Vísir - 06.04.1929, Qupperneq 2
VlSIR
DRENGJAF0T
(blússu- og jakkaföt) erú nýkomin i
Vepslun Ben. S. Þóparinasonap,
basði með löngum og stuttum skálmum,
Verðið að venju hið besta.
Landsins besta ullarband er nýkomið, í verslun
Ben. S. Þórarinssonar. Skín í öllum regabogans litum.
Nýkomid:
Amerískt
Símskeyti
—X—
Khöfn 5. apríl. FB.
Gróðrabrall í New York.
Frá YVashington er símað:
Forstjórar Federal Reserve
bankanna komu saman á fund
hér í gær til þess að ræða erf-
iðleika, sem mikið gróðabrall
á kauphöllinni í New York hef-
ir valdið á peningamarkaðin-
um. Margir óttast, að gróða-
brallið muni enda með stór-
kostlegu hruni, sem fái alvar-
legar fjárhagslegar afleiðing-
ar. Federal Reservæ bankinn
hafði margsinnis varað við
gróðabrallinu.
Grikkir og' Júgóslafar.
Frá Berlín er símað: Samn-
ingur sá, sem áður hefir verið
getið i skeytum, á milli Júgó-
slafíu og Grikklands, hefir ver-
ið birtur. Samningurinn er
ekki bandalagssamningur, en
ákveður, að deilumál Grikk-
lands og Júgóslafíu skuli jöfn-
uð á friðsamlegan hátt. Búast
menn við, að samningurinn
muni styrkja góða sambúð
Grikklands og Júgóslafíu, sér-
staklega þar sem Grikkir liafa
nýlega leyft Júgóslafíu að hafa
frihöfn í Saloniki.
Frá Alþingi
í gær.
Efri deild.
Kvikmyndir. — Mentmn. hef-
ir klofnað um frv. til 1. um
kvikmyndir. Lagði meiri hl.
nefndarinnar með því, en vildi
þó gera við það nokkurar hreyt-
ingar. Voru þeirra helstar þær,
að kvikmyndahúsum megi í-
vilna uín skatt, þegar sýndar
eru myndir með íslenskum
texta og að bæjarfélögum sé
lieimilt að taka að sér einka-
rekstur á kvikmyndahúsum í
umdæmi sínu, þegar leyfi falli
niður. Voru báðar þessar breyt-
ingar samþ.
Minni hl. nefndarinnar, Jón
Þorl., taldi frv. gersamlega ó-
tækt og vildi fella það. Fylgdu
lionum allir íhaldsmenn. Telur
hann rétt að kvikmyndasýning-
ar verði frjáls atvinnugrein
innan þeirra takmarka, sem
bæjarstjórnir setja hver í sinu
umdæmi, eins og verið hefir
liér á Iandi. Myndskoðun taldi
hann óþarft að koma á hér á
landi og mundi það einungis
leiða til hins verra. Myndskoð-
un væri nú framkvæmd í flest-
um löndum og væri okkur hag-
kvæmara að byggja á þeirri
skoðun, en fara að káka við
slíkt sjálfir. Skattinn á kvik-
mjmdahúsin taldi hann óhæfi-
lega háan og mundu þau ekki
fá undir risið nema með því að
hækka verð aðgöngumiða. Eft-
ir frv. yrði hann yfir 15 þús. kr.
á Nýja Bíó, en yfir 18 þús. kr.
haframjöl,
gott og ódýpt
á Gamla Bió. Nú greiða þau
760 kr. sýningargjald í bæjar-
sjóð.
Frv. var samþ. til 3. umr.
með breytingum meiri hluta.
Frv. til 1. um forkaupsrétt
kaupstaða og kauptúna á hafn-
armannvirkjum o. fl. var samþ.
til 3. umr. með einróma atkv.
Neðri deild.
Landbúnaðarbankinn. — Frh.
2. umr. um bankafrv. stjórnar-
innar fór fram í gær og entist
út fundartímann. Voru menn
sammála um nauðsynina á
slíkri hankastofnun og öll aðal-
atriði frv. Var einkanlega deilt
um þá brtt. nefndarinnar, að
heimila smábáta útvegsbændum
utan kaupstaða rekstrarlán úr
bankanum. Þótti meðmælönd-
um till. það geta styrkt töluvert
rekstrarlánafélögin að fá þá
menn i þau, og yrði það auk
þess útveginum til hags. And-
mælendur töldu ilt að fara að
hleypa sjávarútvegi inn i þessa
stofnun; væri henni ætlað ger-
ólíkt ldutverk og mundi féð
hrökkva skamt til hjálpar út-
gerðinni. Fór svo, að brtt. var
feld. Samþ. var brtt. frá Halld.
