Vísir - 02.03.1929, Síða 3

Vísir - 02.03.1929, Síða 3
VlSIR Hjálpræðisherinn. Samkomur ;á morgun: Helgunarsamkoma Jd. 11 árd., sunudagaskóli kl. 2 é. h., hjálpræðissamkoma kl. 8 $íðd. Kapteinn Axel Olsen -stjórnar. Frú Stabskapteinn B. Jóhannesson talar. Lúöraflokk- lirinn og strengjasveitin að- sdoða. Allir velkomnir. Leikhúsið. „Sendiboðinn frá Mars“ verð- air leikinn annað kveld í síðasta gmn. Allir þeir, sem séð liafa leíkinn, láta hið besta af hon- ■mn. Telja þeir leikrilið sjálft .athyglisvert og merkilegt skáld- 'Verk og méðferð leikandanna á bhiíverkunum yfirleitt ágæta. Má búast við, að margir eigi eft- ir að sjá leikinn og fjölmenni íiú, er liann verður sýndur í síð- áista sinn. iGuHfossi hlekkist á. Gullfoss fór frá Khöfn kl. tí i gærmorgun, i skipahóp, sem •fínski ísbrjóturinn „Sampo“ braut leið gegn um ísinn. Þegar komið var nokkuð áleiðis, rakst "þýskt skip, sem var í hópnum, áftanvert á Gullfoss og setti gat á. slíðurborðið, en ekki stærra <en svo, að bráðabirgðaviðgerð ífór fram þegar í stað um borð. Verkfall vélstjóramia er ekki enn til fykta leitt og biður flotinn allur j— nema þrjú skip — eflir því áið samningar takisl. yírekstur. I gær var verið að sækja skip »uður á Skerjafjörð, og ætluðu fjögur að vera samflota: Snorri göði, Gyllir, Þórólfur og Ivarls- sfní. Snorri goði átti að fara fyrir, en hin i kjölfar hans, þvi ;gð siglingaleiðin er þröng út fjörðinn. En einhverra orsaka vegna tókst svo slysalega til, áður en lagt var af stað, að Gyllir sigldi á Snorra goða miðj- an og dalaði hann allmikið, en höggið kom á band i skipinu, ,og þess vegna gekk stefnið á Lryili ekki inn úr byrðingin- iim. Lítils háttar leki kom að Snorra goða og var lionum lagl liér upp í fjöru og gert við skemdirnar í nótt, svo að hann getur farið til veiða. Fyrirlestur tim bálstoíur flytur Dr. med. viunnlugur Claessen í Nýja Bíó Jíi. 3 siSd. á morgun. Lausar skrúfur veröa leiknar í kveld kl. 8. 'Xil veiða eru þessi þrjú botnvörpuskip 'íarín: Belgaum, Baröinn og- Haf- stein. ,E.s. ísland íkom kl. 6 í roorgun frá útlönd- iim, Meöal farþega voru: Cavl 'Olsen konsúll og frú, prófessor (östrup og frú, Siguröur JónsStm verkfræöingur, Mr. Allen útgerö- arstjóri, Jón Loftsson kauprn., Björn Gislason kaupm:, Siguröur vjónsson verslunarmaöur, Gunnar Benjamínsson verslunarm.; ung- frúrnar G. Eggertsdóttir og Guö- björg Helgadóttir. — Skipiö íer vestur og noröur til Akureyrar kl. 6 annaö kveld. Þrír línubátar komu af veiðum í nótt, allir jneð góðan afla. S k i p a f r e g n i r. Goðafoss fór liéðan kl. 10 í gærkveldi til Breiðafjarðar og 'Vestfjarða. Lagarfoss fór fram hjá Fær- eyjum i gær. Kemur væntan- lega til Austfjarða í dag:- Brúarfoss fór frá Hull í fyrra- ,/lag, áleiðis til Reykjavíkur. Selfoss er væntanlegur til Hamborgar í dag. Esja var á Blönduósi í morg- un. S. R. Aöalfimdur Sjúkrasaml. Reykja- vikur veröur haldinn næstkomandi laugardag í Varöarhúsinu við Kalkofnsveg. Dronning Alexandrine fer frá Kaupmannahöfn 8. þ. m., tveim dögum á undan áætl- un. Glímufélagið Ármann, IV. flokkur (drengir) æfing á morgun kl. 6J4 í Barnaskólan- um, bæði leikfimi og