdarverkum á vorum
dögumi en framin voru í Tyrkja-
veldi í þessari hyltingu, og sumir
hinna fremstu og göfugustu stjórn-
málamanna, sem engan ])átt áttu i
fíoikkadeilum, voru hengdir á a-I-
mannafæri, af ])vi aö þeir höfðu
hugrekki til þess að vera á öðru
máli en Kernal. Lýðveldismenn
hafa sætt sig vi'ð lamdamissi Tyrk-
lands og hafa enga tilraun gert til
])ess, að seilast eftir ])eim löndum,
sefni gengið hafa undan J yrkjum
að undanförnu. En innan hinna
nýju landamæra gætir lítt aðkomu-
þjóða. Flestir Griikkir ög Armen-
ingar, sem áður voru á Litlu-Asíu,
hafa ýmist flúið eða verið fluttir
úr landi i hinni mestu eymd. 1 yrk-
iv frá Grikklandi konm í skiftum,
cn nteð því a8 þeir voru óvanir
loítslagimt í Anatolíu, þá fórust
þeir í þúsundatali
Lýðveldisstjórnim tók að ger-
hveyta öllu háttalagi ])egna sinna
• J ......
á meðan mikill fjöldi manna stundi
undir hörmungum, sem ekki verð-
ur með orðum lýst. Tyrkneska'húf-
an var fyrirboðin og konum bann-
TEOFANI er orðið
- 1,25 á líorðið.
Látiö ekkl eftiplíkiaga?n-
as* villa yðuF. 25 aurarn-
— ir gera allan muninn. —
seljast jiessa daga með
50 lo afslætti.
Bmuhs-¥ erslim.
að að gauga með slæðu fyrir and-
liti. Arahiskt letur var afnumið og
latneskt tekið í staðinn. Tyrkland
var uni langt skeið voldugasta ríki
Múhameðstrúarmanna, og fnestur
stynkur ])ess kom frá þjóðum þeim
se.m játuðu ])á trú^en soldáninn í
Miklagarði var Kalífi allra Mú-
hameðstrúarmanna. Nú hafa Tyrk-
ir afsalað sér allri forustu í trú-
r.iiálum. Þeir láta tilfinningar
trúbræðra sinna eins og vind um
eyru þjóta, þeir ráku síðasta Kalif-
ánni út úr Miklagarði og settu ver-
aldlegt snið á trúarbrögð sín og
helgisiðu. Höfðingjáveldi og
kierkaveldi er horfið úr Tyrk-
landi. í fyrsta sinni í sögu Tyrkja-
veldis er nú farið að sjá fyrir vel-
í’crð óhreyttra hiorgara, og þegar
margra alda trúarbragðafjötrum
hefir verið varpað fyrir horð, ætla
hinir nýju stjórnendur að reyna að
hæta efnahag hænda í Anátólíu,
en þeir hafa húið við kúgun, eymd
og vesaldómi. Þó að einræði þetta
hafi verið hræðilega grimmilegt,
þá hefir gott leitt af því að sumu
leyti, og sennilegt má telja, að þar
komist á vestræn menning og
merkileg, á líkan: hátt eins og orð-
ið hefir í Japan.
(Lausl. ])ýtt úr M. G. W.).
Heiinferðarlnálið.
Heimferðarnefnd Þjó'ðrækinisfé-
lagsins boðaði til fundar í St.
Paulskirkjunni í Winnipeg þ. 15.
okt. Ákveðið var af íundarstjóra,
að fimm menn úr nefndiitnii skyldi
tala fyrst og var ræðutími þeirra
ótakmarkaður. Þegar tveir nefnd-
armanna höfðu talað, annar þeirra
í hálfa klukkustund, stóð dr. S. I.
Jóhannesson upp og kvað það sjá-
anlegL að nefndin ætlaði ekki að
gefa mótstöðumönnum sínum tæki-
færi til þess að tala og lýsti þvi
vfir fyrir hönd sjálfboðanefndar-
innar, aö hún gengi af fundi.
Gengu ])á sjálfhoðanefndarmenn af
fundi og fylgismenn, þeirra. í fund-
arlok var samþykt tillag'a um aö
fundurinn lý'sti yfir ánægju sinni
yfir gerðum nefndarinnar. (F.B.).
Dánarfregn.
Þ. 9. mars síðastl. andaðist að
heimili sínu nálægt Clarkleigh,
Man. Sigriður Westman. Hún var
fædd 8. apríl 1859 í Sandeyjum í
Vestmannaeyjum, kom til Ameríku
1888. Mann sinn, Jon Westman,
misti hún fyrir 12 áruní síðan.
(F.B.).
Benjamín Kristjánssyni
cand. theol. og konu hans var bo8-
ið til samsætis í samkomiusal Sam-
handssafnaðarkirkju, nokkru eftir
íkomu þeirra til Winnipeg. Bauð
síra Ragnar E. Kvaran þau hjón
velkcmin. Ýmsir aðrir héld'u þar
ræður.
•
íslenskir námsmenn.
í haust fór til guðfræðináms viS
Meadville háskóladeildina í Chi-
cago, Philip Pétursson, 0g síra
Eriðrik A. Friðriksson frá Wyny-
ard, sem verður þar í vetur til ])ess
að hlýða á fyrirlestra, aðallega í
70 ára reynsla
og vísindalegar rannsóknir
tryggja gæði kaffibætisins
enda er hann lieimsfrægur
og hefir 9 s i n n u m hlot-
ið gull- og silfurmedaliur
vegna framúrskarandi gæða
sinna.
Hér á landi hefir reynslan
sannsð að VEItO er miklu
betfi og drýgri en nokkur
annar kaffibætir.
Notið að eins V E R O.
pad marg borgar sig.
í heildsölu hjá
HALLDÓRI EIRÍKSSYNI
Hafnarstæti 22. Reykjavík.