Stef. um að breyta nafni bank-
ans; lieitir liann nú Búnaðar-
banki. Hafði komið fram ósk
um það frá stjórn Landsbank-
ans, er taldi nöfnin of • lík.
Stofnfé veðdeildar var minkað
ofan i kr. 1,250,000 úr 2 milj.
Átti að taka Kirkjujarðasjóð
sem stofnfé deildarinnar, en
það þótti nefndinni ekki rétt.
Sjóðinn skal þó ávaxta í bank-
anum eftir því sem hægt er.
Ýmsar smærri breytingar voru
gerðar á frv.
Ný frumvörp.
1. Frv. til 1. um breytingar á
1. um tekjuskatL Flm.: Gunnar
Sigurðsson.
2. Frv. til 1. um breyting á 1.
um skipun barnakennara og
laun þeirra. Flm.: Ásg. Ásg.
3. Frv. til I. um heimild fyrir
ríkisstjórnina til þess að selja
Siglufjarðarkaupstað land
prestsetursins Hvanneyri. Flm.:
Jón Þorl.
Götonmferðin
í Reykjavík.
‘—x—
Nröurlag'.
Götuvarslan.
Lögregluþjónar þeir, sem settir
eru til þess, aS gæta reglu á göt-
unni, eiga aS sjálfsögiSu, að hafa
eftirlif meS því, aS bílstjórar hagi
sér samkvæmt þeim reglum, sem
þeim eru settar, og a'ö þeir hagi
svo feröum sínum, at5 þeir valdi
fólki sem minstra óþæginda. Þeim)
(lögr.þj.) ætti t. d. að' vera heim-
ilt, að banna bílaumferð, þar sem
margt fólk safnast saman við há-
tíðleg tækifæri, eða til að njóta
einhverrar skemtunar í góðu næöi,
svo sem viS Austurvöll, þegar þar
er leikið á lúðra.
En jafnframt því, sem lögreglu-
j'jónar eiga aö gæta þess, aö bíl-
stjórar gein skyldu sína gagnvart
borgurununr, eiga þeir a'ö vera bíl-
stjórunum til aöstoöar meö hvers-
konar leiöbeiningar, sem þeir geta
veitt þeim. Einkum er bílstjórum
nauösynlegt aö fá áreiðanlegar og
fijótar leiðbeiningar á fjölförnum
krossgötum, en sú viðleitni, sem
hingað til hefir verið gerð í þá átt,
er hin mesta ómynd.
Lögregluþjónar bæjarins eru yf-
irleitt hraustir menn, og að upp-
lagi vel hæfir til starfa síits, og
þar til fyrir fáum árum, voru við-
íangsefni bæjarlífsins, er sérstak-
lega snertu starf þeirra, ekki svo
miargbrotin, að neinnar sérstakrar
æfingar eða sérþekkingar þyrfti
við, til þess áð geta leyst þau störf
’ sæmilega af hendi. En við stækk-
un borgarinnar' og aukna umferð,
hefir skapast nýtt viðfangsefni,
sem lögregluþjónar verða beinlín-
is að læra að fara með, en það er
stjórn umferðar á fjölförnum
krossgötum, og að meiri árvekni
yfirleitt er nauðsynleg, en fámeiui-
ið krafði.
Það ber viö, að lögregluþjónar
em sendir út á krossgötur í þessu
skyni, en það verður ekki séð, að
þeir hafi fengið glöggar fyrirskip-
anir um það, hvað þeir eiginlega
eiga þar að gera, því það er al-
gengast, að sjá þá standa þar
hreyfingarlausa, með báðar hend-
ur í vösum, og starandi á umlferð-
ina, eins og hver annar áhorfandi,
í stað þess að gefa talf'arlaust
giögga bendingu hverjum bxl, sem
að kemur, hvort hann megi halda
áfram í þá átt, sem hannl óskar,
eða verði að stansa, meðan aðrir
komast fram hjá.