glíma. Knattspymufél. Reykjavíkur. Hlaupaæfing á rnorgun kl. io frá Barnaskólanum. Skólanemar velkomnir á æfinguna. Knattspy rn u æf ing úrvalsliðs K.R. verður kl. 10 í fyrramálið á íþróttavellinum. IþróttaVöllurinn verður oþinn til útiæfinga (lilaup o. fl.) frá lcl. 10—12 árd. á morgun. Dansskóli Ruth Hanson. Eins og auglýst var hér i blaðinu á miiðvikudag, byrjar dansskóli Ruth Hanson aítur eftir inflúensu- bannið í Iðnó á mánudaginn kl.4,6 og kl. 9. Nemendum verða endur- goldnar tvær æfingar, sem þeir mistu úr í febrúar. Barnanemend um tvær fyrstu æfingarnar, en fullorðnum nemendum með 1. og' 4. æfing, til þess að þeir missi ekki úr skemtidansæfinguna. Einni ig hefir verið auglýst kensla í lát- liragðslist (Plastik), bæði fyrir konur og karla (byrjendur) í leik- fimiissal Mentaskólans á laugar- dögum kl. 6—7, einnig einkatimar í dausi. Uppl. í síma 159. Áheit og gjafir til fríkirkjunnar í Reykjavík: 5 kr. frá G. G., 10 kr. frá ó- nefndri, 10 kr. frá E. S., 25 kr, frá H. Á„ 43 kr. frá J. J. Alls 93 kr. — Með þökkum meðtekið. Ásm. Gestsson. Áheit á Strandarkirkju afh. Vísi: 10 kr. frá L. T. 5 kr. frá N. N. frá Seyðisfirði, 30 k.r. frá Á. G. 5 kr. frá S. Áheit á Hallgr'miskirkju í Reykjavík, afh. Vísi, 5 kr. frá K. „Morgnnblaðið" og „Merkúr“. I Morgunblaöinu 31. jan. s. 1. birtist grein, sem heitir „Samein- ing verslunarskólanna í Reykja- vík.“ Er þar átt við Verslunar- skólaiín og Samivinnuskólann. Greinin segir frá fundi, sem versl- unarmannafél. Merkúr hélt 27. jan. s. 1. til að ræða þetta mál. Á fund1 þennan var nemendum Samv.skó- ans og Verslunarskólans boðið, og mættu þeir all margir. I grein þessari segir, að nen> endur Samivinnuskólans hafi hald- ið því fram, að Samvinnuskólinn væri pólitískur, og „að samvinnu- menn þyrftu að liafa pólitískan skóla til þess aö ala upp pólitíska fylgismenn." A öðrum stað í greininni segir svo, að Samv.skólinn sé „fræðslu- stofnun fyrir þá stefnu, sem á að útþurka íslenskt þjóðerni, hneppa landsmenn í viðjar einokunar og allskonar þjóðnýtingar." Slík.um- mæli og slika frásögn, sem þetta, teljum við okkur skylt að leið- rétta og skýra með nokkrum orð- umi. Við höfum dregiö að svara greininni í nokkra daga sökum þess, að við væntum, að stjórn Merkúrs myndi leiðrétta frásögn- ina um fundinn, en þar sem það er séð orðið, að hún gerir það ekki, þá ifellur það vitanlega í okkar hlut að gera það, saman- ber efni greinarinnar. En um leið, verðum við að skoða stjórn Merk- úr samþykka greininni, og jafn- vel, að hún hafi lagt til efniö í liana. Hér er um tvent að ræða, sem snertir okkur nemendur Samv.- skólans. Annað sem; snertir alla nemendur skólans, en hitt, sem snertir aðeins okkur þrjá, sem létum í ljósi skoðanir okkar á fundinum. Það sem snertir okkur. þrjá, er það, að við höfuro haldið þvi fram á fundinum, að Samv.skólinn væri pólitiskur og þyrfti að vera það. Þetta er meö öllu rangt. Samv.skólinn ,er ekki pólitískur, og við sögðum aldrei að hann væri það, og heldur ekki nokkur orð í þá átt. Og þvi til sönnunar og málinu til skýringar, skulum við nefna hér aðal rök okkar gegn málinu á fundinum, og gegn því, að samþykt yrði tillaga á þessumi fundi urn að sameina áðurnefnda skóla: 1. Við álitum það heimlskulegt frumhlaup, af verslunarmannafél Merkúr, að lioða til fundár ein- ungis með nemendum nefndra skóla í þeimi tilgangi, að láta sam- jiykkja tillögu um að sameina skólana. Nær hefði verið, að boða á fund kennara eða þá sem að skólunumi standa. Vildum við þ hvorki greiða atkvæði með eða móti slíkri tillögu. 