í þessu sambandi verður að geta
]:ess, að það er mjög nauðsynlegt,
að ökumenn — bílstjórar og aðrir
— gefi glögt merki, þegar þeir
koma að gatnamótum, um það,
hvort þeir ætli að beygja eða halda
beint áfram. Þetta er nauðsynlegt,
bæði fyrir þaiui lögregluþjón, sem
þar kann að vera á verði, svo og
fyrir vegfarendur yfirleitt, sem þá
geta farið öruggari leiðar sinnar,
þegar þeir vita, hvert vagninn ætl-
ar að halda. í opnum vögnum er
hægft að gefa þetta merki mleð
liendinni, en í lokuðum1 bílum er
það ekki hægt, og þarf því að
setja á þá útbúnað, til að gefa
merki með.
Eg vil í þessu sambandi leyfa
mér að benda á (og vona að eng-
inn taki það, eða annað, sem hér
er sagt, til sín sem móðguní, því að
þannig er það ekki meint), að það
er frenuir óviðfeldið, og fyrir út-
lendinga beinlínis broslegt, að sjá
lögregluþjón á verði, með hend-
urnar t vösunum, og kápuna flaks-
andi óhnepta, og hygg eg að það
sé hvorki leyft né liðið annarsstað-
ar en hér. Hinsvegar má ekki ætla
Iögregluj)j. að liafa hendurnar
hangandi allan tímann, án þess að
geta öðru hvoru fengið þá hvíld
fyrir þær, sem þeim að öðrum
kosti hætir við að leita að í vas-
anum, en úr því má bæta, með því
að hafa um sig belti, sem gjarn-
an mætti vera áfast við treyjuna
(eða kápuna) að aftan, svo að eklci
væri hægt að ná þar handfesti, en
laust við að framan og aftur með
hliðunum, eftir því sem henta
þætti, og má þá hvíla henidurnar,
í stað þess að láta jiær í vasa, með
því að halda um þetta belti, og er
algengt að sjá lögregluþjóna þann-
ig útbúna annarsstaðar.
Það er í sjálfu sér mjög eðli-
legt, að hér sé í mörgu áfátt, áð
því er snertir meðferð hinna ýmsu
málefna bæjarins. Vér vorum orðn-
ir svo vanir deyfðinni og tilbreyt-
ingarleysinu, sem búið var að ríkja
hér öldumi sarnan, að það er eins
og vér höfum vaknað upp af löng-
um og þungum svefn.i, og séúm
j enn að núa stýrurnar úr augunum,
og reyna að átta okkur á hvað
gerst hafi. Og vér sjáum, að Reyk-
javíjc hefir á örfáum árum tekið
svo risavöxnum framförum, að
helst líkist æfintýri, og vér eruni
smátt og smátt að læra, að þessi
skyndilega breyting á bæjarlífinn
og kringumstæðum hans, hefir
skapað ný viðfangsefni, sem vér
þurfum að læra að fara með, þau
útheimta meiri árvekni, meiri
liraða við störfin,, og meiri ná-
kvæmni. En þó eru þau engan veg-
inn svo stórvaxin, að þau séu ekki
vel viðráðanleg, ef samvinnan er
góþ milli borgaranna og þeirra
manna, er þeir hafa falið að gæta
góðrar reglu í bænum.
Víðförli.
Knattspyrnnkappleikur
á morpn.
í íjnróttalífinu er það örugt
merki um komu vorsins, þegar
knattspyrnumeimirnir byrja að æfa
sig — en vorið er snemma á ferð-
inni í þetta sinn og á morgun verð-
ur líka fyrsti knattspyrnukappleik-
urinn á árinu.. Eru þaö stúdentar
og mentaskólapiltar, sem ætla að
keppa umi það, hvor hafi betur í
knattspymu, svo að bæjarbúum er
boðið upp á skemtunl af nýstár-
legra tæinu, því að það hefir ekki
komið fyrir áður, að þessir tveir
aðilar reyndu með sér á þessu
sviði. Var mönnum þó kunnugt, að
mikill áhugi hefir að tmdanförnu
verið meðal stúdenta og skólapilta
íyrir Öllum íþróttum og að þeir
eiga marga góða og efnilega knatt-
spymjhmlenn, hvor í sínummi hóp.
Kappliðin, sem keppa á morgun,
verða þannig skipuð:
Lið stúdenta: Þórir Kjartansson
(Vík.) markv., Bjarni Oddsson
(K.R.) og Jóhannes Bjömisson
(K.R.) hakverðir, Óskar Þórðar-
son| (K.R.), Óli Hjaltested (Vík.)
og Baldur Steingrímsson (K.A.)
miðfr.verðir, Jónas Thoroddsen
(Vík.), Hinrik Jónsson (Þór), Ól-
afur Jónsson (Val), Alfred Gísla-
son (Vík.) og Bragi Steingríms-
son (K. A.) framherjar.
Lið skólapilta: Þorsteinn Björns-
son (K.H.) markv., Jón Sigui'ðs-
son (Val) og Baldur Johnsen1
(Vík.) bakverðir, Björn Sigurðs-
son (Val), Kristján Garðarsson
(Val) og Guðm. Sigfússon (K-N.)
miðfr.verðir, Jón Eiríksson (Val.),
Magnlús V. Magnússon (Vík.),
Björni Fr. Björnsson (Vík.), Árni
Jónsson (Þór) og Bjarni Guð-
björnsson (Val) framherjar.
Eins og sjá má, eru flestir knatt-
spýrnumaninanna héðan úr bænum,
en sumir þeirra úr félögum utan
af landi, Knattspyrnufelagi Aku -
eyrar (K.A.), Norðfjarðar (K.N.),
Hafnarfjarðar (K.H.) og Þór,
Vestmiannaeyjum.
Dómari verður Axel Andrésson,
verslunarmaður.
Allur ágóði af kappleiknum
rennur í Bræðrasjóði Háskólans
og Mentaskólans.
Borðvogir „Beranger"
sem ern þær bestu 10 og 15
kg. Reislur, og Tugavoglr
250 kg. Lóðarkassar, Vogar^
ldð. Mlkið firval. Lágt verð.
Versl. B. H. Bjarnason.
□ EDDA 5929497 = 5.
Dánarfregn.
Frú Sigurlaug Sigurgeirsdótt-
ir, kona Guömundar Bergssoa-
ar póstmeistara andaðist í nóit.
Messúr á morgun.
í dómkirkjunni kl. n, síra Frið-
rik Hallgrímsson. Kl. 5 síra Bjarni
Jónssoni.
í fríkirkjunni kl. 2, -síra Árni
Sigurðsson.
í Landakotskirlcju: Hámiessa kl.
9 árd. og k'l. 6 síðd. guðsþjónusta
með prédikuni.
í spítalakirkjunni í Hafnarfirði:
Hámessa kl. 9 árd. og kl. 6 síðd-
guðsþjónusta með prédikun.
Sjómannastofan.
Guðsþjónusta á morgun kl. 8
(ekki kl. 6) í Varðarhúsinu (rétt
hjá Verkamannaskýlinu). — Jóhs.
Sigurðsson og Alfred Petersen
tala. — AÍlir velkomnir.
Veörið í morgun.
Hiti um land alt. í Reykjavík
7 st.,' ísafirði 4, Akureyri 6,
Seyðisfirði 6 (engin skeyti frá
Vestmananeyjum og Kaupmli.),
Stykkishólmi 6, Blönduósi 6,
Raufarhöfn 5, Hólum í Horna-
firði 6, Grindavík 7, Færeyjum
7, Julianehaab -t- 5, Angmag-
salik 0, Jan Mayen ~ 5, Hjalt-
landi 6, Tynemouth 1 st. —
Mestur liiti hér í gær 9 st„
minstur 4 st. Úrkoma 0,2 mm.
Grunn lægð suðvestur af
Reykjanesi á norðausturleið. —
Horfur: Suðvesturland, Faxa-
flói: 1 dag og nótt vaxandi suð-
austan átt, sennilega allhvass og
rigning með nóttunni. Breiða-
fjörður, Vestfirðir: í dag og
nótt hæg austan átt. Vaxandi
með nóttunni. Úrkomulitið.
Norðurland, norðausturland,
Austfirðir: í dag og nótt vax-
andi sunnan og suðaustan átt.
Úrkomulaust. Suðausturland: 1
dag og nótt vaxandi sunnan og
suðaustan átt. Rigning með
nóttunni.
Trúlofun
sína hafa öpinberað ungfrú Guð-
rún Hjörleifsdóttir og F. Steins-
son, Grettisgötu 44.
Sigurður Erlendsson
bóksali er áttræður í dag, fædd-
ur 6. apríl 1849. Hann var farand-
hóksali í 39 ár, og ávann sér hyllí
almennings fyrir ráðvendni og
áreiðanlegleik í viðskiftum. Þessí
kyrláti maður dvelur nú á Ellí-
heimilinu Grund. Megi einlægar
heíllaóskir frá hinum mörgu, er
lcyntust honum, sveipa elli hans