2. . Við álitum .skólana að því leýti gjörólíka, að annar væri tveggja vetra skóli, en hinn þriggjá vetra skóli. Annar tæki við börnunum strax úr barna- skólanum, en hinn sæktu aö eins jMoskaðir menn, flestir um og yfir tvítugt. Við hugðum að af sam- einingu skólanna hlyti að leiða lireyting á báðum, en þvi værumi við á móti. Vildum aðeins tveggja vetra skóla fyrir þroskaða menn. 3. Við hefðum ekkert undan Samv.skólanum að kvarta. Værum ánægðir að nema i honum, því við álitum hann góðan, og hefðum síst von um að einn sameiginleg- ur verslunarskóli yrði betri. 4. Við töldum, að skölarnir byggju m|enn undir ólíkan starfa, og ]iað væt'i nauðsynlegt að hver heilljrigð vferslunarstétt hefði tækifæri til að skapa sér sem hæf- asta starfsmenn. Keiíslan í skólan- um hlyti að vera jafn ólík og samvinnuverslun og einstaklings- verslun. Báðir skólarnir veittu að vísu fræðslu í almennri verslunar- fræði, en annar legði meiri áherslu á það, sem að hinn! legði ininni á- herslu á, og'. svo aftur gagnkvæmt. Annar byggi menn sérstaklega undir að reka verslun fyrir aðra, en hinn sérstaklega, undir að reka verslun fyrir sjálfan sig. Töldum að þetta stafaði eðlilega af því, að hér í landi væri tvenskönar vers.1- unarfyrirkomlulag. — Samvinnu- verslanir og einstaklings verslanir — og meðan að það væri, væri ekkert sjálfsagðara en það, að skólarnir væru tv.eir, eins og þeir nú væru. Margt fleira mætti nefna gegn þeirri fjarstæðu, að sarheina hina tvo nefndu skóla, en þar sem uin er að ræða sérstakan fund, tökum við aðeins það sem fram kom á fundinum. Hafi nú þessi eða þau önnur orð cr við töluðum á fundinuml, Útsala í dag í § Lífstykkjábúðinni, Austurstpæti 4t. M M M Tanan og ábyggilegan mjaltamann vantap nú þegap að Kleppi. Upplýsingap geiup Þörður Sveinsson, læknir. Nokkra vana linumenn vantav atrax á 30 tonna vélabát er gengur frá Sandgerdi. Upplýsingar á Vesturgötu 12. Atvinna. Nokkrir vanir handfærafiskimenn verða ráðnir ti,l Isa- f jarðar. — Góð kjör í boði. Uppl. verða gefnar í Yersl. „Grettir“, Grettisgötu 45. — Sími 570. gefið tilefni til þess, aö bera okk- ur fyrir ósannindum urn, Sam- vinnuskólann, þá hlýtur það að stafa af því, að sumum mönnurn er gjarnt til að misskilja, eða þá af því, að þeir þykjast misskilja, til að geta breitt yfir það, sem þeir segja vísvitandi ósatt. Síðara atriði í grein Morgun- blaðsins, sem snertir óneitanlega allan skólann — að Samv.skólinn sé fræðslustofnun fyrir þá stefnu, sem útþurki íslenskt þjóðerni og hneppi landsmenn i viðjar ein- okunar — er nátturlega ekki ann- að en ómerk orð, sem fyr eru kun;i frá því blaði, spm flytur þau nú. En útaf þeim, viljum við leyfa okkur að spyrja þá menn, sem virðast helst vilja velja sér óvönduð stóryrði í riti, hvort þeir haldi, að það geti ekki snert ónota- lega hjartsýna æskumenn, er sagt er um þá, að þeir séu að læra aö „útþurka íslenskt þjóðerni og hneppa þjóð sína í viðjar einok- unar.“ Hvað getur snert sanna æskumenn ef ekki þetta? Það er alment viöurkent, að þegar að bygt er af miklum van- efnumi ])á hrynur byggingin af sjálfu sér, og það oftast fljótt. Svo mun það einnig ■ verða liér. Merkúr hefir hrönglað upp stóru máli úr litlu efiii og ]ivi mun það að litlu verða. Fljótt bar á því hvað hyggilega var af stað farið. Á fundinum hafði aðallega orð fyrir Merkúr mjög ókurteis og ógætinn ungling- ur, Sigurður Jóhannsson. Hann heilsaði okkur með ])ví, að veit- ast að okkur og rekstri Saniiviimu- skólans, auðvitað xiiieð svipuðum orðum og stahda í Morgnublaðs- greininni, og ])ess utan mörgum fleirum sist betri, ásamt röngum töluupphæðum um reksturskostnað skólans. Deildi hann mjög mikið á hagfræðiskenslu Samvinnuskól- ans, af því, að hann hélt, að hag- fræðina kendi miaður sen) farimi er frá skólanum fyrir mörgum árúnn. Má af þessu marka þekk- ingu drengsins á því efni sem hann talaði um. Ekki sagðist nú stjórn Merkúr vilja taka ábýrgð á orðum ])essa drengs, en þar seni hún neitar að leiörétta ósatin- indi í Morgunblaðsgreininni, verð- ur hún þó að mipsta kosti að skoðast senr samþykk þeini, og jafnvel að hún hafi gert það af ráðnum hug, að láta helst dreng þennan hafa orðið á fundinum. Það var nátturlega gott að hafa hami' „fyrir blóra.“ Hljótum við því að líta á Sig- urð Jóhannsson sem aðal fulltrúa Merkúr á þessum fundi. Við viljum að síðustu þakka stjórn Merkúr fyrir sína. hreinu!! framkomu gagnvart okkur. Vilj- um einnig geta þess, að við sótt- urni umgetinn fund einungisi vegna þess, að viö hugðuim, að þar yrði rætt ákveðið málefni, og ann- að ekki. Vart niun nokkur íundar- maður geta sagt, að frá Samvinnu- skólanemenduni hafi ifallið eitt ókurteist eða ósatt orð í g'arð Merkúr eða Verslunarskólans en. livað sagði Sig. Jóhannsson um Samivumuskólann. Ekki þarf að endurtaka orð lians hér — þau standa i Morgunblaðsgreininni. Má ])ví segja, að ekki reyníst málshátturinn sannur: Eíns og þú heilsar öðrum svo ávarpa þeir þíg'“ Mun það alment áiit kunnugra, að verslunarmamiafélagið Merkúr, eða þeir úr þvi sem fyrir mótt þessu stóðu, hafi farið hér litla frægðariör. Fimdinum lauk meS því, að aðalmiaðúrinn, Sig. Jó- hannsson hraktist af fundi. Treystist ekki til að standa við orð sín, og tók þann kostinn aö flýja. Svo er gripið það vand- ræða úrræði, að láta hlaðagrein, „dekka“ ósigurinn með því að rangfæra og segja ósatt. Vonandi er að Merkúr fari betur á stað næst. Byggi þá traústara en nú. og noti ekki sem máttarviði Morgunhlaðið og Sigurð Jóhanns- son. Rvík 14. febr. 1929. Þrir fundarmenn úr Samvinmi- skólánum. Stefán Jpnsson, Eggert Bjarnason, Ásgeir Pétursson. Ath. „Vísi“ ])ótti ekki allskostar sanngjarnt, að neita um rúm fyrír framanskráða ritsmið, en að sjálf- sögðu er stjórn Verslunarmanna- fél. ,,Merkúr“ heimilt rúm hér. í blaðinu til andsvára, ef hún skyldí óska ])ess. Ritstj.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.